Fréttablaðið - 17.12.2012, Side 29
Langalína 15-23
Nýjar íbúðir í glæsilegu 3ja hæða fjölbýlishúsi við Löngulínu 15-23 í Sjálandi í Garðabæ. Íbúðirnar eru 2ja til 5 herbergja frá
67 fm. til 157 fm., ýmist með góðum svölum eða stórri timburverönd. Stæði í bílageymslu fylgja flestum íbúðum í lokaðri og
upphitaðri bílageymslu. Íbúðirnar verða afhentar í mars til september 2013 án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og
þvottahúsum. Innréttingar og innihurðir verða úr eik. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
Sjálandi Garðabæ
Norðurbakki- Hafnarfirði. Glæsileg 3ja herb. íbúð
Glæsileg og vönduð 105,2 fm. íbúð á 1. hæð með svölum til norðausturs og stórri og skjólgóðri
verönd til suðvesturs auk sér stæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi. Íbúðin
er innréttuð eftir höfði eigenda með extra háum innihurðum, vandaðri eldhúsinnréttingu og afar
vönduðu baðherbergi. Aukin lofthæð í íbúðinni. Verð 29,0 millj.
Sóltún. Glæsileg íbúð með tvennum svölum
Afar glæsileg 139,2 fm. íbúð á 3. hæð með tvennum svölum (aðrar yfirbyggðar) og sér stæði í
bílageymslu í nýlegu húsi í Sóltúni. Allar innréttingar eru frá Axis. Innihurðir og gólfefni eru úr
eik. Gólfhiti í allri íbúðinni. Tvennar rúmgóðar svalir. Eldhús var endurhannað, stækkað og elda-
vélareyju komið fyrir. Aðeins tvær íbúðir á hæðinni. Lóð fullfrágengin með hitalögnum í stéttum.
Verð 48,5 millj.
Asparás- Garðabæ. Efri sérhæð
Mjög falleg og vönduð 116,0 fm.íbúð á efri hæð með sér inngangi að meðtalinni 6,7 fm. sér
geymslu á jarðhæð. Íbúðinni var mikið breytt frá upphaflegri teikningu og hún innréttuð eftir
teikningum innanhússarkitekt.Granít er í gluggakistum og vandaðar innréttingar og fataskápar.
Innfelld lýsing í loftum í stórum hluta íbúðarinnar. Stórar svalir til suðurs með viðargólfi. Húsið er
vel staðsett á fallegum stað við opið svæði og með útsýni að Reykjanesi. Verð 36,9 millj.
Hraunbær
Góð 89,5 fm. íbúð á 2. hæð í Árbænum. Útgangur á svalir til suðvesturs úr stofum. Eldhús með
nýlegri innréttingu. Franskar svalir út af hjónaherbergi. Suðurhlið hússins er klædd með steni. Sér
merkt bílastæði fylgir íbúðinni á lóð. Verð 17,5 millj.
2JA HERB.
Rauðavað.
Falleg og vönduð 91,3 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sér
verönd auk sér stæðis í bílageymslu. Eldhús með eikarinnréttingum.
Björt stofa með útgangi á hellulagða verönd til suðurs. Þvottaherbergi
innan íbúðar.Verð 24,9 millj.
Flyðrugrandi.
Góð 64,3 fm. íbúð á jarðhæð með sér vervönd á þessum eftirsótta
stað í vesturbænum. Útgangur úr stofu á hellulagða og skjólgóða sér
verönd til vesturs. Þvottaherbergi á hæðinni, sameiginlegt með tveimur
íbúðum.Leikvöllur á sameiginlegri lóð og stutt í skóla og aðra þjónustu.
Verð 18,9 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Mörkin. Verslunar- og lagerhúsnæði til sölu
eða leigu
Til sölu- eða leigu 158,8 fm. verslunar- og lagerhúsnæði við Mörkina.
Húsnæðið er vel staðsett við fjölfarna umferðaræð og skiptist í opið
verslunarrými, afstúkaðan lager, snyrtingu og ræstiaðstöðu og lítið
skrifstofueldhús. Húsnæðið er í góðu ásigkomulagi sem og sameign.
Lóð frágengin með fjölda bílastæða. Allar nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu.
