Fréttablaðið - 17.12.2012, Síða 17

Fréttablaðið - 17.12.2012, Síða 17
MÁNUDAGUR 17. desember 2012 | SKOÐUN | 17 Málþóf: þá tekur einhver til máls um tiltekið atriði en er í raun og veru ekkert að tala um það; þykist bara tala um það. Þykist í raun- inni bara tala. Opnar munninn og lætur orð streyma út um hann, en þau eru ekki um neitt, ekki í neinu samhengi, ekki til þess að bera fram merkingu, hugsjónir, sýn heldur þvert á móti bara froða. Viðkomandi gæti allt eins staðið á fætur, gengið í ræðustól og sagt: Virðulegi forseti. Banani banani banani. Þess vegna eru umræður á Alþingi um þessar mundir eins og skrifaðar af Samuel Beckett. Fulltrúalýðræði Fulltrúalýðræði er það fyrirkomu- lag að ég, kjósandinn, framsel það vald sem ég hef með atkvæði mínu í hendur tilteknum aðilum sem ég treysti betur en öðrum til að fara með það. Alþingismenn eru trúnaðarmenn fólksins, sér- staklega valdir af því, og þurfa að svara fyrir gerðir sínar gagnvart því. Þeir skipa sér í flokka eftir lífssýn og hagsmunagæslu fyrir ólíka hópa samfélagsins. Ég fel til- teknum einstaklingum í tilteknum flokki það mikla heiðurs- og trún- aðarstarf að setja sig inn í flókin og erfið úrlausnarefni fyrir mína hönd og taka eftir slíka rannsókn ákvarðanir um lausn þeirra þar sem hafðar eru að leiðarljósi þær hugsjónir sem við deilum, ég og flokkurinn, hvort sem þær snúast um jöfnuð og réttlæti, hagvöxt og atvinnusköpun, einstaklingsfram- tak og auðsöfnun, landsbyggðar- líf eða kaupstaðatilveru. Þing- mennska er sérfræðistarf sem þarf að setja sig inn í og læra. Til að sinna henni vel þarf sérstaka hæfileika og tiltekna þekkingu – og tíma til að afla sér þess. Utan þings strita nokkrir menn af veikum mætti við að reyna að leiða fólki fyrir sjónir ágæti full- trúalýðræðisins en á meðan kepp- ast hinir kjörnu fulltrúar á þingi við að færa okkur heim sanninn um að þetta fyrirkomulag sé eigin- lega alveg ómögulegt. Í öllum málum, stórum jafnt sem smáum, beita þeir vopninu ógurlega: mál- þófi. Þeir koma upp hver á fætur öðrum og segja: banani banani banani. Þeir geta ekki hætt mál- þófinu. Meira að segja fyrir- spurnir þingmanna eru teknar að líkjast málþófi grunsam- lega mikið: Sigríður Andersen er ósammála einhverju sem séra Örn Bárður sagði í útvarpspredikun. Skrifar hún blaðagrein? Nei, hún ber upp fyrirspurn á Alþingi um allar sunnudagamessur í útvarp- inu á tilteknu árabili sem þarf að safna með ærinni fyrirhöfn, þó að vandséð sé hver eigi nákvæmlega að svara fyrir málið: kannski Guð almáttugur? Málþóf nær og fjær Við venjumst öllu – einkum ósiðum. Og nú er svo komið að okkur finnst að svona sé þetta bara: eðlilegt sé að dögum og vikum saman skundi fólk sam- kvæmt fyrir fram gerðu Excel- skjali í sjálfan ræðustól Alþingis beinlínis þeirra erinda að tala án þess að segja neitt; þetta sé jafnvel eðlilegur fylgifiskur lýðræðisins. En þetta er ekki eðlilegt fram- ferði. Ímyndum okkur að ein- hverjir fjölskyldumeðlimir færu til dæmis að halda uppi málþófi í jólaboði; leyfðu engum að fá sér mat eða taka til máls en krefðust þess að allir hlustuðu á meðan þeir settu á langar ræður um ekki neitt, og spyrðu hver annan innvirðulega hvort þeir væru ekki sammála sér um einmitt það. Hugsum okkur að flugstjóri í aðflugi kæmi