Fréttablaðið - 04.01.2013, Page 58

Fréttablaðið - 04.01.2013, Page 58
4. janúar 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 42 FRAMKVÆMD ATKVÆÐA- GREIÐSLUNNAR Fulltrúar sérsambandanna fengu þau tilmæli að velja þá tíu íþróttamenn sem skarað hefðu fram úr á árinu og raða þeim í viðeigandi röð. Gjaldgengir í kjörið væru aðeins þeir íþrótta- menn sem heyrðu undir sérsambönd ÍSÍ. Þá var frjálst að velja íþróttafólk úr eigin sérsamböndum. Misjafnt var hvernig sérsamböndin stóðu að kjörinu. Hjá sumum var ákvörðunin í höndum eins en hjá öðrum var sam- eiginlegt val og jafnvel forkosning. Líkt og í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna fengu íþrótta- mennirnir stig eftir því í hvaða sæti þeir höfnuðu. Fyrsta sæti gaf 20 stig, annað sæti 15 stig, þriðja sæti 10 stig, fjórða 7 stig og svo koll af kolli. Í samanburðinum á kjöri íþróttafrétta- manna og sérsambandanna er betra að bera saman prósentu- hlutfall stiga þar sem 23 íþróttafréttamenn greiddu atkvæði en 24 sérsambönd. ÍÞRÓTTIR Aron Pálmarsson, lands- liðsmaður í handbolta, hlaut á dögunum nafnbótina Íþrótta- maður ársins í árlegu kjöri Sam- taka íþróttafréttamanna. Sam- tökin hafa staðið fyrir kjörinu frá því árið 1956. Árlega skapast miklar umræður í þjóðfé laginu í tengslum við kjörið og sýnist sitt hverjum. Spjótin hafa oftar en ekki beinst að íþróttafrétta- mönnum og upp komið til lögur um hvernig skuli standa að kjörinu. Ein leið sem nefnd hefur verið er sú að sérsambönd ÍSÍ sæju um að kjósa og ákvað undir ritaður að láta reyna á þá leið. Markmiðið var fyrst og fremst að fá góðan og gildan samanburð við kjör íþróttafréttamanna. Haft var samband við formenn eða framkvæmdastjóra sérsam- bandanna 28 í byrjun desember. Allir tóku vel í hugmyndina. Síðustu listar bárust í hús 21. desember, daginn áður en íþrótta- fréttamenn opinberuðu þau nöfn sem höfnuðu í tíu efstu sætunum. Aðeins Íshokkí-, Kraftlyftinga- og Taekwondosambandið sáu sér ekki fært að skila atkvæðum, auk Mótorhjóla- og snjósleðaíþrótta- sambandsins. Atkvæðin dreifðust víðar Dreifing atkvæða hjá sérsam- böndunum var mun meiri en hjá íþróttafréttamönnum. Alls skiptu 55 íþróttamenn atkvæðunum á milli sín í kjöri sérsambandanna en 20 íþróttamenn hlutu atkvæði hjá íþróttafréttamönnum. Tíu efstu í kjöri íþróttafréttamanna hlutu 93 prósent þeirra stiga sem í boði voru en 73 prósent hjá sér- samböndunum. Yfirburðir Ásdísar Hjálms- dóttur í kjörinu eru ótvíræðir. Spjótkastkonan úr Ármanni hlaut 18 prósent allra stiga. Í næstu sætum eru kraftlyftinga- maðurinn Auðunn Jónsson, Jón Margeir Sverrisson, sundkappi úr röðum fatlaðra, og Aron Pálmars- son. Afar litlu munaði á þremenn- ingunum eins og sjá má í töflunni hægra megin á síðunni. Lítill munur er á kosningu Ásdísar í kjörunum tveimur. Yfir- burðir Arons í kjöri íþróttafrétta- manna voru einfaldlega miklir. Gríðarlegur munur er á kosningu Arons í kjörunum tveimur og greinilegt að íþróttafréttamenn meta afrek hans á árinu mun meira en sérsamböndin. Aron hlaut tæplega þrisvar sinnum fleiri stig hjá íþróttafrétta- mönnum. Jón Margeir er eini íþróttamaðurinn sem hafnaði í sama sæti á báðum listum. Svart og hvítt hjá Auðuni Athygli vekur að Auðunn hafnar í 2. sæti á lista sérsambandanna en í 6. sæti á lista íþróttafrétta- manna. Reyndar munar aðeins örfáum stigum á sæti 2-4 hjá sér- samböndunum en Auðunn fær mun betri kosningu hjá sér- samböndunum. Átta af tíu íþrótta mönnum skipa efstu tíu sætin á báðum listum. Knattspyrnu- kappinn Alfreð Finnbogason og skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirs- son voru á lista íþróttafrétta- manna en hand- knattleikskapp- i n n G u ð j ó n Valur Sigurðs- son og badmin- tonkonan Ragna Ingólfsdóttir kom- ust á lista sérsam- bandanna. Guðjón Valur og Ragna eru þó í 11. og 12. sæti íþróttafréttamanna og Ásgeir í 11. sæti hjá sérsambönd- unum. kolbeinntumi@365.is Ásdís efst í kjöri sérsambandanna Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir hefði orðið íþróttamaður ársins 2012 hefðu sérsambönd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands staðið að valinu. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar sem íþróttadeild Fréttablaðsins stóð fyrir í desember. Sæti. Nafn, íþrótt Stig/% 1. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsar 310/18% 2. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar 176/10% 3. Jón Margeir Sverrisson, sund fatlaðra 170/10% 4. Aron Pálmarsson, handbolti 163/9% 5. Kári Steinn Karlsson, frjálsar 108/6% 6. Íris Mist Magnúsdóttir, fimleikar 83/5% 7. Guðjón Valur Sigurðsson handbolti 73/4% 8. Ragna Ingólfsdóttir, badminton 70/4% 9. Þóra B. Helgadóttir, knattspyrna 67/4% 10. Gylfi Sigurðsson, knattspyrna 63/4% Alls 73% 11. Ásgeir Sigurgeirsson, skotfimi 58 12. Jón Arnór Stefánsson, körfubolti 35 13. Aníta Hinriksdóttir, frjálsar 30 14. Aðalheiður Rósa Harðardóttir, karate 29 15. Alfreð Finnbogason, knattspyrna 29 16. Annie Mist Þórisdóttir, lyftingar 29 17. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund 25 18. Guðmundur Björgvinsson, hestaíþróttir 20 19. Anton Sveinn Mckee, sund 17 20. Haraldur Franklín Magnús, golf 17 21. Jakob Sigurðsson, hestaíþróttir 15 22. Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyftingar 15 23. Ragnar Már Garðarsson, golf 12 24. Anna Hulda Ólafsdóttir, lyftingar 10 25. Ólafur Garðar Gunnarsson, fimleikar 10 26. Sarah Blake Bateman, sund 10 27. Helena Sverrisdóttir, körfubolti 8 28. Gísli Kristjánsson, lyftingar 7 29. Hafþór Harðarson, keila 7 30. Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, frjálsar fatlaðra 7 31. Aron Jóhannsson, knattspyrna 6 32. Óðinn Björn Þorsteinsson, frjálsar 6 33. Þormóður Árni Jónsson, júdó 6 34. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna 5 35. Þuríður Helgadóttir, lyftingar 5 36. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund 4 37. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, handbolti 4 38. María Guðsteinsdóttir, kraftlyftingar 4 39. Sævar Birgisson, skíði 4 40. Sigurbjörn Bárðarson, hestaíþróttir 4 41. Birgir Leifur Hafþórsson, golf 3 42. Guðný Jenný Ásmundsdóttir, handbolti 3 43. María Guðmundsdóttir, skíði 3 44. Pétur Eyþórsson, glíma 3 45. Eiríkur Kristján Gissurarson, frjálsar 2 46. Guðmundur Stephensen, borðtennis 2 47. Jakob Sigurðarson, körfubolti 2 48. Ólafur Björn Loftsson, golf 2 49. Hlynur Bæringsson, körfubolti 1 50. Justin Shouse, körfubolti 1 51. Katrín Ómarsdóttir, knattspyrna 1 52. Kristján Helgi Carrasco, karate 1 53. Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir, dans 1 54. Snorri Steinn Guðjónsson, handbolti 1 55. Tinna Óðinsdóttir, fimleikar 1 LISTI SÉRSAMBANDANNA 1. Aron Pálmarsson 425 stig, 25% 2. Ásdís Hjálmsdóttir 279 stig, 17% 3. Jón Margeir Sverrisson 267 stig, 16% 4. Gylfi Þór Sigurðsson 149 stig, 9% 5. Þóra Björg Helgadóttir 122 stig, 7% 6. Auðunn Jónsson 74 stig, 4% 7. Alfreð Finnbogason 65 stig, 4% 8. Ásgeir Sigurgeirsson 61 stig, 4% 9. Íris Mist Magnúsdóttir 58 stig, 4% 10. Kári Steinn Karlsson 55 stig, 3% Alls 93% 11. Guðjón Valur Sigurðsson 51 stig 12. Ragna Ingólfsdóttir 27 stig 13. Jón Arnór Stefánsson 25 stig 14. Aðalheiður Rósa Harðardóttir 7 stig 15. Guðný Jenný Ásmundsdóttir 3 stig 16. Sarah Blake Bateman 3 stig 17. Alexander Petersson 3 stig 18. Helena Sverrisdóttir 2 stig 19. Ólafur Stefánsson 2 stig 20. Aníta Hinriksdóttir 1 stig KJÖR ÍÞRÓTTAFRÉTTAMANNA ➜ Fjórir boltaíþróttamenn rötuðu á topp tíu listana í báðum kjörum. ➜ Boltaíþróttamenn fengu 26 prósent stiga hjá sérsamböndunum en 50 prósent hjá íþrótta- fréttamönnum. ➜ Konur hlutu 41 prósent stiga hjá sérsam- böndunum en 30 prósent hjá íþróttafrétta- mönnum. ➜ Lyftingakonan Annie Mist Þórisdóttir, sem vakið hefur mikla athygli í Crossfit undanfar- in ár, hafnaði í 16. sæti hjá sérsamböndunum en hlaut ekkert atkvæði íþróttafréttamanna. ➜ Hestamaðurinn Guðmundur Björgvinsson var í efsta sæti hjá einu sérsambandi en hlaut ekkert atkvæði íþróttafréttamanna. ➜ Annað áhugavert EFST Í KJÖRINU Ásdís fékk atkvæði hjá 22 sérsamböndum af 24. Þá var hún fimm sinnum í efsta sæti lista, oftast allra ásamt Jóni Margeiri Sverrissyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI íþróttamenn deildu með sér stigum í atkvæðagreiðslu sérsambandanna. Efstu tíu íþróttamennirnir fengu 73% allra stiganna sem sérsamböndin veittu. 55 TVEIR FLOTTIR Auðunn Jónsson (t.v.) hafnaði í öðru sæti í kjöri sérsambandanna og Jón Margeir Sverrisson í því þriðja. SPORT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.