Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 16
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Það þýðir ekkert að mæta með eitt-
hvað lint í partíið, þetta verður að vera
grjóthart,“ segir Bragi Páll Sigurðar-
son spurður hvort nafnið á nýju ljóða-
bókinni, Fullkomin ljóðabók, sé ekki
dálítið stór yfirlýsing. „Þeir sem hafa
lesið þetta segja þetta vera mikinn
metal og er ekki allt fullkomið á ein-
hvern hátt? Þannig að þessi bók, eins
og hún er, er þá líklega fullkomin.“
Bókin skiptist í tvo kafla, sá fyrri
spannar árin 2008 til 2010 og byggir
á BA-verkefni sem Bragi Páll vann
undir leiðsögn Sigurðar Pálssonar
ljóðskálds, en sá seinni samanstend-
ur af ljóðum frá árum 2011 og 2012.
Hvers vegna þessi skipting? „Hug-
myndin var reyndar sú að gefa fyrri-
hlutann út árið 2010 en svo tekur lífið
af manni ráðin. Undir lok vinnunnar
við BA-verkefnið greindist ég með
geðhvarfasýki, fór upp í mikla maníu
og í kjölfarið í mikið þunglyndi, þann-
ig að það var ansi mikill óróleiki í lífi
mínu. Fyrri hlutinn ber þess merki
að ég er að fara í maníu og er síðan
settur á geðlyf undir lokin á honum.
Hann er mjög háfleygur og sjálfmiðað-
ur um miðbikið en verður síðan mjög
dópaður í lokin, mun meira abstrakt
og ópersónulegri en minn texti er yfir-
Bannaði sjálfum sér að
yrkja fl eiri pólitísk ljóð
Fullkomin ljóðabók: ljóð eða eitthvað (til hamingju!) nefnist nýútkomin ljóðabók sem
Útúr gefur út. Höfundurinn er Bragi Páll Sigurðarson, 28 ára ritlistarnemi.
GRJÓTHARÐUR TITILL Fullkomin ljóðabók er fyrsta bók Braga Páls Sigurðarsonar en ljóðin í henni eru frá síðustu fjórum árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Dauðadansinn er meðal
al lra frægustu verka
Strindbergs og eitt þeirra
sem tilheyrir heimsbók-
menntunum. Það er gríð-
arlegt drama og telst í hópi
raunsæisleikja skáldsins,
eins og Faðirinn og Frök-
en Júlía. Þetta er kapp-
leikur hjóna sem eru ansi
beisk hvort út í annað og
svo kemur frændi hennar
sem leysir úr læðingi alls
konar tilfinningar og hvat-
ir.“ Þannig lýsir Sveinn
Einarsson verkinu sem
hann stjórnar flutningi á í
aðalsal Norræna hússins í
kvöld. Þrír leikarar, Arnar
Jónsson, Anna Kristín Arn-
grímsdóttir og Jakob Þór
Einarsson fara með hlut-
verkin þrjú, sterkt lið eins
og Sveinn bendir á. „Þetta
er magnþrungið verk,“
segir hann með áherslu.
„Við erum með þýðingu
Helga Hálfdánarsonar sem
hann gerði fyrir leikfélagið
á sínum tíma og við breyt-
um ekki einu orði þó við
ætlum að túlka það þannig
að það komi við nútímann.“
Hundrað ár eru frá and-
láti August Strindbergs og
hans hefur verið minnst
víða um heim. Leiklestur-
inn í Norræna húsinu er
framlag Vonarstrætisleik-
hússins sem Sveinn og Vig-
dís Finnbogadóttir standa
fyrir. Sveinn tekur fram
að hann sé í samvinnu við
Norræna húsið og sænska
sendiráðið og IKEA styrki
framtakið.
Viku síðar, eða mánudag-
inn 10. desember verður
dagskrá með brotum úr
verkum Strindbergs flutt
á sama stað, í aðalsal Nor-
ræna hússins. Flytjend-
ur eru margir en Eiríkur
Guðmundsson og Halldór
Hauksson standa að þeim
viðburði. „Þar er verið að
færa Strindberg svolítið til
dagsins í dag, skilst mér,“
segir Sveinn.
gun@frettabladid.is
Þetta er kapp-
leikur hjóna
Dauðadansinn eft ir August Strindberg
verður leiklesinn í Norræna húsinu í kvöld.
LEIKSTJÓRINN Strindberg var líklega mesta skáld Norðurlanda, næst á
eftir Ibsen, að minnsta kosti á leiksviðinu,” segir Sveinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKISATBURÐIR
1818 Illinois verður 21. fylki Bandaríkjanna.
1825 Tasmanía verður sjálfstæð nýlenda Breta.
1857 Í Kollsvík við Patreksfjörð farast kona og tvö börn er hvirf-
ilbylur skellur á bæjarhúsum og brýtur þau.
