Fréttablaðið - 04.01.2013, Page 18
4. janúar 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 18
Hér verður lagt upp með
þá djörfu fullyrðingu að
málþóf af einhverju tagi
sé einn af grundvallar-
þáttum í hvers konar þing-
haldi. Njálssaga er ein elsta
heimild um málþóf hérlend-
is en það var þegar Njáll á
Bergþórshvoli gaf mönn-
um þannig ráð í fjórðungs-
dómsmálum að flest þeirra
ónýttust og úr varð alls-
herjar þræta. Þessu mál-
þófi lauk með því að fimmtar dómur
var stofnaður til að koma í veg fyrir
að slíkt endurtæki sig og eitt af
nýju goðorðunum sem þá urðu til
féll í skaut Höskuldi Þráinssyni,
fóstursyni Njáls, en það tryggði
honum svo Hildigunni Starkaðar-
dóttur að eiginkonu en til þess voru
refirnir skornir. Segja má að þetta
hafi verið harla velheppnað málþóf,
þingstörf urðu skilvirkari með til-
komu fimmtardóms og þeir Njáll og
Höskuldur fengu sitt.
Annað dæmi um velheppnað mál-
þóf frá síðari tímum var málþófið
gegn vatnalögunum sem lauk með
því að þeim var frestað og síðan
tekin til endurskoðunar og líklega
eru þeir Íslendingar fáir sem ekki
eru þeim breytingum fegnir. Fleiri
dæmi væri hægt að tína til, bæði
hérlendis og frá þingum annarra
þjóða, en látum staðar numið.
Málþóf er sem sé stundað í ein-
hverri mynd á öllum lýðræðislega
kjörnum þingum samtímans og
líklega einnig á ýmsum sem ekki
búa að lýðræðislegri hefð. „Norsk-
ir þingmenn stunda ekki málþóf,“
öskra reiðu mennirnir í athuga-
semdadálkum vefmiðlanna og
bæta við, „helv… fjórflokkurinn.“
Ég ætla hins vegar að fullyrða að
norskir þingmenn stundi
málþóf af alveg jafnmiklu
kappi og aðrir þingmenn,
það fer bara ekki fram í
þingsalnum heldur í nefnd-
um og reykfylltum bak-
herbergjum þinghússins.
Í allsherjargíslingu
Á undanförnum misserum
hafa Íslendingar hins vegar
orðið vitni að tvenns konar
málþófi sem ekki á sér
hliðstæðu á síðari tímum. Annars
vegar er málþóf repúblikana í full-
trúadeild Bandaríkjaþings og hins
vegar málþóf flestra þingmanna
Framsóknar- og Sjálfstæðis flokks
á Alþingi. Þessi málþóf eru að því
leyti ólík öðrum málþófum að þing-
in eru tekin í allsherjar gíslingu,
ekki í ákveðnum málum eins og
venjan er í hefðbundnu málþófi,
heldur í nær öllum málum sem fram
koma. Þingstörfin lamast. Hama-
gangur repúblikana hefur þó skýr
pólitísk markmið, að koma í veg
fyrir að þeir ofurríku greiði sinn
skerf til samfélagsins og skerða enn
kjör þeirra sem verst eru settir með
því að draga úr velferðar- og heil-
brigðisþjónustu. Það er hins vegar
ekki hægt að greina nein slík mark-
mið hjá framsóknar- og sjálfstæðis-
mönnum. Stutt er eftir af kjörtíma-
bilinu þannig að varla er markmiðið
að fella ríkisstjórnina, það myndi
og koma sér illa fyrir framsóknar-
menn ef efnt yrði til vetrarkosninga
þar sem stór hluti fylgis þeirra er
í dreifbýli og allra veðra von. Sú
spurning vaknar því hver tilgangur-
inn sé með þessum atgangi.
Málþófshrókar
Ef leita á eftir einhverju sambæri-
legu verður að fara aftur til kreppu-
áranna, milli 1930 og 1939, og til
meginlands Evrópu. Þá voru það
einkum öfgafullir hægrimenn af
ýmsu tagi sem léku þennan leik og
nutu stundum atfylgis þeirra sem
lengst stóðu til vinstri. Markmið
þessara flokka var skýrt, að rýra
traust almennings á þeim stofn-
unum samfélagsins sem byggðu á
lýðræðislegum grunni og sýna fram
á getuleysi lýðræðisaflanna við að
leysa aðkallandi vandamál. Þann-
ig var fólk búið undir að þessum
stofnunum yrði kippt úr sambandi
þegar málþófshrókarnir kæmust
til valda. Skildi eitthvað í þessa átt
vera markmið framsóknar- og sjálf-
stæðismanna? Þá spurningu þurfa
aðrir þingmenn að spyrja málþófs-
forkólfana með fullum þunga þegar
þing kemur aftur saman og ólætin
hefjast á ný.
