Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 14
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 14
Ísland er einstakt land
bæði jarðfræðilega og
líffræðilega. Íslendingar
hafa friðlýst mörg mark-
verð náttúrusvæði sem
þjóðgarða, friðlönd eða
náttúruvætti. Einnig eru
ýmis önnur verndarsvæði
í umsjón ríkisins, s.s.
skógræktarsvæði, land-
græðslusvæði og forn-
minjasvæði. Þjóðlendur
eru undir stjórn ríkis-
ins og fyrst og fremst á hálendi
landsins.
Mörg þessara svæða eru vin-
sælir ferðamannastaðir en fjöldi
ferðamanna á Íslandi eykst nú
stöðugt. Á þeim blasa við sömu
óleystu viðfangsefnin í mismikl-
um mæli þó. Mikill skortur er á
innviðum, s.s. gestastofum, upp-
lýsingaskiltum, góðum og vel
lögðum göngustígum, og á þeim
er veik landvarsla og lítil nátt-
úrutúlkun. Fæst svæðanna hafa
haldbærar verndar-, stjórnun-
ar- eða skipulagsáætlanir. Engin
samræmd stjórn er á þessum
svæðum heldur er þeim stýrt af
sjö ólíkum stofnunum sem eru
undir þrem ráðuneytum. Þetta
eru Umhverfisstofnun, Land-
græðslan og Skógræktin undir
umhverfisráðuneyti, fornminja-
svæði heyra undir menntamála-
ráðuneyti og Þingvallaþjóðgarður
og þjóðlendur falla undir forsæt-
isráðuneyti.
Auk átroðslu ferðamanna á
einstökum svæðum er helsta ógn
íslenskra náttúruverndarsvæða
ásókn í að virkja til orkuöflunar
bæði vatnsföll og jarðhitasvæði.
Rannsóknum og framkvæmdum
á því sviði orkumála er stýrt af
öflugum stofnunum sem starfa á
landsvísu og hafa nægt
fjármagn. Sundrung
þeirra sem eiga að gæta
verndar náttúrunnar
verður til þess að mótrök
á því sviði eru veik og
jafnvel misvísandi.
Margir Íslendingar
horfa til framtíðarstarfa
í ferðaþjónustu. Ef fer
sem horfir er hins vegar
hætta á að illa fari. Víða
er þéttleiki ferðamanna
allt of mikill en á öðrum svæð-
um, sem eru ekki síður athyglis-
verð, sést ekki fólk. Mikilvægt
er að skipuleggja móttöku ferða-
manna, og nauðsynlegar ráðstaf-
anir til náttúruverndar á landinu,
á heildrænan hátt. Það er ill-
mögulegt þegar vinsælustu ferða-
mannastaðirnir eru undir ólíkum
stjórnum og stofnunum.
Núverandi ríkisstjórn hefur á
stefnuskrá sinni að sameina frið-
lýst svæði undir einni stjórn. Þær
hugmyndir ganga ekki nógu langt
en engu að síður mun vera ágrein-
ingur innan stjórnarflokkanna að
framfylgja þeirri stefnu.
Tillögur
Brýnt er að samræma stjórn
verndarsvæða á Íslandi. Setja þarf
undir eina stofnun störf og hlut-
verk sem heyra saman en dreif-
ast nú á margar stofnanir og ólík
ráðuneyti. Meginhlutverk slíkr-
ar stofnunar á að vera að standa
vörð um þau gæði landsins sem
hafa vísindalegt eða fagurfræði-
legt gildi og veita fólki nauðsyn-
lega útivist, upplifun og hughrif.
Undir nýja stofnun, sem hefði
útibú í öllum landsfjórðungum,
ættu að fara friðlýst svæði; þjóð-
garðar, náttúruvætti, friðlönd
og valinn hluti fólkvanga, þjóð-
skóga (Ásbyrgi, Þórsmörk), land-
græðslusvæða (Dimmuborg-
ir, Húsafell), þjóðlendna (fyrst
og fremst á hálendinu) og einn-
ig minjavernduð svæði (Núps-
staður). Á svæðunum væri lögð
áhersla á að vernda náttúru,
menningarminjar og landslag. Í
flestum tilvikum væri líka gert
ráð fyrir móttöku ferðamanna og
þjónustu við þá. Hafin væri gjald-
taka af ferðamönnum, t.d. þegar
þeir færu af landi brott, og rynni
gjaldið óskipt til stofnunarinnar.
Hjá slíkri stofnun starfaði fag-
fólk sem hefði sérhæft sig í stýr-
ingu auðlinda og landnýtingu og
gjörþekkti ólíka stýringu á landi/
náttúru eftir því hvort markmiðið
væri að friða svæði vegna merkr-
ar náttúru eða vernda það vegna
fornleifa, sögu, skóga o.fl. Einn-
ig ynni þar fólk sem kynni til
verka við móttöku ferðamanna og
þjónustu við þá og að nota ýmiss
konar miðlun sem stjórntæki
verndunar. Horft yrði heildstætt
á landið og unnar verndaráætlan-
ir þar sem tekið yrði mið af þekk-
ingu á ýmsum fræðasviðum.
Þjóðvangar Íslands
NÁTTÚRUVERND
Sigrún Helgadóttir
fræðiritahöfundur
➜ Auk átroðslu ferðaman-
na á einstökum svæðum er
helsta ógn íslenskra náttúru-
verndarsvæða ásókn í að
virkja til orkuöfl unar bæði
vatnsföll og jarðhitasvæði.
Rannsóknum og framkvæm-
dum á því sviði orkumála er
stýrt af öfl ugum stofnunum
sem starfa á landsvísu og
hafa nægt fjármagn.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Ódýrt
í matinn!
1280
Grillaður kjúklingur og Pepsi
eða Pepsi Max, 2 lítrar
kr.
tvennan
fæst á www.kronan.is
GJAF
A
KORT