Fréttablaðið - 31.10.2012, Page 2

Fréttablaðið - 31.10.2012, Page 2
31. október 2012 MIÐVIKUDAGUR2 ÖRYGGISMÁL Bjarni K. Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð, segir það vera sér mikið áhyggjuefni hversu illa liðið sé mannað um helgar á sumrin. „Það er aðeins fyrir fórnarlund þess einstaka mannskaps sem ég hef að þetta hefur sloppið til hing- að til,“ segir Bjarni við Fréttablaðið. Í bréfi til byggðaráðs Borgarbyggðar segir Bjarni eldsvoða sem varð hjá fyrirtækinu Loftorku í sept- ember í fyrra dæmi um ástandið. Þar hafi eldur kraumað í olíu og feiti þannig að nánast öll eininga- steypuhús fyrirtækisins hafi fyllst af kolsvörtum reyk. „Þá voru tiltækir í Borgarnesi sex menn og ein- ungis fyrir harðfylgi og hárrétt viðbrögð þeirra tókst að forða hundraða milljóna króna tjóni,“ segir Bjarni í bréfinu. „Að þónokkrum tíma liðnum komu úr liðs- einingum okkar á Hvanneyri og Reykholti níu menn til viðbótar þannig að tiltækir voru fimmtán menn þann daginn en oft er ástandið miklu verra um helg- ar og einungis spurning um hvenær illa fer.“ Við Fréttablaðið segir Bjarni lausnina einfaldlega felast í því að fé verði sett í að tryggja aukinn liðs- afla þannig að fimm manna vaktir verði um helgar á sumrin. Ekki sé endalaust hægt að treysta á að menn séu tiltækir að stökkva til þegar á reynir. Byggðaráðið samþykkti að óska eftir að forstöðu- maður umhverfis- og skipulagssviðs gerði minnis- blað um málið. - gar Slökkviliðstjórinn í Borgarbyggð segir liðið of þunnskipað á sumarhelgum: Bara spurning hvenær illa fer BORGARNES Gríðarleg umferð er um Borgarfjörð á sumrin og mikill fjöldi gesta dvelur á svæðinu. Slökkviliðsstjórinn vill efla vaktir þessa mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPURNING DAGSINS DÓMSMÁL Fimm menn voru í gær dæmdir fyrir að svíkja samtals fjörutíu milljónir króna út úr Íbúða lánasjóði og draga sér tólf milljónir af reikningi eignarhalds- félags. Þyngsta dóminn fékk Helgi Ragnar Guðmundsson, 32 ára, sem var talinn arkitektinn að svikunum og er sakfelldur fyrir að skipuleggja þau frá upphafi til enda. Helgi Ragnar var upphaf- lega ekki meðal hinna ákærðu en bættist við á síðari stigum þegar einn hinna ljóstraði upp um aðild hans að málinu. Ef marka má framburð sak- borninga og það sem fram kemur í dómsniðurstöðunni má rekja svik- in til þess að tveir hinna dæmdu, Vilhjálmur Símon Hjartarson og Jens Tryggvi Jensson, hafi skuldað tveimur mönnum peninga vegna fíkniefnaviðskipta. Hvorug- ur þeirra hefur viljað nafngreina mennina. Ónefndu mennirnir hafi síðan komið þeim í samband við Helga Ragnar, sem hafi leitt þá í allan sannleika um það hvernig þeir ættu að falsa ógrynni skjala, koma sér í stjórnir eignarhaldsfélaga, slá lán fyrir fasteignum og stinga tugmilljónum undan. Með því hafi þeir átt að sleppa við skuldirnar. Vilhjálmur Símon hlýtur fimm- tán mánaða fangelsi í málinu, og er sérstaklega tiltekið í dómnum að aðstoð hans við að bendla Helga Ragnar við málið sé virt honum til refsilækkunar. Það sama er sagt um Jens Tryggva, en hann fær þó þriggja ára dóm, enda var hann ekki alveg jafnsamvinnuþýður og kom einnig að fleiri þáttum máls- ins en Vilhjálmur Símon. Tveir til viðbótar, sem lánuðu