Lónsbraut – Hafnarfirði
175,0 fm. iðnaðarhúsnæði við Lónsbraut. Húsnæðið er vel staðsett
á hafnarsvæðinu í Hafnarfirði. Hæðin er um 145 fm. að stærð með
stórum sal með góðri lýsingu og innkeyrsludyrum. Mikil lofthæð. Í
hinum enda hússins er á hæðinni forstofa, snyrting og opið herbergi
auk um 30 fm. millilofts með góðum gluggum. Malbikað plan beggja
vegna húsnæðisins og athafnapláss fyrir gáma. Laust til afhendingar
fljótlega. Verð 24,0 millj.
Langalína – Sjálandi Garðabæ. Glæsileg íbúð með
sjávarútsýni.
Glæsileg 120,9 fm. útsýnisíbúð á sjávarbakkanum í Sjálandinu í Garðabæ. Stór og björt stofa.
Eldhús opið við stofu með fallegum eikarinnréttingum og vönduðum tækjum. Tvö rúmgóð
svefnherbergi. Vandað baðherbergi. Stór verönd er út af stofum út að sjónum og svalir eru til
suðvesturs út af stofum. Sér stæði í bílageymslu og lyfta. Hús að utan og sameign til fyrirmyndar.
Verð 38,9 millj.
Skipasund
70,9 fm. íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi. Íbúðin skiptist í anddyri með geymsluplássi undir innistiga,
gang, stofu, eldhús með eldri innréttingu, tvö herbergi og flísalagt baðherbergi. Stór lóð í góðri
rækt og hellulögð aðkoma. Laus fljótlega. Verð 17,9 millj.
Hraunbær.
Góð 89,5 fm. íbúð á 2. hæð í Árbænum. Útgangur á svalir til suðvesturs úr stofum. Eldhús með
nýlegri innréttingu. Franskar svalir út af hjónaherbergi. Suðurhlið hússins er klædd með steni. Sér
merkt bílastæði fylgir íbúðinni á lóð. Verð 17,5 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Baldursgata – verslunarhæð
89,7 fm. verslunarhæð á jarðhæð í góðu steinhúsi á frábærum stað í Þingholtunum.Lager er innaf
plássinu auk salernis og ræstikpmpu. Gluggar eru á norður og suðurhlið og góð lofthæð.
Húsið að utan er klætt með áli. Verð 18,9 millj.
3JA HERB. 3JA HERB.
3JA HERB.
NÝJAR ÍBÚÐIR
ÁRMÚLI
skrifstofuhúsnæði
Mikið endurnýjað og gott
790,8 fm. skrifstofuhús-
næði í mjög góðu álklæddu
skrifstofuhúsi við Ármúla.
Húsnæðið er á 3. og 4. Hæð
og hefur verið mikið endur-
nýjað á undanförnum árum
og er í afar góðu ástandi.
Skiptist í fjögur skrifstofu-
rými. Þriðja hæðin skiptist
í tvö um 235,0 fm rými og
fjórða hæðin skiptist í tvö
um 160,0 fm. rými. Fjöldi
afstúkaðra skrifstofa, Stór
opin vinnurými. Miklar og
góðar tölfulagnir eru í hús-
næðinu. Lóðin er frágengin
og malbikuð og með góðum
bílastæðum.
Nánari upplýsingar veittar
á skrifstofu.
Glæsileg eign í hjarta
miðborgarinnar
Um er að ræða samtals 318,5 fermetra í þessu fallega og uppgerða
steinhúsi við Vatnsstíg sem var allt endurnýjað að utan á árunum
2005 og 2006. ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ er 108,2 fermetrar sem var endur-
nýjuð á afar vandaðan og smekklegan hátt árið 2010. Stór og björt
stofa með frönskum gluggum. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar
í eldhúsi og á baðherbergi. Svefnherbergi með útgangi á svalir til
vesturs. Verð 37,9 millj. VINNUSTOFA- HÆÐ OG KJALLARI.
Um er að ræða tvær aðskildar hæðir samtals 210,3 fermetrar.
Efri hæðin er nokkuð opin og með góðri lofthæð með vönduðu
baðherbergi og eldhúskrók. Stórir gluggar sem snúa að Vatnsstíg.
Verð 35,9 millj. Á neðri hæðinni er gott alrými með baðherbergi,
eldhúskrók og litlu bókaherbergi. Verð 25,0 millj.
EIGN SEM HÆGT ER AÐ NÝTA UNDIR MARGSKONAR STARFSEMI.
Selst saman eða sitt í hvoru lagi.
VATNSSTÍGUR
ÍBÚÐ / VINNUSTOFA