Fréttablaðið - 17.12.2012, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 17.12.2012, Blaðsíða 46
17. desember 2012 MÁNUDAGUR „Þetta er fullorðinssýning að því leyti að hún fjallar um nei- kvæðar hliðar jólanna; stressið, pirringinn, verslunar brjálæðið, óþolandi jólahefðir og þess háttar,“ segir Hjörtur Jóhann Jónsson, einn af meðlimum leik- hópsins Óska börnum ógæfunnar. Leik hópurinn frumsýnir jólasýn- ingu fyrir fullorðna næstkomandi mánudag, 17. desember, í Tjarn- arbíói. Nóttin var sú ágæt ein er titill verksins en höfundur þess er Anthony Neilson. Hjörtur Jóhann þýddi og staðfærði ásamt leik- stjóranum, Vigni Rafni Valþórs- syni. Verkið heitir á frummáli The Night Before Christmas. Nóttin var sú ágæt ein er fyrsta sýning leikhópsins sem var stofn- aður í sumar. Verkið fjallar um tvo félaga sem góma innbrotsþjóf rétt fyrir miðnætti á aðfanga- dagskvöld. Þjófurinn heldur því hins vegar statt og stöðugt fram að hann sé raunverulegur jóla- sveinn. Félagarnir halda honum föngnum og vilja draga hann til ábyrgðar fyrir að jólin séu orðin hátíð græðgi og sýndarmennsku. Þegar líður á kvöldið kemur þó ýmislegt í ljós sem þeir geta ekki útskýrt. „Persónur verksins eiga það sameiginlegt að allar eru þær komnar með upp í kok af jólunum á einn eða annan hátt. Sýningin er ekki ætluð börnum þar sem talað er um eiturlyf, kynlíf, ofbeldi og fleira skemmtilegt, og mikið blót- að og bölvað og ragnað. Einnig er jólasveinninn í verkinu ekki alveg sá sæti og skemmtilegi sveinki sem börn þekkja hvað helst,“ segir Hjörtur og bætir brosandi við: „Ég er ekki viss um að þau myndu vilja trúa á þennan jólasvein.“ Boðskap verksins segir Hjörtur vera að minna á að jólin séu ekki sjálfkrafa yndislegur tími. „Jólin eru erfið fyrir mjög marga, kannski einmitt vegna þess að þau eiga að vera svona dásamleg.“ Hann bætir við að hátíð ljóss og friðar sé nú orðin laus við friðinn. „Þetta er hins vegar ágætis tæki- færi til að spyrja sig hvað skiptir mestu máli. Er mikilvægara að koma öllu skrautinu upp og skera þrjú tonn af laufabrauði, eða bara að njóta þess að eiga góðar stundir með fólkinu þínu?“ Hjörtur Jóhann leikur sjálfur í sýningunni, en aðrir leikarar eru Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Bene- dikt Karl Gröndal og Davíð Freyr Þórunnarson. Vignir Rafn Val- þórsson leikstýrir. Nóttin var sú ágæt ein verður sýnt sex sinnum á þremur dögum og er hver sýning rúm klukku- stund að lengd. Sýningardagar eru 17., 18. og 20. desember. Upp- lýsingar um miðasölu má finna á Facebook-síðu sýningarinnar. halla@frettabladid.is MENNING Kamilla og vinir hennar þurfa að kljást við kexvitlausan vísindamann, fluggáfaðan úlf og sína eigin foreldra í þessari þrælfyndnu bók. Rækilega fyndin og spennandi! „frábær húmor ...einstaklega vönduð“ Edda Björgvins leikkona fyrir ára 7-12 „Bull- fyndin bók“ Rökkvi 10 ára Vorið 2012 hlaut Bókabeitan Vorvinda IBBY fyrir framlag sitt til barnamenningar 6. sæti yfir mest seldu barna- og unglingabækur* * M et sö lu lis ti E ym un ds so n vi ku na 1 4 .-2 1 . nó v. Jólasveinn gómaður á aðfangadagskvöld Nóttin var sú ágæt ein nefnist jólaleiksýning fyrir fullorðna sem leikhópurinn Óskabörn ógæfunnar frumsýnir í Tjarnarbíó í kvöld. Sýningin fj allar um tvo félaga sem góma innbrotsþjóf sem heldur því fram að hann sé jólasveinninn. JÓLAHJÖRTUR Er einn forsprakka Óskabarna ógæfunnar, leikhóps sem stofnaður var í sumar. Hann þýðir og staðfærir verkið Nóttin var sú ágæt ein ásamt Vigni Rafni Valþórssyni leikstjóra, auk þess að leika í því. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TÓNLIST ★★★★ ★ Eva Þórarinsdóttir og Benja- min Powell Norðurljósasalur Hörpu FIMMTUDAGINN 13. DESEMBER Ég hafði aldrei heyrt um Evu Þórarinsdóttur fiðluleikara fyrr en hún hélt fyrstu opinberu tón- leikana sína í Norðurljósum Hörpu á fimmtudagskvöldið. En það er ólíklegt að ég gleymi henni í bráð. Að vísu var fyrsta verkið á dag- skránni, sónatan eftir Janacek, ekki fyllilega sannfærandi. Eva spilaði ásamt píanóleikaranum Benja min Powell. Eva virkaði dálítið fjarlæg, allur ævintýraheimur tékkneska tónskáldsins var ein- hvern veginn annars staðar. Leikurinn var samt vandaður, nóturnar voru á sínum stað. En það vantaði kraftinn og gleðina. Þetta var greinilega taugaóstyrkur sem yfirleitt er verstur í upphafi tónleika því í næsta verki kvað við annan tón. Það var G-dúr sónatan eftir Ravel, einhver glæsilegasti flutningur á henni sem ég hef heyrt á tónleikum. Eva spilaði af sjaldheyrðri mýkt, allar tónahendingar voru óvanalega fallega mót- aðar. Þær voru áreynslulausar og eðlilegar. Upp- byggingin á verkinu var líka afar flott, fyrsti kafl- inn stigmagnaðist t.d. þrep af þrepi. Fyrir bragðið var framvindan alveg sérstak- lega spennandi. Eva féll aldrei í þá gryfju að leggja öll trompin á borðið strax. Þvert á móti komu hápunktarnir á hárréttum augna- blikum. Það var mögnuð upplifun. Powell spilaði einnig af stakri fagmennsku, hröð nótnahlaup voru pottþétt, túlkunin leikandi, flæðið í tónlistinni óheft og gríp- andi. Eftir hlé lék Eva einleikssónötu nr. 5 eftir Ysaÿe. Það er heillandi tónlist, eins og flest eftir tón- skáldið. Eva lék af tæknilegum yfirburðum, túlkunin var í senn draumkennd og spennuþrungin. Sömu sögu er að segja um síðasta verkið, G-dúr sónötuna eftir Brahms, sem Eva spilaði ásamt Powell. Hún var svo hrífandi á tónleik unum að ég fékk tár í augun. Það var í henni skemmtileg ákefð, en samt voru allar laglínurnar blátt áfram og mjúkar. Þær fæddust eðlilega og flæddu án hindrana yfir í næstu laglínu. Fyrir bragðið var tónlistin svo fallega lýrísk að það var alveg einstakt. Eva er greinilega frábær fiðluleikari. Það verður spennandi að fylgjast með henni í framtíðinni. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Eva Þórarinsdóttir er ný stjarna í íslensku tónlistarlífi. Hápunktur á hárréttum stöðum Persónur verksins eiga það sameiginlegt að allar eru þær komnar með upp í kok á jólunum á einn eða annan hátt. Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.