Fréttablaðið - 04.09.2012, Síða 8

Fréttablaðið - 04.09.2012, Síða 8
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR8 STJÓRNSÝSLA Styrkveitingar sjávar- útvegsfyrirtækja til stjórnmála- flokka verða teknar fyrir á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis eftir þingsetningu í næstu viku. Enn á eftir að finna dagsetn- ingu fyrir fundinn. Margrét Tryggvadóttir, þing- maður Hreyfingarinnar, hefur óskað eftir því að nefndin verði kölluð saman til að fjalla um meint brot Sjálfstæðisflokks, Samfylking- ar og Framsóknarflokks á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka. Málið snýst um styrki sem flokk- arnir þáðu árið 2010 frá Samherja hf., Síldarvinnslunni og Gjögri hf. Samherji átti þá 45 prósenta hlut í Síldarvinnslunni og Gjögur 34 pró- senta hlut. Stjórnmálaflokkum er heimilt að þiggja styrki sem nema að hámarki 400 þúsund krónum. Séu eignatengsl milli fyrirtækja mega þau samanlagt aðeins veita þessar 400 þúsund krónur. Sjálfstæðisflokkurinn þáði 900 þúsund krónur árið 2010 frá þess- um þremur fyrirtækjum. Árið áður var hámarksstyrkveiting 300 þús- und krónur. Þá gáfu fyrirtækin þrjú 300 þúsund krónur hvert til Sjálfstæðisflokks, Framsóknar- flokkurinn þáði 550 þúsund krón- ur frá fyrirtækjunum og Samfylk- ingin 600 þúsund. Vinstri grænir þáðu aðeins fimm þúsund krónur frá sjávar- útvegsfyrirtækjum árið 2009 og fimmtíu þúsund árið 2010. „Það er fyrst og fremst starfs- manna stjórnmálaflokkanna að tryggja að ekki sé verið að brjóta lög,“ segir Sveinn Arason, ríkis- endurskoðandi, spurður hver þurfi að axla ábyrgð á styrkþágu umfram hámarkið. Fjárskortur hamli því hins vegar að hægt sé að vinna verkið eins vel og ætlast sé til hjá Ríkis- endurskoðun. „Við reynum að sinna okkar eftirliti eins og við höfum tök á því við höfum aldrei fengið krónu til að sinna þessu verkefni,“ bendir Sveinn á. Ríkis- endurskoðandi hefur ekki feng- ið boð um að koma fyrir eftirlits- nefndina en Sveinn býst við því á næstu dögum. birgirh@frettabladid.is Ríkisendurskoðun skortir fé til að kanna styrki til flokka Styrkir þriggja sjávarútvegsfyrirtækja verða ræddir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Ríkisendur- skoðandi hefur ekki rannsakað málið og segir fjárheimildir ekki nægja svo styrkir séu kannaðir að fullu. GJÖFUL ÚTGERÐ Sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi gefa töluverða peninga til stjórnmálaflokka á Íslandi. Margrét Tryggvadóttir vill láta athuga hvort lög um styrkveitingar hafi verið brotin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVÍÞJÓÐ Vatn sem Hjálpræðisher- inn hefur blessað og látið setja á flöskur hefur selst betur í sumar í Örnsköldsvik í Svíþjóð heldur en þekktar tegundir af lindarvatni. „Maður fær ferskt vatn sem Herrann hefur skapað,“ segir for- inginn Christer Eklöf í viðtali við Piteå-Tidningen. Hann vonast til að þessi góða sala verði til þess að auðvelt verði að markaðssetja blessað vatn víðar í Svíþjóð. Upplýsingastjóri Hjálpræðis- hersins segir að rannsaka þurfi vel hvort blessað vatn hersins komi til með að seljast jafn vel í stórborgum og í Örnsköldsvik. - ibs Hjálpræðisherinn í Svíþjóð: Blessað flösku- vatn rokselst VÍSINDI Grein Jóns Atla Benedikts- sonar, aðstoðarrektors vísinda og kennslu við Háskóla Íslands og fyrrum nemanda hans, dr. Alberto Villa, var valin besta vísindagrein- in úr hópi á sjötta hundrað greina sem birtust í einu virtasta vísinda- tímariti heims í rafmagnsverkfræði árið 2011. Grein þeirra Jóns og Villa fjallar um fjarkönnunar rann sóknir en þær eru mjög mikilvægar þegar til dæmis á að mæla breytingar á umhverfinu. Á Íslandi er rannsóknaraðferðin einstaklega mikilvæg þegar rann- saka á bráðnun jökla og breytingar á landi í aðdraganda eldgosa. - bþh Fjarkönnunarrannsóknir: Grein Íslendings var valin best Útivistartími barna breytist Hinn 1. september breyttist útivistar- tími barna og unglinga. Börn 12 ára og yngri mega ekki vera úti lengur en til klukkan 20. Börn 13 til 16 ára mega aðeins vera úti til klukkan 22 nema þau séu að koma af viður- kenndum samkomum. Miðast aldur við fæðingarár. BARNAVERND 1. Hvaða Íslendingur vann til gull- verðlauna í 200 metra skriðsundi á Ólympíumóti fatlaðra á sunnudag? 2. Hver er nýr forseti kirkjuþings? 3. Hvaða nýja vara kúlupenna- framleiðandans BIC hefur vakið nokkra athygli upp á síðkastið? SVÖR: 1. Jón Margeir Sverrisson 2. Magnús E. Kristjánsson 3. Kvennapennar NEYTENDUR Borið hefur á því að tannkrem sem markaðssett eru sérstaklega fyrir börn hafi minni flúorstyrk en almennt er mælt með. Veita þau því minni vernd fyrir tannskemmd- um en ráðlagt er. „Við reynum að fylgjast með þessu og vöktum til að mynda athygli á þessu við alla innflytjend- ur fyrir tveimur árum. Þá reynum við að hamra á þessu í til dæmis fréttabréfum til foreldra í grunnskólum,“ segir Jóhanna Laufey Ólafsdótt- ir, verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu. Fréttablaðinu hafa borist ábendingar um barnatannkrem sem hafa lítinn flúorstyrk og brá blaðamaður blaðsins sér í vettvangs- ferð í eina af verslunum Hagkaups til að kanna málið. Kom í ljós að ein af fimm tegundum barnatannkrems sem þar var til sölu var með minni flúorstyrk en ráðlagt er. Var þar um að ræða tannkremið Crest For Kids sem inniheld- ur 500 prómill af flúori en Landlæknisembætt- ið mælir með því að tannkrem innihaldi 1.000 til 1.500 prómill. Embættið ráðleggur foreldrum jafnframt að öll fjölskyldan noti sama tannkremið, helst með mildu bragði, en í mismiklu magni. Þannig er mælt með því að börn yngri en þriggja ára noti það magn tannkrems sem passar á fjórðung af nögl litlafingurs barnsins. Fyrir börn á aldr- inum fjögurra til sex ára skal nota tannkrems- magn sem passar á alla nögl litlafingurs barns- ins og fyrir börn sex ára og eldri skal nota einn sentimetra af tannkremi. - mþl Landlæknisembættið ráðleggur foreldrum að öll fjölskyldan noti sama tannkremið en í mismiklu magni: Sum barnatannkrem veita ónóga vernd BURSTAR TENNURNAR Mælt er með því að tannkrem innihaldi á bilinu 1.000 til 1.500 prómill af flúori. Á Íslandi eru til sölu barnatannkrem sem innihalda minna flúormagn. MYND/GETTY VEISTU SVARIÐ? Við reynum að sinna okkar eftirliti eins og við höfum tök á því við höfum aldrei fengið krónu til að sinna þessu verkefni. SVEINN ARASON RÍKISENDURSKOÐANDI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.