Fréttablaðið - 04.09.2012, Side 18

Fréttablaðið - 04.09.2012, Side 18
18 4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR Kærunefnd jafnréttismála er áhrifamikill úrskurðaraðili í deilumálum um opinberar ráðn- ingar hér á landi. Þegar kæru- nefndin tekur mál til umfjöllunar leggur hún almennt til hliðar fyrra mat sem gert hefur verið og fram- kvæmir sitt eigið sjálfstæða mat á kæranda og þeim sem var ráðinn. Kærunefndin úrskurðar svo um hæfni þeirra, oft með mjög afger- andi hætti. En hvaða aðferðir notar kæru- nefndin til að meta hæfni umsækj- enda og komast að sinni afdrifaríku niðurstöðu? Úrskurðir kærunefnd- arinnar eru almennt byggðir ein- göngu á skoðun á skriflegum gögn- um umsækjenda, þ.e. ferilskránum. Í úrskurðum eru prófgráður tald- ar upp, tegundir reynslu tíund- aðar og árafjöldi í hverju starfi. Kærunefndin hefur heimild til að kalla umsækjendur á sinn fund en nýtir hana almennt ekki. Fjöldi ára í háskóla er vissulega hlutlæg aðferð en er hún góður mælikvarði á hæfni einstaklings, kannski tutt- ugu árum síðar, til að gegna til- teknu starfi í framtíðinni? Hlut- lægir mæli kvarðar eru ekki alltaf réttir mælikvarðar. Aðferðin sem kærunefndin notar er ágætis aðferð til að þrengja þann hóp sem boðið er að taka þátt í hinu raunverulega mati en getur ekki tal- ist heildstæð matsaðferð ein og sér. Raunar er varla til sá stjórnandi eða fyrirtækiseigandi sem myndi nota aðferð kæru nefndarinnar til að ráða sér starfsmann því heilbrigð skynsemi segir okkur að pappírarn- ir segja ekki allt. Spyrja má hvort rannsóknarregla stjórnsýslulaga sé uppfyllt með þessari aðferðafræði og hvort málin séu nægilega vel upplýst þegar þessi nálgun er notuð, ekki síst í ljósi ákvæðis jafnréttis- laga um að taka skuli mið af „öðrum sérstökum hæfileikum sem krafa er gerð um í viðkomandi starfi … eða telja verður annars að komi að gagni í starfinu“ (sjá 5. mgr. 26. gr. jafnréttislaga nr. 10/2008). Þegar deilt er um verðmæti fyr- irtækja er ekki talið duga að rýna skrifleg gögn sem málsaðilar hafa lagt fram. Ef slík deila ratar fyrir dómstóla eru gjarna skipaðir dóm- kvaddir matsmenn sem fá fullan aðgang að bókhaldi fyrirtækisins og gera sína sjálfstæðu úttekt áður en þeir kveða upp úr um rétt verð. Þessir matsmenn eru yfirleitt sér- fræðingar í verðmati fyrirtækja en ekki endilega lögfræðingar, enda matsverkefnið ekki af lögfræði- legum toga. Ef deiluaðilar eru ekki sáttir við mat dómkvaddra mats- manna er óskað eftir svokölluðu yfirmati en þá koma enn aðrir aðil- ar og meta fyrirtækið aftur. Heil- mikil huglægni er í mati á verðmæti fyrirtækja því velja þarf forsendur af ýmsu tagi en þó er mat sérfræð- inganna talið haldbærara en beint mat dómara. Mat getur nefnilega verið skipulegt og málefnalegt þó það feli í sér tiltekna huglægni. Frammistaða í starfi er í eðli sínu flókið fyrirbæri sem erfitt er að höndla og á sér margar hlið- ar. Það er hægt að mæla frammi- stöðu en það krefst almennt aðkomu mannshugans sem alltaf felur í sér ákveðið huglægt mat og beit- ingu dómgreindar. Enn þá erfiðara er að spá fyrir um