Fréttablaðið - 17.12.2012, Side 50
17. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 34
Dagný og Sabrína Grimm eru afkomendur hinna
frægu Grimmsbræðra. Margverðlaunaðar sögur þar
sem kunnugleg ævintýri birtast í nýju ljósi.
Ævintýri eins og
þau gerast best
fyrir
ára
8-14
Met-
sölubók
New York
Times
Vorið 2012
hlaut Bókabeitan
Vorvinda IBBY fyrir framlag
sitt til barnamenningar
Barnabók
ársins
Washington
post
3.
sæti
Bestu þýddu
barnabækurnar
Bókmenntaverðlaun
starfsfólks
bókaverslana
Drengjasveitin One Direction
hefur náð ótrúlegum vinsældum
á örstuttum tíma, en sveitin hefur
aðeins verið starfrækt í tvö ár.
Sveitin var stofnuð árið 2010 í
sjónvarpsþættinum The X Fac-
tor. Piltarnir tóku allir þátt í
flokki einstaklinga en þóttu ekki
nógu efnilegir til að halda áfram
keppni. Söngkonan Nicole Scherz-
inger, sem var gestadómari, stakk
upp á því að þeir mynduðu saman
drengjasveit og kepptu heldur
í flokki hópa. Drengirnir fengu
aðeins tvær vikur til að kynn-
ast hver öðrum og æfa áður en
þeir stigu fyrst á svið sem fimm
manna hljómsveit. One Direction
lenti í þriðja sæti í keppninni og
aðeins nokkrum mínútum eftir að
lokaþættinum var sjónvarpað var
fyrstu smáskífu þeirra, Forever
Young, lekið á netið.
One Direction gerði samn-
ing við útgáfufyrirtæki Simons
Cowell í Bretlandi og annast Col-
umbia Records plötuútgáfu þeirra
í Bandaríkjunum. Smá skífurnar
What Makes You Beautiful og
Live While We‘re Young eru sölu-
hæstu smáskífur sveitarinnar og
samkvæmt sölutölum Sony Music
Entertainment hefur engin smá-
skífa selst meira í forsölu en What
Makes You Beautiful.
One Direction leikur blöndu af
svokölluðu „teen pop“, popptónlist
og rokki og lýsir gagnrýnandi The
New York Times tónlist þeirra sem
glaðlegri og á köflum snjallri.
Nútímasamfélagsmiðlar áttu
stóran þátt í að færa hljómsveit-
inni frægð og frama og heldur
umboðsmaður sveitarinnar, Will
Bloomfield, því fram að samfélags-
miðlar hafi tekið við af útvarpi.
„Þessir strákar eru stöðugt á net-
inu og það eru aðdáendur þeirra
líka,“ sagði Bloomfield. Með limir
sveitarinnar eru hver með sína
Twitter-síðu og að auki vinnur
heilt teymi fólks við að sinna slík-
um málum fyrir þeirra hönd.
Stefna í sömu átt
Drengjasveitin One Direction hefur notið mikilla vinsælda undanfarin tvö ár.
Sveitin var stofnuð í sjónvarpsþættinum The X Factor.
„SÁ SÆTI“– NIALL JAMES HORAN
Niall fæddist 13. september árið 1993
í bænum Mullingar á Írlandi. Foreldrar
hans skildu þegar hann var fimm ára
gamall og eftir að hafa búið til skiptis
hjá báðum foreldrum sínum ákváðu
Niall og bróðir hans, Greg, að búa
alfarið hjá föður sínum í Mullingar. Niall
gekk í drengjaskóla og söng í skóla-
kórnum. Hann hefur leikið á gítar síðan
hann var barn að aldri og þykir nokkuð
lunkinn gítarleikari. Hann er mikill
aðdáandi Frank Sinatra, Dean Martin og
Michael Bublé en hefur einnig gaman
af rokksveitinni The Eagles.
„SÁ ÞÖGLI“– ZAYN MALIK
Zayn er fæddur þann 12. janúar árið
1993 og ólst upp í Bradford. Faðir hans
er ættaður frá Pakistan en móðir hans
er ensk. Zayn á eina eldri systur og aðra
yngri. Honum var strítt í skóla vegna
blandaðs bakgrunns síns. Hann segir
ástæðuna að baki þátttöku sinni í The
X Factor vera þá að hann langaði að
upplifa eitthvað nýtt og skemmtilegt.
Uppáhaldstónlistarstefnur hans eru
rapp og R&B.
