Fréttablaðið - 17.12.2012, Side 26

Fréttablaðið - 17.12.2012, Side 26
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 JÓLAENGILLINN Arca Design styrkir Ljósið Endurhæfingu í ár, en allur ágóði af sölu jólaengilsins rennur til Ljóssins. MYND/ARCADESIGN Hafdís Heiðarsdóttir og Vilborg Aldís Ragnars dóttir settu styrktarverkefnið Pakki á pakka á laggirnar fyrir tveimur árum, en þær búa til gjafavöru úr plexígleri og áli undir heitinu Arca Design. Verkefnið vinna þær í samvinnu við Lógóflex, sem gefur vinnuna við framleiðslu vörunnar, og rennur allur ágóði hennar óskiptur til þess málefnis sem Hafdís og Vilborg velja hverju sinni. „Við byrjuðum jólin 2010. Við hönnuðum lítið pakkaskraut eða óróa sem Lógóflex sker út fyrir okkur, en óróinn er breytilegur á milli ára. Í ár erum við með jólaengilinn,“ útskýrir Hafdís. „Við seljum pakkann á 500 krónur og renna þær óskiptar til góðs málefnis. Í fyrra styrktum við Fjölskylduhjálp Íslands um tæpar 500 þúsund krónur og stefnum að því að gera betur í ár, en í ár styrkjum við Ljósið Endurhæfingu. Við finnum að fólk er mjög ánægt með þetta, bæði vegna þess að þetta kostar einungis 500 krónur og vegna þess að öll upphæðin rennur til málefnisins,“ segir Hafdís. Jón Gnarr borgarstjóri er verndari verk- efnisins í ár, en óróann má nálgast hjá Arca Design í verslunarmiðstöðinni Grímsbæ. PAKKI Á PAKKA HAPPY TALK Kerta- stjakarnir eftir Huldu B. Ágústsdóttur eru úr viðarkúlum sem hún málar og lakkar. MYND/HULDA ÁGÚSTSDÓTTIR Myndlistakonan Hulda B. Ágústsdóttir hefur sent frá sér línu muna sem hún kallar Happy talk. Línan inniheldur meðal annars kerta- stjaka og armbönd úr viðarkúlum sem hún handmálar og lakkar. „Happy talk-línan er unnin í beinu framhaldi af skartgripum sem ég hef unnið undanfarin ár en ég vinn úr alls konar hráefni, til dæmis plasti, gúmmíi, plexígleri og skeljum, en mér finnst skemmtilegt að glíma við og prófa ný hráefni og útfærslur.“ Hulda lærði myndlist í Beaux-Arts í Suður-Frakklandi og hefur búið til skartgripi frá árinu 1995. Munina selur hún í Kirsuberjatrénu. SKART ÚR VIÐARPERLUM Vilji maður fá sér öðruvísi ljós eru hauskúpur málið. Þessir hauskúpuljósgjafar eru aðeins brot af öllu því hauskúpuflóði sem hægt er að finna í vefverslunum. UPPLÝSTAR KÚPUR LJÓS Í MYRKRI Hauskúpur njóta hylli í dag. Fatnaður og skartgripir sem skreyttir eru með þeim njóta fádæma vinsælda. Hér eru ýmsar útgáfur af haus kúpum sem hægt er að kaupa á netinu til að lýsa upp skammdegið. BREYTA UM LIT aliexpress.com AÐ VERA EÐA EKKI VERA alexgarnett. com HAUSKÚPUSERÍA theluckleds.com HIPPAHAUSKÚPUR dmarket.com LAGERSALA Lagersala Ármúla 22 2. Hæð Fullt af frábærum jólagjöfum á frábæru verði Fullt af nýjum vörum Opið alla daga frá 10-17 nema miðvikudaga 10-19 Erum með opið hús í Hlíðasmára 8, Kópavogi á fimmtudögum frá 11 - 18, hjá Auntsdesign. Útsölustaðir: Dekurstofa Dagnýjar, Ísafirði Abaco heilsulind, Akureyri Makeover snyrtistofa, Hafnarfirði Pandora snyrtistofa, Mjódd Hárgreiðslustofan Ýr, Hólagarði Líkami og sál, Mosfellsbæ Texture, Mosfellsbæ Hildur Magg, Dalvík Snyrtistofan Táin, Sauðárkróki Sala@noname.is • noname.is noname.is Sér framleiddar fyrir NN-Cosmetics, hágæða pallettur í miklu úrvali. Draumagjöfin hennar. Palletturnar sem fagfólkið velur. Fallegur inndraganlegur kinna- litabursti, fylgir frítt með öllum kinnalitapallettum á meðan birgðir endast. Frábærir, nettir og fyrirferðalitlir hágæða förðunarburstar, 7 burstar - allir nauðsynlegustu burstarnir á einum stað. Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.