Fréttablaðið - 31.10.2012, Page 10

Fréttablaðið - 31.10.2012, Page 10
31. október 2012 MIÐVIKUDAGUR10 Álagningu tekjuskatts er lokið á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2011 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og www. skattur.is. Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á lögaðila í viðkomandi sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 31. október til 14. nóvember 2012 að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 30. nóvember 2012. Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framgreindra laga. 31. október 2012 Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2012 PI PA R\ TB W A S ÍA 1 21 81 6 www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind LÁTTU FAGMENN META GULLIÐ Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku á þessu sviði. Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri skartgripagæðum. Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og framleiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri. Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum. Það skiptir mestu máli. Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki. Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18. Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði. FRÉTTASKÝRING Hver annast loftvarnir Íslands? Svíar og Finnar munu frá og með apríl 2014 sinna sérstakri nor- rænni loftrýmisgæslu yfir Íslandi. Þetta var ákveðið á fundi forsætis- ráðherra Norðurlandanna á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í gær. „Þetta er mjög spennandi verk- efni sem við bindum miklar vonir við,“ sagði Espen Barth Eide, utan- ríkisráðherra Noregs, sem sat fundinn í fjarveru Jens Stolten- berg. Barth Eide sagði að það sem væri nýtt í þessu samhengi væri að Norðurlöndin kæmu sameiginlega að lausn á vanda við varnir Íslands. „Finnland hefur upplýst íslensk stjórnvöld um að við séum tilbúin. Þetta krefst samþykkis NATO og samþykkis finnska þingsins þegar við höfum nánari upplýsingar um hvað felst í loftrýmisgæslunni. Það eru ýmis álitaefni sem koma upp,“ sagði Jyrki Katain en, forsætis- ráðherra Finn- lands. Katai- nen og Fredrik Reinfeldt, for- sætisráðherra Svía, voru ekki á einu máli um hvort herþoturn- ar yrðu vopnað- ar eða án vopna. Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra var ánægð með niðurstöðuna. „Það þarf auðvitað samráð við NATO en ég á ekki von á andstöðu við áform- in þar.“ Hún sagði aðspurð að ein- ing væri í ríkisstjórninni um málið. Engar athugasemdir hafi verið gerðar þegar áformin voru rædd í ríkisstjórn fyrr á þessu ári. Árni Þór Sigurðsson, formaður utan- ríkismálanefndar, gagnrýndi hins vegar loftrýmisæfingarnar í frétt- um RÚV í gær og kallaði þær tíma- skekkju frá dögum kalda stríðsins. thorbjorn@365.is JYRKI KATAINEN Frændur sjá um loftvarnir Ríki utan NATO sinna loftrýmisgæslu í fyrsta sinn. Eining innan ríkisstjórnar segir forsætisráðherra. Tímaskekkja, segir formaður utanríkismálanefndar. FUNDURINN Í GÆR Ráðherrarnir sitja fyrir svörum. Frá vinstri eru þarna Helle Thorning Schmidt, Jyrki Katainen, Espen Barth Eide, Fredrik Reinfeldt og Jóhanna Sigurðardóttir. MYND/NORDEN.ORG Þar sem Svíþjóð og Finnland eru ekki NATO-ríki telst þátttaka þeirra ekki vera hluti af loftrýmisgæslu NATO á Íslandi heldur sjálfstæðar vaktir en undir merkjum Noregs, sem sinnir gæslunni frá janúar-mars 2014. Samkvæmt upplýsingum blaðsins eru ýmis óleyst álitaefni. Ef rússnesk flugvél flýgur til Íslands á meðan Finnar og Svíar standa vaktina mega þeirra þotur ekki fljúga til móts við hina rússnesku vél til auðkenningar. Ástæðan er sú að þegar það gerist færist aðgerðin undir NATO Component Air Operation Centre (CAOC) á Jótlandi. Þar sem þetta eru ekki þotur frá NATO-ríkjum hafa þær ekki heimild til samskipta við CAOC. Fyrirhugað loftrýmiseftirlit hefur því flækt málin hjá NATO en þetta er í fyrsta sinn sem samstarfsþjóðir taka þátt í gæslu af þessu tagi á vettvangi NATO-ríkis á friðartímum. Flækjustigið hátt hjá NATO Hugmyndin að baki samnorrænni loftrýmisgæslu á Íslandi var fyrst sett fram í skýrslu Thorvalds Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, frá 2009. Þar er jafnframt lagt til að Norðurlöndin gefi út sérstaka yfirlýsingu um varnarmálastefnu um hvernig þau muni bregðast við ef annað norrænt ríki verður fyrir þrýstingi eða árás. Hugmyndin var Stoltenbergs eldri MEÐ BÖRNIN OG KYRKISLÖNGU Þessi arabíski faðir í Ísrael stillir sér upp til myndatöku ásamt sonum sínum tveimur og myndarlegri kyrkislöngu í tilefni fórnarhátíðar mús- líma um helgina. NORDICPHOTOS/AFP UMHVERFISMÁL Sveitarfélagið Skagaströnd og Skógræktarfélag Skagastrandar skora á rjúpna- veiðimenn að stunda veiðarnar utan skógræktarsvæðisins í Spá- konufellsborg. „Síðastliðið sumar var mjög augljóst að talsvert af þeim við- kvæma trjágróðri sem þar er að vaxa upp hafði orðið fyrir haglaskotum og skemmst vegna þess,“ segir í ákalli á heimasíðu sveitar félagsins undir fyrirsögn- inni: Ekki skjóta tré! - gar Tilmæli til rjúpnaveiðimanna: Ekki skjóta trén á Skagaströnd VIÐSKIPTI Wow Air ætlar að taka fjórar nýlegar Airbus A320-flug- vélar í notkun fyrir næsta vor. Fyrsta vélin er komin til lands- ins. Vélarnar koma til landsins í gegnum Avion Express, sem hefur verið flugrekandi fyrir- tækisins. Fyrirtækið hefur því ekki skipt um flugrekanda eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær. Skúli Mogensen, forstjóri og aðaleigandi Wow Air, segir í fréttatilkynningu að eftir yfir- tökuna á Iceland Express fyrr í mánuðinum sé verið að stórauka leiðakerfi og tíðni ferða. Að því er fram kemur í tilkynn- ingu Wow eru nýju Airbus-vél- arnar mun sparneytnari en eldri vélar félagsins og menga einnig umtalsvert minna. Þá ætlar fyrirtækið að efna til hönnunarsamkeppni um hvernig nýju vélarnar eiga að vera merkt- ar. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hefur öllu starfsfólki Ice- land Express verið sagt upp störf- um. Einhverjir af starfsmönnum á skrifstofu verða endurráðnir. - þeb Avion Express verður áfram flugrekandi Wow Air og stefnt er á stækkun flotans: Fá fjórar nýjar vélar til landsins AIRBUS Þessi vél er ein af þeim fyrstu sem Wow Air fékk til landsins. Hún er af sömu gerð og nýju vélarnar, Airbus A320.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.