Fréttablaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 31. október 2012 15 Stjórnskipun Íslands byggist á þeirri grunnhugmynd vest- rænna lýðræðisríkja að uppspretta alls ríkisvalds kom frá þjóðinni. Í því felst að þjóðin hefur endanlegt vald til að ákveða þær leikreglur sem handhafar ríkisvalds skulu fylgja. Með öðrum orðum; þjóðin er stjórnarskrárgjafinn. Þjóðin setti lýðveldisstjórnarskrána Þessi hornsteinn lýðveldisins var lagður við setningu stjórnarskrár- innar árið 1944. Samkvæmt 81. gr. var skilyrði gildistökunnar að meirihluti allra kjósenda í land- inu hefði samþykkt hana. Yfir 98% kjósenda tóku þátt í atkvæða- greiðslunni og um 95% þeirra sam- þykktu stjórnarskrána. Í þessu fólst hvorki leiðbeining né ráð- gjöf. Þar beitti þjóðin valdi sínu sem stjórnarskrárgjafi. Með því samþykkti hún einnig að viðhalda sérstakri tilhögun um stjórnar- skrárbreytingar þaðan í frá, sbr. 1. mgr. 79. gr. hennar. Samþykki Alþingi breytingar á stjórnarskrá skal rjúfa þing og halda alþingis- kosningar og þarf nýkjörið þing að staðfesta frumvarpið óbreytt. Krafan um vandaða málsmeðferð Öll lýðræðisríki byggja stjórn- skipun sína á grunnstoðinni um uppsprettu valdsins. Gilda jafnan reglur um setningarhátt og síðari breytingar á stjórnarskrá sem tryggja vandaða málsmeðferð og gera breytingar örðugri en á almennum lögum. Þær stuðla að samhljómi og sátt milli þjóðarinnar og þjóðkjörinna fulltrúa um kjöl- festu stjórnskipulagsins. Spornað er við því að stjórnarskrárbreyt- ingar stjórnist af dægursveiflum um pólitísk deiluefni og naumum sitjandi þingmeirihluta á hverjum tíma eða minnihluta kjósenda í háværum þrýstihópum, sem reiða sig á þögn meirihlutans. Íslenska aðferðin við stjórnar- skrárbreytingar um samþykki tveggja þinga og kosningar á milli á sér ýmsar hliðstæður. Í dönsku stjórnarskránni er sambærileg regla en auk þess skulu stjórnskip- unarlög, eftir samþykkt tveggja þinga, sett í þjóðaratkvæði þar sem a.m.k. 50% kjósenda þurfa að taka þátt og þarf samþykki minnst 40% allra kjósenda á kjörskrá. Víða eru einnig sérreglur um setningu nýrrar stjórnarskrár, t.d. aukinn meirihluta þingmanna eða þjóðin þurfi að samþykkja hana með bind- andi hætti og settir eru þröskuldar um lágmarksþátttöku eða hlutfall kjósenda sem þarf að veita sam- þykki sitt. Frumvarpið fær þá ýtar- lega efnislega umfjöllun þjóðþings en að því búnu er afraksturinn lagður í dóm þjóðarinnar, til sam- þykktar eða synjunar. Ókostir ráðgefandi atkvæðagreiðslu Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla getur verið góð leið til að leita afstöðu þjóðarinnar um skýr og afmörkuð álitaefni. Á slíkum atkvæðagreiðslum eru þó þeir van- kantar að stjórnskipuleg skylda hvílir á þingkjörnum fulltrúum að fylgja eingöngu sannfæringu sinni en ekki fyrirmælum frá kjósendum. Reglan á þá rökréttu skýringu að þingmenn skuli starfa í þágu þjóðarinnar allrar en ekki fylgja fyrirmælum, hugsanlega frá sjónarhóli þröngra sérhags- muna. Það getur skapað pólitískan þrýsting á þingmenn að fylgja niðurstöðu ráðgefandi atkvæða- greiðslu ef útbreiddur stuðningur er við tiltekið mál, enda eiga þeir endurkjör sitt undir kjósendum. Ef þátttaka er lítil eða mjótt á munum er niðurstaðan hins vegar útsett fyrir mismunandi túlkun stjórn- málaafla, ekki síst hvaða ályktun eigi að draga um afstöðu þeirra sem sátu heima. Málið flækist enn ef spurning lýtur að margþættu málefni sem gefur svigrúm til túlkunar. Í Evrópuríkjum þar sem þjóðin kýs um nýja stjórnarskrá er niður- staða atkvæðagreiðslu ávallt laga- lega bindandi lokaorð. Reyndar eru ráðgefandi atkvæðagreiðslur óþekktar í ríkjum sem lengst hafa náð í þróun beins lýðræðis. Endurskoðunarferli án hliðstæðu Fyrir tveimur árum hófst hér ferli við endurskoðun stjórnar- skrárinnar með einstæðri aðferð. Leitað var eftir breiðu samráði við þjóðina um viðhorf til stjórnar- skrárinnar. Í