Fréttablaðið - 25.01.2013, Side 50
25. janúar 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34
UNDANÚRSLIT
Í DAG
18.15 Spánn - Slóvenía
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
20.30 Danmörk - Króatía
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
22.00 Þorsteinn J og gestir
HANDBOLTI Undanúrslit á HM á
Spáni fara fram í kvöld. Þá mæta
heimamenn liði Slóvena í fyrri leik
kvöldsins en síðari leikurinn er
viðureign Dana og Króata. Marg-
ir eru á því að það sé hreinlega
úrslitaleikur mótsins.
„Þetta er úrslitaleikur mótsins
að mínu mati. Liðin sem hafa þurft
að fara þennan legg upp í úrslit
voru alltaf að fara að vinna að
mínu mati. Mótið hefur verið gert
upp þarna megin. Þetta verður
gríðarlega jafn leikur hjá Dönum
og Króötum,“ segir Aron og bætir
við.
„Danir voru í smá vandræðum
með varnarleikinn þar til þeir
fengu Kasper Nielsen inn. Línuspil
andstæðinganna hefur gengið verr
eftir það. Ég get alveg viðurkennt
að ég held aðeins með Dönum eftir
að hafa búið í Danmörku lengi en
ég spái þeim engu að síður sigri.“
Króatíska liðið hefur komið
mörgum á óvart í mótinu. Það
mætti án Ivano Balic, sem hefur
verið einn besti handboltamað-
ur heims undanfarin ár, og svo
missti liðið stórskyttuna Blazenko
Lackovic á mótinu er hann meidd-
ist. Engu að síður völtuðu þeir yfir
Frakka.
Öðruvísi Króatar án Balic
„Það er miklu betri andi og liðs-
heild í króatíska hópnum núna
en oft áður. Það virtist oft vera
stríð á milli Balic, þjálfarans og
fjölmiðla á sínum tíma. Núna er
meiri samstaða í liðinu og menn að
vinna saman og í sömu átt. Meðan
vel gengur eru Króatarnir stór-
hættulegir. Liðin af Balkanskag-
anum eflast þegar líður á svona
mót,“ segir Aron en það virðist
litlu breyta hjá Króötum þó svo
þeir séu með fjóra nýliða. Þeir eru
samt frábærir.
„Þeir eiga mikinn hóp af leik-
mönnum sem hafa verið á toppn-
um í alþjóðabolta í mörg ár. Þeir
eiga aragrúa af leikmönnum og
nýir menn eru fljótir að aðlagast
því sem er verið að gera í lands-
liðinu. Allir koma þeir úr góðum
handboltaskóla í sínu heimalandi.“
Danir völtuðu yfir Ungverja í
fyrri hálfleik í leik liðanna í átta
liða úrslitum. Þeir gáfu svo mikið
eftir í síðari hálfleik og voru ekki
fjarri því að kasta leiknum frá sér.
Þurfa þeir ekkert að hafa áhyggj-
ur af því? „Ég held að þeir hafi
verið værukærir. Það má ekki gefa
þumlung eftir í þessu sporti, þá er
hægt að fá það í bakið. Það gerð-
ist hjá Dönum. Þetta virtist vera
of létt hjá þeim í fyrri hálfleik
og spurning hvort þeir hafi ekki
sofnað á verðinum í þeim seinni.
Ég held að það gerist ekki aftur og
Danir vinna þennan hörkuleik á
meiri breidd og betri markvörslu.“
Slóvenar hafa komið allra liða
mest á óvart og þetta skemmtilega
lið fær nú að glíma við ógnarsterkt
lið heimamanna í undanúrslitum.
Skemmtilegir Slóvenar
„Slóvenar eru með mjög gott lið.
Þarna er kominn hópur af ungum
og góðum handboltamönnum sem
hafa mikinn leikskilning. Þeir
eru vel spilandi. Svo er það Uros
Zorman sem stýrir sóknarleiknum
en hann er afar klókur leikmaður,
reyndur og í algjöru lykilhlutverki
hjá þeim. Þegar markvarslan er í
lagi hjá þeim eru þeir virkilega
hættulegir,“ sagði Aron en hann
heldur engu að síður að Spánn sé
of stór biti fyrir slóvenska liðið.
„Spánverjar hafa spilað sterka
vörn, eru með frábæran mark-
mann og stórhættuleg hraðaupp-
hlaup. Ég held að þessir styrkleik-
ar og heimavöllurinn muni skila
þeim inn í úrslitaleikinn,“ sagði
Aron sem hefur smá áhyggjur af
sóknarleik heimamanna.
„Þeir eru ekki eins sterkir og oft
áður. Þeir eru auðvitað með línu-
spil á heimsmælikvarða en eru
ekki eins hættulegir fyrir utan og
oft áður.“ Samkvæmt spá lands-
liðsþjálfarans verður úrslitaleik-
urinn því á milli Dana og Spán-
verja. Hvernig fer sá leikur?
