Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 3. desember 2012 | SKOÐUN | 13 Þjóðremba yfi rstéttar Í gamla daga var þjóðin alin af innlendri yfirstétt á Danahatri, bara til að magna hag yfir- stéttarinnar, embættismanna og kaupmanna. Nú er þjóðin alin á Evrópuhatri og enn er hér yfirstéttin að verki. Nú eru það kvótagreifar og atvinnurekendur, sem hamast á útlandinu til að efla hag sinn og forréttindi. Íslenzk þjóðremba er ræktað illgresi. Hræðir þjóðina með evrópskri Grýlu. Með regluverki Evrópu, sem í mörgum tilvikum verndar al- menning langt umfram íslenzkan geðþótta. Leiðin til að verja forréttindin er að telja fólki trú um, að séríslenzkur geðþótti forréttinda sé betri en evrópska regluverkið. www.jonas.is Jónas Kristjánsson Sjálfur naut ég þeirrar gæfu að eiga foreldra sem höfðu ekki nokkurn áhuga á fótbolta eða öðrum íþróttum og myndu aldrei í lífinu hafa mætt á fótboltaleik, hefði farið svo ólíklega að ég hefði valist til að taka þátt í slíku. KAFFIVÉLAR - MATVINNSLUVÉLAR - POTTAR & PÖNNUR SAFAPRESSUR - ELDHÚSÁHÖLD- BLANDARAR Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Jólatilboð á www.eirvik.is FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI Skattalagabreytingar 6. desember | kl. 8:30 | Borgartúni 27 Alexander G. Eðvardsson, sviðsstjóri skatta- og lögfræði sviðs KPMG, mun fara yfir nýframkomin frumvörp til breytinga á lögum og þegar gerðar lagabreytingar á árinu. Þátttaka er án endurgjalds og veitir einingar hjá FLE. Skráning og frekari upplýsingar á kpmg.is Það var nú ekki töluð vitleysan í vörninni í fótboltaliði bekkjar- ins hennar Hansínu í Vogaskóla. Þarna stóðum við Snorri og Alli, Sigurgeir og Steinn Bjarki með hendurnar í vösunum og áttum í hrókasamræðum um lands- ins gagn og nauðsynjar, á meðan þeir Nonni og Biggi, Haddi og Kalli Dúi og hinir hlupu um laf- móðir frammi í sókninni, enda allt afburðamenn í boltanum og vel að þeirri vegsemd komnir að fá að vera í sókn. Svona var getu- skiptingin: þeir góðu voru í sókn en í vörninni fór fram dagskrá- in „Spekingar spjalla“. Það eina sem gat skyggt á þessar andríku og ánægjulegu samverustundir þarna uppi við markið var þá sjald- an að einhver úr hinum bekknum álpaðist til að ná boltanum og kom æðandi með hann í áttina til okkar fullur af ískyggilegum áformum. Þá vildi okkur yfirleitt til happs að einhver af sóknarstrákunum úr okkar liði fylgdi til baka og náði að hreinsa út af enda ríkti skilningur á því að ekki væri vert að ómaka okkur, svonefnda varnarmenn, á því að fara að eltast við snaróðan boltadreng. Við vorum bara hafðir þarna. Við vorum til að fylla upp í töluna, formsins vegna. Við vorum nokkurs konar Lávarðadeild. Við vissum að við nytum lítils álits sem knattspyrnumenn og hafi einhverjum okkar sárnað það mat vorum við ekkert að bera slík sár- indi á torg. Sjálfur naut ég þeirrar gæfu að eiga foreldra sem höfðu ekki nokkurn áhuga á fótbolta eða öðrum íþróttum og myndu aldrei í lífinu hafa mætt á fótboltaleik, hefði farið svo ólíklega að ég hefði valist til að taka þátt í slíku. Ég held að almennt höfum við þarna í Lávarðadeildinni vitað að við hefðum kannski eitthvað annað til brunns að bera. Það var allt í lagi að vera góður í smíði en léleg- ur í fótbolta, góður að teikna, spila á hljóðfæri, segja brandara eða jafnvel ekkert sérstaklega góður í neinu. Það var enginn fullorðinn sem kom og sagði við okkur að ef við færum ekki að æfa okkur til að komast í sóknina myndum við verða eiturlyfjum að bráð. Það var allt í lagi að vera lélegur í íþrótt- um. Eigum við ekki að reyna að hafa það þannig? Niðurlægð börn Getuskipting? Já já. Hún fór þarna fram á náttúrulegan og eðlilegan hátt á einhvers konar jafninga- grunni, við fundum út úr