Eins og málin standa núna þarf
pólitískt kraftaverk til að ekki
taki við völdum stjórn Sjálfstæð-
is- og Framsóknarflokks að lokn-
um næstu kosningum. Skyldi það
verða hennar fyrsta verk að kippa
þinginu úr sambandi? Það er hægt
með aðgerðum sem þegar eru fyrir
hendi í þingsköpum. Við þá iðju
hlytu þeir án efa lof og prís reiðu
mannanna sem myndu þyrpast í
athugasemdadálkana og fagna því
að loksins hafi tekist að klekkja á
helv… fjórflokknum.
Af hverju málþóf?
Nú um hátíðirnar lentum
við fjölskyldan í leiðinda-
máli. Sjö ára sonur okkar
fékk tölvuleik í jólagjöf
sem ekki passaði í leikja-
tölvuna hans. Án þess að
átta sig á því hafði hann
tekið plastið utan af leikn-
um. Þegar við svo reynd-
um að skila leiknum, með
kvittunina í hendi, var
umleitun okkar hafnað af
starfsmönnum verslun-
arinnar með þeim skila-
boðum að vegna þess að plastið var
ekki lengur utan um leikinn þá væri
ekki hægt að taka við honum sem
nýjum leik.
Þar sem við fjölskyldan erum
tiltölulega nýflutt heim aftur frá
Kaliforníu fórum við hjónin að
bera saman neytendavernd þar úti
og hér heima. Mikill munur er þar
á. Reglan í Bandaríkjunum er að
viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt
fyrir sér. Verslanir taka við vörum
aftur ef viðskiptavinurinn kemur
með kvittunina með sér sem sýnir
að varan hafi verið keypt í við-
komandi verslun. Án athugasemda
fær neytandinn endurgreitt í sömu
mynt og greitt var, eða með pening-
um. Neytendarétturinn er reynd-
ar svo sterkur þar úti að ekki er
nauðsyn legt að varan sé ónotuð svo
hægt sé að skila henni án
athugasemda. Eftir svörin
frá tölvuleikjaversluninni
kíktum við á íslensk lög
sem gilda um kaup neyt-
enda á vörum. Um er að
ræða tvenn lög sem taka
á þessu, lög um lausafjár-
kaup nr. 50 frá 2000 og lög
um neytendakaup nr. 48
frá 2003. Eftir lestur þess-
ara laga er ljóst að verulega
skortir upp á að landslög
taki á þessum hluta neyt-
endaréttar. Ágætlega er fjallað um
hvað gera skal ef galli kemur upp
en þegar kemur að skilarétti eftir
afhendingu án galla er einungis
ein setning í lögum um neytenda-
kaup sem fjallar um skilarétt eftir
afhendingu. Í 42 grein segir orð-
rétt: „Neytandi getur skipt sölu-
hlut ef samið hefur verið um rétt til
skipta eða hann leiðir af almenn-
um réttarreglum.“ (skáletrun höf-
undar).
Myndi auka verslun
Miðað við þær raunir sem við hjón-
in lentum í má framkoma verslana-
eigenda gagnvart íslenskum neyt-
endum batna til muna. Ætla má að
ávinningur verslananna sé mikill
og ekki hvað síst sá að þegar við-
skiptavinurinn veit af sterkum
skilarétti lætur hann fjármuni sína
greiðlega af hendi vitandi það að
alltaf er hægt að skila vörunni og
fá peninginn til baka. Breytt verk-
lag myndi því að öllum líkindum
auka verslun ef eitthvað er enda
trúlegt að neytendavinalegt viðmót
verslanaeigenda í Bandaríkjunum
sé þannig tilkomið því þeir sjá sér
fjárhagslegan hag í því að koma vel
fram við neytendur.
Það er því von mín að íslenskir
verslanaeigendur sjái sér hag í því
að taka upp breytt verklag og líti
vonandi til Bandaríkjanna þegar
kemur að viðmiðum fyrir slíkar
verklagsreglur.
Ef frumkvæðið kemur hins vegar
ekki frá þeim sjálfum þá er spurn-
ing hvort ekki verði að herða lög
um neytendakaup svo sjálfsagður
réttur neytenda sé styrktur til að
skila vöru og fá hana endurgreidda
í sömu mynt og greitt var með.
Höfundur gefur kost á sér í 3.
sæti prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi 26. janúar næst-
komandi.
Réttur neytenda til að skila vöru
STJÓRNMÁL
Guðmundur J.
Guðmundsson
kennari
➜ Málþóf er sem sé stundað
í einhverri mynd á öllum
lýðræðislega kjörnum þing-
um samtímans og líklega
einnig á ýmsum sem ekki
búa að lýðræðislegri hefð.
➜ Miðað við þær raunir sem
við hjónin lentum í má fram-
koma verslana eig enda gagn-
vart íslenskum neytendum
batna til muna.
NEYTENDUR
Magnús B.
Jóhannesson
rekstrar -
hag fræð ingur
Loksins fékk ég svar við
erindi mínu sem ég sendi
Embætti landlæknis (EL)
þann 13. mars 2012 kl.
17.13 þegar ég óskaði eftir
upplýsingum um verkferla
þegar kæra berst embætt-
inu. Það kom mér á óvart að
fá svar hér á síðum Frétta-
blaðsins þann 29.12. 2012.
Grein landlæknis og Önnu
Bjargar Aradóttur sviðs-
stjóra var reyndar ekki
beint til mín heldur var hún
sjálfsvörn eftir kröftuga grein Árna
R. Árnasonar tveimur dögum áður.
Ég sendi áðurnefnda fyrirspurn
eftir að hafa kært fjögur mál til
embættisins. Mig undraði að með-
ferð málanna væri með ólíkum
hætti og vildi ég vita hvernig þetta
ætti að vera. Nú hef ég loksins feng-
ið svar og ljóst að ekkert málanna
var unnið samkvæmt þeim verk-
ferlum sem Geir og Anna lýsa í
greininni með einni undantekningu
þó. Í öllum tilvikum fékk ég bréf
um að kæran hefði borist embætt-
inu. Tvö málanna er ég að undirbúa
fyrir umboðsmann Alþingis eftir
langt ferðalag í ráðuneytinu. Ég
kýs að hlífa lesendum við upptaln-
ingu mistaka embættisins í mínum
málum en nefni eitt dæmi hér á
eftir. Ég get með góðri samvisku
tekið undir með Árna um að vinnu-
brögðum embættisins er verulega
ábótavant í kærumálum. Áhuga-
samir geta sent mér línu á audbjorg-
reynis@gmail.com því ég er fús að
upplýsa um það. Spennandi er að sjá
hvort einhver frá embættinu hefur
í raun hugrekki til að hafa samband
og kynna sér eigin mistök.
Smjaðursleg yfirlýsing
Greinarhöfundar bjóða upp á upp-
byggilega umræðu um störf emb-
ættisins og langar mig að nota
tækifærið og halda áfram frá fyrri
greinum mínum sem ég veit ekki
betur en hafi verið á uppbyggi-
legum nótum. Landlæknir nefnir
þverfaglegt teymi sem tekur við
öllum kærum. Væri ekki snjallt að
hafa umboðsmann sjúklinga þar
inni? Hann þarf að hafa formlega
aðkomu að umfjöllun um öryggi
sjúklinga og ekki síst tryggja hags-
muni þeirra sem kæra. Samsetning
teymisins skiptir máli og óháð staða
þess verður að vera augljós, annars
verður ekkert traust. Rannsókn-
in þarf einnig að vera trúverðugri
en með bréfaskriftum milli koll-
ega. Í mínum huga skapar alvöru-
rannsókn meira traust og aðhald en
smjaðursleg yfirlýsing landlæknis
í lok greinarinnar. Þar reynir hann
að fullvissa landsmenn um heilindi
embættismanna og álitsgjafa sinna
á sama tíma og hann ásakar Árna
um að grafa undan trausti emb-
ættisins og jafnvel kennir
honum um að gera álits-
gjafa óstarfhæfa. Í mínum
huga er þetta hvorki upp-
byggileg né fagleg umræða.
Réttur sjúklinga á ekki
að vera háður heilindum
starfsmanna. Þessi yfirlýsing land-
læknis er því álíka innihaldsrík og
Völuspáin.
Ofbeldi og mannréttindabrot
Ef embættið vill í raun og veru að
skapa traust væri þá ekki betra að
birta gögn um kærumál á sömu
nótum og dómstólar gera í við-
kvæmum málum er lúta að pers-
ónuvernd? Mér þætti eðlilegra að
hafa störf svona teymis opinber til
að skapa traust fremur en að hafa
allt í þoku og enginn getur fjallað
um hlutina á eðlilegan hátt.
Í einu mála minna lítur út fyrir að
bótaréttur hafi fyrnst á meðan emb-
ættið rannsakaði málið. Því velti ég
fyrir mér hæfi lögfræðingsins í
teyminu sem greinilega gætti hags-
muna spítalans en ekki minna hags-
muna. Annar aðili í þessu teymi,
jafnframt eini tengiliður embættis-
ins við mig varðandi málið, var yfir-
maður þeirra sem gerðu mistökin er
leiddu son minn til dauða. Var hann
kannski líka vanhæfur? Þótt ég viti
lítið um lögfræði efast ég um að
dómstólar geti byggt á niðurstöðu
embættisins. Hver gætir réttar
míns eiginlega?
Ég get tekið undir margt með
Árna sem upplifir sársaukafull
mannréttindabrot af hálfu embætt-
isins því sjálf upplifi ég þetta sem
ofbeldi sem allt heilbrigðiskerfið
stundar, lítilsvirðandi meðferð mála
sem verður að breyta.
Reynsla mín af samskiptum við
EL, stjórnendur LSH, ráðuneytið
og samtöl við aðra þolendur mis-
taka segja mér að það kostar blóð,
svita og tár að ná fram rétti sínum.
Þarna standa allir þétt saman og
helgislepjan er óhugguleg. Nú er
tími til að hlusta og horfa með hjart-
anu og gera breytingar til hagsbóta
fyrir alla.
Ég þakka landlækni fyrir upplýs-
ingarnar og held áfram létt í spori
inn í nýja árið þar sem þolendur
mistaka munu sameinast um upp-
byggilega umræðu og umbætur
fyrir landsmenn alla. Ég býð spennt
eftir svari landlæknis við öðrum
erindum mínum.
Við getum umborið mistök en
ekki lítilsvirðingu og áhugaleysi
fyrir því að gera betur.
Þakkir til landlæknis
Það er útbreidd skoðun að
þau vandamál sem hrjá
fólk verði leyst með tilteknu
skipulagi, löggjöf, stjórn-
málaflokki, ríkisstjórn,
leiðtoga eða trúarbrögðum.
Frá sjónarmiði okkar í
Húmanistaflokknum endur-
speglar þjóðfélagið það
sem er innra með okkur. Á
meðan við sigrumst ekki á
óreiðunni, þjáningunni og
ofbeldinu innra með okkur,
þá munu yfirborðslegar
breytingar á þjóðfélagi og hagkerfi,
jafnvel þótt nauðsynlegar séu og
komi einhverju góðu til leiðar, ekki
leiða til einingar heldur skapa meiri
óreiðu, þjáningu og ofbeldi í heimin-
um. Þess vegna leggjum við áherslu
á það sem býr innra með okkur en
bindum ekki vonir einungis við það
sem gerist hið ytra, á félagslegu
sviði. Raunveruleg þjóðfélagsbreyt-
ing getur aðeins gerst með innri
breytingu hjá manneskjunni.
Þess vegna viljum við þjóð-
félag sem tryggir sérhverri mann-
veru – aðeins vegna þess að hún
hefur fæðst í þennan heim – mann-
sæmandi lífsafkomu í samræmi við
þarfir hennar, næringu, heilbrigðis-
þjónustu og menntun sem
gerir huga hans frjálsan og
eflir hans bestu eiginleika.
Mannkynið býr nú við
skilyrði sem gera því kleift
að koma af stað breytingum
sem koma því á annað stig.
Við erum tæknilega fær
um að útrýma hungri og ójöfnuði og
það jafnvel á nokkrum vikum. Þetta
mun þó aðeins takast með því að við
breytum forgangsröð okkar, að við
setjum mannveruna sem æðsta gildi
og helsta viðfangsefni, í stað þess
að setja peninga, völd, stjórnmála-
flokka, trúarbrögð eða einhvern guð
ofar okkur. Við leggjum til altæka
breytingu, jafnt hið innra sem hið
ytra, þ.e.a.s. persónulega og félags-
lega breytingu samhliða.
Við getum ekki eftirlátið ein-
hverjum öðrum öflum að skapa
mannverunni hamingju og frið, því
við erum sjálf mannverur hvert og
eitt okkar. Því hvar gæti lausnin
verið annars staðar en hjá okkur?
Gengisfelling andans
➜ Nú er tími til að
hlusta og horfa með
hjartanu og gera
breytingar til hags-
bóta fyrir alla.
➜ Við leggjum til
altæka breytingu,
jafnt hið innra sem
hið ytra.
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Auðbjörg
Reynisdóttir
hjúkrunarfræðingur
SAMFÉLAG
Methúsalem
Þórisson
félagi í Húmanista-
fl okknum
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
24
19
1
2/
12
Gildir í janúar.
Lægra
verð
í Lyfju15%afsláttur afOtrivin Mentholí janúar
Rektu inn nefið
Þú gætir andar léttar á nokkrum mínútum
með losandi ilmi af mentóli og eucalyptus.