Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 6
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 KÖNNUN Framsóknarflokkur- inn sækir verulega í sig veðrið í kjölfar dóms í Icesave-málinu, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðn- ingur við Samfylkinguna hefur hrunið á tveimur vikum. Verði niðurstöður kosninga í takti við könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 eru aðeins tveir mögu- leikar á tveggja flokka stjórn að loknum kosningum; stjórn Sjálf- stæðisflokks og annaðhvort Fram- sóknarflokks eða Bjartrar fram- tíðar. Alls segjast 20,8 prósent þeirra sem afstöðu taka í könnuninni, sem gerð var á miðvikudag og fimmtudag, myndu kjósa Fram- sóknarflokkinn yrði gengið til kosninga nú. Flokkurinn mæld- ist með 12,6 prósenta stuðning í síðustu könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var fyrir tveimur vikum, dagana 16. og 17. janúar síðastliðna. Flokkurinn fékk 14,8 prósenta fylgi í síðustu kosningum og níu þingmenn en næði fjórtán mönnum á þing yrðu niðurstöður kosninga í samræmi við nýjustu skoðanakönnunina. Fylgi Samfylkingarinnar hefur hrunið á þeim tveimur vikum sem liðið hafa milli kannana. Nú segjast 11,9 myndu kjósa flokk- inn en 19,7 prósent studdu Sam- fylkinguna fyrir tveimur vikum. Flokkurinn fékk 29,8 prósenta fylgi í síðustu kosningum og hefur aldrei mælst lægri í könnunum Fréttablaðsins. Flokkurinn fékk 20 þingmenn í síðustu kosningum en fengi átta nú samkvæmt niður- stöðum könnunarinnar. Eina nýja framboðið sem næði mönnum á þing samkvæmt könn- uninni er Björt framtíð. Stuðn- ingur við flokkinn hefur aukist jafnt og þétt í síðustu könnun- um. Nú styðja 16,4 prósent flokk- inn og hefur fylgið aukist um 1,9 prósentustig á þeim tveimur vikum sem liðnar eru frá síðustu könnun. Björt framtíð fengi sam- kvæmt könnuninni tólf þingmenn en í dag sitja tveir flokksmenn á þingi sem voru kjörnir á þing fyrir aðra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn ber sem fyrr höfuð og herðar yfir aðra flokka þó fylgi hans dali verulega milli kannana. Nú segjast 32 pró- sent myndu kjósa flokkinn yrði gengið til kosninga nú, en 37,8 prósent studdu flokkinn í síðustu könnun. Flokkurinn er þó vel yfir 23,7 prósenta kjörfylgi sínu úr síðustu kosningum og fengi sam- kvæmt þessu 21 þingmann, fimm fleiri en hann er með í dag. Vinstri græn virðast á uppleið aftur eftir afleita útkomu í síð- ustu könnun. Nú styðja 11,4 pró- sent flokkinn, sem er aukning upp á fjögur prósentustig frá síðustu könnun. Flokkurinn á samt langt í land með að ná 21,7 prósenta kjör- fylgi sínu. Hann fengi átta þing- menn yrðu niðurstöður kosninga í takti við könnunina nú, en fékk 14 kjörna í síðustu kosningum. Önnur ný framboð en Björt framtíð ná ekki mönnum á þing samkvæmt könnuninni. Hægri grænir komast þó næst því. Þeir mælast nú með stuðning 4,3 pró- senta en þurfa fimm prósent til að ná mönnum á þing. Stuðningur við flokkinn mældist 1,8 prósent í síð- ustu könnun. Hin nýju framboðin eru lengra frá því að ná inn á þing. Alls segj- ast 1,5 prósent styðja Dögun, 0,9 prósent Píratapartíið og 0,2 pró- sent Bjartsýnisflokkinn. Til þess ber þó að líta að nýju framboðin hafa lítið kynnt stefnumál sín og mögulega frambjóðendur. brjann@frettabladid.is 16,4% þeirra sem gefa upp afstöðu sína segjast ætla að kjósa Bjarta framtíð í vor. Fylgi Framsóknar- flokks rýkur upp Stuðningur við Samfylkingu dalar í nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 en fylgi Framsóknarflokks eykst verulega. Færri styðja Sjálfstæðisflokkinn en stuðn- ingur við Bjarta framtíð þokast upp. Vinstri græn virðast á leið upp af botninum. Tekin hefur verið upp ný aðferð við að reikna út niður- stöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 