Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 8
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 F. 510 1717 WWW.VR.IS
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu
fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: Lýsing á eign og því sem henni
fylgir, ástand hennar, staðsetning, stærð, aldur og fjöldi svefnplássa. Auk þess
skal fylgja lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta umhverfi.
Æskilegt er að myndir og lýsing á umhverfi fylgi einnig með.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is, fyrir 15. febrúar nk.
Save the Children á Íslandi
DÓMSMÁL Fjórir dómarar við
Hæstarétt komust að þeirri niður-
stöðu að sú háttsemi að stinga
fingri inn í leggöng og endaþarm
konu væri ekki kynferðisbrot.
Ástæðan er sú að ásetningur hafi
aðeins verið að meiða fórnarlambið.
Það teljist því líkamsárás.
Dómurinn féll fyrr í vikunni
í líkamsárásarmáli gegn þeim
Andreu Unnarsdóttur, Jóni Ólafs-
syni, Elíasi Valdimar Jónssyni, Ótt-
ari Gunnarssyni og tveimur öðrum.
Þau þrjú fyrstu voru sakfelld fyrir
kynferðisbrot í héraðsdómi en neit-
uðu öll að hafa beitt slíku ofbeldi.
Hæstaréttardómararnir Mark-
ús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeins-
son, Gunnlaugur Claessen og Ólaf-
ur Börkur Þorvaldsson komust að
þessari niðurstöðu. Fimmti hæsta-
réttardómarinn, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir, skilaði sératkvæði og
er ósammála þessari túlkun hinna
dómaranna. „Með þessum verkn-
aði beitti hann brotaþola grófu kyn-
ferðislegu ofbeldi og braut þannig
freklega gegn kynfrelsi hennar. Er
fallist á með ákæruvaldinu að þessi
háttsemi hafi verið af kynferðis-
legum toga og afar niðurlægjandi
fyrir brotaþola. Skiptir ekki máli
hvort tilgangur ákærða hafi verið
einhver annar en að veita sér kyn-
ferðislega fullnægju, enda nægir
að verknaður sé almennt til þess
fallinn.“
Ingibjörg bendir á þrjá dóma
máli sínu til stuðnings, meðal ann-
ars hæstaréttardóm þar sem maður
var sakfelldur fyrir nauðgun, fyrir
að hafa stungið fingrum í enda-
þarm konu sem hafði þvaglát á
Austurvelli.
Hulda Elsa Björgvinsdóttir sak-
sóknari sagði í samtali við Rúv
í gær að með þessum dómi væri
stigið skref aftur á bak þar sem
horfið væri frá því að tryggja kyn-
frelsi brotaþola. Þrátt fyrir að
refsiramminn væri sá sami skipti
dómurinn máli vegna fordæmis.
„Við teljum að þarna sé í raun og
veru fráhvarf frá því sem ætlun
lög gjafans var, að tryggja kyn-
frelsi brotaþola og leggja áherslu
á verknaðinn, ekki hvaða hvatir
liggja að baki.“
- þeb
Fjórir hæstaréttardómarar í ofbeldismáli:
Ekki kynferðisbrot ef
tilgangur var að meiða
KOMIÐ FYRIR DÓM Árásin átti upptök sín í ósætti Andreu Unnarsdóttur og brota-
þolans. Dómur yfir Andreu var þyngdur í Hæstarétti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Ríkis saksóknari
hefur fellt niður rannsókn á
hendur tveimur lögreglumönnum
sem voru grunaðir um að hafa
notað og selt upplýsingar, sem
þeir höfðu aflað í störfum fyrir
embætti sérstaks saksóknara, til
þess að vinna skýrslu fyrir þrota-
bú Milestone.
Mennirnir, Jón Óttar Ólafsson
og Guðmundur Haukur Gunnars-
son, unnu rannsóknarvinnu fyrir
þrotabú Milestone í gegnum
fyrir tæki sitt eftir að þeir létu
af störfum hjá sérstökum sak-
sóknara.
Sérstakur saksóknari kærði
mennina til ríkissaksóknara í
apríl síðastliðnum vegna hugsan-
legra brota á þagnarskyldu.
Hulda María Stefánsdóttir sak-
sóknari sendi þeim tilkynningu
í gærmorgun þar sem greint var
frá því að málið hefði verið fellt
niður. Það þótti ekki líklegt til
sakfellingar.
Verklagsreglur hjá embætti
sérstaks saksóknara voru teknar
til endurskoðunar eftir að málið
kom upp. - þeb
Fyrrverandi starfsmenn sérstaks ekki fyrir dóm:
Málið fellt niður
SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI Menn-
irnir unnu fyrir þrotabú Milestone eftir
að hafa unnið í málinu hjá sérstökum
saksóknara. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
➜ Ingibjörg bendir á þrjá
dóma máli sínu til stuðn-
ings, meðal annars Hæsta-
réttardóm þar sem maður
var sakfelldur fyrir nauðgun,
fyrir að hafa stungið fingrum
í endaþarm konu sem hafði
þvaglát á Austurvelli.