Fréttablaðið - 04.09.2012, Síða 6
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR6
Kræsingar & kostakjör
Léttlopi 228 KR
ALLT Á PRJÓNANA Í NETTÓ!
Garndeildir Nettó | Reykjanesbær | Grindavík | Egilsstaðir | Akureyri | Mjódd | Grafarvogur | Borgarnes
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu rannsakar nú árás
á sex ára dreng síðastliðinn föstu-
dag. Lögreglumenn lásu um það
í Fréttablaðinu í gærmorgun að
þrír piltar hefðu ætlað að stela
bolta af dreng í Breiðholti og ráð-
ist á hann. Þeir hefðu sparkað í
kvið hans og andlit.
Í kjölfar fréttarinnar í gær
hófst lögreglurannsókn en engin
kæra barst lögreglunni vegna
málsins. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu hefur embættið ávallt
rannsókn leiði líkamsárás til bein-
brots. Í þokkabót á barn í hlut.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að drengurinn hefði bein-
brotnað í árásinni en í ljós hefur
komið að hann er tognaður og
fékk auk þess miklar blóðnasir.
Þórarinn Engilbertsson íþrótta-
þjálfari kom að árásinni og náði
einum gerendanna. Lögregla tók
af honum skýrslu í gær en ekki
hafði tekist að hafa uppi á foreldr-
um gerendanna síðdegis í gær. Þá
virðist sem fjölskylda drengsins
sem fyrir árásinni varð hafi farið
af landi brott um helgina.
Vísir greindi frá því í gær að
foreldrar fórnarlambsins vilji
leita lausna í málinu með for-
eldrum piltanna sem réðust svo
harkalega á drenginn.
Lögreglan vann að rannsókn
málsins í allan gærdag án árang-
urs. Hún biður þá sem kunna að
hafa upplýsingar um málið að
hafa samband í síma 444-1000.
- bþh
Lögreglunni hefur ekki orðið ágengt í rannsókn á árás á barn í Breiðholti:
Árásin ekki tilkynnt til lögreglu
Á LEIKVELLI Árásin á drenginn er litin
alvarlegum augum hjá lögreglunni sem
rannsakar málið. Myndin tengist frétt-
inni ekki beint.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MENNTUN Átta íslenskir nemendur
hefja á næstu dögum læknanám í
Martin í Slóvakíu en inntökupróf
í skólann þar voru haldin hér á
landi fyrir skömmu.
Ellefu íslenskir stúdent-
ar þreyttu inntökuprófið. Átta
þeirra stóðust prófið og fá þeir að
vera saman í hópi.
Runólfur Oddsson, ræðismað-
ur Slóvakíu á Íslandi, segist hafa
fengið gríðarlega góð viðbrögð
við námsleiðinni ytra og margir
nemendur sem hefja nú sitt síð-
asta ár í menntaskóla hafi haft
samband og forvitnast um hvort
námið verði í boði á næsta ári.
„Á næsta ári verður boðið upp
á mun fleiri sæti fyrir Íslend-
inga,“ segir Runólfur. „HÍ á ekki
möguleika á að taka inn nema lít-
inn hluta af þeim sem hafa áhuga
á þessu námi.“ - bþh
Ellefu þreyttu inntökupróf:
Átta stúdentar
í nám í Martin
PORTÚGAL, AP Skógareldar geisa
víða í Portúgal vegna langvar-
andi þurrka, sem spáð er áfram
næstu daga.
Stjórnvöld hafa leitað til nokk-
urra Evrópuríkja um aðstoð við
að halda eldunum í skefjum.
Í gær lét bóndi nokkur lífið
þegar hann reyndi að slökkva
elda við bæ sinn skammt frá
Ourem. Einnig varð slys á tveim-
ur mönnum þegar þyrla, sem
notuð var við slökkvistörf, hrap-
aði á svipuðum slóðum.
Meira en 1.700 slökkviliðsmenn
hafa unnið við slökkvistarfið,
með nærri 500 bifreiðar og þrett-
án flugvélar til afnota.
Portúgalar hafa meðal annars
beðið um að fá að láni að minnsta
kosti fjórar flugvélar, sem hægt
væri að nota til að varpa vatni á
eldana. - gb
Portúgalar biðja um aðstoð:
Erfið barátta
við gróðurelda
Á að vera ákvæði um þjóð-
kirkjuna í stjórnarskránni?
JÁ 56,6%
NEI 43,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefurðu eldað makríl?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
KJÖRKASSINN
SKATTUR Skattaskjólsmálum sem
komið hafa til rannsóknar hjá
skattrannsóknarstjóra fjölgar
stöðugt og þau eru nú orðin sjö-
tíu til áttatíu.
„Þessi mál hafa
verið að ber-
ast embætt-
inu jafnt og
þétt frá hruni.
