Fréttablaðið - 17.12.2012, Blaðsíða 6
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Í hvaða fi rði varð vart mikils síldar-
dauða í liðinni viku?
2. Hvað heitir ný plata Humars Lindu-
sonar Eldjárns?
3. Hvaða rithöfundur hlaut Tinda-
bikkjuna, verðlaun Glæpafélags Vest-
fjarða, á dögunum?
SVÖR
1. Kolgrafafi rði 2. Hvílíg plada fyrir humar!
3. Stefán Máni fyrir Húsið.
HEILBRIGÐISMÁL Í flestum löndum heims hefur
dregið mjög úr barnadauða og fólk lifir almennt
lengur nú en fyrir 20 árum. Hins vegar glímir
fólk frekar við sjúkdóma og fatlanir.
Þetta eru niðurstöðurnar úr umfangsmestu
rannsókn á lífslíkum, sjúkdómum og dánar-
orsökum jarðarbúa sem gerð hefur verið.
Síðast var gerð umfangsmikil rannsókn á
þessu efni árið 1990 og þá var helsta heilsu-
farsvandamál mannkyns dauðsföll barna
innan við fimm ára aldur. Meira en tíu millj-
ónir barna létust þá árlega, en nú er sá fjöldi
kominn niður í sjö milljónir, og er talið að
það megi einkum þakka bólusetningum við
sjúkdómum á borð við mænusótt og mislinga.
Árið 1990 var vannæring helsta orsök veik-
inda og dauða barna, en nú hrjáir ofát þau
frekar – nema í Afríku. Þegar meðalaldur
hækkar fjölgar jafnframt fólki sem glímir við
sjón- eða heyrnarskerðingu og andlega erfið-
leika á borð við þunglyndi.
Hjartasjúkdómar og heilablóðfall eru
enn algengustu dánarorsakir jarðarbúa, en
lungnakrabbi er orðinn algengari og telst nú
fimmta algengasta dánarorsökin. Orsakir
flestra sjúkdóma meðal fullorðinna má hins
vegar rekja til of hás blóðþrýstings, en næst á
eftir koma reykingar og áfengisneysla. - gb
Ný rannsókn á dánarorsökum jarðarbúa sýnir að miklar breytingar hafa orðið:
Fólk lifir almennt lengur en er veikara
HJÁ LÆKNINUM Dregið hefur úr barnadauða um
allan heim. NORDICPHOTOS/AFP
NORÐUR-KÓREA Mikið var um hátíðarhöld í Norður-Kóreu í gær í tilefni
þess að ár er liðið frá láti Kim Jong-il, fyrrverandi leiðtoga landsins.
Í ræðuhöldum var mikið gert úr því afreki að í síðustu viku tókst
Norður-Kóreumönnum að skjóta eldflaug á loft og koma veðurhnetti á
braut umhverfis jörðu.
Norður-Kóreumenn hafa áður gert nokkrar tilraunir til að skjóta
viðlíka eldflaug á loft en þeir hafa unnið að þessu markmiði í fjórtán
ár. Nágrannaþjóðir landsins óttast að eldflaugaskotið hafi verið tilraun
til að þróa langdræg kjarnavopn.
Bandaríkjamenn hafa einnig fullyrt að veðurhnötturinn hafi orðið
stjórnlítill stuttu eftir að hann var kominn á loft. - sm
Dánarafmæli Kim Jong-il haldið hátíðlegt í N-Kóreu:
Eldflaugarskot sagt mikið afrek
RÁÐAMENN FAGNA Ráðamenn í Norður-Kóreu fagna vel heppnuðu eldflaugar-
skoti og minnast látins leiðtoga. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
DÓMSMÁL Starfsmenn Glitnis vör-
uðu forstjórann Lárus Welding við
því að láta undan þrýstingi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar um að lána
félaginu FS38 sex milljarða til að
kaupa fjórðungshlut Fons í skart-
gripakeðjunni Aurum í júlí 2008.
Hann gerði það samt og bakaði
bankanum með því mikið tjón.
Þetta er meðal þess sem segir
í ákæruskjali sérstaks saksókn-
ara á hendur Lárusi, Jóni Ásgeiri,
Magnúsi Arnari Arngrímssyni og
Bjarna Jóhannessyni.
Lárus og Magnús eru ákærðir
sem aðalmenn í umboðssvikum
vegna lánsins og Jón Ásgeir og
Bjarni sem hlutdeildarmenn, en
Jón Ásgeir til vara fyrir hylmingu
eða peningaþvætti.