í hátal- arakerfið – this is your captain speaking – og svo færi hann bara allt í einu að halda uppi málþófi. Eða kennara í miðri útskýringu á Pýþagórasarreglunni. Eða klipp- ara sem myndi bara allt í einu hætta einhvers staðar í hnakk- anum og færi að beita mig mál- þófi. Og svo framvegis. Málþóf er verkfallsaðgerð. Málþóf er kart- afla í skó lýðræðisþyrstrar þjóðar. Málþóf er spánarsnigill í jarðvegi þjóðfélagsumræðunnar. Málþóf er eins og fótboltalið sem aldrei sækir en sendir boltann bara á milli sín í vörninni – mjög hægt og leiðinlega – og gætir þess að hitt liðið nái honum ekki. Það er eins og maður á vinnustað sem stendur á miðjum ganginum æpandi og hleypir fólki ekki að borðunum sínum til að fara að vinna. Það er eins og smiður sem rakkar timbrinu aftur og aftur í stað þess að byrja smíðarnar. Við myndum halda að hann gengi kannski ekki heill til skógar og reyna að leiða honum nærfærn- islega fyrir sjónir að hann ætti kannski að athuga sinn gang. En þegar vakin er athygli á því að Illugi Gunnarsson er farinn að halda uppi málþófi um sjálf fjárlög íslenska ríkisins beinist gjörvöll vandlæting samfélagsins (og hún er ekki lítil um þessar mundir) að þeim sem voguðu sér að vekja athygli á athæfinu. Jafnvel þótt allir viti af málþófinu. Og meira að segja þótt hann viti að allir viti af málþófinu. Málþóf er sjálfsofnæmi þing- ræðisins. Þar sýnir þetta fyrir- komulag sínar verstu hliðar, þegar minnihluti misnotar hið forna og göfuga samskiptaform – sjálfa ræðuna í ræðustól – til þess að koma í veg fyrir framgang mála sem meirihluti hefur umboð frá kjósendum til að sinna. Kominn er tími til að allir flokkar sam mælist um að stöðva þennan ósóma, og gildir þá einu hverjir stjórna hverju sinni. Þetta er vanhelgun á virðulegasta ræðustól landsins, vanbrúkun á virðulegasta kapp- ræðuvettvangi þjóðarinnar, van- virðing við okkur kjósendur sem trúum þingmönnum fyrir þessu vandmeðfarna valdi en kusum þá ekki til að fara upp í ræðustól og segja: banani banani banani. Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur … eðlilegt sé að dögum og vikum saman skundi fólk sam- kvæmt fyrir fram gerðu Excel-skjali í sjálfan ræðu- stól Alþingis beinlínis þeirra erinda að tala án þess að segja neitt; þetta sé jafn- vel eðlilegur fylgifiskur lýðræðisins. Sjálfsofnæmi þingræðisins Að opna landamæri Sænski miðjuflokkurinn íhugar nú alvarlega möguleikana á að opna fyrir frjálsan innflutning fólks til Svíþjóðar. Ástæðurnar eru annars vegar þörf á vinnuafli í greinum sem Svíar sýna almennt lítinn áhuga og hins vegar hættan á því að byggð leggist af á stórum svæðum. Þeir Íslendingar sem hafa áhyggjur af landsbyggðarflótta ættu kannski að skoða þennan möguleika líka. blog.pressa.is/evahauks Eva Hauksdóttir Rammaáætlun og tækifærissinnarnir í VG Nú þegar niðurstaða Rammaáætl- unar liggur loks fyrir ætlumst við til að farið sé að niðurstöðum hennar og skammtímahugsun og tækifæris- mennsku stjórnmálamanna vikið til hliðar. Sé litið til alls þessa er harla einkennilegt og reyndar mótsagnakennt þegar einhver hópur stígur nú fram og vill rifta niðurstöðu Rammaáætlunar, segist tala fyrir náttúruverndarsinna og hefur í hótunum við launamenn og samtök þeirra. Þessi hópur vill ekki sleppa fyrri möguleikum