frammistöðu í starfi sem einstaklingurinn hefur enn ekki tekið við. Þetta vandamál hefur verið viðfangsefni vinnusál- fræðinnar sem fræðigreinar í um það bil 100 ár og til eru ógrynni rannsókna sem segja til um hvaða aðferðir spá best fyrir um frammi- stöðu í starfi (sjá t.d. yfirlitsgrein Schmidt og Hunter, The Validity and Utility of Selection Methods in Personnel Research: Practi- cal and Theoretical Implications of 85 Years of Research Findings, Psychological Bulletin, 1998). Viðurkenndar faglegar aðferð- ir við starfsmannaval eru þær að- ferðir sem reynst hafa samkvæmt ofangreindum rannsóknum spá fyrir um frammistöðu í starfi. Sem dæmi um slíkar aðferðir má nefna stöðluð og hegðunartengd viðtöl, verklegar samskipta- og stjórnunar- æfingar, raunhæf skrifleg verkefni, sýnishorn vinnu, aðstæðumatspróf, persónuleikamat, próf sem mæla talnaleikni, próf sem mæla mál- farslega leikni, próf sem mæla rök- hugsun, starfsþekkingarpróf, staðl- aðar umsagnir og matsmiðstöðvar. Öryggi niðurstöðunnar eykst eftir því sem fleiri aðferðir eru notaðar samhliða til að meta sömu eigin- leika. Um þessar aðferðir er ítarlega fjallað í öllum kennslubókum um starfsmannaval, en mat á feril- skrám er hins vegar afgreitt stutt- lega sem aðferð til að þrengja hóp- inn. Hér á landi virðist viðurkennd þekking á starfsmannavali ekki vera nýtt á neinn hátt í kæruferlum vegna opinberra ráðninga. Það er líklega aðeins tímaspursmál hve- nær sú staða kemur upp að fyrra matið sem gert var við ráðninguna sé augljóslega faglegra og ítarlegra en mat kærunefndarinnar, en mat kærunefndarinnar verður samt sem áður hið endanlega og „bind- andi“. Markmið jafnréttislaga eru samfélagslega mikilvæg en það réttlætir ekki að vönduðum að- ferðum í starfsmannavali sé kastað fyrir róða. Það er ekki gott fyrir málstað jafnréttisins að Georg Bjarnfreðar son – með sínar fimm háskólagráður – sé táknrænn fyrir hæfasta einstaklinginn eins og hann birtist í gildismati íslenskra jafnréttisyfirvalda. Auknar heim- ildir kærunefndar jafnréttismála til að láta fara fram endurmat á þeim sem til greina koma, eða betri nýting á heimildum sem nú þegar eru í jafnréttislögunum, eru nauð- synlegar til að tryggja trúverðug- leika þessa ferlis og minnka deilur um úrskurði. Er Georg Bjarnfreðarson hæfastur? Íslandi hefur tekist vel upp í glímu sinni við afleiðingar bankakrepp- unnar og þjóðir heims líta nú til landsins í leit að lausnum á eigin vandamálum. Þetta þýðir ekki að Ísland sé komið á lygnan sjó. Þvert á móti stendur landið frammi fyrir óleystum vandamálum sem takast þarf á við á næstu árum. Á Íslandi búa 315.000 íbúar og þeir halda úti óháðum gjaldmiðli án þess að festa gengi hans við nokkurn annan gjaldmiðil. Þessi gjaldmiðill er íslenska krónan. Íslendingar þurfa að svara þeirri spurningu hvort það sé heppilegt fyrirkomulag að búa áfram við krónuna. Fleiri afgerandi spurningar krefjast svara. Þessar spurningar snúast um gjaldeyrishöft, eftirlit með starfsemi bankastofnana og fyrirkomulag og samhengi ríkis- fjármála og peningamála. En lykil- atriðið er að ákveða fyrirkomulag