Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 106
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 74
Ég er svo heppin að ferðast mikið og víða og uppáhaldsborgin
fer eiginlega eftir árstíma og erindi ferðarinnar. En ef ég er
að fara að klára jólagjafainnkaup finnst mér Boston sú allra
besta. Borgin er passlega stór og fólkið er yndislegt.
Búðir Ef ég er að fara í stórinnkaup finnst mér best að fara
í eitthvað af stóru „mollunum“. Til dæmis eru Galleria og
Prudential Center frábær. Ef dagskráin er aðeins léttari finnst
mér frábært að rölta um Newbury Street en þar er að finna
flest af stóru merkjunum.
Matur Ein af betri klúbbsamlokum og frönskum sem ég
hef fengið er á stað sem heitir Cafeteria og er einmitt
á Newbury Street. Einn af mínum uppáhaldsveitinga-
stöðum er The Hillstone sem er rétt hjá sædýrasafninu
í Boston. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi
hvort sem það er sushi, sem ég mæli sérstaklega
með, hamborgarar, salat eða steikur.
Afþreying Mér finnst frábært að hlaupa eða
ganga meðfram Back Bay sem liggur meðfram
ánni sem rennur í gegnum Boston. Ég mæli
með skoðunarferð um háskólasvæði Harvard og
ef farið er að sumarlagi er ómissandi að fara í
Duck tours, bíla- og bátaferð þar sem ekið er um
borgina og siglt fram hjá áhugaverðum stöðum.
Þá er mjög gaman að fara upp á Prudential Center-
útsýnispallinn en þaðan er stórbrotið útsýni.
SIGRÚN BENDER FLUGMAÐUR
Jólagjafainnkaup
best í Boston
BOSTON JÓLABORGIN MÍN
Ólafur Örn Ólafsson segir ýmis-
legt hafa komið sér á óvart við
tökur á Master Chef Ísland en
hann er einn þriggja dómara í
þáttunum.
Ólafur segist ekki hafa þurft
að hugsa sig lengi um áður en
hann þekktist tilboðið um að ger-
ast dómari í sjónvarpsþættinum.
Hinir dómarar þáttarins eru sjón-
varpskokkurinn Friðrika Hjördís
Geirsdóttir og Eyþór Rúnarsson
yfirkokkur á Nauthóli.
„Ég hef það að leiðarljósi að
prófa allt sem rekur á fjörur
mínar, svo lengi sem það er
áhugavert. Ég þurfti því ekki að
hugsa mig lengi um þegar mér
bauðst dómarastarfið. Ég var
fyrst kallaður í prufur og var
furðu lítið óstyrkur þó ég væri
með átta myndavélar í andlitinu.
Ég mætti bara og setti upp spari-
brosið og gerði það sem ég þurfti
að gera,“ segir Ólafur.
Inntur eftir því hvort nokk-
uð hafi komið honum á óvart við
gerð sjónvarpsþáttanna viður-
kennir Ólafur að flest hafi komið
honum á óvart enda hafi hann
aldrei starfað við sjónvarpsþátta-
gerð áður.
„Flest kom mér á óvart, ég hafði
ekki einu sinni séð myndavél á
krana áður. Það sem kom þó einna
mest á óvart var hversu flottur
og góður maturinn var sem fólk
bar fram. Það voru nokkrir sem
mættu með tilbúið hráefni og það
var ekki vel séð. Það skilur hism-
ið frá kjarnanum þegar fólk gerir
allt frá grunni í stað þess að stytta
sér leið með tilbúnu hráefni. Við
dæmdum matinn út frá því hvern-
ig hann var matreiddur, bragðinu
og hvernig rétturinn var fram-
reiddur. Ég hef starfað innan
veitingabransans í tuttugu ár og
hef því góða hugmynd um hvað
virkar og hvað ekki.“
Ólafur hefur aðeins séð brot
úr þáttunum og hlakkar mikið
til að sjá fyrsta þáttinn sem verð-
ur sýndur föstudaginn næsta.
„Fjölskyldan ætlar að koma
saman og horfa á fyrsta þáttinn.
Þá kemur í ljós hvort ég þurfi að
flytja úr landi,“ segir hann hlæj-
andi og bætir við: „Ég hef fulla
trú á að þetta verði flott. Það var
mikið um dramatík í tökunum og
raunverulega spennu.“
Aðspurður segist Ólafur boðinn
og búinn að taka aftur að sér hlut-
verk dómara verði önnur þáttaröð
af Master Chef framleidd. „Ekki
spurning. Þetta var stórgaman
og ég mæli með þessu við alla.
Ef einhver hefur samband við þig
í framtíðinni og býður þér dóm-
arasæti í raunveruleikaþætti,
taktu því fagnandi,“ segir hann
að lokum. sara@frettabladid.is
Furðu lítið óstyrkur
fyrir framan vélarnar
Ólafur Örn Ólafsson þjónn er einn þriggja dómara í sjónvarpsþáttunum Master
Chef Ísland sem hefj a göngu sína á Stöð 2 þann 23. nóvember.
www.tskoli.is
Spennandi tækifæri til náms
Í Tækniskólanum finnur þú fjölbreyttar leiðir til starfsréttinda og stúdentsprófs.
Kynntu þér fjölmörg tækifæri sem eru í boði á vefnum tskoli.is.
Tækniskólinn er framsækinn, vaxandi, metnaðarfullur og spennandi skóli í nánum tengslum
við atvinnulífið sem bíður eftir öflugu fólki. Nýttu þína hæfileika.
Innritun dagskóla er á Menntagátt.is og lýkur 23. nóvember 2012.PIPA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
33
38
TIL Í AÐ PRÓFA ALLT ÁHUGAVERT Ólafur þurfti ekki að hugsa sig lengi um
þegar honum bauðst dómarastarf í matreiðsluþætti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Við dæmdum matinn
út frá því hvernig hann
var matreiddur, bragðinu
og hvernig rétturinn
var framreiddur. Ég hef
starfað innan veitinga-
bransans í tuttugu ár og
hef því góða hugmynd
um hvað virkar og hvað
ekki.