„SÁ SKYNSAMI“– LIAM JAMES PAYNE
Liam fæddist þann 29. ágúst árið
1993 og ólst upp í Wolverhampton
á Englandi. Hann á tvær eldri systur,
Ruth og Nicolu. Liam er mikill íþrótta-
áhugamaður og stundaði íþróttir af
miklum móð á sínum yngri árum. Hann
var lagður í einelti í gagnfræðiskóla
og hóf í kjölfarið að æfa hnefaleika. Í
menntaskóla lagði hann stund á tónlist
og tónfræði. Hann tók fyrst þátt í The
X Factor þegar hann var fjórtán ára
gamall og komst nokkuð langt í kepp-
ninni, Simon Cowell taldi hann ekki
tilbúinn fyrir frægð og frama og sagði
honum að koma aftur að tveimur árum
liðnum, sem Liam gerði.
„SÁ SJARMERANDI“– HARRY STYLES
Harry er fæddur þann 1. febrúar árið
1994 í bænum Holmes Chapel. For-
eldrar hans skildu þegar hann var sjö
ára gamall og þegar móðir hans giftist
að nýju fluttu Harry og systir hans
með henni út í sveit. Áður en hann sló
í gegn með One Direction vann hann
í bakaraíi. Uppáhaldssöngvari Harrys
er konungurinn sjálfur, Elvis Presley.
Hljómsveitarnafnið er komið frá Harry
sem sagði hljómsveitameðlimi alla
stefna í sömu átt að árangri.
„SÁ FYNDNI“– LOUIS TOMLINSON
Louis fæddist á aðfangadag árið 1991
og ólst upp í Doncaster á Englandi.
Foreldrar hans skildu þegar hann var
mjög ungur og hann tók síðar upp
eftirnafn stjúpföður síns. Hann á fimm
yngri hálfsystur. Louis nam leiklist
á sínum yngri árum og fékk nokkur
smærri hlutverk í sjónvarpsþáttum
á borð við Waterloo Road. Hann fór
einnig með hlutverk Danny Zuko í
uppfærslu Hall Cross-leikhússins á
söngleiknum Grease. Þetta varð til þess
að ýta undir söngáhuga Louis og sótti
hann í kjölfarið um í The X Factor.
Í UPPHAFI Drengirnir í One Direction í upphafi ferilsins árið 2010. Margt hefur breyst síðan þá. NORDICPHOTOS/GETTY
STÓRSTJÖRNUR Frægðarsól hljómsveitarinnar hefur risið hratt.
Hér má sjá hljómsveitina á sviði í New York þann 7. desember.
„Þetta er jólalagakeppni þar sem
þjóðin getur kosið um besta jóla-
lagið,“ segir Kristín Tómasdóttir,
upplýsingafulltrúi Geðveikra jóla.
Geðveik jól er átaksverkefni á
vegum Geðhjálpar sem snýr að
því að safna peningum til styrktar
samtökunum. Þetta er annað árið
sem átakinu er haldið en í fyrra
söfnuðust um þrjár milljónir króna.
Geðhjálp fékk í lið með sér fimm-
tán fyrirtæki sem öll bjuggu til
tónlistarmyndband við frumsamið
jólalag. „Lögin eru allt frá því að
vera samin frá grunni og yfir í að
nota lag sem þegar er til og breyta
textanum,“ segir Kristín. Allir sem
hafa áhuga á geta kosið sitt uppá-
haldslag og myndband á heimasíð-
unni Gedveikjol.is og leyfilegt er að
kjósa eins oft og fólk vill. Það lag
sem svo verður með flest atkvæði
þegar leik lýkur, á morgun, sigrar
og hlýtur titilinn Geðveikasta jóla-
lagið.
Hvert atkvæði kostar 1.000
krónur, þó hægt sé að gefa meira
sé þess óskað, og rennur allur ágóð-
inn óskiptur til Geðhjálpar. „Svo
erum við líka með geðveika dóm-
nefnd sem er samsett af fagfólki og
kýs besta framlagið og besta mynd-
bandið,“ segir Kristín. Allt söfn-
unarféð verður eyrnamerkt því
verkefni að koma á fót aðgerðar-
áætlunum fyrir vinnustaði til að
nota þegar upp koma geðræn vanda-
mál hjá starfsfólki. „Á sama tíma
verður þetta til þess að vitundar-
vakning verður um geðheilbrigði
innan vinnustaða, sem er auðvitað
alveg frábært,“ segir Kristín.
Nú þegar eru rúmar tvær millj-
ónir komnar í söfnuninni. Um mið-
bik dags í gær leiddi Íslensk erfða-
greining með Arion banka fast á
hæla sér. - trs
Fimmtán geðveik
jólalög keppa
Jólalagakeppninni Geðveikum jólum lýkur á morgun.
Yfi r tvær milljónir hafa safnast til styrktar Geðhjálpar.
SAFNA FYRIR GEÐHJÁLP Sólmundur
Hólm stjórnaði kynningarþætti á
jólalögunum sem sýndur var þann 5.
desember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
15
milljón eintök
af breiðskífum,
smáskífum og
myndböndum
sveitarinnar
höfðu selst í
nóvember á
þessu ári.
6.350
milljónir króna
eru tekjur
sveitarinnar
síðustu tvö ár.