Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 2
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRÁ „SVIKUM“ TIL „ÞJÓÐARSIGURS“ 12
Þorsteinn Pálsson um samninga og dóma.
ÓRAUNSÆI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í
UTANRÍKISMÁLUM 18
Össur Skarphéðinsson um utanríkismál.
JAFNAÐARSTJÓRN Í FJÖGUR ÁR: ÚR
SKULDAFJÖTRUM 19
Jóhanna Sigurðardóttir um fj ármál.
FRÉTTIR 2➜10
SKOÐUN 12➜19
HELGIN 20➜48
SPORT 76
MENNING 60➜82
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík
sími 522 4500 www.ILVA.is
sunnudaginn 3. febrúar
Enn meiri afsláttur af
völdum útsöluvörum
25% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
BORÐSTOFUHÚSG
ÖGNUM
Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmda-
stjóri Smáís, samtaka myndrétthafa, þurfti
í vikunni að svara fyrir hugbúnaðarnotkun
Smáís án greiðslna. „Þetta er auðvitað
vandræðalegt fyrir okkur, ég neita því
ekki,“ sagði hann og áréttaði að málið
snerist um vanskil, ekki ólöglega notkun.
Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórn-
skipunarnefndar Alþingis, þurfti að svara
fyrir að hafa sent frumvarp að nýjum
stjórnskipunarlögum í aðra umræðu á
Alþingi þótt nefndinni hefðu ekki borist
allar umsagnir um frumvarpið.
Páll Óskar Hjálmtýsson kom fram í nýju
hlutverki í vikunni sem leikstjóri kyn-
fræðslumyndarinnar „Fáðu já“. Grunn- og
framhaldsskólanemar tóku myndinni vel.
Sigurður Harðarson, stjórnarmaður í
Félagi sjálfstæðismanna í
Grafarvogi, komst í fréttir
þegar hann kallaði Jón
Gnarr og fulltrúa Besta
flokksins „hyski“ á fundi
um skólamál í Grafarvogi. Hann baðst síðan
afsökunar á ummælunum.
FIMM Í FRÉTTUM ICESAVE OG EINELTI
➜ Tim Ward, sem fór fyrir teymi lögfræðinga Íslands í málflutningi vegna Icesave, var fagnað
sem þjóðhetju þegar ljóst var að Ísland hefði lagt ESA af velli í dómsalnum.
ÓGERÐ VERK 60
Þóroddur Bjarnason setur upp sýningu á
verkum sem enn eru ekki orðin til.
ÞRIÐJA GRÁÐAN 68
Fréttablaðið spurði fl ytjendur í undan-
keppni Eurovision spjörunum úr.
ÚTGÁFA Í BLÓMA 70
Hljómsveitin Sin Fang hélt upp á útgáfu
plötu sinnar Flowers.
VERZLÓ YFIR STRIKIÐ? 82
Myndband úr söngleik Verzlunarskólans
er gagnrýnt fyrir að vera klámfengið.
GEFANDI
SJÁLFBOÐALIÐASTARF 20
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur
les vikulega upp í félagsmiðstöðinni við
Afl agranda.
STEFNIR Á
ÓLYMPÍULEIKANA 34
Agnes Dís Brynjarsdóttir er einn efnileg-
asti listskautadansari landsins.
AFTUR Í AÐALHLUTVERK 40
Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikur Mary
Poppins.
ENDURVINNSLAN Í
HOLLYWOOD 42
Margar kvikmyndir ganga í endurnýjun
lífdaga á árinu.
FLÆÐI ÞÚSUND
MÁLVERKA 44
Afmælissýning Kjarvalsstaða er umfangs-
mesta myndlistarsýning sem haldin hefur
verið hér á landi.
KRAKKASÍÐA 46
KROSSGÁTA 48
VIÐSKIPTI Fimm lífeyrissjóðir telja
Steinunni Guðbjartsdóttur og Pál
Eiríksson, sem sitja í slitastjórn
Glitnis, hafa oftekið sér yfir 400
milljónir króna í laun fyrir störf
sín, og sinna fyrirtækja, fyrir
þrotabú bankans. Sjóðirnir vilja
að Héraðsdómur Reykjavíkur láti
Steinunni, Pál og fyrirtækin endur-
greiða þrotabúinu hin ofteknu laun.
Þeir hafa sent héraðsdómi bréf þar
sem lagðar eru fram þær forsendur
sem sjóðirnir telja eðlilegt að stuðst
sé við þegar slitastjórnin reikni sér
laun. Samkvæmt þeim forsendum
hafi þau laun sem Steinunn og Páll
hafa greitt sér, alls 842 milljónir
króna frá því að þau voru skipuð og
fram á mitt síðasta ár, verið mun
hærri en sjóðirnir telja eðlilegt.