á fylgi flokkanna til að leiðrétta skekkju sem orðið hefur á niðurstöðunum vegna þess hversu hátt hlutfall þeirra sem hringt er í segjast óákveðnir. Áfram eru þeir sem segjast óákveðnir spurðir í tvígang til viðbótar til að reyna að fá þá til að taka afstöðu. Fyrst eru þeir spurðir hvaða flokk þeir séu líklegir til að kjósa, og að lokum hvort þeir séu líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða annan flokk. Þessi aðferðafræði var hönnuð af sérfræðingum við Háskóla Íslands og er síðasta spurningin beinlínis hönnuð til að draga úr ofmati á fylgi Sjálfstæðisflokksins í könnunum. Ofmatið er til komið þannig að stuðningsmenn flokksins virðast almennt ákveðnari en þeir sem kjósa aðra flokka, og tilbúnari til að gefa upp afstöðu sína. Þeir sem segjast óákveðnir í fyrstu spurningu en gefa upp afstöðu í þeirri næstu eru mun líklegri til að kjósa aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn. Þegar spurningarnar hafa verið reiknaðar saman er reiknað með því að þeir sem enn segjast óákveðnir muni þegar til kosninga kemur kjósa flokka í sömu hlutföllum og þeir sem gáfu upp afstöðu. Með öðrum orðum er bara reiknað með þeim sem tóku afstöðu til einhverra flokka. Þessi aðferðafræði hefur gefið góða raun hingað til en hún er ekki hönnuð til að takast á við eins hátt hlutfall óákveðinna og komið hefur upp í könnunum á síðustu misserum. Aðferðafræðin hefur því verið þróuð nánar af rannsóknadeild 365 miðla til að leiðrétta skekkju sem hátt hlutfall óákveðinna hefur í för með sér. Í stað þess að reikna með að þeir sem segjast óákveðnir eftir þriðju spurningu deilist niður á flokkana á sama hátt og áður er nú reiknað með því að þeir deilist niður í sömu hlutföllum og þeir sem svöruðu spurningu tvö og þrjú. Niðurstöður síðustu kannana hafa verið reiknaðar með báðum aðferðum, og báðar niðurstöður birtar í Fréttablaðinu, en hér eftir verður einungis nýja aðferðin notuð, enda er hún talin nákvæmari. Sams konar þriggja spurninga kerfi var notað þegar spurt var um fylgi við forsetaframbjóðendur í síðustu könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 fyrir kosningarnar í vor. Þegar nýju aðferðafræðinni var beitt á niðurstöður þeirrar könnunar mældist Ólafur Ragnar Grímsson með stuðning 53,3 prósenta en Þóra Arnórsdóttir með stuðning 33,1 prósents. Niðurstöður kosninganna voru þær að Ólafur Ragnar fékk 52,8 prósent en Þóra 33,1 prósent. Ný aðferðafræði gefur nákvæmari niðurstöður Hringt var í 1.382 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 30. janúar og fimmtudaginn 31. janúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ein- hvern annan flokk? Alls tóku 54,6 prósent afstöðu til spurningarinnar. ➜ Aðferðafræðin Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Dreglar og mottur á frábæru verði! Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Margar stærðir og gerðir Breidd: 1 metri Verð pr. lengdarmeter 1.795 Ódýrar mottur 40x60 cm frá kr. 399 PVC mottur 50x80 cm 1.490 Breidd: 66 cm Verð pr. lengdarmeter 1.495 Kæli- og frystiskápar sem hafa innbyggða klakavél með mulningi og ísköldu íslensku vatni. Þeir eru öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir. Fást hvítir, svartir og með stálklæðningu. Verð frá kr. 398.800 stgr. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is TILBOÐSDAGAR Tilboð HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 30. OG 31. JANÚAR 2013 50% 40% 30% 20% 10% 0% Bjartsýnis- fl okkurinn Hægri grænir Pírata- fl okkurinn Dögun ■ Kosningar 25.4.2009 ■ 11. og 12.4.2012 ■ 23. og 24.5.2012 ■ 16. og 17.1.2013 ■ 30. og 31.1.2013 FYLGI FLOKKANNA 16 ,4 % 20 ,8 % 32 ,0 % 11 ,9 % 11 ,4 % 0, 2% 4, 3% 0, 9% 1, 5%
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.