„Danmörk vinnur. Ég efast ekk-
ert um það.“
henry@frettabladid.is
Danir verða heimsmeistarar
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur mikla trú á Dönum á HM og spáir þeim sjálfum
heimsmeistaratitlinum. Fréttablaðið fékk Aron til þess að spá í undanúrslitaleikina sem fara fram í kvöld.
MAGNAÐUR Henrik Möllgaard hefur komið mjög sterkur inn í danska liðið á HM
og tryggði þeim sæti í undanúrslitum. NORDICPHOTOS/AFP
HIN FJÖGUR FRÆKNU
16-LIÐA ÚRSLIT
Danmörk - Túnis 30-23
Króatía - Hvíta-Rússland 33-24
Spánn - Serbía 31-20
Slóvenía - Egyptaland 31-26
8-LIÐA ÚRSLIT
Danmörk - Ungverjaland 28-26
Króatía - Frakkland 30-23
Spánn - Þýskaland 28-24
Slóvenía - Rússland 28-27
HANDBOLTI Í gær var dregið í
átta liða úrslit í bikarkeppni HSÍ,
Símabikarnum.
Drátturinn í karlaflokki er afar
áhugaverður en þar eru tvær
rimmur úrvalsdeildarfélaga og
tvær rimmur neðrideildarliða.
Það eru því líkur á því að neðri-
deildarlið geti komist í úrslit.
Við sama tækifæri var tilkynnt
að úrslit og undanúrslit fara
fram sömu helgi. Byrjað verður á
undanúrslitum karla á föstudegi,
konurnar keppa á laugardegi og
svo eru úrslitaleikirnir á sunnu-
degi. - hbg
Áhugaverður
dráttur
MEISTARAR Aron Rafn og félagar í
Haukum eiga titil að verja.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
8-LIÐA ÚRSLIT
KARLAR
Akureyri - FH Þróttur - Stjarnan
ÍR - Haukar Selfoss - ÍBV
KONUR
Fram - ÍBV2 Selfoss - Valur
FH - Afturelding Grótta - HK
HANDBOLTI Gunnur Sveinsdóttir er 32 ára
gömul, sem þykir ekki mikið í boltanum í dag,
en hún náði því samt að spila við hlið dóttur
sinnar, Þóreyjar Önnu Ásgeirsdóttur, í bik-
arsigri FH á Fylki á miðvikudagskvöld. Slíkt
gerist ekki á hverjum degi og hvað þá að þær
skyldu báðar skora mark í leiknum. Þórey Anna
er bara fimmtán ára og strax komin í stórt hlut-
verk hjá FH þar sem móðir hennar hefur spilað,
með smá hléum, í meira en áratug.
„Þetta var rosa stuð. Þetta er eitthvað sem
ég hélt að myndi aldrei gerast. Þetta var mjög
skrítið en gaman að geta gert þetta,“ segir
Gunnur. Þórey Anna hefur skorað 23 mörk í 9
fyrstu leikjum tímabilsins. „Hún er mjög efni-
leg,“ segir Gunnur. Eru þær ólíkir leikmenn?
„Já, það erum við. Hún er örvhent og ég er rétt-
hent. Hún er miklu betri en ég,“ segir Gunnur
sem segist aðallega vera varnarmaður. „Hún
er með allt til að verða rosa góð. Hún fær líka
góð ráð því hún er í mikilli handboltaætt,“ segir
Gunnur létt. Þær spiluðu nær allan leikinn,
Gunnur í vörn og Þórey í hægra horni.
„Ég hugsaði með mér að ef ég gerði þetta
ekki núna þá gerðist þetta ekki. Þá sér maður
örugglega eftir því eftir tíu ár og hugsar: „Af
hverju dreif ég mig ekki?“,“ segir Gunnur en
hún er nýbúin að eignast sitt þriðja barn.
„Þórey fór með liðinu í æfingaferð til Þýska-
lands og kom þjálfurunum svolítið á óvart. Hún
stóð sig vel og komst í meistaraflokk. Ég átti
náttúrulega ekkert von á henni í meistaraflokk
strax og hvað þá að hún fengi að spila svona
mikið,“ segir Gunnur.
„Ég var bara í einhverri mömmuleikfimi að
reyna að koma mér í gang. Þess vegna dreif ég
mig af stað núna og ætla bara að klára þetta
með þeim svo lengi sem skrokkurinn leyfir,“
segir Gunnur. En á hún ekki bara mörg ár eftir?
„Þetta er bara tímaspursmál þegar maður er
komin með þrjú börn og karlinn alltaf að kenna
golf,“ skýtur Gunnur létt á eiginmanninn. „Ég
á góða mömmu og hún hjálpar þvílíkt til,“ segir
Gunnur. Hvernig tekur táningurinn því að vera
með mömmu sinni á æfingum?
„Henni finnst þetta svolítið skrýtið. Hún er
á svolítið viðkvæmum aldri og finnst mamma
sín mjög hallærisleg. Þegar hún verður eldri
þá hugsar hún kannski til baka og að þetta hafi
verið gaman,“ segir Gunnur sem passar sig að
vera ekki með „mömmustæla“ á æfingum. „Ég
tel það vera best að við séum ekki að skipta
okkur hvor af annarri á æfingum. Ég kem bara
fram við hana eins og leikmann og samherja,“
segir Gunnur létt að lokum. - óój
Hún er miklu betri en ég
MÆÐGURNAR FYRIR LEIKINN Gunnur Sveinsdóttir
og Þórey Anna Ásgeirsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mæðgurnar Gunnur Sveinsdóttir og Þórey Anna Ásgeirsdóttir spiluðu
saman með FH í bikarsigri á Fylki í fyrrakvöld
HANDBOLTI Þórir Hergeirsson var í gær útnefndur þjálfari
ársins ásamt Dananum Ulrik Wilbek af Alþjóðahandknatt-
leikssambandinu. Þórir þjálfar kvennalandslið Noregs sem
varð Ólympíumeistari síðastliðið sumar auk þess að
vinna til silfurverðlaun á EM í Serbíu í desember. Þórir
og Wilbek voru heiðraðir í Barcelona í gær en þar
munu úrslitin á HM í handbolta ráðast um helgina.
Þórir hefur náð einstökum árangri með norska
landsliðið sem var í sumar allt í senn ríkjandi heims-,
Evrópu- og Ólympíumeistari. Hann er upphaflega frá
Selfossi en hefur búið í Noregi um árabil.
Wilbek gerði Danmörku að Evrópumeisturum á
síðasta ári og fór með lið sitt í 8 liða úrslit Ólympíuleik-
anna. Danmörk er komið áfram í undanúrslit HM þar
sem liðið mætir Króatíu í kvöld. - esá
Þórir þjálfari ársins hjá IHF
TENNIS Victoria Azarenka frá Hvíta-
Rússlandi, efsta kona heimslistans,
mun spila til úrslita á Opna ástralska
meistaramótinu í tennis gegn hinni
kínversku Li Na. Þær höfðu betur
í undanúrslitaviðureignum sínum
en Azarenka sló út hina nítján ára
Sloane Stephens frá Bandaríkjunum.
Sú hafði komið mjög á óvart með því
að vinna Serenu Williams.
Novak Djokovic keppir til úrslita
í karlaflokki á sunnudagsmorgun og
mætir annaðhvort Andy Murray eða
Roger Federer. - esá
Azarenka og
Li Na í úrslitum
SPORT
FÓTBOLTI Þessa dagana berast ótt
og títt fregnir af félagaskiptum leik-
manna víða um Evrópu en lokað
verður fyrir þau þann 1. febrúar. For-
ráðamenn enska liðsins Newcastle
hafa látið til sín taka á markaðnum
og þá sérstaklega litið til Frakklands.
Newcastle hefur þegar keypt þrjá
Frakka til liðsins til viðbótar við þá
fimm sem voru þegar í herbúðum
félagsins. Í gær bárust svo fregnir af
því að tveir Frakkar til viðbótar væru
á leiðinni, þeir Moussa Sissoko og
Massadio Haidara. - esá
Frönsk nýlenda
í Newcastle
HANDBOLTI Alþjóðahandbolta-
sambandið gaf í fyrrakvöld út
lokaniðurröðun þeirra liða sem
ekki komust í undanúrslit HM í
handbolta. Ísland var í tólfta sæti
á listanum en áður hafði verið
greint frá því að Ísland hefði
hafnað í ellefta sæti.
Ástæðan fyrir þessu er að
árangur liðanna gegn efstu liðum
sinna riðla er notaður til að
reikna út niðurröðunina. Ísland
var með betri heildarárangur en
Túnis, sem hafnaði á endanum í
ellefta sæti, en Afríkumeistar-
arnir náðu betri árangri gegn
bestu liðunum í sínum riðli. - esá
Ísland endaði
í tólft a sæti
5.-16. SÆTIÐ Á HM
5. Þýskaland, 6. Frakkland, 7. Rússland, 8.
Ungverjaland, 9. Pólland, 10. Serbía, 11. Túnis, 12.
Ísland, 13. Brasilía, 14. Makedónía, 15. Hvíta-Rúss-
land, 16. Egyptaland.
FÓTBOLTI Ole Gunnar Solskjær, stjóri
norska úrvalsdeildarliðsins Molde,
ætlar ekki að bjóða Hannesi Þ.
Sigurðssyni samning hjá félaginu.
Hannes hefur æft með Molde að
undanförnu en Solskjær sagði við
norska fjölmiðla að Hannes væri á
þeim stað á sínum ferli að hann vilji
spila reglulega. „Það getum við ekki
tryggt honum,“ sagði Solskjær við
TV 2.
Hannes hefur verið á mála hjá
Viking í Noregi, Bröndby í Danmörku
og Stoke í Englandi. - esá
Hannes fékk ekki
samning hjá Molde