júlí 2011 skilaði stjórnlagaráð Alþingi tillögum sínum að nýrri stjórnarskrá. Bæði pólitískur vilji og ríkur þjóðar- vilji er til að ljúka verkinu. Ríflega þriðjungur kjósenda og jafnframt 2/3 þeirra sem þátt tóku í ráðgef- andi atkvæðagreiðslunni 20. októ- ber töldu að breytingaferlið skyldi halda áfram og tillögur stjórnlaga- ráðs teknar til meðferðar á Alþingi eins og að var stefnt í upphafi. Þá voru afdráttarlaus svör kjósenda við sértækum spurningum, þar sem markmiðin eru skýr en svig- rúm er um leiðir til að ná þeim. Næstu skref Nú kemur til kasta Alþingis að hefja meðferð frumvarps um stjórnarskrárbreytingar þar sem tillögur stjórnlagaráðs eru mikil- vægt leiðarljós. Staðhæfingar um að þingið megi engar efnislegar breytingar gera eru rangar og ganga þvert á grunn hugsun stjórn- skipunarinnar. Hitt er víst að enginn ágreiningur er um marga veigamikla þætti í til lögunum sem fela í sér löngu tímabærar stjórnar skrárumbætur. Tvennt kemur til greina um fram haldið. Í ljósi þess stutta tíma sem er fram undan hefur komið til tals að skipta verkefninu í smærri áfanga. Taka mætti fyrst til meðferðar þætti sem sátt er um og brýnast að bæta úr, en líka þá sem sérstaklega var spurt um 20. október. Það gæti verið skynsamlegri leið en að fær- ast of mikið í fang og hætta á að enginn árangur yrði af þessari miklu og fordæmalausu vegferð í endurskoðun stjórnarskrár. Ef stefnan er sett á nýja stjórnar- skrá er verkefnið vandmeðfarnara. Verður ekki varist þeirri hugsun hversu illa Alþingi nýtti tímann fyrir svo mikilvægt mál undanliðið ár þar sem tillögur stjórnlagaráðs lágu ósnertar á borði þing nefndar. Það vekur ugg um að málið fái ekki þá vönduðu meðferð sem það verð- skuldar með sáttavilja en verði þröngvað í gegn með naumum meirihluta stjórnarþingmanna. Þjóðin hefur valdið Í áliti meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar síðasta vor sagði að gildistaka nýrrar stjórnar skrár yrði háð endanlegri staðfestingu og samþykki þjóðarinnar að af lokinni síðari samþykkt Alþingis skv. 79. gr. Því markmiði verður aðeins náð með því að setja í frumvarp til nýrrar stjórnarskrár ákvæði sem bindur gildistöku hennar þessu skilyrði eftir að hún hefur verið samþykkt af tveimur þingum. Þá ber að fylgja stefnunni sem mörkuð var við lýðveldisstofnun að meiri- hluti kjósenda í landinu þurfi að samþykkja hana. Þannig eru kjós- endur hvattir til að taka afstöðu og með upplýstu samþykki þeirra verður stjórnarskráin sett í breiðri sátt. Af málflutningi forsætisráð- herra verður þó ráðið að ekki eigi að efna þessi fyrirheit. Rætt er um að halda aðra ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða alþingiskosningum. Í stað þess að leita samkomulags á þingi, ljúka meðferð frumvarps á tveimur þingum og leggja síðan endanlega í dóm þjóðarinnar, eiga almenn viðhorf kjósenda með þá skoðun að stjórnarskrárbreytinga sé þörf að skapa pólitískan þrýsting fyrir síðari afgreiðslu frumvarpsins. Þannig á að knýja þingmenn, sem telja að frumvarpið hafi alvar- lega ágalla eða sé þjóðinni ekki til heilla, til að víkja frá sannfær- ingu sinni. Atkvæðagreiðsla sem hefur aðeins það markmið að leita ráð- gjafar frá kjósendum sviptir þjóð- ina réttinum til að eiga lokaorðið um nýja stjórnarskrá og yrði mikil afturför. Því er Alþingi bæði rétt og skylt að búa svo um hnútana að réttur þjóðarinnar sem hins endan lega stjórnarskrárgjafa verði tryggður. Þjóðin er stjórnarskrárgjafi – ekki ráðgjafi Umfjöllun Kastljóss um Raufar-höfn miðvikudaginn 24. októ- ber sl. sætti tíðindum. Stór tíðindum. Vandkvæði þessa bæjar félags höfðu farið inn um annað eyrað og út hitt í umræðu undanfarinna daga. En nú brá svo við að sjónvarpið sendi frétta- og tökumann á vettvang til að hafa tal af bæjarbúum í eigin persónu og leiða okkur hinum stað- hætti fyrir sjónir. Og sú sjón var stúdíó sögu ríkari. Fyrrum stönd- ugt