gjaldmiðilsmála. Íslensk stjórnvöld þurfa að ákveða hvort halda skuli í krónuna sem lögeyri eða hvort taka skuli upp erlenda mynt sem lögeyri. Evra, Bandaríkjadalur og Kanada- dalur hafa verið nefndir sem mögu- leikar ásamt fleiri myntum. Hvort sem niðurstaðan verður að halda krónunni eða sleppa henni mun sú stefnumörkun krefjast þolinmæði, ákveðni og fórna, en þar með eru líkindi leiðanna að mestu upptalin. Það er skynsamlegt fyrir íslensk stjórnvöld að vinna áfram að fram- gangi umsóknar að Evrópusamband- inu og Evrópska myntsamstarfinu (ERM) með upptöku evru í huga. Upptaka evru sem lögeyris á Íslandi mun taka mörg ár. Hindranir kunna að verða á þeirri leið sem gera hana ófæra. Biðin eftir evrunni gæti þó orðið landinu til blessunar ef tím- inn væri nýttur til kerfisbreytinga sem auðvelduðu Íslendingum að sníða agnúa af því gjaldmiðilskerfi sem þeir nú búa við. Fýsilegt kann að virðast að taka upp aðra mynt en evru í stað krónunnar vegna þess óróleika og verðbólguhættu sem er á evrusvæðinu nú. Upptaka þjóð- myntar annars lands er mjög áhættu- söm vegna þess að ólíklegt er að hag- sveifla og þar með peningastefna heimalands myntarinnar og Íslands séu í takt. Einhliða upptaka þjóð- myntar annars lands yki stórlega lík- indin á nýrri djúpri kreppu á Íslandi. Rekja má ástæðu þess að Íslend- ingar vilja losa sig við krónuna til reynslu þeirra frá október 2008. Enginn Íslendingur hefur áhuga á að endurupplifa þá óvissu og það verðmætatap sem fylgdi gengisfalli krónunnar. Ég vil halda því fram að þessi martraðarkennda reynsla Íslendinga sé nánast ávallt niður- staðan þegar stjórnvöld sem búa við fljótandi gengi leyfa myntinni að styrkjast mikið umfram jafn- vægisgildi sitt. Íslensk stjórnvöld gengu lengra en að leyfa myntinni að styrkjast, stjórnvaldsaðgerðir beinlínis ýttu undir frekari styrk- ingu þó það hafi ekki verið ætl- unin. Hækkun stýrivaxta án þess að gripið væri til takmarkana á innflæði erlends fjármagns dró slíkt fjármagn til landsins í áður óþekktum mæli. Innflæði fjár- magns fylgdi bóla í fasteignaverði og verði annarra eigna, útblásinn bankageiri, útrás og útlánaþensla. Allt þetta má í mismiklum mæli rekja til haftalausrar styrkingar gengis krónunnar á sínum tíma. Það að taka upp Kanadadal, evru eða Bandaríkjadal yrði til þess að lækka verðbólgu og vexti, draga úr gengissveiflum og auðvelda Íslendingum að eiga viðskipti við aðrar þjóðir. En þessi ávinning- ur er ekki ókeypis. Kostnaðurinn felst í því að íslensk stjórnvöld tapa stjórn tækjum. Sé ekið eftir rólegri fá farinni götu er hægt að taka hendur af stýri um stund. En deilist vegurinn í tvennt eða ef bíll kemur úr gagnstæðri átt er mikil- vægt að grípa um stýrið til að forð- ast vandræði. Að taka upp mynt annars lands þar sem efnahagslífið lýtur öðrum lögmálum og þar sem hagsveiflan er ekki í takt við hag- sveiflu á Íslandi svipar til þess að láta stýrið á bílnum í hendur geð- stirðs frænda í aftursætinu. Upp- bygging atvinnulífs á Íslandi er sér- stök. Þar fer mikið fyrir áli og fiski. Hagsveifla á Íslandi kann að vera í takt við Kanada