Fréttablaðið - 02.02.2013, Blaðsíða 18
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Skoðun visir.is
Miðvikudagurinn 15. mars
2006 var örlagadagur í
sögu Sjálfstæðisflokksins.
Þann dag var íslenskum
stjórnvöldum tilkynnt af
Nicholas Burns, þáverandi
aðstoðarutanríkis ráðherra
Bandaríkjanna, að stjórn-
völd þar í landi hefðu
ákveðið að bandaríski her-
inn hyrfi frá Íslandi. Þessi
einhliða ákvörðun var áfall
fyrir Sjálfstæðis flokkinn,
sem hafði frá lýðveldisstofnun
jafnan talið sig handhafa hins „sér-
staka sambands“ við Bandaríkin,
og útvalinn gæslumann þessa fjör-
eggs í varnar- og öryggis málum
þjóðarinnar. Ákvörðunin var jafn-
framt staðfesting á vítaverðu
óraunsæi í utanríkisstefnu flokks-
ins, sem hafði mislesið breytingar
í öryggis- og heimsmálum og feil-
reiknað bæði samningsstöðu og
öryggisþarfir Íslands. Í kjölfarið
reyndist flokkurinn nánast algjör-
lega óviðbúinn því að þurfa að
huga sjálfur að vörnum og öryggi
Íslands, hvað þá að taka á þeim
mörgu og flóknu viðfangsefnum
sem fylgdu brottför hersins eftir
nærri 60 ára viðveru hans hér á
landi.
Margboðuð brottför
Bandaríkjastjórn hafði marg boðað
íslenskum stjórnvöldum brottför
hersins og bent bæði á breyttar
aðstæður í heimsmálum og skort
á fjandmönnum kringum Ísland.
Bandaríkjamenn, dauð þreyttir
á sinnuleysi Íslendinga við að
skilgreina og semja um öryggis-
þarfir landsins, létu loks til skarar
skríða árið 2003. Þeir tilkynntu
þá ákvörðun um brottför hers-
ins eigi síðar en 2006. Í stað þess
að beita bláköldu hagsmunamati
og skilgreina og semja um varn-
ir og öryggi sem hentuðu þörfum
Íslendinga brugðust stjórnvöld við
af örvæntingu – enda heima vinnan
óunnin. Þau lögðust í vonlausa og
þarflausa baráttu fyrir því að her-
inn yrði hér áfram, og sér í lagi
var allt kapp lagt á að halda fjór-
um orrustuþotum með tilheyrandi
liði. Öllu var tjaldað til að ríghalda
í bandaríska herinn í stað þess að
sníða samningsmarkmið að raun-
verulegum öryggisþörfum Íslands.
Dómgreindarbrestur forystu
Sjálfstæðisflokksins birtist í því
að annars vegar var hótað leynt
og ljóst að slíta tvíhliða varnar-
samningnum meðan á hinn bóginn
var tekin upp stöðugt meiri fylgi-
spekt við utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna til að tryggja áfram-
haldandi veru hersins. Langlægsti
punktur inn var Írak. Þá bauð for-
ysta Sjálfstæðisflokksins Ísland
fram í hóp hinna „viljugu ríkja“
án lög bundins samráðs við þingið
í von um skiptidíl þar sem íslensk
stjórnvöld héldu hernum í staðinn
fyrir íslenskan stuðning við hina
margfordæmdu innrás þar sem
hundruð þúsunda saklausra borg-
ara létu að lokum lífið. Banda-
ríkjamenn voru hins vegar fastari
á prinsippum en forysta
Sjálfstæðis flokksins. Þeir
höfnuðu í verki að blanda
svo subbulegum díl saman
við tíu ára gamla stefnu-
ákvörðun.
