Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.09.2012, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 04.09.2012, Qupperneq 38
4. september 2012 ÞRIÐJUDAGUR34 34 menning@frettabladid.is Geðshræringar í sögu, tengslum manna á milli og bókmenntum er efni fyrirlestrar sem breski sálfræðingurinn og rithöfund- urinn Keith Oatley held- ur í Háskóla Íslands á morgun. Keith Oat- ley er þekktur víða um lönd. Hann hefur meðal annars fengist við rannsóknir á sjónskynj- un, gervigreind og faraldssál- fræði en er ekki síst þekktur fyrir rannsóknir sínar og skrif um geðshræringar og tilfinn- ingar. Í erindi sínu fjallar hann um hvernig hugmyndir og kenn- ingar um geðshræringar hafa þróast og breyst í líffræði-, sálfræði- og bókmenntarann- sóknum en hann telur lestur skáldskapar stuðla að auknum skilningi manna á öðrum. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Hann verður í stofu 104 á Háskólatorgi og stendur frá 11.40 til 13.10. Um gagn bókmennta fyrir sálfræði Leitinni að höfundi Njálu er lokið að sögn Einars Kára- sonar rithöfundar. Hann segir nánast hafið yfir vafa að Sturla Þórðarson, aðal- persónan í Skáldi, lokabindi þrílógíu hans um Sturlunga- öld, hafi varið síðustu ævi- árunum í skriftir á þessari frægustu bók Íslandssög- unnar. „Þetta er þriðja bók mín um þrett- ándu öldina og kannski aðalbók- in, því að þessu sinni er umfjöll- unarefnið ekki borgarastríðið og hörmungarnar sem því fylgdu heldur skáldskapurinn, en eins og við vitum voru á þeirri öld samin ótrúleg snilldarverk á Íslandi,“ segir Einar Kárason rithöfund- ur um lokabindi þrílógíunnar um Sturlungaöldina sem væntanlegt er á markað eftir rúman mánuð. Bókin heitir Skáld og aðal persónan er Sturla Þórðarson, rithöfundur með meiru, sem Einar segir nán- ast óhrekjandi sannanir fyrir að hafi verið höfundur Njálu. „Ég var að skrifa grein sem birtist í Skírni og þeir sem hana hafa lesið segja mér að það sé nánast orðið hafið yfir vafa að Sturla hafi skrifað Njálssögu. Sturla skrifaði, eins og við vitum, Íslendingasögu og þegar að er gáð virðist Njáls- saga byggja á henni að miklu leyti, vera nokkurs konar bókmennta- leg aðlögun af þeirri bók. Báðar bækurnar skiptast í nákvæmlega sams konar efnisparta. Fyrsti hluti beggja bókanna fjallar um upp- gang íslensks höfðingja sem ber af öðrum mönnum fyrir fríðleik og líkamlegt atgervi, en gerir sig síðan sekan um ofdirfsku og hlýð- ir ekki ráðum sér vitrari manna. Sankar að sér of mörgum voldug- um óvinum sem koma sér saman um að fella hann. Þar á ég auðvitað við þá Sturlu Sighvatsson og Gunn- ar á Hlíðarenda. Annar hluti beggja bókanna fjallar um að upp er komin hættu- leg staða, þegar undangengin víg kalla á blóðhefndir, en það er gerð tilraun til sátta án blóðsúthellinga. Í báðum bókunum virðist það ætla að takast en þá kemur kona og rag- manar lykilmann til að ganga á gerðar sættir og hefna með blóði og eldi, sem verður niður staðan. Það farast jafnmargir í báðum eldsvoðunum, ætlunin er að drepa fjóra menn í bæði skiptin en einn af þeim sleppur. Lokakaflinn í báðum bókunum er síðan hefndar- kafli þar sem sá sem sleppur úr eldinum leitar hefnda. Það er líka mjög merkilegt að allar tölur passa saman, til dæmis eru í báðum til- fellum farnir tveir hefndarleið- angrar, átta menn falla í þeim fyrri og fimm í þeim seinni, og svona mætti lengi telja.“ Læturðu skáldið þá sitja við að skrifa Njálu í nýju bókinni? „Ég tel að það hafi hann gert á sínum síð- ustu árum, já. Hann kom heim með mikla tignarstöðu sem lögmað- ur yfir öllu landinu, en í ferðinni hafði hann skrifað Magnúsarsögu lagabætis og konungur launað honum svo vel fyrir að hann átti allt í einu fullt af peningum. Þann- ig að í stað þess að vera áfram í ati samtímans ákveður hann að flýja landið og flytur í Fagurey á Breiðafirði. Þar var hann síðustu sex árin í friði við að skrifa. Þessi ár eru 1278 til 1284 og nokkurn veginn allir fræðimenn sem reynt hafa að tímasetja ritunartíma Njálu hafa staðnæmst við ártalið 1280.