til brellubragða og því fer fjarri að þetta fólk tali fyrir alla náttúruverndarsinna. Þessi hópur vinnur gegn náttúruvernd og þar fara fremst nokkrir þingmenn og ráðherrar VG. Það liggur fyrir að það þarf að virkja á Íslandi. Það eru ákveðin svæði sem eru betur til þess fallin en önnur. Það er ekki þar með sagt að það þurfi að virkja öll þessi svæði nú þegar. gudmundur.eyjan.is Guðmundur Gunnarsson AF NETINU Íslendingar losa 0,01% af gróðurhúsalofttegundum á heimsvísu. Við munum vart leysa loftslagsvand- ann ein, enda er viður- kennt í loftslagssamningi SÞ að það verði aðeins gert í samvinnu ríkja heims. Við getum heldur ekki hlaupist undan merkjum, því krafa er gerð í samn- ingnum um að öll ríki vinni að takmörkun los- unar eftir getu og efna- hag. Auðugt ríki eins og Ísland á að leggja sitt af mörkum. Við Íslendingar stöndum okkur bærilega í loftslagsmálum, sam- kvæmt nýlegri úttekt evr- ópskra umhverfis verndar- samtaka, sem segja Ísland vera í 14. sæti af þeim 58 löndum sem skoðuð voru. Slík tölfræði er ekki nákvæm vísindi – hins vegar má spyrja hvort Ísland hafi ekki for sendur til að taka sæti ofar í saman burðinum. Ísland býr við góða ímynd á mörgum sviðum umhverfis mála, en við eigum að hafa metnað til að vera í fremstu röð. Græn ímynd er góð fyrir fyrirtæki og ferðaþjónustu. Heilbrigt umhverfi þýðir aukin lífsgæði. Vandinn kallar á nýsköpun Loftslagsvandinn kallar á ný- sköpun og þar liggja tækifæri fyrir rannsóknir, nýsköpun og atvinnulíf. Íslendingar kunna vel að nýta jarðhita og hafa lengi deilt þeirri þekkingu í gegnum Jarð- hitaskóla SÞ. Nú stendur fyrir dyrum stærsta þróunarverk- efni sem Íslendingar hafa tekið þátt í, sem miðar að leit og nýt- ingu jarðvarma í Austur-Afríku. Ýmis fyrir tæki vinna að lofts- lagsvænni tækni og má þar nefna Marorku, sem býður lausnir til að draga úr mengun frá skipum. Sveitarfélög vinna metangas úr urðunar stöðum og nýta á farar- tæki. Skógrækt og landgræðsla binda kolefni úr andrúmslofti í gróðri og jarðvegi. Í fremstu röð Vistvænni lífsstíll er annar mikil vægur þáttur. Losun frá samgöngum er óvíða meiri á mann en á Íslandi. Bílaflotinn er stór og orkufrekur og byggð í þéttbýli er jafnan mjög dreifð yfir stórt svæði. Skipulag þarf að taka mið af umhverfissjónar- miðum því ferðavenjur geta skipt sköpum. Við getum notast við sparneytnari bíla, notað almenningssamgöngur meira og gengið og hjólað; allt stuðlar þetta að minni losun. Stjórnvöld bera meginþunga ábyrgðarinnar og setja rammann um aðgerðir í loftslagsmálum. Við getum hins vegar lagt okkar af mörkum hvert og eitt. Ísland getur og á að vera í fremstu röð í baráttunni gegn loftslagsvánni. Ísland getur betur LOFTSLAG Svandís Svavarsdóttir umhverfi s- og auðlindaráðherra ➜ Heilbrigt umhverfi þýðir aukin lífsgæði. Loftslags- vandinn kallar á nýsköpun og þar liggja tækifæri fyrir rannsóknir, nýsköpun og atvinnulíf. GLÆSILEG GJÖF FYLGIR FRAMTÍÐARREIKNINGI Við stofnun eða innlögn á Framtíðarreikning barns að upphæð 5.000 kr. eða meira fylgir Stóra Disney heimilisréttabókin með*. Tilvalin jólagjöf sem vex með barninu. Komdu við í næsta útibúi Arion banka. Framtíðarreikningur — gjöf til framtíðar *Á meðan birgðir endast©DISNEY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.