bæjarfélag hafði með viti firrt- um fjármálagerningi glutrað frá sér bjargarmeðulunum og í kjölfar- ið misst frá sér fjórðung íbúanna. Eins og Reykjavík í smámynd. Það var eitthvað ofurraunsætt við þessa umfjöllun, við erum svo vön því að landsbyggðin sé utan sjónvarpsgeislans, því þótt Landinn hafi stóraukið upplifun okkar af þjóðinni þá er það fólk í sparifötunum og flíkar ekki vand- kvæðum sínum á sunnudegi. Þetta var í miðri viku. Og svona ætti að vera hvert einasta kvöld. Að leyfa sjónvarpsgeislanum að nema allt landið, sem er áreiðanlega nauð- synlegur þáttur í að halda öllu landinu í byggð. Mér kæmi jafnvel ekki á óvart þótt byrjað hafi að rofa til á Raufar höfn í kjölfarið, að fyrir- tæki og félagasamtök hafi séð þar tækifæri til að eignast orlofshús, listamenn vinnuaðstöðu og ein- staklingar sumarathvarf. Já, hver veit nema að í þessu Kastljósi felist leiðsögn fyrir Ísland allt: að byrjun á lausn hvers vanda felist í að sjá hann? Loksins Kastljós! Allt fram á seinni hluta síðustu aldar þótti sjómönnum vont að fá skötusel í net sín. Flestir lands- menn fúlsuðu við þessum ljóta fiski og yfirleitt var honum hent. Skötuselurinn er vissulega með ljótari fiskum sem veiðast við Íslandsstrendur en smátt og smátt tókst fólki að líta fram hjá því og í dag er skötuselur borinn fram á fínni veitingahúsum bæjarins sem herramannsmatur. Eitt þekktasta dæmið á veraldar- vísu um það hvernig viðhorf getur breytt virði hluta er sennilega ævintýrið um „Gælugrjótið“ eða „Pet Rock“ sem gerðist á áttunda áratug síðustu aldar. Þar var á ferðinni Gary nokkur Dahl, amer- ískur markaðsmaður og yfirmaður á auglýsingastofu. Dahl þessi sat á spjalli við félaga sína eitt apríl- kvöldið árið 1975 þegar talið barst að því hversu mikið umstang fylgdi því að eiga gæludýr. Dahl nefndi í hálfkæringi að auðveldast væri hreinlega að eiga grjót fyrir gælu- dýr – því þyrfti ekkert að sinna og uppihald þess kostaði ekki neitt. Stuttu seinna ákvað Dahl að setja hefðbundið fjörugrjót í gjafa öskjur ásamt umhirðuleiðbeiningum í gamansömum tón og á fáeinum mánuðum tókst Dahl að selja yfir eina og hálfa milljón „Gælugrjót“. Þar með var hann orðinn millj- ónamæringur á því að selja grjót í gjafaöskjum! Það er öllum hollt að taka Dahl sér til fyrirmyndar og skoða tækifærin sem felast í verðlitlum hversdagslegum hlutum allt í kringum okkur. Um þessar mundir gefst framhaldsskólanemum gott tækifæri til þess því nú stendur yfir hugmyndasamkeppni þeirra á meðal sem gengur einmitt út á þetta: Að gera sem mest virði úr verðlitlum hlutum. Innovit nýsköp- unar- og frumkvöðlasetur hefur fengið hátæknifyrirtækið Marel og Samtök atvinnulífsins með sér í lið en saman standa þessir aðil- ar að Snilldarlausnum Marel – hugmyndasamkeppni framhalds- skólanema. Fyrir utan ánægjuna af því að skapa eru bestu hug- myndirnar verðlaunaðar með pen- ingaupphæðum sem vonandi verða þessum ungu frumkvöðlum grund- völlur til frekari dáða. Á heimasíðu keppninnar, Snilldarlausnir.is, má fræðast frekar um hana. Hagsæld Íslands næstu áratugi byggir á nýsköpun og frjórri hugsun ungs fólks og því er ekki seinna vænna en að hefjast handa strax í dag. Skötuselur og „Gælugrjót“ Samfélagsmál Pétur Gunnarsson rithöfundur Ný stjórnarskrá Björg Thorarensen prófessor í lagadeild HÍ og sat í stjórnlaganefnd Nýsköpun Stefán Þór Helgason verkefnastjóri hjá Innovit Tilboð: 1.590 þús. Chevrolet Lacetti Station - Bílalegubíll í ábyrgð árgerð 2011 - söluverð: 1.800 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar Opið alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 25.910 kr. Afborgun á mánuði aðeins: Chevrolet Lacetti Station 1.800.000 kr. 210.000 kr. 240.000 kr. 1.590.000 kr. 25.910 kr. Söluverð: Okkar hlutur: Þín útborgun: Heildarverð til þín: Afborgun: * Auk aga ngu r 60 þú s. virð isau ki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.