Fréttablaðið - 03.12.2012, Page 2
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
REYKJAVÍK Karlar eru nokkuð ötulli
en konur að sækja sundlaugar í
Reykjavík og fleiri piltar en stúlk-
ur stunda íþróttir sem styrktar eru
af Reykjavíkurborg, en konur sækja
frekar um styrki hjá menningar- og
ferðamálaráði. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í áfangaskýrslu um
tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhags-
og starfsáætlunargerð hjá Reykja-
víkurborg. Slík aðferðafræði miðar
að því að greina hvort ákvarðanir
um ráðstöfun fjármuna hafi misjöfn
áhrif á kynin og stöðu þeirra.
Borgin lét vinna sextán úttektir
um verkefni á hinum ýmsu svið-
um borgarinnar. Þar á meðal var
að kyngreina aðsóknartölur í sund-
laugar borgarinnar, þátttöku barna
í íþrótta- og æskulýðsstarfi og hvort
halli á annað kynið í innkaupum
bókasafna.
Víðast hvar var um óverulegan
mun að ræða og sjaldnast tilefni til
að ráðast í meiriháttar aðgerðir til
að jafna hlut kynjanna.
Mesta muninn á þátttöku
kynjanna má þó sjá í stjórnum for-
eldrafélaga leik- og grunnskóla.
Konur eru 75 prósent stjórnarmeð-
lima í grunnskólum og 85 prósent í
leikskólum. Konur eru líka í mikl-
um meirihluta hvað varðar þátt-
töku í skólaráðum á báðum stigum.
Þær niðurstöður þykja gefa tilefni
til þess að fara ofan í kjölinn á því
hvers vegna konur veljist frekar til
þessara starfa.
Varðandi styrki menningar- og
ferðamálaráðs hafa konur hins
vegar aukið hlut sinn verulega síð-
ustu ár, bæði hvað varðar umsókn-
ir og úthlutanir. Í hugmyndum til
úrbóta er meðal annars stungið upp
á að karl og kona gegni formennsku í
ráðinu til skiptis eitt ár í senn.
Þá þykir hlutfall karla sem sækja
sundlaugarnar, 54 prósent á móti 46
prósentum sem eru konur, kalla á
úttekt. Misræmið er hæst í Sundhöll-
inni þar sem 68 prósent gesta eru
karlar. Sérstaka athygli vekur að í
hópi átján ára og yngri eru stúlkur í
meirihluta, eru 55 prósent gesta, og
er því ákveðinn viðsnúningur eftir
það.
Í niðurstöðum kaflans um sund-
laugarnar er sögð ástæða til að
skoða „hvort eitthvað í þjónustu,
aðstöðu eða ímynd sundlauga hafi
áhrif á mismunandi aðsókn kynja“.
Gagnlegt gæti verið að gera við-
horfskönnun meðal gesta til að skýra
málið.
Í frétt um skýrsluna á vef Reykja-
víkurborgar segir að ekkert bendi
til þess að um kynjamismunun sé
að ræða í úthlutun fjármuna hjá
borginni, en á vissum sviðum, þar
á meðal þeim sem greinir frá hér að
ofan, kalli niðurstöður á „meiri rýni
og mögulegar aðgerðir“.
thorgils@frettabladid.is
gesta í Sund-
höllinni eru
karlar.
68%
Karlar í sundi og
konur í foreldrastarf
Áfangaskýrsla Reykjavíkurborgar um kynjaða fjárhags- og áætlanagerð sýnir að
kynjahlutföll eru víðast hvar innan marka. Þó eru konur í miklum meirihluta í
foreldrafélögum leik- og grunnskólanna og karlar sækja sundlaugar af meiri krafti.
SKÁK Tölvuleikjafyrirtækið CCP
færði Taflfélagi Reykjavíkur í gær
að gjöf öflugan skjávarpa, fartölvu
af nýjustu gerð auk peningastyrks.
Eldar Ástþórsson frá CCP afhenti
búnaðinn á fjölmennri barna- og
unglingaæfingu félagsins og mun
hann nýtast einkar vel við þjálfun
og kennslu í öflugu barnastarfi
félagsins, segir í tilkynningu frá
TR þar sem enn fremur segir að
félagið kunni CCP hinar bestu
þakkir fyrir stuðninginn, sem mun
koma félaginu og iðkendum íþrótt-
arinnar mjög vel. - shá
Gáfu TR tæki og peninga:
CCP styður við
skákæsku TR
EINMANA GEORG Hann átti víst ættingja á öðrum eyjum á Galapagos.
NORDICPHOTOS/AFP
DÝRALÍF Vísindamenn hafa nú fundið sautján risaskjaldbökur á Galapa-
gos-eyjum sem talið var að hefðu dáið út fyrr á þessu ári.
Þegar hinn rúmlega 100 ára gamli Einmana Georg dó í sumar var
talið að ein tegund risaskjaldbaka hefði dáið út. Nú hafa vísindamenn
frá Yale-háskólanum fundið 17 aðrar skjaldbökur við eldfjall á Isabell-
eyjunni.
Erfðafræðilega líkjast þær mjög Einmana Georg, sem á sinni tíð
varð tákn um náttúruvernd á eyjunum sem og tákn fyrir baráttuna við
að viðhalda dýrategundum sem eru í útrýmingarhættu.
Nú eru uppi áætlanir um að einangra þessar 17 risaskjaldbökur og
reyna þannig að ná stofni þeirra upp að nýju.