bankareikninga sína til að liðka fyrir svikunum, fá níu og sjö mán- aða fangelsisdóma, sem að öllu leyti eru skilorðsbundnir. Helgi Ragnar vildi sáralítið tjá sig um málið í yfirheyrslum hjá lögreglu og við skýrslutökur fyrir dómi og neitaði að svara flestum spurningum sem fyrir hann voru lagðar. Í dómsniðurstöðunni segir að hinir sakborningarnir hafi hvorki haft „þekkingu né burði til að skipuleggja og útfæra jafn umfangsmikið og flókið brot“. Helgi Ragnar hafi hins vegar bæði haft „tilskilda þekkingu og mikla reynslu af fasteignaviðskiptum og fyrirtækjarekstri“. Hann eigi sér engar málsbætur. Féð sem svikið var undan er allt ófundið. Engum bótakröfum var hins vegar haldið á lofti í saka- málinu. stigur@frettabladid.is Arkitekt svikanna fékk þrjú og hálft ár Helgi Ragnar Guðmundsson, 32 ára fyrrverandi fasteignasali, dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að skipuleggja stórfelld svik út úr Íbúðalánasjóði. Tveir helstu samverkamenn hans fá þriggja ára og fimmtán mánaða dóma. SAGÐI TIL HÖFUÐPAURSINS Vilhjálmur Símon Hjartarson sagði frá Helga Ragnari í von um að fá vægari dóm. Ekki er annað að sjá en að það hafi gengið eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Auður Sveinsdóttir Laxness lést hinn 29. október, 94 ára að aldri. Auður fæddist 30. júlí 1918 og ólst upp í Vesturbæ Reykja- víkur. Hún giftist Hall- dóri Laxness rithöfundi í desember 1945 og bjuggu þau ásamt dætr- um sínum, Sigríði og Guðnýju, að Gljúfrasteini í Mosfellsdal. Auður var handavinnu- kennari að mennt og vann um árabil að félagsmálum og kvenréttindabaráttu. Hún var meðal stofnenda kvennablaðs- ins Melkorku árið 1944 og sat auk þess lengi í ritnefnd tíma- ritsins Hugur og hönd. Auður dvaldi síðustu ár á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík. Auður Laxness látin 94 ára Fjör á húsnæðismarkaði Alls var 123 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu vikuna 19. til 25. október. Heildarvelta á húsnæðis- markaði var 3.476 milljónir króna sem er nokkru meira en síðustu vikur. Vikuleg meðalvelta það sem af er árinu er 2.975 milljónir. VIÐSKIPTI DÓMSMÁL Mál þrotabús BGE eignar haldsfélags gegn Gunn- ari Sigurðssyni, fyrrverandi for- stjóra Baugs Group, var tekið til aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Málið snýst um lán sem Gunn- ar, ásamt öðrum starfsmönnum, fékk til þess að kaupa hlutabréf í Baugi í gegnum BGE. BGE var stofnað í nóvember 2003 í þeim tilgangi að halda utan um kaupréttarsamningakerfi starfsmanna Baugs. Kerfið, sem var hannað af KPMG, virkaði þannig að Kaup- þing lánaði Baugi, gegn veði í hlutabréfum félagsins, og Baugur lánaði féð síðan áfram til starfs- manna Baugs. Starfsmennirnir fengu lánað fyrir hlutabréfum sem þeir máttu svo selja á ákveðn- um tímum. Starfsmennirnir halda því fram að lánin feli ekki í sér persónuleg- ar ábyrgðir. Þessu er skiptastjóri þrotabúsins ósammála. Á Vísi.is kemur fram að fjörutíu starfsmenn Baugs hafi gert slíka samninga, en skiptastjóri BGE ákvað að láta reyna á innheimtu fimmtán stærstu skuldaranna. Meðal stærstu skuldara voru, auk Gunnars, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, þá aðaleigandi Baugs, Skarphéðinn Berg Stein- arsson og Stefán