Fréttablaðið - 31.10.2012, Side 46

Fréttablaðið - 31.10.2012, Side 46
31. október 2012 MIÐVIKUDAGUR34 SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Jú, jú, það er alveg svipur með okkur,“ segir íþróttafréttamaður- inn Hans Steinar Bjarnason. Hann mætti í hrekkjavökupartí um síðustu helgi í gervi hvít-rúss- neska kúluvarparans Nadzeya Ostapchuk. Hans Steinari og Ostapchuk hafði verið líkt saman á vefsíðunni Flick My Life í sumar og ákvað hann að taka grínið alla leið. „Ég fór í Sports Direct og keypti mér hlýrabol og stuttbuxur á þúsund kall. Þetta er einfaldasti búningur í sögunni,“ segir hann og hlær. Partíið sem hann mætti í er árlegt grímuball haldið af félaginu Dejà Vu sem er skipað fyrr- um starfsmönnum samnefnds skemmtistaðar. Hans Steinar vann eitt sinn með plötusnúðnum Kidda Bigfoot og komst þannig inn í félagið. Verðlaun eru veitt fyrir besta búninginn og í stað þess að eyða miklum tíma og pening í bún- inginn ákvað Hans að prófa eitt- hvað nýtt í ár. „Ég er búinn að mæta sem kylfingur, olíubarón og Tommy úr Come Fly With Me-þátt- unum, þar sem ég afgreiddi meira að segja á Metró. En þetta er fyrsti búningurinn sem dugar til sigurs,“ segir hann stoltur. Ostapchuk varð Ólympíumeist- ari í sumar en þurfti að skila gullverð- laununum eftir að hafa fallið á lyfja- prófi. Hans Stein- ar ætlar ekki að láta hið sama henda sig. „Það er ekki hægt að taka þessi gull- verðlaun af mér. Ég mun berjast fram í rauðan dauð- ann til að halda þeim.“ - fb Vill ekki missa gullverðlaunin STERKUR SVIPUR Eins og sjá má er sterkur svipur með Hans Steinari og kúluvarparanum Ostapchuk. „Ég er rosalega hrifinn af spennuþáttunum Boss með Kelsey Grammer í aðalhlutverki. Frábærir spennuþættir um pólitík, spillingu og tilhugalíf.“ Biggi Hilmars tónlistarmaður „Þáttastjórnandinn hafði heyrt í okkur og það var hann sem hafði samband og spurði hvort við vild- um taka þátt. Þetta var ótrúlega gaman og við skemmtum okkur mjög vel,“ segir Sandra Þórðar- dóttir. Sönghópurinn Þrjár radd- ir og Beatur tóku þátt í sjónvarps- þættinum Beat for Beat sem sýndur var á NRK á föstudag. Sandra skipar sveitina ásamt Ingu Þyrí Þórðardóttur, Kenyu Emil og Bjarti „Beatur“ Guðjónssyni taktkjafti, en hópurinn hefur verið búsettur í Noregi síðustu tvö árin. Beat for Beat er skemmtiþátt- ur sem sýndur er í norska ríkis- sjónvarpinu og er það Ivar Dyr- haug sem stýrir þættinum ásamt tónlistarmönnunum Gisle Børge Styve og Trond Nagell Dahl. Þátt- urinn nýtur mikilla vinsælda í Noregi og að sögn Söndru horfir um milljón manns á hann hvert föstudagskvöld. Ásamt því að keppa í þættinum tók sveitin einn- ig eitt lag fyrir áhorfendur. Spurð um úrslitin segir Sandra hlæjandi: „Að sjálfsögðu unnum við.“ Hún vonar að þátttökunni fylgi aukið umtal og fleiri verkefni fyrir sönghópinn. „Hérna ganga hlutirnir ekki eins fyrir sig og heima, hér er mjög erfitt að fá umfjöllun ef þú ert ekki frægur. En við vonum að þátttakan í Beat for Beat muni leiða til stærri og fleiri verkefna. Við höfum þegar fengið nokkrar fyrirspurnir í tölvupósti eftir þáttinn sem er æðislegt.