Fréttablaðið - 31.10.2012, Side 20
FÓLK|
Hefurðu hugsað um sorgina? Hvers vegna eru legsteinar á gröfum látinna? Hvernig eigum
við ganga um kirkjugarða?
Þessum og fleiri spurningum er velt
upp í árlegri heimsókn tólf ára barna í
Fossvogskirkju sem er samstarfsverk-
efni Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma (KGRP) og grunnskólanna í
Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesi.
„Fyrsta heimsóknin var veturinn
1998 þegar KGRP buðu 7. bekkjum
grunnskóla á þjónustusvæði sínu að
koma í heimsókn í Fossvogskirkju,“ út-
skýrir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri
KGRP.
Í aðdraganda heimsóknanna hafði
vinnuhópur komið saman hjá Kirkju-
görðunum og samið námsefni fyrir
kennara og nemendur.
„Í undirbúningsnefnd voru skóla-
stjóri, barnasálfræðingur og prestur.
Þeir höfðu að leiðarljósi að undirbúa
nemendur fyrir það óhjákvæmilega og
oft óvænta í lífinu; að missa nákom-
inn ástvin, afa og ömmu, pabba eða
mömmu, systkin, vini, skólafélaga og
fleiri,“ upplýsir Þórsteinn.
Kennsla á verkefninu Heimsókn í
Fossvogskirkju fer fram í skólunum og
endar með heimsókn í Fossvogskirkju
þar sem nemendum er sýnd kvikmynd-
in Frá vöggu til grafar.
„Í heimsókninni tölum við saman
um námsefnið og sýnum litskyggnur úr
daglega lífinu. Í kór kirkjunnar er opin
kista og duftker sem börnin fá að skoða
og spyrja okkur um allt sem þeim dett-
ur í hug,“ segir Þórsteinn sem tekur vel
á móti börnunum í Fossvogskirkju.
Heimsóknin hefst klukkan níu að
morgni og tekur um klukkustund.
„Nú er genginn í garð fimmtándi
veturinn sem við tökum á móti grunn-
skólanemendum og þau skipta þús-
undum sem hafa komið. Þeim mætti þó
fjölga enn frekar og fleiri skólar nýta sér
tilboð okkar,“ segir Þórsteinn.
Ferlið er þannig að skólastjórar
fá bréf frá KGRP þar sem boðið er í
heimsókn í nóvember og desember, og
svo janúar og febrúar á nýju ári. Þess
er gætt að heimsókn sé ávallt í góðu
samráði við foreldra og forráðamenn
nemenda.
„Skólarnir panta tíma og fá sent til
sín kennarahefti og námshefti handa
nemendum. Námsefnið er tilvalið fyrir
kennslustundir í lífsleikni og góður und-
irbúningur fyrir lífið,“ segir Þórsteinn.
KGRP sér um kostnað við námsefni
og móttöku í Fossvogskirkju en skól-
arnir sjá sjálfir um flutning barnanna.
„Að heimsókn lokinni geta kennarar
sent inn viðbrögð við heimsókninni
á vefslóð KGRP og með því reynt að
aðlaga og bæta námsefnið og móttöku
barnanna í kirkjunni,“ segir Þórsteinn.
ANDSPÆNIS SORG
KIRKJUGARÐAR REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMA KYNNA: Á hverju ári fá
tólf ára börn í Reykjavíkurprófastsdæmum boð um heimsókn í Fossvogskirkju.
FOSSVOGSKIRKJA
Í kirkjunni horfa nem-
endur á fræðslumynd og
skoða opna líkkistu og
duftker. MYND/VILHELM
HLÝJAR MÓTTÖKUR
Þær Helga Þóra Jóns-
dóttir, Erla Pálmadóttir
og Berglind Jóhanns-
dóttir taka á móti 7.
bekkingum í Fossvogs-
kirkju.
MYND/STEFÁN
Vetrardagar
AFSLÁTTUR
af Basler vörum
15%
Tískuvöruverslunin Basicplus selur ekki einungis dömufatnað og fylgihluti heldur líka hvíldarstóla.
„Þessir stólar hafa lengi verið til sölu í
húsgagnaversluninni Valhúsgögn en nú
hefur þeirri verslun verið lokað. Maður-
inn minn var að reka Valhúsgögn og við
vildum halda áfram að selja þessa stóla
þar sem viðskiptavinir Valhúsgagna
hafa borið þeim góða sögu,“ segir Rakel
Sigurhansdóttir, eigandi Basic plus.
„Þetta eru nettir hvíldarstólar sem eru
fáanlegir í leðri og áklæði, með inn-
byggðum skemlum eða lausum skemli
fyrir framan. Þeir eru fáanlegir rafstýrð-
ir þannig að þeir eru góðir fyrir þá sem
eiga erfitt með að standa upp. Þeir lyfta
undir fólk og henta því bæði eldra fólki
og þeim sem hafa lent í slysum.“
Rakel segir það passa mjög vel
saman að bjóða upp á fatnað og stóla í
sömu versluninni. „Við erum með stórt
húsnæði sem við vildum nýta og fólk
hefur verið mjög hrifið af þessari hug-
mynd hjá okkur. Við erum með fatnað
fyrir konur á öllum aldri og í öllum
stærðum og fyrir öll tækifæri. Einnig
bjóðum við upp á skó, töskur og fylgi-
hluti. Og núna hvíldarstóla. Þannig að
núna kemur daman og kaupir kjól og
herrann velur stól,“ segir Rakel og hlær
dátt.
STÓLAR OG KJÓLAR
BASICPLUS KYNNIR Tískuvöruverslunin Basicplus í Mosfellsbæ hefur nýlega
tekið upp þá nýjung að selja hvíldarstóla. Rakel Sigurhansdóttir segir þetta
fara vel saman.
ALLT TIL ALLS
Rakel Sigurhansdóttir
er eigandi Basicplus þar
sem sala á kvenfatnaði
og húsgögnum er sam-
einuð í einu rými.
MYND/STEFÁN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
Ellen er á dagskrá Stöðvar 2 alla
virka daga klukkan 17.35 og
sýndur aftur á Stöð 2 Gull
klukkan 19.00
MorGUn
þÁTtuRinn
Ómar
alLa vIRka
dagA kl. 7
Vinsælasti spjallþáttur heims