Fréttablaðið - 04.08.2012, Page 54

Fréttablaðið - 04.08.2012, Page 54
4. ágúst 2012 LAUGARDAGUR42 PERSÓNAN „Ég held nú að texti lagsins sé ekki móðgandi fyrir neinn en taki honum einhver illa verð ég bara að vera maður til að taka því. Við erum nú bara að reyna að hafa gaman,“ segir söngvarinn Friðrik Dór um nýjasta lag sitt, Al Thani. Friðrik skiptir um gír í nýja laginu og er það öllu svæsnara en fyrri verk hans. „Ég myndi aldrei semja svona lag sjálfur. Strákarnir í StopWaitGo sömdu þetta og báðu mig um að prófa að flytja það. Við vorum svo ánægðir með útkomuna að við ákváðum að gefa það út,“ segir hann. Lagið er nokkurs konar greddu- popplag og textinn fjallar í grófum dráttum um föngulega kvenmenn. Friðrik segir það þó trufla kærustuna sína lítið. „Hún hefur litlar áhyggjur af þessu. Textinn er í raun bara fullur af einhverju gríni. Við erum bara að djóka og vera sniðugir,“ segir hann. Aðspurður hvort þetta sé ný tónlistarstefna sem hann hyggst halda áfram að fylgja neitar hann því. „Næsta plata verður engin rapp- plata en hún verður samt mun fjölbreyttari en síðasta. Það sýnir sig bara í því að Stop- Wait Go og Ólafur Arnalds eru meðal þeirra sem semja efni á plötuna, en þú finnur varla ólíkari menn í tónlistinni,“ segir hann en nýja platan er væntanleg á haustmánuðum. Það verður nóg að gera hjá Frikka Dór um helgina en hann spilaði á Akureyri á fimmtu- dagskvöldið, var í Vestmannaeyjum í gær og verður á Neskaupstað í kvöld. „Ég hugsa að ég fari svo upp í bústað á sunnudaginn og slappi af,“ segir hann að lokum. - trs Framtíð Frikka ekki í greddupoppinu Í NÝJUM GÍR Nýjasta lag Frikka Dórs, Al Thani, er mjög ólíkt öðrum sem hann hefur gefið út en það er rapplag sem er samið af strákunum í StopWaitGo. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Erlingur Óttar Thor- oddsen Starf: Kvik- myndagerðar- maður. Búseta: New York á veturna og Reykjavík á sumrin. Foreldrar: Elín Margrét Erlings- dóttir, lánafulltrúi hjá Íslandsbanka, og Björn Thoroddsen djasstónlistar- maður. Fjölskylda: Einhleypur. Stjörnumerki: Naut. Erlingur Óttar tekur þátt í Nordic Talents Pitch-keppninni í Kaupmannahöfn með hrollvekju sinni. „Ég ákvað að bjóða nokkrum íslenskum stelpum sem búa í Los Angeles heim til mín. Við vorum tíu stelpur sem hittumst heima hjá mér þetta kvöld, sumar þekkti ég lítið sem ekkert en aðrar eru mjög góðar vinkonur mínar,“ segir söngkonan Svala Björgvinsdóttir sem kom á fót íslenskum saumaklúbbi í Los Angeles. Svala bauð meðal annars til sín æskuvinkonu sinni Dröfn Ösp Snorradóttur, útvarpskon- unni Röggu Þórðarson og þrí- eykinu í stúlknasveitinni The Charlies. Boðið átti sér stað í lok júlí og heppnaðist svo vel að stúlkurnar ætla að reyna að hittast mánaðarlega héðan í frá. „Stefnan er að gera þetta mán- aðarlegt en við sjáum til hvort það gangi upp, við erum allar svo uppteknar. Þetta var ofsa- lega gaman og manni leið svo- lítið eins og maður væri kom- inn heim til Íslands, sérstaklega þegar rækjusalat og Ritz-kex var borið á borð, þá var maður bara kominn heim,“ segir Svala glað- lega og viðurkennir að það hafi verið notalegt að eyða kvöldstund með samlöndum sínum svo fjarri heimahögunum. - sm Rækjusalat og Ritz-kex í LA SKEMMTILEGUR HÓPUR Svala Björgvins- dóttir söngkona stefndi saman nokkrum íslenskum stúlkum sem búsettar eru í Los Angeles og bjó til saumaklúbb. „Í alvöru?“ spyr Edda Björgvins- dóttir leikkona þegar henni er tjáð að fjórðungur þjóðarinnar hafi horft á hana fara á kostum í gamanmyndinni Stellu í orlofi sunnudaginn 29. júlí á RÚV sam- kvæmt fjölmiðlakönnun Capa- cent Gallup. Kvikmyndin er frá árinu 1986 og er óhætt að segja að hún eigi sérstakan stað í hjörtum landsmanna. Edda nýtti tækifærið og horfði á myndina í fyrsta sinn í svoköll- uðu Stellupartíi. „Þetta er held ég í fyrsta skipti sem ég sé hana í tuttugu ár og ég horfði ekki bara á hana heldur var ég í partíi og vinkona mín á Bolungarvík bauð öllum Stellum sem hún náði í og fullt af vinum og ættingjum. Þetta var í fyrsta sinn sem ég hef fengið að taka þátt í Stellupartíi með poppi og kóki,“ segir hún eldhress að vanda. „Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt. Ég hef oft öfundað fólk sem segist halda Stellupartí reglulega. Ég heyri líka oft um heilu Stellu- leikina og Stelluklúbbana og fæ bara tár í augun mér finnst þetta svo dásamlegt.