og Evrópu um hríð, en komi til þess að hagsveiflur þessara landa færist úr takti væri Ísland fórnarlamb peningastefnu sem sniðin væri að vandamálum annars lands. Að taka upp mynt annars lands þýðir að ekki er hægt að nota peningapólitísk og gengis- pólitísk stjórntæki til að takast á við sérstök íslensk hagstjórnarvanda- mál. Það er umstang og óvissa fólgin í því að skipta um mynt. Því kann mörgum að þykja eðlilegt að halda krónunni til að forðast slík óþæg- indi. En það kostar líka talsvert umstang og fórnir að halda krón- unni. Gengi krónunnar þarf að veikjast hægt og bítandi uns þess er ekki lengur þörf að beita vald- boði til að halda erlendu fjármagni föngnu innanlands. Hægt og bítandi þarf að snúa gjaldeyrishöftum við þannig að hægt sé að nota ríkisfjár- málin til að örva jafnan og góðan hagvöxt og til að halda verðbólgu í skefjum. Ekki ætti að nota stýri- vaxtahækkanir sem agn til að lokka að erlenda fjárfesta, þvert á móti er slíkum hækkunum ætlað að kæla hagkerfið niður þegar þörf er á. Þá þarf að halda krónunni viðvarandi veikri þannig að grimmir og fjár- hagslega sterkir gjaldmiðlaspekúl- antar sýni henni ekki áhuga. Íslenska hagkerfið er einfaldlega of lítið til að landið geti varið stöðu sterks gjaldmiðils, til þess þyrfti óhóflega stóran gjaldeyrisvarasjóð. Íslensk stjórnvöld og Seðlabankinn þyrftu að setja á fót nefnd sem hefði það markmið, með gjaldeyrismark- aðsinngripum, að halda krónunni 10-20% veikari en svari til jafn- vægisgengis hennar. Smæð lands- ins ætti að hjálpa til við að halda krónunni veikri og landsmenn ættu ekki undir neinum kringumstæð- um að reyna að styrkja veikt gengi hennar. Í næstu grein mun ég fjalla um reynslu ríkja Suður-Ameríku og draga tillögur mínar saman. Zack Vogel keypti og seldi skulda- tryggingar nýlega þróaðra ríkja fyrir Morgan Stanley og Deutsche Bank. Hann vinnur nú að því að greina viðbrögð Íslands, Argentínu, Grikk- lands og annarra kreppuhrjáðra landa við fjármálakreppum, nýjum og gömlum. Hann er lektor við við- skiptafræðideild Skidmore College í Saratoga Springs, New York. Nám- skeið Vogels um Global Credit Crisis mun fjalla ítarlega um valkosti þá sem Ísland stendur frammi fyrir á gjaldmiðilssviðinu. Krónan á þunnum ís, 1. hluti Jafnrétti Ásta Bjarnadóttir vinnu- og skipulagssálfræðingur Fjármál Zack Vogel lektor í New York Markmið jafn- réttislaga eru samfélagslega mikilvæg en það réttlætir ekki að vönduðum aðferðum í starfsmannavali sé kastað fyrir róða. Það að taka upp Kanadadal, evru eða Bandaríkjadal yrði til þess að lækka verð- bólgu og vexti, draga úr gengissveiflum og auðvelda íslendingum að eiga viðskipti við aðrar þjóðir. Skólaforeldrar í aðalhlutverki Nú í haust hófu um það bil 1.400 nýir nemendur skóla- göngu í 1. bekk í grunnskólum Reykjavíkur. Við þau tímamót er gaman að láta hugann reika til þess dags þegar við foreldr- arnir vorum í þessum sporum og mættum full eftirvæntingar fyrsta skóladaginn. Þetta er stór dagur fyrir börnin en ekki síður fyrir okkur foreldrana. Litlu ungarnir okkar á leið inn í tíu ára grunnskólaferðalag og við