Lífeyrissjóðirnir fimm eru á
meðal kröfuhafa Glitnis. Þeir eru
Lífeyrissjóður verzlunarmanna,
Gildi lífeyrissjóður, Sameinaði líf-
eyrissjóðurinn, Söfnunarsjóður
lífeyrisréttinda og Festa lífeyris-
sjóður. Tveir fyrstnefndu sjóðirn-
ir óskuðu eftir því síðastliðið haust
að fá sundurliðaðar upplýsingar um
launakostnað Glitnis. Þeir vildu
sérstaklega fá upplýsingar um laun
sem greidd væru til slitastjórnar-
manna og hugsanlega til einhverra
fyrirtækja á þeirra vegum. Til-
gangurinn var að kanna hvort það
gæti verið að þóknanir fyrir þau
störf sem verið væri að vinna væru
óhóflegar.
Þegar slitastjórnin neitaði að láta
upplýsingarnar af hendi hótuðu
sjóðirnir að fara með málið fyrir
dómstóla. Í kjölfarið ákvað slita-
stjórnin að gefa eftir og lét þá hafa
sundurliðun á kostnaðinum í lok
september 2012. Þar kom fram að
sameiginlegar greiðslur til þeirra
tveggja, með útseldri vinnu full-
trúa á þeirra vegum, hafi numið
842 milljónum króna frá því að
slita stjórnin var skipuð í maí 2009
og fram á mitt síðasta ár.
Þetta töldu sjóðirnir ekki vera
eðlilega þóknun fyrir opinbera
sýslunarmenn. Þeir ráðfærðu sig
við aðra lífeyrissjóði sem eiga sam-
þykktar kröfur í bú Glitnis og fengu
þrjá til viðbótar til liðs við sig.
Hópur inn lét reikna út hvað hann
teldi eðlilega þóknun vegna þeirr-
ar vinnu sem Steinunn, Páll og full-
trúar þeirra hafa innt af hendi.
Niðurstaða þeirra útreikninga er
að slitastjórnarmennirnir, og fyrir-
tæki þeirra, hafi oftekið sér 383
milljónir króna í þóknanir fram á
mitt síðasta ár. Þá á eftir að að taka
með í reikninginn þær þóknanir
sem þeir hafa greitt sér síðan þá
og vaxtakostnað. Samanlagt ætla
sjóðirnir að slitastjórn Glitnis hafi
oftekið sér yfir 400 milljónir króna
vegna vinnu sinnar fyrir búið.
Sjóðirnir fimm sendu Héraðs-
dómi Reykjavíkur, sem skipaði
slita stjórnina, bréf í síðustu viku
þar sem þeir fóru fram á að dómur-
inn léti slitastjórnarmennina tvo
endurgreiða þrotabúinu hinar
ætluðu ofteknu þóknanir.
thordur@frettabladid.is
Telja slitastjórn hafa
oftekið 400 milljónir
Fimm lífeyrissjóðir hafa sent bréf til héraðsdóms vegna ætlaðra ofgreiddra þókn-
ana slitastjórnar Glitnis. Þeir vilja að Steinunn Guðbjartsdóttir, Páll Eiríksson og
fyrirtæki þeirra skili 45 prósentum af þóknunum sem þrotabúið hefur greitt þeim.
SLITASTJÓRN Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson mynda slitastjórn Glitnis. Þau voru skipuð í hana af Héraðsdómi
Reykjavíkur árið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
5 lífeyrissjóðir vilja að
ætlaðar oft eknar greiðsl-
ur verði endurgreiddar.
842 milljónir króna
er sú upphæð sem
þrotabú Glitnis hafði
greitt til Steinunnar, Páls
og fyrirtækja þeirra um
mitt síðasta ár.
343 milljónir króna
áætla lífeyrissjóðirnir
fi mm að hafi verið
oft ekin þóknun.
3 milljarða króna hafa
starfsmenn þrotabús
Glitnis, sem eru um 40,
fengið í laun fram á mitt
ár 2012.
31,2 milljarðar króna
er kostnaður þrotabúsins
við aðkeypta ráðgjöf og
lögfræðistörf.
BARNIÐ FANNST Í
ÍSLENDINGAHVERFI 4
„Barnið var víst þarna frá því
snemma um morguninn þannig að
við höfum alveg örugglega hjólað
tvisvar framhjá því um morguninn,”
segir María Ósk Bender, íbúi í Valby.
FYLGI FRAMSÓKNAR
RÝKUR UPP 6
Stuðningur við Samfylkingu dalar í
nýrri könnun en fylgi Framsóknar
eykst verulega. Björt framtíð þokast
upp.
VERIÐ AÐ LÖGFESTA
ÓVISSUNA 10
Útgerðarmenn og stjórnarandstaða
segja breytt frumvarp um stjórn
fi skveiða ónothæft .
KSÍ GEGN EINELTI 76
Myndband leikmanna A-landsliðs kvenna
í knattspyrnu varð kveikjan að samstarfi
KSÍ við yfi rvöld í baráttunni gegn einelti í
íslensku samfélagi.