Fréttablaðið - 04.09.2012, Page 12
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR12
Fornleifarannsóknir á Hrafnseyri við Arnarfjörð
Fornleifafræðirannsóknir
fara nú fram á Hrafnseyri
við Arnarfjörð. Er það liður
í verkefni Fornleifa deildar
Náttúrustofu Vestfjarða
sem ber heitið Arnarfjörður
á miðöldum. Þótt rannsak-
endur hafi orðið margs vís-
ari dylst margur leyndar-
dómurinn enn í hjúpi sínum.
Hvar liggur Hrafn, sem stundum
er nefndur fyrsti læknir okkar
Íslendinga? Hvar var virki hans?
Og af hverju var miðaldakirkju-
garðurinn færð-
ur? Er eitthvað
til í því að hann
hafi vanhelgast
þegar prestur
var drepinn í
miðri guðsþjón-
ustu?
Margur gæti
haldið að af
nógu væri að
taka þegar forn-
leifafræðingar
taka sig til og
opna miðaldagrafir. Sú er þó ekki
raunin á Hrafnseyri í Arnarfirði.
Margrét Hrönn Hallmunds-
dóttir fornleifafræðingur, sem
fer fyrir rannsakendum fyrir
vestan, segir að vegna slæmra
skilyrða í jarðvegi hafi lítið verið
eftir af jarðneskum leifum í þeim
gröfum sem opnaðar hafa verið.
„Tvær voru alveg tómar og í
annarri voru bara tennur,“ segir
hún.
En heppnin var líka í för með
þeim því undir steini einum í einni
gröfinni stóð kjálki nokkur af sér
ágang tímans. Hann hefur nú
verið sendur til aldursgreiningar
og vonast Margrét til að hún liggi
fyrir í vetur.
En Margrét Hrönn og lið hennar
hafa ekki aðeins verið að hrófla
við gömlum gröfum. „Í ágúst
hófust rannsóknir aftan við kirkju-
garðinn,“ segir hún. „Rannsóknar-
spurningar sumarsins snúa meðal
annars að því að staðsetja miðalda-
byggðina á Hrafnseyri en síðasta
byggð var ofan við núverandi
kirkju.“ Í sumar komu að sögn
Margrétar í ljós tvö eldstæði og
eins lítið hús ásamt voldugum tún-
garði þar sem stórgrýti er í und-
irstöðum og torf í veggnum sem
hefur verið tveir metrar á breidd.
Vegginn á að rannsaka betur næsta
sumar.
Ekki skortir tilgáturnar um það
sem þarna hefur fundist. Hrafn,
sá er eyrin heitir eftir, var höfð-
ingi mikill eins og lesa má í Sturl-
ungu en hann var einnig fær
læknir.
„Hann er meðal annars frægur
fyrir það að hafa tekið úr manni
þvagsteina og sjúklingurinn lifði
það af,“ segir Margrét Hrönn.
Hrafn var vinsæll maður enda
höfðingi heim að sækja, læknaði
hann hvern þann er sjúkur leitaði
til hans og tók aldrei gjald fyrir.
En það var vandlifað á Sturlunga-
öld og jafnvel hinir vænstu menn
eignuðust svörnustu óvini.
Þorvaldur Snorrason Vatns-
firðingur taldi sig eiga sökótt við
Hrafn svo hann sótti að honum
árið 1213. Það var þó ekki heigl-
um hent því Hrafn hafði reist
virki nokkuð við hús sitt.
„Ef ég leyfi mér að vera svolítið
rómantísk þá er aldrei að vita
nema túnveggurinn, sem við
fundum í sumar, sé einmitt þetta
virki,“ segir Margrét Hrönn.
Það virki dugði þó ekki betur en
svo að Þorvaldur leiddi Hrafn
út og var hann hálshöggvinn.
Sagt er að hann hafi borið sig
karlmannlega.
Margrét Hrönn nýtur meðal
annars liðsinnis tíu fornleifa-
fræðinema frá háskólum á Bret-
landi við að komast að þessum
minjum fyrri alda.
Túngarður eða virkisveggur?
Miðaldakirkjugarðurinn á Hrafnseyri er fyrir neðan núverandi kirkju. Vanga-
veltur hafa verið uppi um af hverju hann hafi verið lagður niður á sínum
tíma. Ekki skortir tilgáturnar, en sú svæsnasta er á þann veg að Gvendur
nokkur, óvildarmaður guðsmannsins á staðnum, hafi skotið á prestinn af
boga sínum og það í miðri guðsþjónustu. Á staðurinn að hafa saurgast af
blóði prestsins við vígið.
Hefur bogi þessi verið hið kröftugasta vopn því Gvendur er sagður hafa
skotið í gegnum kirkjuhurðina. Á hann að hafa staðið á holti einu þegar
hann lét örina fljúga og heitir síðan holt þetta Gvendarholt. Frá þessu segir
í bók Böðvars Bjarnasonar sem gefin var út árið 1961. Þar segir reyndar að
þessi munnmælasaga sé mjög úr lagi færð þó svo hún kunni ef til vill að
styðjast við einhvern sögulegan grundvöll.
Svæsnasta kenningin um kirkjugarðinn
KJÁLKINN FORNI Það eina sem tímans tönn náði ekki að tyggja til tortímingar var
þessi kjálki sem nú hefur verið sendur til aldursgreiningar.
MIÐALDAKIRKJUGARÐURINN Á HRAFNSEYRI Enginn veit fyrir víst af hverju þessi miðaldakirkjugarður var lagður af, en tilgáta er uppi um að það hafi gerst eftir að presturinn á
staðnum var myrtur fyrir framan söfnuð sinn. MYNDIR/MARGRÉT HRÖNN HALLMUNDSDÓTTIR
MARGRÉT
HRÖNN HALL-
MUNDSDÓTTIR
Jón Sigurður
Eyjólfsson
jse@frettabladid.is
Ný sending á frábæru tilboðsverði!
ÁTTU VON Á GESTUM?
20%
afsláttur
í sept.
Lingen svefnsófi
TILBOÐ AÐEINS
Kr. 99.000,-
Verð áður 123.750,-
Góð svampdýna
Breidd: 200 cm
Dýpt: 120 cm