Fréttablaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 19
Sjávarbarinn við Grandagarð 9 býður upp á fleira gott en fisk þessa dagana. Íslensk villibráð
verður í öndvegi á staðnum fimmtu-
dags-, föstudags- og laugardagskvöld
út nóvember. „Þetta er heimilislegt og
svolítið nýstárlegt hlaðborð, ekki síst
úr villibráð sem tengist sjónum, og á
miklu lægra verði en gengur og gerist,
aðeins 2.800 krónur á mann,“ segir
Magnús Ingi Magnússon veitingamaður.
Á hlaðborðinu er meðal annars villi-
bráðarsúpa, lax, gæs, hreindýr, svart-
fugl, selur og hrefna í ýmsum útgáfum
með fjölbreyttu meðlæti.
„Við leggjum mikla áherslu á að
hráefnið sé fyrsta flokks og fáum mikið
af því beint frá bónda,“ segir Magnús
Ingi. „Hreindýrakjötið er til dæmis frá
Snæfelli fyrir austan og selinn fáum við
hjá Hafsteini bónda í Flatey á Breiða-
firði.“ Það er ekki algengt að selur sé á
boðstólum í íslenskum veitingahúsum
en Magnús Ingi ólst upp við að borða
hann þegar hann var í sveit í Flatey
sem unglingur. „Mér, eins og mörgum
öðrum, þykir selurinn algjört lostæti og
ég hef gaman af því að elda hann. Það
er líka skemmtilegt að leika sér með
hvalkjötið, við erum með það hrátt,
grafið, í lasanja og svo bjóðum við upp
á hrefnusteikur með piparsósu. Í bland
er svo hefðbundnari villibráð eins og
gæs og hreindýrabollur.“
Allar nánari upplýsingar um hlað-
borðið og réttina á því er að finna á vef
Sjávarbarsins, Sjavarbarinn.is. Einstak-
lingar jafnt sem hópar eru velkomnir.
Vissara er að panta borð tímanlega í
síma 517-3131 en það er þó ekki nauð-
synlegt.
Hið hefðbundna sjávarréttahlaðborð
er á sínum stað mánudags- til miðviku-
dagskvöld og í hádeginu alla virka daga.
ÍSLENSK VILLIBRÁÐ
Á SJÁVARBARNUM
SJÁVARBARINN KYNNIR Villibráðarhlaðborð verður í öndvegi á Sjávarbarn-
um við Grandagarð út nóvembermánuð – heimilislegt og létt fyrir pyngjuna
með áherslu á villibráð sem tengist sjónum.
SELUR
Hafsteinn bóndi í Flatey
á Breiðafirði veiðir og
verkar selinn fyrir villi-
bráðarhlaðborð Sjávar-
barsins.
MYND/VALLI
MYND/VALLI
FRÁBÆRT VERÐ
„Það kostar aðeins 2.800 krónur á
mann að skella sér á villibráðarhlað-
borð á Sjávarbarnum,“ segir Magnús
I. Magnússon veitingamaður.
ÁST Í KRUKKU
Heimagert góðgæti er dýrindis tækifærisgjöf. Kaupið
fallega krukku og fyllið hana með smákökum, konfekti,
biscotti eða öðru góðgæti. Bindið fallega slaufu um
hana miðja og gleðjið ykkar nánustu. Krukkan er svo
eigulegur gripur þegar innihaldið er búið.
Vertu vinur
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Nú er farið að kólna og allra veðra von
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Laugardag 10-14.
Uppháu herrakuldaskórnir komnir aftur.
Þeir eru úr leðri og fóðraðir með lambsgæru.
Litir: svart og brúnt, stærðir: 40 - 48
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
TÆKIFÆRISGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
15% afsláttur
Professional
Professional hrærivél
fyrir veitingahús og mötuneyti með 6,9
lítra stálskál og 1,3 hestafla mótor.
Fjöldi aukahluta fáanlegur.
Suðurlandsbraut 50 • Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Línurnar í lag!
Ný sending af aðhaldsundirfatnaði
bolir - buxur - mitti - kjólar -
pils-leggings...