Sautján nýjar risaskjaldbökur fundust á Galapagos-eyjum:
Georg ekki einn eftir allt saman
MANNLÍF Fannfergi er víða norð-
anlands og þá ekki síst í Fjalla-
byggð; á Siglufirði og Ólafsfirði
þarf að leita nokkuð langt aftur
til að finna jafnmikinn snjó.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir
að haustið hafi verið um margt
sérstakt. Skemmst sé að minnast
jarðskjálftahrinu norðanlands
sem var leyst af með hörkuvetri.
Hins vegar gangi daglegt líf sinn
vanagang.
„En þetta tekur í budduna að
ryðja öllum þessum snjó. Það er
nöturlegt að eyða peningum í
að moka til vatni í föstu formi,“
segir Sigurður.
Sigurður segir að Fjallabyggð
hafi ætlað um tólf milljónir til
snjómoksturs á þessu ári en
þegar séu farnar fimmtán millj-
ónir. Þetta sé högg sem sveitarfé-
lag leysi ekki öðruvísi en að skera
niður fé til annarra verkefna.
Sigurður segir að fallegt veður
hafi verið undanfarið.
„En auðvitað hefur þetta áhrif
á daglegt líf fólks, sérstaklega
þegar menn eru lokaðir inni þrjár
helgar í röð eins og var þegar
þessu var að kyngja niður.“
Einn af kostunum við snjóinn
segir Sigurður vera að byggt ból
sé sjaldan fallegra en þegar jóla-
ljósin spila á myrkrið við þessar
aðstæður. Eins sé mikið menning-
arstarf á þessum tíma árs, bæði á
Siglufirði og Ólafsfirði, sem leiðir
hugann frá amstri dagsins.
- shá
Í Fjallabyggð þarf að leita langt aftur til að finna meiri snjó á þessum tíma:
Fannfergið tekur í budduna
Á ÓLAFSFIRÐI Bæjarstjóri segir öflugt
menningarlíf lykilatriði þegar vetur er í
algleymi. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓNAS UNNARSSON
Ólíkt hafast kynin að
46%54%43%57%
63%
27%
85%
15%
KonurKarlar
6-18 ára í íþróttum Sundlaugargestir Upphæð styrkja menn-
ingar- og ferðamálaráðs
Í stjórn foreldra-
félaga leikskóla
SVÍÞJÓÐ Grunaður axarmorðingi
var handtekinn í skóglendi í smá-
bænum Arvidsjaur í norðurhluta
Svíþjóðar fyrir helgi. Maðurinn
er talinn hafa drepið 81 árs gaml-
an mann sem var úti að ganga
með hundinn sinn.
Vitni voru að morðinu. Maður
sem átti leið hjá í bíl reyndi að
stöðva morðingjann en þá réðst
morðinginn að bílnum og flúði
svo.
Morðið hefur vakið mikinn
óhug í smábænum, þar sem
aðeins 4.500 manns búa. - þeb
Íbúar smábæjar í áfalli:
Myrti gamlan
mann með exi
DÓMSMÁL Hæstiréttur sektaði á
föstudag lögmanninn Stefán Karl
Kristjánsson um hundrað þúsund
krónur fyrir að kæra ítrekað og
tilefnislaust gæsluvarðhaldsúr-
skurði yfir sama manninum.
Stefán er verjandi manns sem
sætt hefur gæsluvarðhaldi síðan
í lok júlí vegna hnífsstungu á
gatnamótum Höfðatúns og Skúla-
götu. Sá stungni hlaut lífshættu-
lega áverka af atlögunni. Búið er
að ákæra í málinu.
Fyrst sætti maðurinn varð-
haldi vegna rannsóknarhags-
muna en í septemberbyrjun var
hann úrskurðaður í varðhald á
grundvelli almannahagsmuna.
Það hefur síðan verið framlengt
í þrígang.
Hæstiréttur staðfesti enn eina
framlenginguna á föstudag og í
niðurstöðunni er kærugleði Stef-
áns gagnrýnd. Honum hafi áður
verið bent á að hann hafi kært
varðhaldsúrskurði í málinu til
Hæstaréttar án þess að benda á
nokkuð nýtt sem réttlætti það.
Kærurnar væru því með öllu að
ófyrirsynju.
„Þrátt fyrir þetta hefur
úrskurður um framlengingu
gæsluvarðhalds til Hæstaréttar
enn á ný verið kærður af hálfu
varnaraðila,“ segir Hæstiréttur.
Kæran sé algjörlega tilefnislaus
og er Stefán því sektaður.
- sh
Lögmaður kærði ítrekað gæsluvarðhaldsúrskurði og Hæstiréttur fékk nóg:
Sekt fyrir tilefnislausar kærur
100.000
krónur kostaði kærugleðin
Stefán Karl Kristjánsson.
Gunnar, er þetta ekki orðið
útvatnað hjá Jóni?
„Saman erum við Jón sterk blanda
og bragðgóð.“
Gunnar Hilmarsson, aðalhönnuður E-Label,
er hæstánægður með framtíðarsýn eigand-
ans, vatnsbóndans Jóns Ólafssonar.
KAUPMANNAHÖFN Íslensk kona
var flutt á gjörgæsludeild í Kaup-
mannahöfn á laugardagsmorgun
eftir að hún féll í Peblingevatnið
á Nørrebro nóttina áður.
Konan, sem er 27 ára, var lengi
í vatninu áður en henni var bjarg-
að upp úr. Hún var ofkæld og var
haldið í öndunarvél á meðan hit-
anum var náð upp á nýjan leik.
Konan komst til meðvitundar
síðdegis á laugardag þegar lík-
amshiti hennar náði 36 gráðum.
Hún var svo útskrifuð í gær. - sh
Íslensk kona féll í vatn:
Flutt ofkæld á
gjörgæsludeild
SPURNING DAGSINS