Fréttablaðið - 17.12.2012, Side 28
ÓÐINSGÖTU 4
SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
Móaflöt – Garðabæ
Mikið endurnýjað 160,7 fm. raðhús á einni hæð auk 42,7 fm. bílskúrs. Húsið var mjög mikið
endurnýjað fyrir um 10 árum síðan. Þá voru m.a. bæði baðherbergi endurnýjuð, innrétting og
tæki í eldhúsi, gólfefni, rafmagnstöflur, vatns- og ofnalagnir að hluta, innihurðir o.fl. Mögulegt er
að innrétta bílskúr sem hluta af íbúðarrými þar sem innangengt er í bílskúr af svefngangi. Ræktuð
lóð með verönd til suðurs og vesturs. Hellulögð innkeyrsla. Frábær staðsetning í góðu göngufæri
við skóla, sundlaug og aðra þjónustu Verð 56,9 millj.
Asparteigur- Mosfellsbæ
Vandað 223,5 fm. parhús á tveimur hæðum að meðtöldum 21,5 fm. bílskúr. Rúmgóð stofa. Borð-
stofa opin við eldhús. Eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum. Sjónvarpshol. Þrjú svefn-
herbergi. Fataherbergi innarf hjónaherbergi. Baðherbergi, flísalagt í gólf og veggi. Timburverönd
til suðvesturs með skjólveggjum. Lóð ófrágengin að framanverðu.Verð 49,9 millj.
Gnitakór-Kópavogi
Fallegt 343,8 fm. einbýlishús á tveimur hæðum neðan við götu að meðtöldum 36,0 fm. inn-
byggðum bílskúr. Húsinu hefur verið skipt upp í þrjár íbúðir þ.e. 131,0 fm. efri hæð hússins er í
dag ein íbúð og 175,9 fm. neðri hæð hússins hefur verið skipt upp í tvær 2ja herbergja íbúðir um
85,0 fm. hvor með sér inngangi. Húsið er vel staðsett á góðum útsýnisstað.Verð 79,0 millj.
Steinás – Garðabæ
Fallegt, vel skipulagt og vel staðsett 144,5 fm. einbýlishús á einni hæð auk 50,0 fm. sérstæðs bíl-
skúrs með mikilli lofthæð. Húsið stendur á fallegum stað neðst í Ásahverfinu við opið svæði með
frábæru útsýni yfir hraunið. Mjög mikil lofthæð er í stofu og eldhúsi og innfelld lýsing í loftum.
Rúmgóð stofa, stórt eldhús og fjögur svefnherbergi. Risloft er yfir hluta hússins, vel manngengt
og nýtist sem vinnuaðstaða. Verð 63,0 millj.
Hólahjalli –Kópavogi. Einbýlishús á frábærum útsýnisstað
Stórglæsilegt 355,3 fm. einbýlishús að meðtöldum 45,3 fm. tvöföldum bílskúr á frábærum
útsýnisstað við opið svæði í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er allt hið vandaðasta að innan og
utan og í mjög góðu ásigkomulagi. Lóðin er glæsileg með miklum veröndum með góðri lýsingu
og fallegum gróðri, en þó viðhaldslítillil. Mjög mikil lofthæð er í hluta hússins, t.d. allt að 6 metra
lofthæð í stofum. Möguleiki á aukaíbúð með sér inngangi á jarðhæð hússins. Verð 99,0 millj.
Holtagerði -Kópavogi
221,0 fm. steiniklætt einbýlishús á tveimur hæðum að meðtöldum 60,0 fm. sambyggðum bílskúr.
Stofa á tveimur pöllum, sólstofa/borðstofa, eldhús, fjögur herbergi og tvö baðherbergi. Húsið
hefur fengið gott viðhald. Fallegur skjólsæll garður í góðri rækt til suðurs með um 70 fm. verönd
og tengi fyrir heitan pott. Hellulögð aðkoma. Verð 45,9 millj.
Haukanes- Garðabæ.
Glæsilegt u.þ.b. 330 fm. einbýlishús á tveimur hæðum innst í götu og með frábæru útsýni á
Arnarnesinu.Húsið hefur verið þó nokkuð endurnýjað hið innra á undanförnum árum og er í
mjög góðu ástandi, bæði innan og utandyra. Stórar og glæsilegar stofur með mikilli lofthæð,
miklum gluggum og ofanbirtu. Eldhús með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum. Fimm her-
bergi. Stórar og skjólgóðar verandir til suðurs með skjólveggjum og heitum potti. Stór og ræktuð
eignarlóð. Verð 99,0 millj.
Byggðarendi
Fallegt 270,6 fm. einbýlishús með aukaíbúð við Byggðarenda. Húsið er mikið endurnýjað.
Aðalíbúðin skiptist m.a. í eldhús með eyju og vandaðri sérsmíðaðri innréttingu, stofu og borð-
stofu með útgengi í garð, hjónaherbergi með fataherbergi innaf, tvö barnaherbergi og flísalagt
baðherbergi. Hiti í gólfum að hluta. Innfelld lýsing á erfi hæð. Sér íbúð á neðri hæð. Glæsilegur og
sólríkur garður til suðvesturs. Stór verönd úr harðviði og heitur pottur. Tilboð óskast í eignina.