H. Hilmarsson. Þeir fjórir skulduðu samanlagt rúman milljarð króna en heildar- lánin voru 3,4 milljarðar. Niðurstöðu í málinu má vænta innan nokkurra vikna. Tekið skal fram að Jón Ásgeir er eiginmaður Ingibjargar Pálmadóttur, aðaleiganda 365 sem gefur meðal annars út Fréttablaðið. - þj Aðalmeðferð í máli þrotabús BGE vegna lána sem starfsfólk Baugs fékk til hlutabréfakaupa í Baugi: Segja lánin ekki fela í sér persónulegar ábyrgðir FYRIR DÓMI Aðalmeðferð í máli BGE gegn Gunnari Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, fór fram í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FRAKKLAND, AP Ákveðið hefur verið að allir ráðherrar í ríkis- stjórn Frakklands fái sérstaka fræðslu um kynjamisrétti, sem á að hjálpa þeim að forðast staðl- aðar kynja- ímyndir. Jean-Marc Ayrault, for- sætisráðherra Frakka, sem hafði frum- kvæði að þessu eftir að Steph- ane Le Foll, landbúnaðarráðherra, gaf í skyn í viðtali að konur réðu ekki við tæknivinnu. „Ég hef reynt að efla veg kvenna eftir megni, jafnvel þótt sum málin okkar séu mjög tækni- leg,“ sagði Le Foll. - gb Ráðherra misstígur sig: Ríkisstjórnin sett í kynjanám SÝRLAND, AP Stjórnarherinn í Sýr- landi gerði harðar loftárásir á uppreisnarmenn í gær, meðal annars í úthverfi höfuðborgar- innar Damaskus þar sem rúm- lega 20 manns létu lífið. Loftárásir voru líka gerðar á borgina Maaret al Numan, sem er á þjóðveginum milli Dam- askus og Aleppo, tveggja stærstu borga landsins. Uppreisnarmenn náðu þessari borg á sitt vald 10. október. - gb Hörð átök í Sýrlandi: Loftárásir dynja á uppreisnarliði HAGSTOFA Fyrstu níu mánuði ársins hafa 789 fyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta, en það er tæplega þrjátíu prósenta fækkun frá sama tíma í fyrra þegar 1.122 fyrirtæki urðu gjald- þrota. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Flest gjaldþrot í ár eru í bygg- ingarstarfsemi og mannvirkja- gerð. Alls voru 128 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í sept- embermánuði en á sama tíma- bili voru 138 ný einkahlutafélög skráð hér landi. Fyrstu níu mánuði ársins hafa 1.330 félög verið nýskráð sem er sex prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. - þj Tölur frá Hagstofu Íslands: Færri gjaldþrot en á síðasta ári Bjarni, hvort ertu betri í bassa- plokki eða að gera plokkfisk? „Ég get gert mér mat úr hvoru tveggja, en ég held ég verði að nefna bassaplokkið.“ Bjarni Siguróli Jakobsson var nýlega sæmdur titlinum matreiðslumaður ársins. Hann hóf nám í bassaleik, en sneri blaðinu við og fór í matreiðslunám. JEAN-MARC AYRAULT Stökktu til Tenerife 6. nóvember Frá aðeins kr. 109.900 í 15 nætur Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á allra síðustu sætunum 6. nóvember til Tenerife. Þú bókar flugsæti og gistingu og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Fjölbreytt önnur sértilboð jafnframt í boði. Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. Kr. 109.900 – 15 nátta ferð Netverð m.v. 2 - 4 í herbergi / stúdíó / íbúð. Kr. 139.900 - með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna. Kr. 169.900 - með „öllu inniföldu“ Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna. Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.