Fréttablaðið - 03.12.2012, Side 6

Fréttablaðið - 03.12.2012, Side 6
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 ➜ Útgjöld miðað við áætlun í milljörðum króna 3 3,3 1,1 2,2 1,8 1,2 1,11,4 1,1 12,2 0,4 1,5 + - 2,5 LANDIÐ 1 2 3 *útgjöld nokkurra opinberra aðila miðað við áætlun. 1,4 EFNAHAGSMÁL Ríkissjóður eyddi 35 milljörðum króna meira en hann aflaði á fyrstu tíu mánuð- um ársins. Það er þó umtalsvert betri staða en reiknað hafði verið með, eða sem nemur 19,1 milljarði króna. Þetta kemur fram í mán- aðarhlutauppgjöri A-hluta ríkis- sjóðs í október. Betri staða skýrist að mestu leyti af því að innheimtar tekjur ríkissjóðs voru 5,1 milljarði króna umfram áætlun. Skattar og tryggingagjöld í heild námu 378,3 milljörðum, eða 14,7 millj- örðum umfram áætlun. Munar þar mestu um skatta á tekjur og hagnað sem voru 13,9 milljörðum hærri en reiknað hafði verið með. Innheimtar tekjur ríkissjóðs voru alls 411,5 milljarðar króna á tíma- bilinu. Gjöldin voru hins vegar 446,5 milljarðar króna, en það er sex milljörðum króna lægri upphæð en reiknað hafði verið með. Gjöld einstakra ráðuneyta voru í flest- um tilvikum undir áætlunum. Handbært fé frá rekstri A- hluta ríkissjóðs var neikvætt um 37 milljarða króna til októberloka 2012. Það er 19,1 milljarði krónum betri útkoma en áætlun gerði ráð fyrir. Á sama tímabili árið 2011 var handbært fé frá rekstri hins vegar neikvætt um 59,9 milljarða króna. kolbeinn@frettabladid.is Minna eytt en áætlað var og tekjur hærri Tekjujöfnuður ríkissjóðs er 19 milljörðum krónum betri en áætlað hafði verið það sem af er ári. Engu að síður eyddi ríkið 35 milljörðum krónum meira en það aflaði. Skatttekjur ríkisins voru 15 milljörðum krónum hærri en ráð var fyrir gert. MENNTAMÁLARÁÐHERRA Útgjöld mennta- og menningarmálaráðuneytis- ins fyrstu tíu mánuði ársins eru þremur milljörðum króna undir áætlunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SJÁVARÚTVEGUR Landssambandi smábátaeigenda (LS) hafa borist yfir 70 tilkynningar frá útgerðarmönnum smá- báta um að þeir stefni á makrílveiðar í sumar komanda. Í sumar sem leið stunduðu 17 bátar makrílveiðar með handfærum og veiddu samtals 1.100 tonn. Aðalfundur Landssamband smábátaeigenda ályktaði í haust að makrílpottur fyrir smábáta yrði aukinn í 18% af heildarafla í makríl, eða yrði að lágmarki 20 þúsund tonn. Í kjölfarið var kallað eftir upplýsingum frá útgerðarmönnum um vilja til makrílveiða vegna viðræðna við atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið um veiðarnar 2013. Makrílveiðar á handfæri hafa verið stundaðar í nokkur ár. Þeir bátar sem stunduðu þessar veiðar á síðastliðnu fiskveiðiári gerðu það með góðum árangri. LS álítur úthlutun aflaheimilda í makríl, eins og hún hefur verið, engan veginn fullnægja þeirri þörf sem er fyrir þennan bátaflokk. Helstu rök fyrir auknum veiði- heimildum til smábáta í makríl eru að mati LS að veiðarn- ar eru umhverfisvænar og skila hágæða hráefni. Þær eru einnig atvinnuskapandi og afla mikillar þekkingar um göngur makríls á grunnslóð. - shá Yfir 70 smábátaeigendur hafa tilkynnt að þeir vilji á makrílveiðar í sumar: Tugir smábáta vilja á makríl Herjólfur enn í slipp 1VESTMANNAEYJAR Herjólfur mun ekki koma úr slipp fyrr en 10. desember að því er haft er eftir Ólafi William Hand, upplýsinga- fulltrúa Eimskips, á vef Eyjafrétta. Viðgerðin átti upphaflega að taka fimm til sex daga, en bakborðsstýri og -skrúfa skemmdust í óhappi við Landeyjahöfn. Baldur á að sinna ferðum milli lands og Eyja á meðan en tvær fyrstu ferðir hans féllu niður í gær vegna ölduhæðar og vinds í Landeyjahöfn. 70 eigendur smábáta vilja veiða makríl næsta sumar. 17 bátar stunduðu veiðarnar í sumar. Velferðar- ráðuneyti Innanríkis- ráðuneyti Landspítalinn Lífeyrisskuld- bindingar Atvinnuleysis- tryggingasjóður Lífeyris- tryggingar Mennta- og menningar- málaráðu- neyti Utanríkis- ráðuneyti Iðnaðar- ráðuneyti Sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneyti Umhverfis- ráðuneyti Vaxtabætur Fram- kvæmda- sjóður aldraðra Öldrunar- stofnanir Fjármagns- kostnaður Íslandsmótið í rúllupylsugerð 2KRÓKSFJARÐARNES Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson í Húsavík á Ströndum unnu til fyrstu verðlauna í Rúllupylsukeppni Íslands sem haldin var í Króksfjarðarnesi á laugardag. Verðlaunin fengu þau fyrir léttreykta rúllupylsu. Rúllupylsur bárust í keppnina af Ströndum, úr Reykhólasveit, Dölum og af Suðurnesjum. Flestum kom fjölbreytt úrvinnsla virkilega á óvart og stefnt er að því að halda keppnina aftur að ári að því er fram kemur á heimasíðu Dalabyggðar, dalir.is. Hafdís og Matthías tóku einnig önnur verðlaun fyrir ávaxtafyllta rúllupylsu. Sérstaka viðurkenn- ingu fékk síðan rúllupylsa frá Sverri Kristjánssyni og Heiðrúnu Sigurðardóttur í Reykjanesbæ. Sinubruni í Rangárþingi 3RANGÁRÞING Skömmu fyrir hádegi í gær kviknaði í sinu í landi Árbakka í Rangárþingi ytra. Fjórir bílar frá slökkviliði Rangárvallasýslu fóru á staðinn og segir Guðni Kristinsson, varðstjóri í slökkviliðinu, að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn. Sinubruninn var á afmörkuðu svæði og olli ekki tjóni, en töluverðan reyk lagði frá eld- inum yfir nærliggjandi jarðir. Ekki liggur fyrir hver upptök eldsins voru.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.