Fréttablaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 42
31. október 2012 MIÐVIKUDAGUR30 sport@frettabladid.is HANDBOLTI Íslenska handbolta- landsliðið frumsýnir nýjan þjálf- ara og nýtt þjálfarateymi í Laugar- dalshöllinni í kvöld þegar liðið mætir Hvíta-Rússlandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2014 í Danmörku. Aron Kristjánsson er ekki í óska stöðu enda fyrsti landsliðs- þjálfarinn í meira en hálfa öld sem ekki fær æfingaleik fyrir fyrsta alvöru leikinn. Það hefur ekki gerst síðan að Hallsteinn Hinriks- son fór með íslenska landsliðið á HM í Vestur-Þýskalandi árið 1961 en þá hafði landsliðið ekki spilað í tvö ár. Reynum að ná vopnum „Það er búinn að vera knappur tími fyrir þessa leiki og það er því gott að liðið er búið að vera mikið saman og nokkuð vel samæft. Við reynum bara að ná vopnum,“ sagði Aron Kristjánsson. „Þetta verður mjög erfitt. Við erum með nýjan þjálfara og höfum aðeins tvo daga til að samstilla liðið,“ sagði Alexander Petersson og bætti við: „Ég vildi ekki vera í skónum hans Arons því þetta er mjög erfitt og við þurfum að hjálpa honum mikið,“ sagði Alexander. Aron hefur kynnt sér vel leik íslenska liðsins síðustu misseri og lykilmenn eins og Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sig- urðsson segja að nýi þjálfarinn hafi leitað til þeirra í undirbúningi sínum fyrir verkefnið. Meira talað en spilað „Hann hefur horft á alla okkar leiki og við getum sagt hvað hefur virkað fyrir okkur og vitum líka hvar við höfum verið í mestum vandræðum. Það er aðeins rólegra yfir þessu og meira talað en spilað af því að við þurfum að vera með allt á hreinu,“ sagði fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson. „Þegar það kemur nýr þjálfari þá þarf hann að kynnast liðinu og að sama skapi við að kynnast honum og hans aðferðum. Gummi var búinn að vera með þetta í lang- an tíma og það er ákveðin víta- mínsprauta að breyta aðeins til og fá inn nýja menn. Þegar lið hafa verið að spila lengi saman er minni ástæða til að breyta hlutunum og þá sérstaklega þegar þetta hefur virkað,“ sagði Snorri Steinn Guð- jónsson. „Það er ekki hægt að breyta neinu núna og því snýst þetta bara um að ná saman, finna hver annan í vörn og sókn og byggja á því sem hefur verið gert. Svo reynir maður í framhaldinu að finna leiðir til að þróa okkar leik og bæta okkur,“ sagði Aron. Ólafur Stefánsson er einn af þremur lykilmönnum liðsins á ÓL í London sem verða ekki með lið- inu í kvöld. „Það eru breytingar á liðinu frá Ólympíuleikunum og það eru nokkrir dottnir út. Við þurfum að mæta einbeittir og við þurfum að spila góðan leik til að vinna,“ sagði Aron. Sýnd veiði en ekki gefin „Hvít-Rússar geta reynst mjög erf- iðir og þeir eru skeinuhættir. Þeir eru vel skipulagðir og með nokkra sterka leikmenn innanborðs. Þetta er sýnd veiði en ekki gefin, við þurfum virkilega að vera á tánum og þurfum mikinn stuðning frá áhorfendum. Við þurfum að fá fulla höll og pressu á andstæðinginn til þess að landa sigri,“ sagði Aron og Alexander spáir sigri. „Þetta verður mjög erfiður leik- ur en við vinnum þetta með fjórum mörkum,“ sagði Alexander léttur. Leikurinn hefst klukkan 19.30. ooj@frettabladid.is HVÍT-RÚSSAR ættu að kunna vel við sig í Laugardalshöllinni ef marka má söguna því þeir eru með hundrað prósenta sigurhlutfall í tveimur leikjum sínum þar. Hvíta-Rússland vann 29-24 sigur á Íslendingum á HM á Íslandi 1995 og vann síðan 27-26 sigur í seinni leik liðanna í umspili EM 2002. Íslenska landsliðið hefur aftur á móti unnið alla fjóra leiki sína við Hvít-Rússa utan Hallarinnar þar á meðal 33-24 sigur í Kaplakrika í umspili fyrir EM 2006. Ég vildi ekki vera í skónum hans Arons því þetta er mjög erfitt. ALEXANDER PETERSSON LEIKMAÐUR ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS Allt um leiki gærkvöldsins er að fi nna á REKJAVÍK: Krókháls 16 | AKUREYRI: Lónsbakka | sími 568-1500 | www.thor.is Steypuvíbratorar Steypuvíbrator M2000 1,7 kW, 6,4 kg. 17.500 pr/mín Steypuvíbrator M3000 2,3 kW, 8,4 kg. 16.500 pr/mín Fáanlegir hausar 35 mm og 45 mm Fáanlegir barkar 3, 4 og 5 metrar WACKER NEUSON umboðið á Íslandi Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? KALT ÚTI Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa 6.990 LI! Panelofnar í MIKLU ÚRVA FRÁBÆRT VERÐ! KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ Ryco-1509 Olíufylltur 2000W rafmagnsofn m/termo stillingum og yfirhitavörn 9 þilja 7.