Fréttablaðið - 03.12.2012, Page 13
MÁNUDAGUR 3. desember 2012 | SKOÐUN | 13
Þjóðremba yfi rstéttar
Í gamla daga var þjóðin alin af
innlendri yfirstétt á Danahatri,
bara til að magna hag yfir-
stéttarinnar, embættismanna og
kaupmanna.
Nú er þjóðin alin á Evrópuhatri
og enn er hér yfirstéttin að
verki. Nú eru það kvótagreifar og
atvinnurekendur, sem hamast á
útlandinu til að efla hag sinn og
forréttindi. Íslenzk þjóðremba er
ræktað illgresi. Hræðir þjóðina
með evrópskri Grýlu.
Með regluverki Evrópu, sem
í mörgum tilvikum verndar al-
menning langt umfram íslenzkan
geðþótta. Leiðin til að verja
forréttindin er að telja fólki trú
um, að séríslenzkur geðþótti
forréttinda sé betri en evrópska
regluverkið.
www.jonas.is
Jónas Kristjánsson
Sjálfur naut ég
þeirrar gæfu að eiga
foreldra sem höfðu ekki
nokkurn áhuga á fótbolta
eða öðrum íþróttum og
myndu aldrei í lífinu hafa
mætt á fótboltaleik, hefði
farið svo ólíklega að ég
hefði valist til að taka þátt
í slíku.
KAFFIVÉLAR - MATVINNSLUVÉLAR - POTTAR & PÖNNUR
SAFAPRESSUR - ELDHÚSÁHÖLD- BLANDARAR
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Jólatilboð á www.eirvik.is
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI
Skattalagabreytingar
6. desember | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Alexander G. Eðvardsson, sviðsstjóri skatta-
og lögfræði sviðs KPMG, mun fara yfir
nýframkomin frumvörp til breytinga á lögum
og þegar gerðar lagabreytingar á árinu.
Þátttaka er án endurgjalds
og veitir einingar hjá FLE.
Skráning og frekari upplýsingar á kpmg.is
Það var nú ekki töluð vitleysan í
vörninni í fótboltaliði bekkjar-
ins hennar Hansínu í Vogaskóla.
Þarna stóðum við Snorri og Alli,
Sigurgeir og Steinn Bjarki með
hendurnar í vösunum og áttum
í hrókasamræðum um lands-
ins gagn og nauðsynjar, á meðan
þeir Nonni og Biggi, Haddi og
Kalli Dúi og hinir hlupu um laf-
móðir frammi í sókninni, enda
allt afburðamenn í boltanum og
vel að þeirri vegsemd komnir að
fá að vera í sókn. Svona var getu-
skiptingin: þeir góðu voru í sókn
en í vörninni fór fram dagskrá-
in „Spekingar spjalla“. Það eina
sem gat skyggt á þessar andríku
og ánægjulegu samverustundir
þarna uppi við markið var þá sjald-
an að einhver úr hinum bekknum
álpaðist til að ná boltanum og kom
æðandi með hann í áttina til okkar
fullur af ískyggilegum áformum.
Þá vildi okkur yfirleitt til happs
að einhver af sóknarstrákunum úr
okkar liði fylgdi til baka og náði að
hreinsa út af enda ríkti skilningur
á því að ekki væri vert að ómaka
okkur, svonefnda varnarmenn, á
því að fara að eltast við snaróðan
boltadreng. Við vorum bara hafðir
þarna. Við vorum til að fylla upp í
töluna, formsins vegna. Við vorum
nokkurs konar Lávarðadeild.
Við vissum að við nytum lítils
álits sem knattspyrnumenn og hafi
einhverjum okkar sárnað það mat
vorum við ekkert að bera slík sár-
indi á torg. Sjálfur naut ég þeirrar
gæfu að eiga foreldra sem höfðu
ekki nokkurn áhuga á fótbolta eða
öðrum íþróttum og myndu aldrei
í lífinu hafa mætt á fótboltaleik,
hefði farið svo ólíklega að ég hefði
valist til að taka þátt í slíku. Ég
held að almennt höfum við þarna
í Lávarðadeildinni vitað að við
hefðum kannski eitthvað annað
til brunns að bera. Það var allt í
lagi að vera góður í smíði en léleg-
ur í fótbolta, góður að teikna, spila
á hljóðfæri, segja brandara eða
jafnvel ekkert sérstaklega góður
í neinu. Það var enginn fullorðinn
sem kom og sagði við okkur að ef
við færum ekki að æfa okkur til
að komast í sóknina myndum við
verða eiturlyfjum að bráð. Það var
allt í lagi að vera lélegur í íþrótt-
um. Eigum við ekki að reyna að
hafa það þannig?