“ fridrikab@frettabladid.is Sturla skrifaði Njálu – það er nánast óhrekjandi SKÁLDIÐ Umfjöllunarefni lokabindis þrílógíu Einars Kárasonar um þrettándu öldina er ekki styrjöld og hörmungar Sturlungaaldar heldur skáldskapurinn og höfundur Njálu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistar- maður hlaut verðlaunafé og viður- kenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur á laugardag fyrir framlag sitt á sviði. Lista- maðurinn Erró afhenti Ósk viður- kenninguna og verðlaunaféð við athöfn í Hafnarhúsinu. Sjóðinn stofnaði hann til minningar um móðursystur sína, Guðmundu, í þeim tilgangi að efla og styrkja listsköpun kvenna en þetta var í þrettánda sinn sem styrkur var veittur úr sjóðnum. Ósk Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1962 og lærði myndlist í Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands og síðar Hoch- schule der Künste í Berlín. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Í umsögn dómnefndar segir að Ósk fari eigin leiðir í list sinni og að verk hennar fjalli mörg um hnattvæð- ingu, samspil manns og náttúru og neysluhyggju samtímans. Hún hafi vakið athygli með magnaðri innsetningu í Hafnarhúsi í fyrra þar sem hún nánast fyllti sýning- arrýmið með upplýstum skips- skrokk. „[M]eð þessum styrk vill dómnefndin hvetja Ósk til áfram- haldandi stórvirkja.“ Erró styrkir Ósk Vilhjálmsdóttur ERRÓ OG ÓSK Erró afhenti Ósk verðlaunaféð og viðurkenninguna i Hafnarhúsinu á laugardag. Ljósmyndasýningin Utan Hring- brautar eftir Einar Jónsson verð- ur opnuð í kaffihúsi Gerðubergs á morgun. Á sýningunni eru myndir sem eiga það sameiginlegt að vera af höfuðborgarsvæðinu utan Hring- brautar. Yfirskrift sýningarinn- ar vísar til þess að á milli stríða var Reykjavík umlukin af Hring- braut, sem myndaði hálfhring um byggðina. Á sýningunni blínir Einar í gegnum linsuna á hin nýju hverfi, sem taka einkum mið af þörfum fólks á einkabílum og þar eru fáir fótgangandi á ferli. Myndirnar á sýningunni hafa ekki verið sýndar á Íslandi áður en hluti þeirra var á samsýningu íslenskra og bandarískra ljós- myndara/listamanna í Pyramid Studios í Miami á Flórída 2009. Utan Hring- brautar í Gerðubergi NÝ HVERFI Á sýningunni eru myndir frá hverfum sem risu eftir seinni heims- styrjöld. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Þriðjudagur 04. september 2012 ➜ Kvikmyndir 17.00 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Skuggagaldrar eftir Ann Hu. Myndin gerist í Peking árið 1902. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. ➜ Tónlist 20.00 Sebastiano Brusco frá Ítalíu leikur ýmis verk í Þjóðmenningarhúsinu undir yfirskriftinni Róm-Reykjavík. Tón- leikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Síðsumartónleikar í Þjóðmenningarhús- inu. Miðaverð er kr. 2.000 eða kr. 1.000 fyrir eldri borgara og nemendur. 20.30 Sópransöngkonurnar Signý Sæmundsdóttir og Harpa Harðardóttir syngja lög við píanóundirleik Kristins Arnar Kristinssonar á Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns. Aðgangseyrir er kr. 2.000. 20.30 Latínkvartett kontrabassa- leikarans Tómasar R. Einarssonar spilar á tónleikum djasstónleikaraðarinnar á KEXI Hosteli. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Myrra Rós og Kyle Woodlard halda tónleika á Café Rosenberg. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. Þýski iðnhönnuðurinn Mareike Gast heldur fyrirlesturinn Tomorrow´s Materials í Lista- háskóla Íslands á morgun. Oft er litið fram hjá því hvernig nýta megi iðnaðarúrgang og auka- afurðir. Í fyrirlestri sínum fjallar Gast um hvernig megi nýta þessar og fleiri auðlindir í framtíðinni, til dæmis fyrir hátækniiðnað. Fyrirlesturinn er haldinn í Þverholti 11, fyrirlestrarsal A. Hann verður á ensku og er aðgangur ókeypis. Hádegiserindi fyrir hönnuði KEITH OATLEY LATÍNDJASS Á KEXI Á tónleikum djasstónleikaraðarinnar á KEXI Hosteli, Skúlagötu 28, í kvöld, þriðjudaginn 4. september, kemur fram Latín- kvartett kontrabassaleikarans Tómasar R. Einarssonar. Auk Tómasar skipa hljómsveitina þeir Snorri Sigurðarson á trompet, Ómar Guðjónsson á gítar og trommuleikarinn Matthías Hemstock. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og standa í um tvær klukkustundir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.