Engum dylst að Sjálf-
stæðisflokkurinn ofmat
samningsstöðu Íslands
og vildi ekki skilja nýjar
aðstæður í öryggis- og
heimsmálum. Samninga-
tækni hans var jafn-
framt með þeim hætti að Banda-
ríkjamenn segja enn opinmynntir
af henni svartar sögur. Um leið
glopraði hann úr höndum Íslend-
inga tækifæri til þess að semja
að nýju við Bandaríkjastjórn
innan ramma varnarsamnings-
ins, meðan það stóð til boða. Slík-
ir samningar hefðu snúist um
varnir og öryggi sem hentuðu við-
fangsefnum í okkar heimshluta
og svöruðu skilgreindum þörfum
Íslendinga. Sjálfstæðisflokkurinn
reyndist of bundinn í hugsunar-
hátt kalda stríðsins til þess að
geta gætt hagsmuna Íslendinga á
nýrri öld.
Ísland átti engan vin
Hrundagarnir í október 2008 eru
á sinn hátt annað stóráfall fyrir
trúverðugleika Sjálfstæðisflokks-
ins í samskiptum við önnur ríki.
Þar var á ferðinni sams konar
þrásækni í það sem ekki stóð til
boða af hálfu annarra ríkja, stað-
fastur vilji til þess að viðurkenna
ekki staðreyndir og láta ráðlegg-
ingar samstarfsþjóða eins og vind
um eyru þjóta. Seðlabankinn gerði
út leiðangra allt árið til Seðla-
banka Evrópu, Alþjóðagreiðslu-
bankans í Basel, Englandsbanka
og bandaríska seðlabankans og
fleiri seðlabanka til þess að fá lán
í því augnamiði að efla gjaldeyris-
varasjóð landsins eða koma á
gjaldeyriskiptasamningum. Alls
staðar fékk hann sama svarið:
Íslenska dæmið er of stórt til þess
að nokkurt eitt ríki taki að sér að
halda Íslandi á floti, auk þess sem
stafað var ofan í hann að seðla-
bankar heimsins hefðu sammælst
um að hjálparaðgerðir gagn-
vart einstökum löndum ættu sér
stað á vettvangi samstarfs innan
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.
Sjálfstæðisflokkurinn brást við
með því að taka 180 gráðu pólitíska
beygju í utanríkismálum á einni
nóttu. Trúnaðarmaður flokksins
var gerður út á vit fornra fjanda
Sjálfstæðismanna úr kalda stríð-
inu til að slá risastór lán. Nú voru
það Rússar sem voru hinir nýju
vinir Sjálfstæðisflokksins. En dóm-
greindarglöpin voru slík að hið
margfræga Rússalán sem kynnt
var árla dags í fréttatilkynningu
af seðlabankastjóra flokksins eftir
svefnlitla nótt reyndist draumsýn
ein. Hið eina sem flokkurinn upp-
skar eftir þetta ævintýri voru
kaldhæðnislegar athuga semdir
gamalgróinna vinaþjóða um
stefnuleysi Íslands. Jafnvel eftir
hrunið tók það heilan mánuð að fá
forystu Sjálfstæðisflokksins til að
leita eftir samstarfi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn um endurreisn
íslenska bankakerfisins.
Umræða í þáskildagatíð gerir
vitaskuld litla stoð, en þó er ætl-
andi að Bretar hefðu ekki vogað
sér að beita hryðjuverka ákvæðum
laga sinna gegn Íslendingum,
þegar við lágum flatir, ef við hefð-
um byrjað samstarf við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn á miðju ári 2008
eins og Seðlabankanum var ráð-
lagt. Annað hefði mögulega einn-
ig getað farið skaplegar fram.
Þarna glataði Sjálfstæðisflokkur-
inn tækifæri til þess að gæta hags-
muna Íslendinga meðan það stóð
til boða – með þrásækni í það sem
ekki stóð til boða. Hann olli Íslandi
skaða með reikulli og óraunsærri
utanríkisstefnu á örlagatímum.
Enn þrásækni og óraunsæi?
Það er vert að hugleiða þessi tvö
dæmi þegar afstaða Sjálfstæðis-
flokksins til umsóknar Íslands
að Evrópusambandinu er metin.
