Fréttablaðið - 03.12.2012, Page 50
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
Átt þú rétt
á lækkun skulda?
Sértæk skuldaaðlögun er ætluð þeim sem skulda meira en 100%
af markaðsvirði veðsettra fasteigna og bifreiða. Skuldaaðlögunin
nær til allra skulda einstaklinga hjá Íbúðalánasjóði, bönkum,
sparisjóðum og lífeyrissjóðum.
Sértæk skuldaaðlögun kemur aðeins til greina ef sýnt þykir
að vægari úrræði nægja ekki til að rétta af fjárhagsstöðuna
og fyrirséð er að viðkomandi geti ekki staðið í skilum af lánum
sínum til langframa.
Sótt er um sértæka skuldaðlögun í viðskiptabanka umsækjanda.
Frestur til að sækja um sértæka skuldaaðlögun
rennur út um næstu áramót
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
SUND Jakob Jóhann Sveinsson,
sundmaður úr Ægi, hefur farið
sér rólega að eigin sögn í sund-
lauginni eftir Ólympíuleikana
í London í sumar. Þrátt fyrir
„rólegheitin“ mætir Jakob í
laugina nokkrum sinnum í viku,
lætur lóðin finna fyrir því í lyft-
ingasalnum og mætir þrisv-
ar í viku á fimleikaæfingar hjá
Gerplu.
„Þetta er mjög skemmtilegt.
Við gerum þrekæfingar og ég
finn að ég er ekki jafnsterkur í
maganum og ég taldi mig vera.
Maður er alltaf að gera magaæf-
ingar en þarna gerir maður rosa-
lega mikið af þeim,“ segir Jakob
Jóhann sem segir fimleikaæfing-
arnar nýtast sér vel í lauginni.
Sundfólk erlendis geri töluvert af
því að stunda fimleika samhliða
sundinu og því hafi hann kynnst
í Noregi. Honum líður þó ekkert
alltof vel í háloftunum.
„Ég er mjög lofthræddur og
hræddur við allt svona. Maður
er alltaf að reyna að vinna það
úr sér,“ segir Jakob sem farinn
er að standa á höndum og fara í
heljarstökk. Smám saman hafi
hann stækkað þægindasvið sitt
og bætir við að honum hafi ekki
liðið sérstaklega vel þegar hann
hóf að mæta á fimleikaæfingar.
„Á fyrstu æfingunum í septem-
ber hafði ég kvíðahnút í magan-
um fyrir hverja einustu æfingu.“
Alltof þreyttur í sumar
Jakob Jóhann náði sér ekki
á strik á Ólympíuleikunum í
sumar. Hann segir ljóst að hann
hafi verið alltof þreyttur í Lond-
on þrátt fyrir að planið hafi verið
að vera í toppformi á þeim tíma.
Hann hafi verið með höfuðverk
nánast daglega í sumar og álagið
greinilega of mikið.
„Ég hef fundið núna hvað ég
var þreyttur í sumar. Í dag hef
ég miklu meiri orku og kemst í
gegnum daginn án þess að vera
búinn á því eftir hálfan dag. Í
sumar voru léttu æfingarnar
meira að segja erfiðar. Sömu
æfingar eru mun auðveldari í
dag þótt ég syndi minna,“ segir
Jakob sem veltir framtíðinni
fyrir sér. Haldi hann áfram af
sama krafti og áður byrjar bar-
áttan fyrir alvöru um áramótin
„Ef maður fer á fullt þá setur
maður stefnuna strax á Ólymp-
íuleikana 2016. Það eru engin
önnur mót sem maður er að
hugsa um. Maður hefur farið á
svo mörg heimsmeistaramót og
Evrópumeistaramót, það er allt í
lagi, en aðalmarkmiðið er Ólymp-
íuleikarnir,“ segir Ægismaður-
inn sem er hefur meiri reynslu
en flestir af þátttöku á Ólympíu-
leikum. Leikarnir í London voru
þeir fjórðu sem hann keppir á
fyrir Íslands hönd.
Íslandsmetin geta enn fallið
Jakob Jóhann, sem er nýorðinn
þrítugur, á öll Íslandsmetin í
karlaflokki í bringusundi. Hann
setti öll metin árið 2009 og hefur
því ekki bætt tímann sinn í þrjú
ár. Hann telur sig þó klárlega
ennþá geta bætt metin sín.
„Ég var nokkuð nálægt því að
bæta metin árið 2011 en gerði
nokkur mistök í sundinu. Ég var
því nokkuð jákvæður fyrir árinu
í ár og byrjaði strax að æfa á
fullu,“ segir Jakob sem telur það
hafa verið mistök. Hann hefði átt
að taka sér frí á milli tímabila og
hvíla líkamann fyrir komandi
átök á Ólympíuárinu.
„Jacky (Pellerin, landsliðs-
þjálfari) sagði mér að ég hefði
átt að taka mér miklu lengra frí,
einn til tvo mánuði, til þess að
geta komist í gegnum árið 2012.
Ég gerði það ekki og þess vegna
var ég alltof þreyttur. Álagið var
alltof mikið,“ sagði Jakob í sam-
tali við Fréttablaðið í gær áður
en hann hélt á fimleikaæfingu.
kolbeinntumi@365.is
Fer í heljarstökk á milli sundæfi nga
Sundkappinn Jakob Jóhann Sveinsson er byrjaður að mæta á fi mleikaæfi ngar samhliða sundiðkun sinni. Jakob segist hafa keyrt sig út
fyrir Ólympíuleikana í sumar sem hafi orsakað slakan árangur sinn. Hann telur sig enn geta bætt þriggja ára gömul Íslandsmet sín.
ÞREYTTUR Í LONDON Jakob Jóhann segir að líkamlegt og andlegt álag hafi verið
of mikið þegar til kastanna kom á Ólympíuleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL