Fréttablaðið - 04.01.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 04.01.2013, Blaðsíða 12
4. janúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 BANDARÍKIN Barack Obama Bandaríkjaforseti undirritaði á miðvikudaginn lög um fjár- mögnun hernaðarumsvifa. Alls eru 633 milljarðar dala ætlaðir til þessa málaflokks á árinu, eða rúmlega 80.000 milljarðar króna. Þetta er þó nokkru lægri upp- hæð en Bandaríkjaþing hefur veitt til hersins á undanförnum árum, en samdrátturinn skýrist meðal annars af minni umsvifum hers- ins, einkum í Írak og Afganistan. Obama sagðist reyndar and vígur nokkrum ákvæðum lagabálksins, sem hann undirritaði engu að síður. Meðal annars gagnrýndi hann að áfram fylgdi lögunum ákvæði sem gera honum ókleift að flytja fanga frá Guantanamo-búðunum á Kúbu til fangelsa í Bandaríkjunum eða til annarra landa. „Ég er enn þeirrar skoðunar að starfræksla búðanna grafi undan þjóðaröryggi okkar með því að kasta fjármunum á glæ, skemmi fyrir samskiptum okkar við mikil- væga bandamenn og styrki óvini okkar,“ segir í yfirlýsingu sem Obama sendi frá sér við undir- ritun laganna. Eitt af helstu kosningalof- orðum Obamas var að loka fanga- búðunum á Kúbu og flytja grunaða hryðjuverkamenn í fangelsi í Bandaríkjunum, þar sem hægt yrði að draga þá fyrir bandaríska dómstóla. Meirihluti repúblikana á þingi hefur hins vegar beitt laga- ákvæði af þessu tagi til að koma í veg fyrir að þau áform næðu fram að ganga. „Áratugum saman hafa ríkis- stjórnir bæði repúblikana og demókrata lögsótt með góðum árangri hundruð hryðjuverka- manna fyrir alríkisdómstólum,“ sagði Obama og fór ekki dult með andstöðu sína. Í yfirlýsingu sinni segist Obama hafa hugleitt að neita að skrifa undir lögin af þessum ástæðum, eins og hann gerði á síðasta ári þegar hann undirritaði sams konar lög, en rétt eins og í fyrra hefði niðurstaðan orðið sú að nauð- syn þess að útvega hernum fé til að starfa áfram vægi þyngra en andstaða forsetans við hluta laganna. Niðurskurður á fjárfram- lögum til hersins er hluti af sam- komulagi forsetans við þingmenn Repúblikana flokksins sem gert var á síðustu stundu nú um ára- mótin. gudsteinn@frettabladid.is Ég er enn þeirrar skoðunar að starfræksla búðanna grafi undan þjóðar- öryggi okkar með því að kasta fjár- munum á glæ, skemmi fyrir samskiptum okkar við mikilvæga banda- menn og styrki óvini okkar. Barack Obama forseti Bandaríkjanna EVRÓPUMÁL Írland mun leggja höfuðáherslu á að vinna að efnahagslegum stöðugleika og gegn atvinnuleysi ungs fólks á meðan ríkið fer með formennsku í ráðherraráði ESB. Írar tóku við um áramót og leiða starfið út júnímánuð. Talsmenn írskra stjórnvalda segjast vissir um að 2013 verði ár viðsnúnings í ESB, sem hefur strítt við mikla erfiðleika síðustu ár. Sem formennskuríki leggur Írland línurnar í starfi ráðherraráðsins, þar sem ráðherrar aðildarríkjanna 27 ráða ráðum sínum í mis- munandi málaflokkum. Auk fyrrnefndra mála stefna Írar að því að efla tæknigeirann með áherslu á lítil og meðal- stór fyrirtæki, auka möguleika sem felast í náttúruauðlindum til sjós og lands og vinna að frekari viðskiptasamningum og stækkun ESB. Undir formennsku Íra er búist við að áfram þokist í aðildarviðræðum Íslands við ESB en þó verði ekki hafnar viðræður um sjávarút- vegs- og landbúnaðarmál fyrr en á seinni helm- ingi ársins, þegar Litháen hefur tekið við for- mennskunni. Í stefnumótunarskjali Írlands, Litháens og Grikklands, sem tekur við í janúar 2014, segir að rétt sé að efla aðildarferli Tyrklands og búist sé við því að viðræðurnar við Ísland geti komist á lokastig fyrir árslok. - þj Írar tóku við formennskunni í ráðherraráði Evrópusambandsins um áramótin: Segjast vissir um viðsnúning á árinu 2013 ÍRAR LEIÐA ESB Írland stýrir nú starfi ráðherraráðs ESB í sjöunda sinn. Írar hyggjast leggja áherslu á stöðug leika í efnahagsmálum og baráttu gegn atvinnu- leysi ungs fólks. NORDICPHOTOS/AFP SVISS, AP Maður vopnaður riffli og skammbyssu myrti þrjár konur og særði tvo menn á mið- vikudagskvöld í svissneska þorp- inu Daillon. Þegar lögregla kom á vettvang hótaði hann því að skjóta á lög- reglumenn. Lögreglan sá sér ekki fært annað en að skjóta á hann, svo hann særðist. Að því búnu var hann handtekinn. Maðurinn er íbúi í þorpinu en hefur sætt geðmeðferð síðan 2005. - gb Gekk berserksgang í þorpi: Myrti þrjár og var handtekinn REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR 7” ANDROID JELLY BEAN SPJALDTÖLVA 59.990 KOMIN AFTUR ! Nexus 7 passar fullkomlega í hendi og er sérstaklega meðfærileg, létt og þunn. Hæsti gæða okkur. Einstaklega ugur f gurra k arna Tegra rg r i og GB innsluminni sem gerir hana m g hrað irka. St rt og gott GB minni. IPS tr ggir sérstaklega g ða skerpu og litad pt í sk num auk þess sem h n kemur með N idia GeFor e Tegra sk korti. tr lega g ður hl mur og allt að 9 tíma rafhl ðuending í HD afspilun. GB Valin esta sp aldt l an 0 h T Áfram ófær um að loka Guantanamo Obama Bandaríkjaforseti segist nauðbeygður hafa staðfest lög sem gera honum áfram ókleift að loka Guantanamo-búðunum á Kúbu. Með lögunum tryggði hann Bandaríkjaher fjármagn til að halda áfram umsvifum sínum víða um heim. BANDARÍSKIR HERMENN Obama segist hafa hugleitt að neita að undirrita lögin. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.