Samkvæmt ákærunni
fóru milljarðarnir
sex sem Fons fékk
frá FS38 fyrir
hlutinn í Aurum
meðal annars í
að greiða upp
skuldir Fons
vegna svo -
kallaðs Stím-
máls, auk þess
sem milljarður
rann á persónu-
legan reikn-
ing Jóns
Ásgeirs. Hann var notaður til að
greiða upp rúmlega 700 milljóna
yfirdráttarskuld.
Í ákærunni segir að Jón Ásgeir
hafi beitt Lárus og Bjarna „for-
tölum og þrýstingi“ til að knýja
lánveitinguna í gegn, og notið við
það liðsinnis Gunnars Sigurðs-
sonar, forstjóra Baugs, og Jóns
Sigurðssonar, forstjóra FL Group
og varaformanns stjórnar Glitnis.
„Þá bera gögn málsins með sér
að ákærði Jón Ásgeir gaf ákærða
Lárusi tilefni til að óttast um stöðu
sína innan Glitnis léti ákærði
Lárus ekki að vilja hans. Gögnin
sýna einnig að undirmenn ákærða
Lárusar vöruðu hann við því að
láta að vilja ákærða Jóns Ásgeirs
í tengslum við þessa lánveitingu
og að hann gerði sér grein fyrir
í hvaða hættu hann stefndi hags-
munum bankans með undanláts-
semi við ákærða Jón Ásgeir,“
segir jafnframt í ákærunni.
Í fundargerð áhættu nefndar
bankans kemur fram að lánið
hafi verið samþykkt á milli
funda af Lárusi, Magnúsi
Arnari og Rósant Má Torfa-
syni. Rósant hefur hins vegar
neitað þessu og kveðst hvorki
hafa samþykkt lánið né hafa
verið á fundinum þar sem þessi
fundargerð var smíðuð.
Í ákærunni segir að „engar við-
skiptalegar forsendur“ hafi legið
að baki láninu, „heldur var
lánið veitt að áeggjan
og vegna þrýstings frá
ákærða Jóni Ásgeiri í
krafti yfirráða hans
yfir tæplega 40%
eignarhlut í Glitni,
í gegnum FL Group hf., honum
sjálfum og Fons til hagsbóta en á
kostnað bankans.“ Sex milljarð-
arnir sem lánaðir voru séu að öllu
eða langmestu leyti tapaðir.
„Eru sakir ákærðu svo miklar
að við broti þeirra liggur allt að
sex ára fangelsi,“ segir í lok ákær-
unnar, sem Ólafur Þór Hauksson
undirritar og er dagsett 12. des-
ember. Hún verður þingfest 7.
janúar.
Jón Ásgeir Jóhannesson segir
í yfirlýsingu sem birtist í Frétta-
blaðinu á föstudag að Aurum-
málið sé skáldað sakamál. Hann
segir að sakarefni sem á hann séu
borin standist ekki skoðun.
stigur@frettabladid.is
Lánaði sex milljarða
þrátt fyrir viðvaranir
Lárus Welding lét undan þrýstingi frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og lánaði sex
milljarða til kaupa á fjórðungi í skartgripakeðjunni Aurum þvert á viðvaranir
undirmanna. Þetta segir í ákæru sérstaks saksóknara. Féð að langmestu tapað.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSONLÁRUS WELDING
STJÓRNSÝSLA Ólögleg mjólk var
gerð upptæk í íslenskum stór-
markaði þegar tollayfirvöld tóku
þátt í alþjóðlegu verkefni gegn
innflutningi og sölu á fölsuðum
og ólöglegum matvælum.
Samstarfsverkefnið er rekið
af Europol og Interpol og heitir
Opson II. Það er liður í barátt-
unni gegn sölu og dreifingu á
hvers kyns fölsuðum og ólög-
legum matvælum. Rúmlega 235
tonn af vörum og matvælum hafa
verið gerð upptæk í 29 löndum.
- bþh
Alþjóðlegt verkefni á Íslandi:
Hald lagt á
ólöglega mjólk
PRÓFKJÖR Andrea Jóhanna Ólafs-
dóttir og Þórður Björn Sigurðs-
son gefa kost á sér í framboð
fyrir Dögun í komandi þingkosn-
ingum. Andrea bauð sig fram til
forseta síðasta sumar, en hlaut
dræman stuðning. Þau hafa bæði
setið í formannsstóli Hagsmuna-
samtaka heimilanna.
Áður hafa Gísli Tryggva-
son, Lýður Árnason, Margrét
Tryggvadóttir og Ragnar Þór
Ingólfsson formlega tilkynnt
framboð sitt fyrir Dögun.
- sv
Andrea og Þórður í framboð:
Dögun fær tvo
til viðbótar
VEISTU SVARIÐ?