Fréttablaðið - 04.09.2012, Qupperneq 43
ÞRIÐJUDAGUR 4. september 2012 39
FÓTBOLTI Lið Þórs/KA getur tryggt
sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta
skipti með sigri á Selfossi á Akur-
eyri í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Norðankonur hafa spilað frábær-
lega í sumar og eru með fjögurra
stiga forskot á Stjörnuna þegar
aðeins tvær umferðir eru eftir af
deildinni.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrir-
liði Þórs/KA, spilar lykilhlutverk
í vörninni og á hún möguleika á
því að taka við Íslandsbikarnum í
kvöld. „Það eru allir mjög spennt-
ir hér,“ sagði Arna Sif og bætir
við: „Við höldum okkur samt niðri
á jörðinni og erum bara rólegar
yfir þessu. Það er rosalega freist-
andi að fara að hugsa lengra en
Jói þjálfari er duglegur að minna
okkur á að vera rólegar,“ segir
Arna Sif. Þór/KA vann 6-2 sigur á
Selfossi í fyrri leiknum en Selfoss
hefur rokið upp töfluna að undan-
förnu.
„Við eigum að klára þetta en Sel-
foss er búið að bæta sig helling í
seinni umferðinni og þær hafa
verið að stela sigrum af stærri
liðum. Þetta verður hörkuleik-
ur,“ segir Arna Sif og hún býst við
mörgum á völlinn.
„Það er draumurinn að fá að
taka við bikarnum. Við gerum
okkur alveg grein fyrir því hvað
er í boði en við ætlum ekki að
hugsa um hvernig við ætlum að
fagna þegar við skorum heldur
ætlum við að hugsa um það hvern-
ig við ætlum að skora,“ segir Arna
Sif og segir yfirvegun þjálfarans
Jóhanns Kristins Gunnarssonar
hafa góð áhrif á liðið.
„Það rennur ekki í honum blóðið.
Hann heldur alltaf andlitinu og er
alltaf rólegur þannig að það smit-
ar út frá sér. Í fyrra og hittiðfyrra
hefði ég verið í skýjunum núna og
það hefði örugglega ekki verið
hægt að ná sambandi við mig. Ég
er óvenju róleg í dag,“ sagði Arna.
Leikur Þórs/KA og Selfoss hefst
klukkan 18.00 og verður í beinni
útsendingu á Stöð 2 Sport sem og
inni á Vísi. Aðrir leikir kvöldsins
í deildinni eru: Valur-Breiðablik,
FH-Fylkir, KR-Afturelding og
Stjarnan-ÍBV en Eyjakonur gætu
líka tryggt Þór/KA titilinn með því
að taka stig af Stjörnunni. - óój
Arna Sif Ásgrímsdóttir og félagar hennar í Þór/KA geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á Akureyri í kvöld:
Það rennur ekki blóðið í þjálfaranum okkar
ARNA SIF ÁSGRÍMSDÓTTIR Tók við fyrir-
liðabandinu hjá Þór/KA í vor og hefur
spilað vel í vörninni.
- Ekkert um okkur án okkar
„Ég hef verið í fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina,
starfað t.d. á sjó og við sorphirðu en ákvað svo að
verða blikksmiður og var byrjaður í námi. Þá fékk
ég brjósklos og eftir aðgerð sem mistókst er ég í
hjólastól. Það ætlar sér auðvitað enginn að verða
öryrki en þegar það gerist þá vill maður ekki vera
álitinn annars flokks.“
Hilmar Guðmundsson
Langflestir sem verða öryrkjar hafa unnið í áratugi
og óska þess að geta tekið virkan þátt í samfélag-
inu. Örorka er ekki val eða lífsstíll.
Ég borgaði skatta í
37 ár og borga enn
Ég valdi ekki að verða öryrki
www.obi.is
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari íslenska U-21 árs liðsins,
valdi í gær leikmannahóp sinn
fyrir lokaleik liðsins í undan-
keppni EM.
Eyjólfur hristir vel upp í leik-
mannahópnum og tekur inn eina
níu nýliða.
„Það er fullt af góðum leik-
mönnum sem eru á eldra árinu
sem eiga erindi í U-21 landsliðið
nú,“ sagði Eyjólfur í samtali við
Hjört Hjartarson á X-inu 977.
„En við erum að breyta lið-
inu til að búa það undir næstu
keppni. Við höfum ekki riðið
feitum hesti frá þessari keppni og
hafa þó margir leikmenn fengið
tækifæri með liðinu. Við höfum
samt ekki sýnt góða leiki og ekki
staðið okkur nógu vel,“ sagði
hann.
„Við viljum fá leikmenn inn
í hópinn til að gefa þeim smá
reynslu. Við viljum nýta þetta
tækifæri til að búa okkur sem
best undir næstu keppni enda
skiptir þessi leikur ekki mjög
miklu máli fyrir núverandi
keppni,“ sagði Eyjólfur en Ísland
er neðst í sínum riðli með þrjú
stig fyrir lokaumferðina.
„Það eru mjög fáir æfinga-
leikir hjá U-21 landsliðinu og ekk-
ert fast í hendi enn sem komið er
hvað það varðar.“
U-21 árs liðið:
Eyjólfur horfir
til framtíðar
EYJÓLFUR SVERRISSON Hefur ekki náð
góðum árangri með U-21 árs liðið í
núverandi undankeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/XX
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Árni Snær Ólafsson ÍA
Rúnar Alex Rúnarsson KR
Aðrir leikmenn:
Hólmar Örn Eyjólfsson Bochum
Eiður A. Sigurbjörnsson Örebro
Hörður B. Magnússon Juventus
Davíð Ásbjörnsson Fylkir
Einar Karl Ingvarsson FH
Sverrir Ingi Ingason Breiðablik
Guðlaugur V. Pálsson Nijmegen
Jón Daði Böðvarsson Selfoss
Guðmundur Þórarinsson ÍBV
Andri Adolphsson ÍA
Andri Rafn Yeoman Breiðablik
Arnór Ingvi Traustason Sandnes Ulf
Hólmbert Aron Friðjónsson Fram
Aron Jóhannsson AGF
Kristinn Steindórsson Breiðablik
Emil Atlason KR