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Ryco-2006T Rafmagns - þilofn T urbo me ð y firhita - vari 3 stillingar 2000w 4 490. Rafmagnshita- blásari 2Kw 1.995 HANDBOLTI Siarhei Rutenka er einn lykilmanna hvítrússneska lands- liðsins sem mætir því íslenska í kvöld. Hann er lykilmaður í sterku liði Barcelona en var einn- ig samherji Ólafs Stefánssonar hjá Ciudad Real frá 2005 til 2009. Það þykir þó lítið tiltökumál að skipta um félagslið, enda algengt í öllum íþróttum. Heldur óalgeng- ara er að skipta um landslið en það gerist þó reglulega. Rutenka hefur þó afrekað það sem fáum hefur tekist – að skipta tvívegis um landslið. Rutenka er fæddur og uppalinn í Hvíta-Rússlandi og hóf sinn lands- liðsferil þar. Hann spilaði svo með félagsliðum í Slóveníu frá 2000 til 2005 og fékk slóvenskan ríkis- borgararétt árið 2004. Rutenka skipti þá um landslið og spilaði alls 40 landsleiki með Slóveníu, til að mynda bæði á EM 2006 og HM 2007. Árið 2005 flutti Rutenka svo til Spánar eftir að hafa samið við Ciu- dad Real. Þremur árum síðar fékk hann spænskan ríkisborgararétt og afsalaði sér um leið þeim slóv- enska. Reglan er að handboltamenn mega ekki spila landsleik í þrjú ár áður en þeir fá að spila með nýju landsliði og hefði Rutenka því getað gefið kost á sér í spænska landsliðið árið 2010. Hann valdi hins vegar að snúa aftur til síns heima og hefur síðan verið fasta- maður í liði Hvít-Rússa. - esá Siarhei Rutenka hefur komið víða við: Landsliðaflakkarinn GEGN ÍSLANDI Alexander Petersson tekur hér á Siarhei Rutenka í leik Slóveníu og Íslands á HM 2007. Þeir mætast aftur á vellinum í kvöld. NORDICPHOTOS/AFP N1-deild kvenna ÍBV - FH 27-18 (14-14) Fylkir - Selfoss 21-27 (9-12) Grótta - Afturelding 19-14 (7-5) HK - Haukar 28-23 (12-12) Stjarnan - Fram 23-26 (13-13) Mörk Stjörnunnar (skot): Jóna M. Ragnarsdóttir 6 (15/1), Hanna G. Stefánsdóttir 5/1 (9/2), Rakel Dögg Bragadóttir 5 (12), Þórhildur Gunnarsdóttir 3 (4), Kristín Clausen 2 (2), Sandra Sif Sigurjóns- dóttir 1 (1), Ágústa Edda Björnsdóttir 1 (3). Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 11/2 (29/4, 38%), Hildur Guðmundsdóttir 2 (10, 20%). Mörk úr hraðaupphlaupum: 2 Mörk Fram (skot): Birna Berg Haraldsdóttir 7 (12), Stella Sigurðardóttir 6/1 (8/2), Elísabet Gunnars- dóttir 5/1 (6/2), Ásta Birna Gunnarsdóttir 5 (8), Sigurbjörg Jóhannsd. 2 (3), Sunna Jónsd. 1 (1). Varin skot: Guðrún Bjartmarz 9/2 (19/2, 47%), Guðrún Ósk Maríasdóttir 6 (19/1, 32%). Mörk úr hraðaupphlaupum: 6 Fiskuð víti: 4 (Stella 2, Elísabet 1, Sigurbjörg 1) Enski deildarbikarinn Sunderland - Middlesbrough 0-1 Leeds - Southampton 3-0 Reading - Arsenal 4-4* Swindon - Aston Villa 2-3 Wigan - Bradford 0-0* *framlenging stóð yfir þegar blaðið fór í prentun. ÚRSLIT Ekki tími fyrir breytingar Aron Kristjánsson verður í kvöld fyrsti landsliðsþjálfari karla í meira en fimmtíu ár sem fær ekki æfingaleik fyrir fyrsta keppnisleikinn. Ísland mætir Hvít-Rússum í Höllinni í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2014. LÉTTIR Á ÆFINGU Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir Svavarsson grínast hér á einni af þremur æfingum íslenska liðsins fyrir leikinn við Hvíta-Rússland. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ALLT SPORTIÐ Á ÞÍNUM HEIMAVELLI FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.