Mér sý n i s t
enn ekkert lát
vera á þessu,“
segir Bryndís
Kristjánsdótt-
ir skattrann-
sóknarstjóri.
Rannsókn er lokið í rúmlega
þrjátíu málum. Tæplega þrjátíu
önnur eru til rannsóknar og er
rannsókn sumra þeirra langt á
veg komin. Til viðbótar bíða tíu
til tuttugu rannsóknir, að sögn
Bryndísar.
Embætti skattrannsóknarstjóra
telur að í stærstu málunum hafi
ekki verið greiddur skattur af
milljörðum króna. „Þetta er frá
því að vera tiltölulega lágar fjár-
hæðir upp í milljarða. Í flestum
tilvikum er um að ræða aðila
sem hafa fjárhagslega burði til
að geyma fé í skattaskjólum og
stofna félög þar. Slíkt kostar tals-
vert.“
Bryndís getur þess að af þeim
þrjátíu málum sem lokið er hafi
verið fallið frá rannsókn í átta
tilvikum. Sjö málum hefur verið
vísað til sérstaks saksóknara.
Búið er að leggja á skatt í lang-
stærstum hluta þeirra mála sem
lokið er.
Nokkrir tugir mála vegna
undan skots frá skatti í sambandi
við afleiðuviðskipti og gjaldeyris-
brask hafa verið til rannsóknar
og er henni lokið í flestum þeirra.
Í þeim málum hefur einnig verið
um háar fjárhæðir að ræða, að
því er Bryndís greinir frá.
Hún segir hluta skattaskjóls-
málanna hafa komið upp á yfir-
borðið í kjölfar kreditkortamáls-
ins svokallaða.
„Ríkisskattstjóri óskaði eftir
yfirliti frá kreditkortafyrirtækj-
unum yfir aðila sem væru með
erlend kreditkort hér. Meðal
þeirra reyndist vera töluverður
fjöldi Íslendinga. Það var hins
vegar ekki nóg að fá upplýsingar
um notkunina á Íslandi. Talið var
að ef menn væru að nota nokkr-
ar milljónir hér þá væri notkunin
væntanlega ekki minni erlendis.“
Tengsl eru milli sumra skatta-
skjólsmálanna. „Ýmis gögn og
upplýsingar varðandi sum mál-
anna hafa leitt okkur inn í önnur.“
Bryndís segir langflest mál-
anna tengjast Lúxemborg. „Það
hefur mikið farið í gegnum
skattaskjólsfélög stofnuð þar
eða í gegnum bankana þar þótt
félögin tengist til dæmis Tortóla
eða öðrum skattaskjólum.“
Embætti skattrannsóknarstjóra
fær ekki upplýsingar frá Lúxem-
borg en Bryndís vonast til að
breyting verði á.
„Það er búið að gera viðbætur
við tvísköttunarsamninginn sem
ættu að leiða til þess að hægt
verði að fá upplýsingar frá tekju-
árinu 2011. Við höfum gert samn-
inga ásamt öðrum norrænum
ríkjum við mörg af skattaskjól-
unum. Hins vegar er ágreining-
ur við til dæmis Bresku Jóm-
frúareyjarnar um hversu langt
aftur samningurinn eigi að gilda.
Þeirra skilningur er að hann gildi
ekki aftur fyrir gildistöku samn-
ingsins.“
Það er ekki bara skortur á upp-
lýsingum sem tafið hefur rann-
sókn skattaskjólsmálanna heldur
einnig skortur á starfsmönnum.
„Sá viðbótarmannskapur sem
við fengum fyrir þetta ár og síð-
asta ár hefur skipt sköpum en við
þurfum fleiri.“ ibs@frettabladid.is
Skattaskjólsmálum
fer enn fjölgandi
Ekkert lát virðist vera á skattaskjólsmálum, að sögn Bryndísar Kristjánsdóttur
skattrannsóknarstjóra. Hátt í átttatíu mál komið til rannsóknar frá hruni.
Skattur ógreiddur af milljörðum króna. Sjö málum vísað til sérstaks saksóknara.
BRYNDÍS
KRISTJÁNSDÓTTIR
skattaskjólsmál hafa komið til rannsóknar hjá emb-
ætti skattrannsóknarstjóra í kjölfar bankahrunsins.
Lokið er rannsókn á rúmlega þrjátíu málum.70
SKATTASKJÓL ÍSLENDINGA Þræðir mála sem verið hafa til rannsóknar hjá embætti skattrannsóknarstjóra hafa legið til skatta-
skjólanna sem merkt eru á kortinu hér fyrir ofan. Marshall-eyjar í Kyrrahafi vantar á kortið.
Mön
Jersey
Lúxemborg
Liechtenstein
Kýpur
Ísland
Bresku Jómfrúareyjar
Panama
Belize
Delaware
Heimild: Embætti skattrannsóknarstjóra