1917 Goðafoss strandar við Straumnes norðan við Ísafjarðar-
djúp.
1967 Hópur lækna undir
stjórn Christians Barnard fram-
kvæmir fyrstu hjartaígræðsluna.
1970 Verslunarmiðstöðin
Glæsibær er tekin í notkun í
Reykjavík. Meðal annars er þar
stærsta matvöruverslun lands-
ins á þessum tíma, verslun Silla
og Valda.
1973 Pioneer 10 sendir fyrstu
nærmyndirnar af Júpíter til jarð-
ar.
1990 Miðneshreppur fær
kaupstaðarréttindi og nefnist þá
Sandgerðisbær.
1992 Tvær sprengjur springa í miðborg Manchester og 65 sær-
ast.
2005 Lestarslys verður við Kárahnjúkavirkjun þegar tvær far-
þegalestar skella saman með þeim afleiðingum að tveir verka-
menn slasast.
Á þessum degi fyrir þrettán árum misstu
vísindamenn bandarísku geimferða-
stofnunarinnar NASA samband við
könnunarfar sem var á leið til rauðu
reikistjörnunnar Mars. Sambandsmiss-
irinn olli miklum vonbrigðum, ekki síst
þar sem þetta var annað Marsfarið sem
NASA missti á skömmum tíma en fyrra
geimfarið brann fyrir mistök upp í gufu-
hvolfi stjörnunnar. Að þessu sinni virtist
hins vegar allt ætla að ganga að óskum
þar til sambandið við farið rofnaði um
það bil sem það stefndi inn í gufuhvolf
reikistjörnunnar. Hjá NASA missti fólk þó
ekki móðinn og byrjaði þegar að undir-
búa næstu Marsferð en líklegt var talið að
geimfarið hefði lent á óheppilegum stað
eða skemmst í lendingunni. Marsfarið
kostaði 12 milljarða íslenskra króna.
ÞETTA GERÐIST 3. DESEMBER 1999
Nasa týnir Marsfari í annað sinn
Hér og hér og hér
vorum við.
Þarna og þarna og þarna,
kossar
Í nára, maga, brjóstholi, haus;
eftirsjá, sársauki, ástarsorg, sekt.
Draumur um draum frá martröð til
raunveruleika.
Stöðugir nötrandi blossar óheftra
minninga;
það sem var átti að verða aldrei varð.
Tveir svanir sigla við lygna tjörn.
Annar hvítur, hinn lýgur.
Þá
leitt. Lyfin hafa áhrif á framheilann
þar sem persónuleikinn á sér stað og
virka þannig að þú verður nánast að
engu. Ég hafði ljóðin í tímaröð einmitt
til þess að sýna þetta ferli.
Seinni hlutann hins vegar skrifaði
ég eftir að hafa lent í djúpri ástarsorg,
farið í áfengis- og fíkniefnameðferð og
í framhaldi af því í mikla sjálfsskoðun.
Það er allt annar tónn í honum fyrir
utan það að mínar persónulegu skoð-
anir og heimssýn breyttust mjög mikið
á ritunartíma hans. Ég hætti að skrifa
pólitíska texta eins og eru í fyrri hlut-
anum og einbeitti mér alfarið að ein-
hvers konar sjálfslist.“
Fyrri hlutinn ber þess skýr merki að
vera skrifaður um og eftir efnahags-
hrunið, eru efnahagsmál ljóðræn? „Það
getur allt verið ljóðrænt. Ljóðin í fyrri
hlutanum standa vel sem minnismerki
um tímann sem þau eru skrifuð á, en ef
ég væri enn þann dag í dag að sturlast
yfir útrásarvíkingum þá væri ég bara
einn af sorglega fólkinu í kommenta-
kerfi DV. Ég hef síðan þróast út úr þess-
um pólitíska hugsunarhætti yfir í mikla
tómhyggju og bókstaflega bannað sjálf-
um mér að yrkja pólitísk ljóð. Seinni
hlutinn ber þess merki.“
Hvernig tilfinning er að vera útgef-
ið ljóðskáld? „Það er alveg bærilegt,
sko, en ekkert mikið meira en það. Mér
finnst ég samt vera að leggja eitthvað
smá inn í þá umræðu að ljóðið hafi eitt-
hvert gildi og þar af leiðandi finnst mér
ég vera búinn að réttlæta það að ég hafi
fæðst á þessari jörð og sé eitthvað að
spangóla. En þetta hefur ekkert breytt
mér. Það er bara ákveðin losun að koma
þessu frá sér.“
fridrikab@frettabladid.is