“ Hópurinn hefur haft í nógu að snúast síðan hann flutti til Nor- egs fyrir tveimur árum. „Við erum ævintýragjörn og okkur langaði að prófa eitthvað nýtt. Fyrst bjuggum við öll í einu her- bergi sem við leigðum á 240 þús- und krónur, borðuðum túnfisk í öll mál og vorum næstum búin að drepa hvert annað. Núna búum við hvert í sinni íbúð og það er mun betra,“ segir hún og hlær. Spurð út í önnur verkefni söng- sveitarinnar segir Sandra þau vinna að uppsetningu leiksýning- ar sem sýnd verður í Óperuhús- inu í Ósló í mars. „Leikstjóri sýn- ingarinnar vildi endilega fá okkur með sér í lið. Sýningin fjallar um útgáfufyrirtækið Motown og við erum núna í því að útsetja lög fyrir sýninguna.“ sara@frettabladid.is. SANDRA ÞÓRÐARDÓTTIR: AÐ SJÁLFSÖGÐU UNNUM VIÐ Þrjár raddir komu fram fyrir milljón Norðmenn SUNGIÐ Stúlkurnar í Þremur röddum ásamt Cecilie Steinmann Neess, andstæðingi sínum í sjónvarpsþættinum Beat for Beat. „Það er mikill heiður að keppa við svona stór nöfn í tónlistarbrans- anum,“ segir Atli Viðar Þorsteins- son framleiðandi. Myndband hans og Helga Jóhannssonar leikstjóra við lagið What Are You Waiting for með Diktu keppir í tónlistarmynd- bandakeppninni Protoclip. Keppnin er alþjóðleg og haldin í Frakklandi dagana 30. nóvember og 1. desember næstkomandi. Önnur framlög í keppninni eru meðal ann- ars myndband Jay Z og Kanye West við lagið No Church in The Wild og myndband sveitarinnar Foster the People við lagið Houdini. „Það eru mörg stór nöfn í þessari keppni og mjög gaman að hafa komist að,“ segir Atli en þeir félagar sendu myndbandið sjálfir inn. „Maður leitar út fyrir landsteinana til að koma verkum sínum á framfæri. Tónlistarmyndbönd verða gjarn- an út undan hérna heima og er illa sinnt að mínu mati.“ Leikstjórinn Michel Gondry er guðfaðir keppninnar, en hann hefur meðal annars gert tónlist- armyndbönd fyrir Björk, Rolling Stones og Paul McCartney. Atli Viðar og Helgi leita nú leiða til að komast út á sjálfa verðlaunaaf- hendinguna enda kjörið tækifæri til að hitta kollega sína í mynd- bandagerð. Kosning í keppninni fer fram á netinu en á Protoclip.com/en/com- petition.php er hægt að sjá alla keppendur og kjósa. „Við hvetjum að sjálfsögðu alla Íslendinga að kjósa landa sína.“ - áp Keppa við Jay Z og Kanye West ■ Berndsen - Supertime ■ Berndsen - Young Boy ■ Tilbury - Drama ■ Árstíðir - Shades MYNDBÖND ATLA OG HELGA KEPPA VIÐ STJÖRNURNAR Myndband Atla Viðars Þorsteinssonar og Helga Jóhanns- sonar við lag Diktu, What Are You Waiting for, keppir við stór nöfn í alþjóðlegri mynd- bandakeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI (29.okt - 4.nóv) 1. 3 9 0k r.k g . A L L U R F IS K U R Í F IS K B O R Ð I Mu ndu , fis kur er 10 0% vill ibrá ð Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Verðdæmi: (29.okt - 4.nóv) Laxaflök marineraður með Lemmon/Butter . . . . . . . . . . .1.390 Laxaflök, fersk . . . . . . . . . . . .1.390 Skötuselur roðl/beinlaus . . . .1.390 Þorskhnakkar . . . . . . . . . . . . .1.390 Ýsuflök roðlaus/beinlaus . . . .1.390 Löngusteikur marineraðar Indversku karrí . . . . . . . . . . . .1.390 Löngusteikur marineraðar á Gríska vísu . . . . . . . . . . . . . .1.390 Rauðsprettuflök glæný . . . . .1.390 Allir fiskréttir . . . . . . . . . . . . . .1.390

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.