Fréttablaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 14
14 31. október 2012 MIÐVIKUDAGUR Í Fréttablaðinu síðastliðinn fimmtudag leggur Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður atvinnuvega- og nýsköp- unarráðherra, til í grein sinni að festa í lög forgang sparifjáreiganda í fjármála- stofnunum. Þetta eru góð rök í sjálfu sér því þannig er kröfuhöfum ljóst að spari- fjáreigendur njóta forgangs komi til gjaldþrots banka. Í framhaldi af þessu er lagt til að afnema ríkisábyrgð innstæðna. Rök því tengd og önnur rök sem hann leggur fram ganga þó ekki upp. Huginn segir að sparifjáreigendur séu með forgangi krafna í raun tryggðir; slíkt þarf ekki nauðsynlega að vera fyrir hendi enda gæti stofnun að einhverju leyti fjár- mögnuð með innlánum hæglega tapað meira fé en þeim innstæðum sem eru fyrir hendi. Hann telur að lánveitendur vandi sig betur við lánveitingar til fjár- málastofnana ef innstæðueigendur njóta forgangs. Ekkert í fjármálasögunni gefur slíkt til kynna. Miðað við hið litla hlutfall sparifjár Íslendinga í efnahagsreikningi bankanna má spyrja hversu mikið vægi hugsanleg forgangsröðun þeirra hefði haft þegar lánveitingar til banka áttu sér stað. Að lokum segir hann að sparifjáreigendur verði að vanda val sitt á fjármálastofn- unum. Hér er skautað fram hjá því hversu langsótt það er að sparifjáreigendur hafi nauðsynlega þekkingu til að vega og meta hversu stöndugir bankar eru hverju sinni. Slæm staða íslensku bankanna var flest- um starfsmönnum þeirra hulin fram að 8. október 2008. Það sem meira er, einungis orðrómur um slæma afkomu banka gæti valdið áhlaupi, eins og gerðist í banka- hruninu 1907 í Bandaríkjunum, og valdið gjaldþroti. Óttar Guðjónsson bendir sam- dægurs í Fréttablaðinu einmitt á að lausa- fjárþurrð fjármagns sé algengasta orsök gjaldþrota fjármálafyrirtækja. Að mati Hugins er erfitt að aðskilja viðskiptabankastarfsemi frá fjárfest- ingabankastarfsemi en hugmyndir hans geti hugsanlega leyst þau vandamál. Það er rangt í báðum tilvikum. Betri kostur er að bankar borgi árlegt trygg- ingarfé í ríkissjóð sem hlutfall af inn- stæðum vegna þeirra trygginga sem við- skiptabankar ættu að njóta, sem eðlilega leiðir til lægri vaxtakjara innstæðueig- enda, og aðskilja starfsemi þeirra frá fjárfestingar bönkum. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Betri bankar Fjármál Már Wolfgang Mixa fjármálafræðingur NÝ KILJA Á þessu ári eru liðin sextíu ár frá því að samþykkt var að setja Norðurlandaráð á laggirnar. Systurþjóðirnar í Skandinavíu eru vissulega margfalt stærri en við. Engu að síður er hver og ein Norðurlandaþjóð aðeins smáþjóð í alþjóðlegu samhengi. Þegar þjóðirnar leggja saman ná þær hins vegar meiri vigt. Það hefur sýnt sig í fjölmörgu alþjóð- legu samstarfi. Norrænt samstarf hefur greitt Íslendingum leið í nám á öðrum Norðurlöndum og einnig inn á vinnumarkað landanna. Tilnefn- ingar íslenskra listamanna til bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs hafa komið þeim á kortið hjá grannþjóðunum. Norrænt samstarf á ýmsum öðrum sviðum, svo sem meðal matreiðslumanna og hönnuða, hefur reynst frjór akur. Þar er unnið með sameiginlegar rætur og þunga- vigtin út á við verður meiri en ef hvert og eitt land sækti eitt fram. Sóknarfærin í norrænu samstarfi eru mörg eins og Jan-Erik Enestam, framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs, benti á í viðtali við Sigríði Björgu Tómasdóttur sem birtist hér í blaðinu á mánu- dag. Hann nefndi sem dæmi utanríkisþjónustu með sameiningu sendiráða og heilbrigðismál þar sem ná mætti