Fréttablaðið - 03.12.2012, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
ELDVARNIR Í LAGINú eru aðventuljós í hverjum glugga. Það getur
kviknað í aðventuljósi og því er rétt að nota ekki
gömul ljós. Best er að slökkva ljósin á nóttunni.
Hafið ávallt handhæg slökkvitæki við höndina.
Gleði jólanna er fljót að hverfa verði eldur laus.
ÞRÓUNARDEILDIN AÐ STÖRFUM Þeir Róbert Björn og Brynjar Örn prófa allt sem pabbi þeirra hannar og þannig er fundið út hverju þarf að breyta í hönnuninni.MYND/ÚR EINKASAFNI
Þ etta eru módel-leikföng sem á að leika sér með en ekki setja upp í hillu. Það fannst mér alltaf svo leiðinlegt við plastmódelin í gamla daga sem maður setti saman, gamanið var svo stutt,“ segir Pálmi Einarsson iðnhönnuður sem hannar og framleiðir leikföng sem eigandinn setur saman sjálfur.
„Formin eru útskorin og það eina sem þarf er trélím. Svo geta krakkarnir
málað leikföngin, til dæmis með tré-litum, tússlitum eða akrýlmálningu og
geta í raun málað þau aftur og aftur. Um
leið og búið er að mála í nýjum litum er
þetta aftur orðið nýtt dót.“Synir Pálma, þeir Róbert Björn sex
ára og Brynjar Örn fjögurra ára, eru „þróunardeild“ fyrirtækisins eins og Pálmi kallar það en þeir prófa öll leik-föngin og finna út úr því hvað betur má
fara.
„Stundum sitja þeir með mér við tölvuna og koma með hugmyndir. Svo
förum við upp í Kjós, í bústaðinn okkar
þar, yfir helgi og setjum módelin sam-
an. Svo mála þeir leikföngin og leika sér
með þau og eftir nokkra daga kemur í ljós hvað þarf að laga, hvar þarf að þykkja eða stytta eða breyta. Þetta er
nákvæmlega eins og þegar ég stýrði þróunardeildinni hjá Össuri, bara á aðeins minni skala,“ segir Pálmi.Hann segir að leikföng sem krakkarnir taka þátt í ð
VERKSTÆÐI JÓLASVEINSINS
ÍSLENSK LEIKFÖNG Vinnustofa Pálma Einarssonar minnir þessa dagana helst
á verkstæði jólasveinsins en hann hannar og framleiðir leikföng. Synir hans
tveir sjá um þróunarmálin og prufukeyra leikföngin.
FASTEIGNIR.IS
3. DESEMBER 2012
46. TBL.
H úsið var byggt um 1930 af Jens Eyjól ssyni bygging-armeistara fyrir Timbur-
verslun Árna Jónssonar sem var
með verslun á fyrstu hæð tré-
smíðaverkstæði og lager á efri
hæðum. Húsið var byggt á súlum
og bitum og er búið sérstakl ga
þykkum gólfplötum til að þola
þungar trésmíðavélar. Í kringum
1955 hóf KRON starfsemi í hús-
inu. Þegar núverandi eigandi
keypti aðra hæðina um 2002 hafði
Atson leðuriðja verið með starfs-
Einstök íbúði í 101
Fasteignasalan Þingholt og Gylfi Þórisson kynna einstaka íbúð að Hverfisgötu 52 í Reykjavík. Eignin er samtals 223,7 fm og sérstaklega skemmtileg. Hún er búin þremur svefnherbergjum og mjög stóru alrými.
Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Stefán Már
Stefánsson
sölufulltrúi
Ásdís Írena
Sigurðardóttir
skjalagerð
Ruth
Einarsdóttir
sölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali
Gústaf Adolf
Björnsson
lögg. fasteignasali
Finndu okkur á Facebook
Erla Dröfn
Magnúsdóttir
lögfræðingur
Elín Viðarsdó r Lögg. fasteignasali
Logafold 53
elin@fasteignasalan is Sí i 6
Vegna
mikillar sölu
vantar eignir
á skrá Einbýli 172,2 fm + 40,1 fm bílskúr Teiknað af Kjartani Sveinssyni 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi Eignin er á einni hæð Sólpallur og óhindrað útsýni SKIPTI MÖGULEG Á MINNI EIGN
Opið hús miðvikudag 05.12. kl. 17:00-17:30
51 m.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
12
2 SÉRBLÖÐ
Fólk | Fasteignir.is
Sími: 512 5000
3. desember 2012
284. tölublað 12. árgangur
Karlar duglegri að synda
Karlar eru ötulli en konur að sækja
sundlaugar Reykjavíkur. Konurnar
taka hins vegar meiri þátt í foreldra-
félögum. 2
Fimmtán verk tilnefnd Tíu rit-
höfundar eru tilnefndir til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna og fimm
þýðendur til þýðingarverðlauna. 4
Minna eytt Tekjujöfnuður ríkis-
sjóðs er 19 milljörðum króna betri en
áætlað hafði verið það sem af er ári.
Samt var 35 milljörðum meira eytt
en áætlað var. 6
Í ríkisframkvæmd Bygging nýs
Landspítala við Hringbraut verður í
ríkisframkvæmd samkvæmt
tillögu ráðherra. 8
SKOÐUN Til að íþróttir séu börnum
hollar þurfa þær að vera leikur, skrifar
Guðmundur Andri 13
MENNING Eyþór Ingi Gunnlaugsson
fær að hita upp fyrir átrúnaðargoðin í
Deep Purple. 30
SPORT Jakob Jóhann Sveinsson fer
í heljarstökk á milli þess sem hann
stingur sér í laugina. 24
DÓMSMÁL Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, er á meðal þeirra sem
eru á vitnalista í svokölluðu Vafningsmáli
sérstaks saksóknara. Aðalmeðferð í málinu
hefst í dag og gert er ráð fyrir að hún taki
að minnsta kosti þrjá daga.
Alls eru um þrjátíu manns á lista yfir
vitni í málinu. Ekki er útséð með að þau
verði öll kölluð fyrir dóminn, en að því
gefnu að Bjarni mæti verður það líklega
annaðhvort á þriðjudag eða fimmtudag,
samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.
Tveir eru ákærðir í málinu, Lárus Weld-
ing, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guð-
mundur Hjaltason, fyrrverandi yfirmaður
fyrirtækjasviðs bankans. Þeir eru ákærð-
ir fyrir umboðssvik með því að hafa lánað
Milestone tíu milljarða í febrúar 2008, í
gegnum félagið Vafning, gegn ófullnægjandi
tryggingum, meðal annars til að tryggja að
hlutabréf í Glitni féllu ekki í verði.
Aðkoma Bjarna var sú að hann undirrit-
aði veðsamning vegna lánsins frá Glitni til
Vafnings, í umboði hluthafa félagsins. - sh
Réttarhöld yfir Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni hefjast í dag:
Bjarni á vitnalista í Vafningsmáli
BJARNI
BENEDIKTSSON
Bolungarvík 1° NA 3
Akureyri 2° SA 8
Egilsstaðir 1° SA 11
Kirkjubæjarkl. 4° SA 6
Reykjavík 3° V 4
Strekkingur eða allhvasst norðaustan-
og austanlands en hægari vindur
annars staðar. Stöku él V-til, rigning
suðaustanlands, annars úrkomulítið. 4
BRETLAND Samfélagsmiðlar
eru teknir að hafa mikil áhrif í
nútímasamfélagi en stúlkubarn
eitt í Bretlandi var nýlega skírt
Hashtag Jameson, að því er
móðir barnsins til-
kynnti á Facebook.
Hashtag þekkja
notendur þess-
ara miðla sem
Twitter-táknið #.
Tvíkross litla,
svo íslenskt heiti
merkisins # sé notað, á samúð
netverja, en fréttin hefur farið
víða.
Má lesa staðhæfingar eins og
#hræðilegir foreldrar, #foreldr-
arþínirhataþig og #heimskasta-
nafnsögunnar á miðlinum sem
blés móðurinni þetta nafn dótt-
urinnar í brjóst; Twitter.