Leiðhamrar
Fallegt 170,0 fm. parhús á tveimur hæðum með innbyggðum/áföstum 28,6 fm. bílskúr í
Grafarvogi. Eignin er vel staðsett við opið svæði á friðsælum stað í botnlangagötu. Samliggjandi
borð- og setustofa, sólstofa, sjónvarpshol með útgangi á svalir og fjögur herbergi auk fata- og
vinnuherbergis. Háaloft er yfir allri efri hæðinni og stórkostlegs útsýnis nýtur þaðan. Ræktuð lóð
með um 40 fm. timburverönd. Hellulögð heimkeyrsla að bílskúr og göngustígar með hitalög-
num. Verð 49,9 millj.
Hamraberg
Mikið endurnýjað 128,2 fm. parhús á tveimur hæðum með góðum afgirtum garði í rólegu og
barnvænu hverfi í efra Breiðholti. Búið er að endurnýja eldhús og baðherbergi. Þrjú herbergi.
Baðherbergi með hornbaðkari og sturtuklefa. Gólfhiti í allri neðri hæðinni. Garður með góðum
veröndum.Verð 35,3 millj.
Hvammsgerði
163 fm. einbýlishús á þremur hæðum ásamt 35,6 fm. bílskúr á þessum eftirsótta stað í Smáíbúða-
hverfinu. Hið innra er eignin mikið upprunaleg að frátöldu eldhúsi sem er nýlega innréttað. Fimm
herbergi.Bílskúr hefur að hluta verið innréttaður sem stúdíóíbúð með snyrtingu og eldhúskrók.
Aðkoma hellulögð og garður með hellulagðri verönd. Verð 39,5 millj.
Glæsibær
Fallegt 167,2 fm. einbýlishús að meðtöldum 31,2 fm. bílskúr á þessum frábæra stað við
Elliðaárdalinn. Samliggjandi stofur með arni. Hol með útgangi á verönd til suðurs. Eldhús með
góðri borðaðstöðu. Þrjú herbergi (fjögur á teikningu). Nýlega endurnýjuð gestasnyrting . Húsið
er nýmálað og viðgert að utan. Falleg lóð með um 50 fm. viðarverönd með skjólveggjum auk
hellulagðrar verandar aftan við húsið. Verð 54,9 millj.
Barmahlíð- efri hæð
Falleg 119,0 fm. íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi í Hlíðunum. Hæðin sem er mjög opin skiptist í
rúmgott hol/gang, opið eldhús með eikarinnréttingu, samliggjandi skiptanlegar stofur, tvö til
þrjú herbergi og flísalagt baðherbergi. Svalir til suðvesturs út af stofum og sameiginlegar svalir
út af stigapalli í vestur. Þvottaaðstaða á baðherbergi auk sameiginlegs þvottaherbergis í kjallara.
Bílskúrsréttur fylgir eigninni. Verð 32,5 millj.
Straumsalir-Kópavogi 5 herbergja með 4 svefnherbergjum.
Mjög falleg 129,8 fm. 5 herbergja íbúð á 3. hæð í 5 íbúða húsi. Fjögur svefnherbergi. Björt stofa
og borðstofa með útgangi á um 12 fm. svalir til suðvesturs. Opið eldhús með fallegum innrétt-
ingum úr mahony. Frá íbúðinni nýtur stórkostlegs útsýnis að Reykjanesi, til Snæfellsjökuls og
víðar. Stutt í skóla, sundlaug og íþróttasvæði. Hús nýlega málað að utan. Verð 36,9 millj.
Stigahlíð- neðri sérhæð ásamt bílskúr
Vel skipulögð 149,4 fm. neðri sérhæð í nýviðgerðu þríbýlishúsi í Hlíðunum auk 28,5 fm. bílskúrs.
Hæðin skiptist í forstofuherbergi gestasnyrtingu, eldhús, rúmgóða stofu/borðstofu með arni, þrjú
herbergi á svefngangi og flísalagt baðherbergi. Suðursvalir út af hjónaherbergi. Húsið er klætt að
utan. Tröppur nýlega múraðar.Verð 39,9 millj.
Espigerði- íbúð á tveimur hæðum
Glæsileg 166,1 fm. íbúð á tveimur hæðum að meðtalinni sér geymslu í kjallara. Þrennar svalir
eru á íbúðinni og nýtur útsýnis yfir borgina og víðar frá þeim og úr íbúðinni. Stórar samliggjandi
stofur, sjónvarpshol, tvö rúmgóð herbergi (möguleiki á þremur). Íbúðinni fylgir sér stæði í bíla-
geymslu. Útsýnis nýturVerð 39,5 millj.
Eyjabakki – 4ra herbergja íbúð
95,5 fm. 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í neðra Breiðholti. Íbúðin er mikið upprunaleg að innan.
Stofa og borðstofa með útgengi á litla hellulagða verönd. Eldhús með góðum borðkrók. Þvot-
taherbergi innan íbúðar. Verð 17,9 millj.
Kríuhólar- 4ra herbergja ásamt bílskúr
116,1 fm. 4ra herbergja íbúð á 2. hæð auk 25,9 fm. frístandandi bílskúrs. Eldhús opið að hluta.
Rúmgott hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Svalir til suðvestur. Lóð í rækt og góð aðstaða fyrir
börn. Verð 24,7 millj.
SÉRBÝLI SÉRBÝLI 4RA – 6 HERBERGJA