Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.10.2012, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 31.10.2012, Qupperneq 34
31. október 2012 MIÐVIKUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, sonar og bróður, ELINÓRS HARÐAR MAR Eyjabakka 10, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. nóvember klukkan 13.00. Árni Eggert Harðarson Elinóra Ósk Harðardóttir Gunnar Valgeirsson Halldór Þór Harðarson Alda Sigurrós Júlíusdóttir Óskar Árni Mar Vilborg Sigurðardóttir og barnabörn. Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, GUÐFINNA HENNÝ JÓNSDÓTTIR Fögrukinn 13, Hafnarfirði, andaðist þriðjudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Sólveig Jónsdóttir Sævar Gunnarsson Jenný Jónsdóttir Jón Auðunn Jónsson Ólafía Guðjónsdóttir börn og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA STEINSDÓTTIR frá Hrauni á Skaga, Fróðengi 3, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 24. október, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. nóvember kl. 15.00. Benedikt Andrésson Guðrún H. Benediktsdóttir Halldór Jónsson Vilborg Benediktsdóttir Árni Hjaltason Auður Benediktsdóttir Guðni Karl Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur okkar, bróðir og faðir, HALLDÓR GUNNLAUGSSON Hamravík 28, er látinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 1. nóvember kl. 13.00. Rósa Emilia Óladóttir Gunnar Ársælsson Sindri Gunnarsson Vala Ósk Gylfadóttir Guðrún Björg Gunnarsdóttir Ágúst Freyr Halldórsson Elín Helga Halldórsdóttir Sölvi Thor Halldórsson Emilia Ósk Halldórsdóttir Okkar yndislegi pabbi, tengdapabbi og afi, GRÍMUR JÓNSSON járnsmiður og veiðimaður, Sléttuvegi 19, sem lést að heimili sínu þriðjudaginn 23. október síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 1. nóvember kl. 13.00. Gunnar, Gígja Hrund, Hugi Þeyr, Ásgrímur og Ásta Ísafold. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR GUÐJÓNSSON frá Eyri, Ingólfsfirði, Nýbýlaveg 80, Kópavogi, sem lést mánudaginn 22. október, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Ólafur Ingólfsson Svanhildur Guðmundsdóttir Lára Ingólfsdóttir Jón Leifur Óskarsson Sigurður Ingólfsson Ingunn Hinriksdóttir Halldór Kr. Ingólfsson Hrönn Jónsdóttir Guðjón Ingólfsson Harpa Snorradóttir Þórhildur Hrönn Ingólfsdóttir Guðmundur Jóhann Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, JENS TÓMASSON jarðfræðingur, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 24. október síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Neskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 1. nóvember klukkan 13.00. Sverrir Jensson Unnur Jensdóttir Birgir Þ. Jóakimsson Eiríkur M. Jensson Kolbrún Hrafnkelsdóttir Magnús Kolbjörn, Sólborg, Bjargey, Anna og Sigríður Edda Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Móðir okkar, tengdamamma og amma, DÓMHILDUR JÓNSDÓTTIR lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi þann 18. október sl. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn 2. nóvember kl. 14.00. Jón Hallur Pétursson Guðríður Friðriksdóttir Pétur Ingjaldur Pétursson Guðrún Margrét Jónsdóttir Auður Anna Jónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MATTHILDUR Þ. MARTEINSDÓTTIR (STELLA) bókasafnsfræðingur, Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum þann 25. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni 6. nóvember kl. 13.00. Ólafur Árnason Þuríður Vigfúsdóttir Marteinn G. Árnason Tinna Ólafsdóttir Haukur Þórðarson Stella Ólafsdóttir Hrafn Gunnarsson Vigdís A. Jónsdóttir Dagný Haraldsdóttir Bjarni Eiríksson og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁLFHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR áður til heimilis að Hörgatúni 11, Garðabæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum, fimmtudaginn 25. október. Jarðsungið verður frá Garðakirkju, föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Jóhanna S. Sigmundsdóttir Eiríkur Hjaltason Birna J. Sigmundsdóttir Kolbrún S. Sigmundsdóttir Jón Torfason Kristján P. Sigmundsson María E. Ingvadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum innilega auðsýnda samúð vegna fráfalls eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR MARÍU JÓNSDÓTTUR frá Hnífsdal, sem lést 16. september á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnhlíðar og heimahjúkrunar í Kópavogi fyrir einstaka hlýju og nærgætni í störfum sínum. Guðmundur Jónasson Jónas Guðmundsson Anh-Dao Tran Arnfríður Guðmundsdóttir Gunnar Rúnar Matthíasson og barnabörn. Myndlistarmaðurinn Þorlákur Krist- insson Morthens – Tolli – fagnar 30 ára starfsafmæli um þessar mundir og opnar af því tilefni sýninguna Friður í Smiðjunni Listhúsi á morgun. „Ég tileinka sýninguna því að það eru 30 ár síðan ég hélt ásamt félögum mínum sýninguna „Sjö“ í Norræna húsinu árið 1982, sem var eiginlega upphaf „nýja málverksins“ svokallaða hér á landi. Það hefur verið töluverð breyting frá þessum hráa pönkaða stíl sem ég hafði í upphafi yfir í þessar ljóð- rænu landslagsmyndir, sem ég hef ein- beitt mér að í seinni tíð, og endurspegla fremur andlegan heim en efnislegan. Sá heimur ber með sér frið og hugarró.“ Tolli segir ferilinn vera skrásetningu á ástandi listamannsins á hverjum tíma og að í sínu tilfelli hafi það verið alla vega. „Það voru stór tímamót hjá mér fyrir sautján árum árum þegar ég lagði fíkni- efna- og áfengisneyslu á hilluna og hóf nýtt líf án slíkra stoðefna. Slíkt ferða- lag leiðir mann alltaf lengra og lengra í sjálfskönnun þar sem maður finnur sífellt meiri frið.“ En þótt efnistökin séu persónuleg segir Tolli inntak sýningarinnar á hinn bóginn samfélagslegt og pólitískt. „Ég legg þessa yfirskrift inn í sam- félagsumræðuna eins og hún er í dag því við þurfum á meiri friði að halda, jafnvel þótt menn greini á málefnalega. Þetta tilfinningalega stjórnleysi í þjóð- félaginu, gremjan og reiðin, virðist ekk- ert vera á undanhaldi heldur finna sér nýjan farveg. Þeirri reiði sem reis upp í hruninu er í raun viðhaldið af þeim sem iðka stjórn- málin.Ég vil ekki endilega að menn skipti um skoðun í stjórnmálum, heldur vinnubrögð. Að menn losi sig undan karma fortíðarinnar, þessu oki að þurfa að ganga inn í gremju og reiði genginna kynslóða.“ bergsteinn@frettabladid.is TOLLI MORTHENS: HELDUR UPP Á 30 ÁRA STARFSAFMÆLI MEÐ SÝNINGU Pólitísk sýning um innri frið TOLLI Hélt sína fyrstu formlegu sýningu ásamt félögum sínum í Norræna húsinu árið 1982. Hrár og pönkaður stíllinn sem einkenndi hann framan af hefur vikið fyrir ljóðrænni nálgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Í GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON sendiherra og fyrrverandi ráðherra er 57 ára í dag. „Það er þannig með stjórnmálamenn að þeir hafa ekki gott af að festast á sömu þúfunni frekar en fólk almennt.“ 57

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.