Staðfesta hans varðandi Evrópu-
samstarfið hefur í sögulegu ljósi
ekki verið meiri en svo, að hann
er fylgjandi því í stjórn en á móti
í stjórnarandstöðu. Svo virðist
sem hann sé í stjórnarandstöðu
að herðast í þeirri afstöðu að loka
á fulla aðild og þátttöku í helsta
samráðsvettvangi Evrópuríkja.
Í stað þess að auka á svigrúm og
möguleika Íslendinga til þess að
velja sér leið út úr vandamálum
samtímans, virðist hann stefna
einbeittur að því að loka landið
af með gjaldeyrishöftum til lang-
frama. Einkennist ekki framganga
hans af þrásækni eftir að ónýta
málið og velja það sem ekki er í
boði? Væri ekki nær að vinna að
sem bestum samningi við ESB og
láta síðan blákalt hagsmunamat
ráða um ráðleggingar til þjóðar-
innar í þjóðaratkvæðagreiðslu?
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins ætti að hugleiða vel hvernig
flokkurinn brást hagsmunum
Íslendinga í samskiptum við
Bandaríkin 2003 og síðar aftur
við seðlabanka heimsins í aðdrag-
anda hrunsins 2008. Ætlar hann að
bregðast hagsmunum Íslands aftur
árið 2013? Sjálfstæðisflokkurinn
má ekki við því að halda áfram að
glata trausti í samskiptum á sviði
utanríkismála. Hann verður að
horfa á stöðuna raunsæjum augum
og beita bláköldu mati á hagsmuni
Íslands. Skylda hans er við Ísland
en ekki skammtímahagsmuni
valdamikilla en deyjandi blokka
innan flokksins.
Óraunsæi Sjálfstæðisfl okksins
í utanríkismálum
UTANRÍKISMÁL
Össur Skarp-
héðinsson
utanríkisráðherra
➜ Sjálfstæðisfl okkurinn
má ekki við því að halda
áfram að glata trausti í
samskiptum á sviði utan-
ríkismála. Hann verður að
horfa á stöðuna raunsæjum
augum og beita bláköldu
mati á hagsmuni Íslands.
795
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR
Ef keisarinn er ekki í neinum
fötum …
Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur
627
MÁNUDAGUR 28. JANÚAR
Nýr bókmenntapáfi
Guðmundur Andri Thorsson pistlahöfundur
430
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR
Um jarmandi rollur í Animal Farm
Ellert B. Schram ellilífeyrisþegi
417
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR
Rótarmeinið mikla
Árni Páll Árnason alþingismaður
„Ég er stolt, ég er þakklát,
mér er sannarlega létt og ég
er full eftirvæntingar.“
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
var í góðu skapi við upphaf landsfundar
Samfylkingarinnar í gær.
„Nú höldum við veislu.“
Utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson
var alveg klár á sínum viðbrögðum eft ir að
dómur féll í Icesave-málinu á mánudag.
„Ég skal viðurkenna að ég
þorði fyrir vikið ekki að
vona að niðurstaðan yrði
svona afdráttarlaus, full-
kominn sigur.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarfl okksins, var algjörlega sann-
færður um lagalega stöðu Íslands í Icesave
– en þorði ekki að vona að það yrði farið
eft ir lagabókstafnum.
ORÐ VIKUNNAR
26.01.2013 ➜ 01.02.2013
UMMÆLI VIKUNNAR
Tilkynning um framboðsfrest
til stjórnarkjörs
Samkvæmt 32. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör
stjórnar og trúnaðarráðs.
Með hliðsjón að framansögðu tilkynnist hér með að
framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 12.00
mánudaginn 4. mars 2013 og ber að skila
tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á
skrifstofu félagsins.
Hverjum framboðslista skulu fylgja skrifleg
meðmæli minnst 181 fullgildra félagsmanna
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja
Save the Children á Íslandi