þessu sjálfir og enginn fullorðinn sem skipti sér af því. Það var því rauna- legt að heyra Vöndu Sigurgeirs- dóttur lýsa því í morgunútvarpi Rásar tvö í síðustu viku hvernig sífelld getuskipting í íþróttastarfi lítilla barna nú á dögum verður til þess að þau upplifi sára niðurlæg- ingu, höfnun og sorg. Vanda veit hvað hún syngur, hefur um ára- bil unnið við þjálfun og er lektor við HÍ í íþróttafræðum og for- eldrum og skólafólki ber að leggja við hlustir þegar hún viðrar slíkar áhyggjur. Vanda vill ekki banna alla getuskiptingu en hún vill bíða með hana þar til börnin hafa náð þroska til að takast á við hana. Á henni er að heyra að þessi getu- skipting byrji alltof snemma, og börnin haldi að öllu varði fyrir þau að komast í A-liðið – annars séu þau búin að tapa. Hún segir að engin börn hafi gott af þessu, hvorki þau sem sett eru í lakari liðin né hin sem veljast í betri flokkana, fá þar með athyglina, hrósið og uppörvunina meðan hin lakari fá væntanlega svona „þú- ert-nú-svo-mikil-rúsína“-klapp á kollinn og svo höfnunina. Íþróttir og áfengi Á undanförnum árum hefur verið unnið mikið þrekvirki hér á landi í forvarnarstarfi gegn unglinga- drykkju og dópneyslu. Þetta hefur verið samstillt átak foreldra og skóla, fagfólks og félagasamtaka, þar á meðal íþróttafélaga. Þetta er lofsvert og segir sína sögu um breytta og betri þjóð – þrátt fyrir allt. Upp á síðkastið hefur þess hins vegar orðið vart að íþrótta- félögin reyni að þakka sér þenn- an árangur umfram aðra, og vilji fá umbun fyrir það umfram lottó- áskriftina. Nú þegar rætt er um fjárlög (og rætt og rætt og rætt og rætt) bregður svo við að vart líður sá fréttatími að í íþróttahorninu í lokin, innan um fótboltamörkin og blakkeppni á Norðfirði, komi ekki ábúðarfullur íþróttafrömuður til að segja okkur frá forvarnargildi íþrótta sem nú sé ógnað með ónóg- um framlögum til ÍSÍ. Íþróttir og áfengi fara ekki saman, og það er sjálfsagt alveg rétt þegar kemur að iðkun þeirra: það er til dæmis áreiðanlega frek- ar erfitt að vera mjög fullur í 400 metra hindrunarhlaupi eða fullur að spila fótbolta, þó að þess muni að vísu vera dæmi að því er sögur herma, og ekki síður úr hand- boltanum þar sem þeir hressustu voru með bokku innan um hand- klæðin í íþróttatöskunni. Íþróttir og áfengi eiga hins vegar prýði- lega samleið þegar kemur að því að fylgjast með þeim og í sjálfu sér ekkert að því, fari það ekki úr böndunum; það er góð skemmtun að sitja í góðum hópi, drekka bjór og horfa á fótbolta. En það er alveg óþarfi að láta eins og það sé eitt- hvað hollt. Börn eiga að fá að leika sér. Það eru barnréttindi. Og til að íþróttir séu þeim hollar þurfa þær að vera leikur og félagsskapur. Krakkar í Brennó eða í Yfir eru kannski að keppa upp að vissu marki en þau vita alveg að þau eru misstór og misfljót og samveran í leikn- um hefur gildi í sjálfu sér. Þann- ig ætti boltinn og fimleikarnir líka að vera, fyrir fjöldann, þó að sjálfsagt sé að rækta líka sérstaka hæfileika. Forvarnargildi íþrótta skal ekki lastað og er eflaust töluvert, gæti slagað upp í hljóðfæranám. En langsamlega mikilvægast er að börn horfi ekki upp á drukk- ið fólk í kringum sig, og sérstak- lega ekki foreldra sína. Vilji þing- menn hins vegar sýna í verki að þeir kunni að meta það góða for- varnarstarf sem unnið hefur verið með börnum og unglingum þessa lands væri sennilega vitið mest að hækka laun kennara. Það eru barnréttindi AF NETINU Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Eina sjónvarpsstöðin í heiminum sem helguð er sönnum sakamálum ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS KOMDU FRAM VIÐ AÐRA Á NETINU EINS OG ÞÚ VILT LÁTA KOMA FRAM VIÐ ÞIG www.saft.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.