Niðurlægð börn
Getuskipting? Já já. Hún fór þarna
fram á náttúrulegan og eðlilegan
hátt á einhvers konar jafninga-
grunni, við fundum út úr þessu
sjálfir og enginn fullorðinn sem
skipti sér af því. Það var því rauna-
legt að heyra Vöndu Sigurgeirs-
dóttur lýsa því í morgunútvarpi
Rásar tvö í síðustu viku hvernig
sífelld getuskipting í íþróttastarfi
lítilla barna nú á dögum verður til
þess að þau upplifi sára niðurlæg-
ingu, höfnun og sorg. Vanda veit
hvað hún syngur, hefur um ára-
bil unnið við þjálfun og er lektor
við HÍ í íþróttafræðum og for-
eldrum og skólafólki ber að leggja
við hlustir þegar hún viðrar slíkar
áhyggjur.
Vanda vill ekki banna alla
getuskiptingu en hún vill bíða
með hana þar til börnin hafa náð
þroska til að takast á við hana. Á
henni er að heyra að þessi getu-
skipting byrji alltof snemma, og
börnin haldi að öllu varði fyrir
þau að komast í A-liðið – annars
séu þau búin að tapa. Hún segir
að engin börn hafi gott af þessu,
hvorki þau sem sett eru í lakari
liðin né hin sem veljast í betri
flokkana, fá þar með athyglina,
hrósið og uppörvunina meðan hin
lakari fá væntanlega svona „þú-
ert-nú-svo-mikil-rúsína“-klapp á
kollinn og svo höfnunina.
Íþróttir og áfengi
Á undanförnum árum hefur verið
unnið mikið þrekvirki hér á landi
í forvarnarstarfi gegn unglinga-
drykkju og dópneyslu. Þetta hefur
verið samstillt átak foreldra og
skóla, fagfólks og félagasamtaka,
þar á meðal íþróttafélaga. Þetta
er lofsvert og segir sína sögu um
breytta og betri þjóð – þrátt fyrir
allt. Upp á síðkastið hefur þess
hins vegar orðið vart að íþrótta-
félögin reyni að þakka sér þenn-
an árangur umfram aðra, og vilji
fá umbun fyrir það umfram lottó-
áskriftina. Nú þegar rætt er um
fjárlög (og rætt og rætt og rætt og
rætt) bregður svo við að vart líður
sá fréttatími að í íþróttahorninu í
lokin, innan um fótboltamörkin og
blakkeppni á Norðfirði, komi ekki
ábúðarfullur íþróttafrömuður til
að segja okkur frá forvarnargildi
íþrótta sem nú sé ógnað með ónóg-
um framlögum til ÍSÍ.
Íþróttir og áfengi fara ekki
saman, og það er sjálfsagt alveg
rétt þegar kemur að iðkun þeirra:
það er til dæmis áreiðanlega frek-
ar erfitt að vera mjög fullur í 400
metra hindrunarhlaupi eða fullur
að spila fótbolta, þó að þess muni
að vísu vera dæmi að því er sögur
herma, og ekki síður úr hand-
boltanum þar sem þeir hressustu
voru með bokku innan um hand-
klæðin í íþróttatöskunni. Íþróttir
og áfengi eiga hins vegar prýði-
lega samleið þegar kemur að því
að fylgjast með þeim og í sjálfu
sér ekkert að því, fari það ekki úr
böndunum; það er góð skemmtun
að sitja í góðum hópi, drekka bjór
og horfa á fótbolta. En það er alveg
óþarfi að láta eins og það sé eitt-
hvað hollt.
Börn eiga að fá að leika sér. Það
eru barnréttindi. Og til að íþróttir
séu þeim hollar þurfa þær að vera
leikur og félagsskapur. Krakkar
í Brennó eða í Yfir eru kannski
að keppa upp að vissu marki en
þau vita alveg að þau eru misstór
og misfljót og samveran í leikn-
um hefur gildi í sjálfu sér. Þann-
ig ætti boltinn og fimleikarnir
líka að vera, fyrir fjöldann, þó að
sjálfsagt sé að rækta líka sérstaka
hæfileika.
Forvarnargildi íþrótta skal
ekki lastað og er eflaust töluvert,
gæti slagað upp í hljóðfæranám.
En langsamlega mikilvægast er
að börn horfi ekki upp á drukk-
ið fólk í kringum sig, og sérstak-
lega ekki foreldra sína. Vilji þing-
menn hins vegar sýna í verki að
þeir kunni að meta það góða for-
varnarstarf sem unnið hefur verið
með börnum og unglingum þessa
lands væri sennilega vitið mest að
hækka laun kennara.
Það eru barnréttindi
AF NETINU
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Eina sjónvarpsstöðin í heiminum sem helguð er sönnum sakamálum
ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
KOMDU FRAM VIÐ AÐRA
Á NETINU EINS OG ÞÚ VILT LÁTA
KOMA FRAM VIÐ ÞIG
www.saft.is