teljum okkur jú vita manna best hvað þau eiga eftir að læra og reyna á vegferð þessari. Skólaumhverfið hefur þó breyst gríðarlega frá því við, for- eldrarnir, hófum okkar skóla- göngu. Heimilin taka meiri þátt í námi barnanna og skólinn tekur meiri þátt í gæslu og umönnun barna. Skilin á milli hlutverka heimila og skóla eru gjörbreytt miðað við það sem áður þekktist. Foreldrar gegna orðið miklu stærra hlutverki í skólasam- félaginu. Búið er að skilgreina ýmis hlutverk sem foreldrar taka að sér og auka þannig sam- starf heimila og skóla til muna. Þar má nefna hin lögbundnu foreldrafélög og fulltrúa foreldra í skólaráði, hlutverk bekkjarfull- trúa og foreldraröltið. Við for- eldrar erum afar mikilvæg auð- lind í skólastarfi í dag og þurfum að vera dugleg að hvetja hvert annað áfram á þeirri braut. Sem betur fer er alltaf ákveð- inn kjarni foreldra tilbúinn að starfa í foreldrafélögum og taka að sér hlutverk bekkjar- fulltrúa og það ber að þakka. Vonandi sjá æ fleiri foreldrar hversu skemmtilegt og gefandi það er að starfa í skólasam- félaginu og fá tækifæri til að kynnast því betur í gegnum foreldrastarfið núna í vetur. Fyrir þá foreldra sem vilja taka beinan þátt í skipulögðu starfi þá eru valdir bekkjar fulltrúar í öllum ár göngum í grunnskól- um á haustin og oftast eru aðal- fundir haldnir á vorin og þá er kosin stjórn foreldrafélagsins. En það er ekki nauðsynlegt að vera kjörinn bekkjarfulltrúi eða sitja í stjórn foreldrafélags- ins til að taka þátt. Það er hægt að taka þátt með því að láta vita af áhuga sínum eða bjóða fram starfskrafta sína í ein- stök verkefni. Ef allir foreldrar gefa kost á sér í eitt verkefni á vetri í þágu bekkjarins eða skól- ans verður vetrarstarfið leikur einn. Í öllum skólum eru starfandi foreldrafélög. SAMFOK eru svæðasamtök foreldra í grunn- skólum Reykjavíkurborgar. Til SAMFOK geta foreldrar, bekkjarfulltrúar, skólaráðsfull- trúar og stjórnir foreldrafélaga leitað eftir ráðgjöf og aðstoð í hinum ýmsu málum sem snúa að foreldrastarfinu eða sam- skiptum við skólann. Á haustin eru haldin bekkjarfulltrúanám- skeið til að kynna hlutverkið fyrir nýjum bekkjarfulltrúum og á skrifstofunni er hægt að fá ýmiss konar aðstoð og ráð- gjöf sem snýr að samskiptum og skólasamfélaginu. Hægt er að fá allar nánari upp lýsingar um SAMFOK á vefsíðunni www.samfok.is og sömuleiðis á Facebook-síðunni SAMFOK. Höfum í huga að skólinn er vinnustaður barnanna tíu mánuði ársins. Með því að vera virkir þátttakendur í námi barnanna okkar og taka þátt í skólastarfinu, aukum við líkurnar á að barnið okkar upplifi námið og skólann á já- kvæðum nótum og sjái heimilið og skólann sem heild, en ekki sem andstæða póla. Við þurfum að vera meðvituð um hlutverk okkar sem skólaforeldrar og að við séum einn hlekkur í stórri keðju sem sameinar skóla, for- eldra og nemendur. Menntun Margrét V. Helgadóttir formaður SAMFOK Sem betur fer er alltaf ákveðinn kjarni foreldra tilbúinn að starfa í foreldrafé- lögum og taka að sér hlutverk bekkjarfulltrúa og það ber að þakka.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.