“ En hvernig fannst fólkinu að horfa á ærsla- ganginn við hlið sjálfrar Stellu? „Ég held að þeim hafi fundist það alveg extra fyndið,“ svarar hún hlæjandi. En er von á þriðju myndinni um Stellu? „Það er innsta þrá mín að Stella og Salómon gerist fararstjórar á sólarströnd með ellilífeyrisþega. Það þætti mér dásamlegt og þar sem ég hef verið fararstjóri á ég svo margar hugmyndir og grín í þessa mynd og nú bið ég til Guðs að þau sem framleiddu myndirnar drífi í þessu,“ segir hún og bætir við að ungir krakkar kalli hana sí og æ nafninu Stella sama hve oft for- eldrar þeirra leiðrétti þau. -hþt Dreymir um þriðju myndina um Stellu STELLUPARTÍ Edda er betur þekkt sem Stella í orlofi. Fjórðungur þjóðar- innar horfði á samnefnda mynd fyrir skemmstu og þar á meðal Edda sjálf í svokölluðu Stellupartíi. „Næstu mánuðir verða teknir í líkams ræktarstöðinni,“ segir leik- arinn Damon Younger sem stefnir á að taka upp heilbrigðari lífsstíl til að koma sér í form fyrir tökur á fransk-íslenskri stuttmynd. Tvær stuttmyndir eru á dag- skrá hjá Damon á næstunni og er þeim báðum leikstýrt af konum. Myndin Leitin að Livingstone, sem er leikstýrt af Veru Sölvadóttur og skrifuð af henni og Þresti Leó, fer í tökur í lok ágúst og fjallar um tvo menn sem lenda í óvæntri vegferð. Fransk-íslenska myndin Conquest sem leikstýrt er af Magali Mag- istry fer svo í tökur fljótlega þar á eftir. Sú mynd fjallar um tvo vík- inga sem flytjast inn í nútímann og það hvernig samskipti þeirra breytast. Damon hyggst því koma sér í víkingaform fyrir tökur á myndinni. „Ég ætla að skella mér í ketilbjöllur og er að spá í að fara að æfa hjá Mjölni,“ segir hann en Mjölnismenn þjálfuðu hann fyrir bardagasenurnar í mynd- inni Svartur á leik. „Ég var alltaf að spyrja þá hvort ég liti nógu vel út til að vera svona hættulegur og þeir sögðu að ég gerði það,“ segir hann og hlær. Aðspurður hvort hann ætli að taka átakið alla leið með því að breyta mataræðinu og taka upp heilbrigðari lífsstíl í leiðinni segir hann það líklegt. „Maður þarf að vera fókuseraður í því sem maður gerir. Ég er ekki vanur að klikka á því.“ Damon er nýlentur aftur á klak- anum eftir að hafa skotist yfir til Danmerkur og leikið í stuttmynd- inni Mod Naturen. „Hún Stína Michelsen vinkona mín er annar höfundur myndarinnar. Hún hringdi í mig og bað mig að koma yfir í nokkra daga til að leika full- kominn mann, á dönsku. Ég flissaði bara eins og smástelpa og spurði hvort henni væri alvara,“ segir Damon og bætir við að það hafi verið furðulegt að leika á tungu- máli sem hann skilur ekki vel. „Ég tala enga dönsku, en það var gott fólk þarna sem hjálpaði mér og einn íslenskur tökumaður. Ég er með skóladönskuna svo ég skildi handritið að mestu og svo redd- uðum við þessu með því að breyta handritinu aðeins og ég lék Íslend- ing að tala dönsku,“ segir hann. Verslunarmannahelgin verður hin rólegasta hjá leikaranum, en hann hyggst njóta lífsins á mótor- hjóli í Hvalfirðinum með mynda- vélina og vin sinn Tomma með í för. „Við ætlum bara að fara út að leika í mótorhjólagallanum,“ segir hann að lokum. tinnaros@frettabladid.is DAMON YOUNGER: ÉG ER EKKI VANUR AÐ KLIKKA Á FÓKUSNUM SKIPTIR UM LÍFSSTÍL OG STEFNIR Á VÍKINGAFORM HOLLARI LÍFSTÍLL Damon Younger hyggst taka upp heilbrigðari lífsstíl fyrir hlutverk í víkingamynd. MYND/TOMAS PAPE

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.