Fréttablaðið - 25.01.2013, Blaðsíða 8
25. janúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
2
6
9
NÆSTU DAGA SELJUM VIÐ NOKKRA S NINGAR-
OG REYNSLUAKSTURSB LA MEÐ VERULEGUM AFSLÆTTI!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
2
6
9
GERÐU G Ð KAUP!NEW THINKING.NEW POSSIBILITIES.
Öllum nýjum Hyundai bílum fylgir 5 ára ábyrgð og ótakmarkaður akstur auk árlegra öryggis-
og viðhaldsskoðana sem eru viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Verið velkomin í hóp ánægðra
Hyundai eigenda.
Hyundai í Kauptúni 1 er opið frá 07.45–18.00 alla virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
UPPLIFÐU N JA T MA MEÐ HYUNDAI
TAKMARKAÐUR AKSTUR
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílasala Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070Hyundai / BL ehf.
Kauptúni 1 – 210 Garðabæ – Sími: 575 1200
www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is
EVRÓPUMÁL Írsk stjórnvöld
virða rétt Íslands til makríl-
veiða en semja verður um
aflaheimildir, vonandi áður
en gripið verður til viðskipta-
þvingana. Þetta segir Lucinda
Creighton, Evrópumálaráð-
herra Írlands, í samtali við
Fréttablaðið en Írland fer með
formennsku í ráðherraráði ESB
um þessar mundir.
Hún segir ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um að hægja á
aðildarviðræðum við ESB hafa
verið nokkuð óvænta en að hún
sé þó ekki óeðlileg í ljósi kom-
andi þingkosninga.
„Það er í raun eðlilegt og við-
eigandi í þessu ferli að stjórnir
og flokkar leitist við að taka
aðildarviðræðurnar út fyrir
umræðuna í aðdraganda kosn-
inga. Hins vegar hefur þetta
lítið að segja í raun nema að
viðræður munu ekki hefjast í
ákveðnum samningaköflum.
Margir eru þegar til umræðu
og ég vona að við getum undir-
búið upphaf viðræðna um þá
kafla sem enn standa út af
borðinu áður en formennsku
okkar lýkur.“
Creighton segir Íra tilbúna
til að helga sig viðræðunum að
fullu þegar að því kemur. Þeir
séu jákvæðir gagnvart stækk-
un og lengi hafi verið velvilji
milli Íslands og Írlands.
Spurð hvort ekki reyni á vin-
semd milli ríkjanna í makríl-
deilunni, þar sem írsk stjórn-
völd og hagsmunaaðilar standa
í fylkingarbrjósti ESB og Össur
Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra hefur deilt hart á boðað-
ar aðgerðir, segist Creighton
vongóð um að sáttir náist.
„Frá okkar sjónarmiði
virðum við rétt Íslands til að
veiða makríl en spurningin
snýst um skiptingu aflaheim-
ilda. Það er háð samningsvið-
ræðum þar sem allir vilja auð-
vitað ná góðri niðurstöðu. Ég
er viss um að við getum náð
saman um málið en það mun
taka tíma.“
Spurð út í fyrirætlanir ESB
um að leggja á viðskiptaþving-
anir í tengslum við makríldeil-
una segir Creighton að ekki sé
búið að taka lokaákvörðun í því
máli.
„Þetta er augljóslega mjög
viðkvæmt mál hjá mörgum
ESB-ríkjum, en ákvörðunin
um framhaldið er nú á borði
hjá framkvæmdastjórninni. Ég
vona hins vegar að hægt sé að
leysa málið án þess að þurfi að
koma til aðgerða.“
thorgils@frettabladid.is
Vonast til að ekki komi til
þvingana vegna makrílveiða
Evrópumálaráðherra Írlands er vongóð um að lausn finnist á makríldeilunni og segir óvíst að ESB beiti boðuð-
um viðskiptaþvingunum. Hún segir ákvörðun um að hægja á aðildarviðræðunum vera óvænta en skiljanlega.
VONGÓÐ Lucinda Creighton, Evrópumálaráðherra Írlands, segist vongóð um að lausn
náist í makríldeilunni. Írar eiga, líkt og Íslendingar, mikilla hagsmuna að gæta hvað varðar
veiðar á makríl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Creighton ræddi mörg málefni við blaðamann Fréttablaðsins í gær. Hér er
stiklað á því helsta.
Um Icesave: Við munum fylgjast grannt með framvindunni og styðja niður-
stöðu dómsins hver sem hún verður. Það er ekki okkar að gera upp á milli aðila
eða efast um niðurstöðuna.“
Um boðaða endurskoðun og þjóðaratkvæði Breta um ESB: „Ég fagna því að
Cameron boðar að hann og hans flokkur muni tala fyrir ESB-aðild. Hvað varðar
nánari útfærslu býst ég ekki við því að nýr ESB-sáttmáli komi út úr þessum við-
ræðum. Það er margt til í því sem hann sagði um að draga úr skrifræði og efla
innri markað ESB og við munum vinna með Cameron að úrbótum í þessum
sviðum. Það mun styrkja hans stöðu heima við.“
Um mögulegar fríverslunarviðræður við Bandaríkin: „Við erum hóflega
bjartsýn um að áður en okkar formennskutíð lýkur munum við hafa tryggt umboð
til að hefja viðræður. Þetta verður erfitt verkefni, enda eru miklir hagsmunir í húfi
bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Samningar ættu hins vegar að geta örvað efna-
hag beggja aðila. Nú er kjörið að taka skref í þessa átt.“
Munu virða Icesave-úrskurðinn
VEIÐI Heimilt verður að veiða
allt að 1.229 hreindýr í ár. Það er
fjölgun um 220 dýr frá síðasta ári
en umhverfisráðherra ákveður
þennan kvóta að fengnum tillög-
um frá Umhverfisstofnun.
Alls verður leyft að veiða 623
kýr og 606 tarfa. Veiði skiptist
milli níu veiðisvæða. Veiðitím-
inn er frá 1. ágúst til og með 15.
september en þó getur Umhverf-
isstofnun, sem fer með sölu veiði-
heimilda, heimilað veiðar á törf-
um frá og með 15. júlí og lengt
veiðitíma kúa til og með 20. sept-
ember. - þj
Hreindýraveiðar 2013:
Kvótinn aukinn
um 220 dýr í ár
DÓMSMÁL Karl sem hefur viður-
kennt kynferðisbrot gegn tveimur
barnungum stúlkum skal sæta
gæsluvarðhaldi til 18. febrúar
vegna almannahagsmuna. Hæsti-
réttur hefur staðfest úrskurð hér-
aðsdóms þess efnis.
Maðurinn var handtekinn 13.
janúar eftir að stúlka um tíu ára
aldur, barnabarn hans, greindi
unnustu mannsins frá brotinu.
Hann játaði brotið en sagði það
hafa gerst óvart. Þá játaði hann að
hafa brotið á annarri stúlku sem
bjó í sama stigagangi og hann.
Lögregla krafðist varðhaldsins
á þeim grundvelli að maðurinn
glímdi við hvatir til stúlkubarna á
alvarlegu stigi og óréttlætanlegt
væri að láta hann ganga lausan. Á
það fallast dómstólar. - sh
Haldið frá almenningi:
Játar brot gegn
stúlkubörnum