fram sparnaði með aukinni verkaskiptingu milli landa. Mestu skiptir þó sú sýn á grunnstoðir samfélagsins og velferðar- mál sem norrænu þjóðirnar deila og stendur traustum fótum í sam- eiginlegri fortíð og menningu. Lengst af kom ekki annað til greina en Norðurlandaþjóðir ættu samskipti á norrænum tungum en með mikilli sókn enskunnar á Norðurlöndum og minnkandi áhuga og kunnáttu í sænsku meðal Finna hefur enskan sótt í sig veðrið. Á þingum Norðurlandaráðs er hún þó ekki notuð heldur tala Danir, Svíar og Norðmenn móðurmál sitt en Finnar og Íslendingar eiga þess kost að fá túlkaþjónustu. Norrænu tungumálin eru skyld og það er tiltölulega auðvelt að ná góðum tökum á að minnsta kosti einu þeirra, auk móðurmáls- ins. Sameiginlegar rætur þjóðanna liggja meðal annars í skyldleika málanna og þess vegna er það ósk margra að Norðurlandamálin megi áfram vera samskiptamálið á norrænum vettvangi. Nokkuð er um liðið síðan enskan var tekin fram fyrir dönskuna í málanámi grunnskólabarna hér. Danskan heldur þó enn velli enda er það svo að hvergi eru fleiri Íslendingar við nám erlendis en í Danmörku. Þeir fjölmörgu Íslendingar sem hafa flutt til Danmerkur, og raunar annarra Norðurlanda einnig, geta vitnað um að skóladanskan reynist ágætur grunnur að því að tileinka sér hvaða Norðurlandamál sem er. Engu að síður er umhugsunarefni hvort ekki ætti að leggja aukna áherslu á að þjálfa skilning á öllum Norðurlandamálunum í dönsku- kennslu hér á landi, meðal annars til að styrkja stoðir Norðurlanda- málanna í norrænum samskiptum. Á sama tíma mætti draga úr framburðarþjálfun og leyfa gömlu góðu prentsmiðjudönskuna. Talþjálfun yrði mörgum auðveldari með þeim hætti auk þess sem prentsmiðjudanskan svokallaða er líklega það Norðurlandamál sem flestir skilja og kemur því að góðu gagni í norrænu samstarfi. Formlegt samstarf Norðurlanda í sextíu ár: Lifi prentsmiðju- danskan! Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is SKOÐUN Átta ár Ríkisendurskoðun hefur haft kaup stjórnvalda á Oracle-bókhaldskerfinu til athugunar í átta ár, sem frægt er orðið. Skýrslu um málið var loksins skilað í gær. Og hver er niðurstaðan? Jú, áætlanagerð fyrir kaupin var ábótavant. Og: „Ríkisendurskoðun beinir því til stjórnvalda að standa framvegis betur að málum við kaup og innleiðingu hug- búnaðar.“ Þessum átta árum sannarlega var vel varið. Kenning fyrir lítið Á dögunum var bent á það á þessum vett- vangi að það færi vel á því að Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir sækti um starf dagskrárstjóra á RÚV, svo að Páll Magnússon gæti endurgoldið henni ráðninguna í útvarpsstjórastöðuna á sínum tíma. Nú er búið að birta lista yfir umsækj- endur en Þorgerður Katrín er ekki á honum. Þar fór góð kenning í súginn. Reyndar er Egill Helgason ekki heldur á honum, ólíkt því sem var síðast, eins og hann bendir sjálfur á í bloggfærslu. Alls konar umsækj- endur En hverjir eru á listanum? Meðal þeirra sem vilja stýra útvarpsdagskránni eru látúnsbarkinn Bjarni Arason, Berghildur Erla Bernharðsdóttir, fyrrverandi fréttakona og upplýsinga- fulltrúi, Arnþór Helgason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Öryrkjabanda- lagsins, leikstjórinn Viðar Eggertsson, leikarinn Randver Þorláksson og dag- skrárgerðarkonan Margrét Marteins- dóttir – sem hlýtur að teljast líkleg til afreka. Sjónvarpsmegin má nefna leikkonuna Eddu Björg- vinsdóttur, sjónvarpsmanninn Þorstein Joð Vilhjálmsson, kvikmyndagúrúinn Ásgrím Sverrisson og Skarphéðin Guðmundsson, dag- skrárstjóra Stöðvar 2. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.