Ýmsir fjölmiðlar rifja það
upp í þessu samhengi að nafnið
Like, eða Læk á hinu ylhýra og
ástkæra, er einnig að ná fót-
festu. - shá
#makalaustermannlífið:
Stúlkan hlaut
nafnið Tvíkross
NÝ
KILJA
Ljótur að utan
– ljúfur að innan
SAMFÉLAGSMÁL Helmingur íslenskra
námsmanna verður meira var við
heimabrugg og smygl eftir hrun.
Þriðjungur 18 til 64 ára Íslendinga
segir slíkt hafa aukist og hefur
hlutfallið hækkað síðan í fyrra.
Karlar verða frekar varir við
aukið heimabrugg eða smygl held-
ur en konur, sérstaklega náms-
menn.
Þetta kemur fram í nýrri könn-
un sem gerð var á vegum MMR
fyrir Félag atvinnurekenda (FA)
um miðjan nóvember síðastliðinn.
Samkvæmt könnuninni hafði
31% svarenda orðið vart við mikla
eða nokkra aukningu á heima-
bruggi eða smygli á áfengi frá
hruni. Hlutfallið var um 22% árið
áður. Tæp 48% svarenda á aldr-
inum 18-29 ára sögðust hafa orðið
vör við mikla eða nokkra aukningu
Almar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri FA, segir félagið
lengi hafa kallað eftir heildstæðri
áfengisstefnu frá stjórnvöldum í
ljósi þess að áfengisgjöld hafi verið
hækkuð mjög undanfarin ár.
„Niðurstöður könnunar okkar ýta
undir þá kenningu að neyslan hafi
einfaldlega flust út fyrir markað-
inn,“ segir Almar. Hann bendir á að
hækkun áfengisgjalda sé stundum
réttlætt sem lýðheilsumarkmið, en
ef neyslan færist út fyrir markaðinn
náist það markmið ekki. Minnkandi
opinber sala geti þá líka gert það að
verkum að tekjumarkmið gjalda-
hækkana nást ekki heldur.
„Námsmenn og fólk í láglauna-
störfum skorar hátt í könnuninni
og það ætti að vera stjórnvöldum
áhyggjuefni,“ segir hann. „Þegar
gjöld hækka þá eru hóparnir sem
eru verr settir fljótastir að finna
sér aðra leið.“
Sala á sterku víni í ÁTVR hefur
dregist saman um meira en 100
þúsund lítra á milli áranna 2008
og 2011, eða um tæp 40%. Þá hefur
salan í ár dregist saman um tæp 6%
sé miðað við sama tíma í fyrra.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarframkvæmdastjóri ÁTVR,
vill ekki nefna neinar ástæður sem
gætu legið að baki samdrættinum.
„Við höfum engar forsendur
til að meta hvort [heimabrugg og
smygl] sé að aukast,“ segir hún.
„En það hefur verið samdráttur í
Bruggið hellist yfir landann
Helmingur námsmanna á Íslandi verður meira var við heimabrugg og smygl nú en fyrir hrun. Hlutfallið hefur
hækkað frá því í fyrra. Sala á sterku víni í ÁTVR hefur minnkað um 40 prósent. FA kallar eftir aðgerðum.
AÐVENTUNNI FAGNAÐ Fjöldi fólks var saman kominn á Austurvelli í gær þegar kveikt var á Óslóartrénu. Tréð var að
vanda fagurskreytt ljósum en auk þess prýðir Stúfur, jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, tréð. Þessi unga stúlka var afar
spennt enda styttist óðum í jólin auk þess sem þeir rauðklæddu voru á vappi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
376 þúsund lítrar af
sterku áfengi seld-
ust árið 2008.
230 þúsund
lítrar er áætl-
að að seljist
af sterku víni
árið 2012.
40%
minni sala
sölu á sterku víni og auðvitað veltir
maður fyrir sér hvort það skýrist af
neyslubreytingu.“
Í bandormi ríkisstjórnarinnar er
gert ráð fyrir að áfengisgjald hækki
enn frekar eða um 4,6%. - sv
Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. 18-49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Meðallestur á tölublað, jan.-júní 2012.
92%
Auglýsing í Fréttablaðinu nær
til yfir 92% lesenda blaðanna
Lesa bara
Morgunblaðið
8%
Lesa bæði
Fréttablaðið og
Morgunblaðið
28%
Yfirburðir
Fréttablaðsins
staðfestir!
Lesa bara
Fréttablaðið
64%