Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 19
LAUGARDAGUR 2. febrúar 2013 | SKOÐUN | 19
Hrun krónunnar og þrot
fjármálafyrirtækja árið
2008 orsakaði gríðarlegan
og áður óþekktan vanda
nánast allra heimila og
fyrir tækja í landinu. Verk-
efni stjórnvalda var að
afstýra keðjuverkun og
mögulegu þjóðar gjaldþroti.
Skuldir ríkissjóðs hlóðust
upp.
Sumarið 2007 námu
heildar skuldir heimila
108 prósentum af lands-
framleiðslu. Í sínum hæstu hæðum
árið 2009 námu skuldir heimil-
anna 135 prósentum af lands-
framleiðslunni. Nú bregður hins
vegar svo við að skuldastaða þeirra
er komin niður í 108 prósent á ný,
eða sama hlutfall og 15 mánuð-
um fyrir bankahrunið. Lækkunin
nemur yfir 300 milljörðum króna.
Lentum ekki í vítahringnum
Þetta er auðvitað jákvæð þróun.
Ríkisstjórnin getur horft um öxl og
séð að henni tókst samtímis að létta
byrðar tekjulægstu heimilanna og
koma þeim yfir erfiðasta hjallann.
Engu að síður finna menn fyrir fjár-
málahruninu og fæstir gátu búist
við því að sleppa við áhrif þessara
hamfara af mannavöldum.
Hollt er að skoða þetta í sam-
anburði við önnur lönd sem glímt
hafa við hliðstæðan vanda undan-
farin ár eins og gert er í skýrslu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem birt
var í apríl í fyrra. Þar var m.a. farið
yfir viðbrögð stjórnvalda í nokkrum
löndum við skuldavanda heimil anna
og tekið fram að í öllum tilvikum
hafi aðdragandinn einkennst af
niðursveiflu og verulegri skulda-
söfnun heimila. „Dæmið frá Íslandi
sýnir hvernig fjölþætt nálgun getur
létt skuldabyrði stórs hluta heimil-
anna og haldið aftur af vanskilum.
Kveikjan að djörfum við brögðum
stjórnvalda átti rætur í erfiðri
skuldastöðu heimilanna og miklum
félagslegum þrýstingi á stjórnvöld
um að grípa til aðgerða.“
Fjölþættar ráðstafanir
Aðgerðirnar sem ríkisstjórnin greip
til voru margvíslegar. Hún hefur
nú varið um 100 milljörðum króna
í vaxtabætur og barnabætur sem
hafa þann eiginleika að rata þang-
að sem þörfin er mest. Fasteignalán
hafa verið færð niður um 46 millj-
arða vegna 110 prósenta leiðarinnar.
Þá hefur greiðslu aðlögun einstak-
linga, sértæk skuldaaðlögun og
greiðslujöfnun sömuleiðis hjálpað
þúsundum einstaklinga.
Við erum ekki komin á leiðar-
enda. Enn er endurútreikningum
gengislána ólokið og ekki hafa tekist
samningar enn við lífeyris sjóðina
um svonefnd lánsveð sem snerta
drjúgan hóp fólks. Mér finnst einnig
koma til greina að setja þak á verð-
trygginguna ef um það getur náðst
víðtæk sátt.
Lækkandi skuldir fyrirtækja
Skuldir fyrirtækja nema nú 170 pró-
sentum af landsframleiðslunni og
samanlagt nema því skuldir þeirra
og heimilanna nærri þrefaldri
árlegri landsframleiðslu eða 280
prósentum. Samanlagt námu þess-
ar skuldir liðlega fimmfaldri lands-
framleiðslu (510%) haustið 2008.
Hér er því um ákaflega mikils-
verðan viðsnúning að ræða enda
viðurkennt að sligandi skuldir dragi
úr eftirspurn og hagvexti. Í síðustu
útgáfu Peningamála Seðlabanka
Íslands er staðfest að skuldastaða
heimila og fyrirtækja hafi lækk-
að um tvöfalda lands framleiðslu á
einungis þremur árum. Af skriftir
erlendra kröfuhafa gagnvart gömlu
bönkunum eru ekki teknar með
enda hefði lækkun skulda verið
miklu meiri hefði verið tekið mið af
þeim einnig.
Fyrir ári voru bankarnir með
ráðandi stöðu í um fjórðungi 120
stærstu fyrirtækjanna í landinu.
Sem kröfuhafar og lánar drottnar
réðu þeir nærri 70 prósentum
þeirra árið 2009. Samkvæmt
skýrslu Samkeppnis eftirlitsins
fóru innan við tíu prósent fyrir-
tækjanna í gegnum gjaldþrot eða
Jafnaðarstjórn í fjögur ár: Úr skuldafjötrum
FJÁRMÁL
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Fjórða grein
nauða samninga. Þetta er
athyglis vert í ljósi þess hve
fjár hagur þeirra var illa
leikinn eftir hrunið. Við
vitum vel að hér á landi
ríkir fákeppni og sam-
keppni er ábótavant í þágu
neytenda. Bankarnir urðu
auðvitað að leggja mat á það
hversu lífvænleg fyrirtæk-
in væru þegar ákvarðanir
voru teknar um líf þeirra,
oft í óþökk keppinauta.
Menn sýndu því skilning
að þegar fyrir tæki voru líf vænleg
og störf hundraða einstaklinga í
húfi gátu miklar afskriftir verið
réttlætan legar. Þetta skilar sér þótt
skuldsetning fyrirtækja sé almennt
há enn þá.
Ríkissjóður einnig á réttri leið
Rétt eins og heimilum og fyrir-
tækjum er lífsnauðsynlegt að stöðva
skuldasöfnun og lækka skuldir eftir
föngum þarf ríkissjóður einnig að
gera slíkt hið sama. Það hefur geng-
ið vonum framar um leið og tekist
hefur að verja velferðina og halda
uppi atvinnustiginu og þrátt fyrir að
ríkið taki nú minna til sín af þjóðar-
kökunni en fyrir hrun. Árið 2008
nam halli ríkissjóðs 216 milljörðum
króna. Árið 2011 var hann kominn
niður í 46 milljarða og 21 milljarð
króna árið 2012. Á fjárlögum þessa
árs er gert ráð fyrir að hann verði
innan við fjóra milljarða króna.
Engin ríkisstjórn hefur náð viðlíka
árangri í aðlögun ríkisfjármála á
svo skömmum tíma. Vegna þessa
árangurs fara skuldir ríkissjóðs
nú loksins lækkandi sem hlutfall af
landsframleiðslu þótt háar séu og
vaxtagjöld mikil. Lyktir Icesave-
málsins eru einnig mikið gleðiefni
fyrir þjóðina í þessu sambandi. Það
endur speglar einnig batnandi hag
að skuldatryggingaálag Íslands
lækkar jafnt og þétt og er nú hið
allra lægsta frá hruninu.
Lestrarviku Arion banka og Disney-Klúbbsins
lauk þriðjudaginn 29. janúar sl. og skráðu um 1700
krakkar sig til leiks. Yfir 100 heppnir þátttakendur
hafa verið dregnir út og fengið veglega vinninga.
Lestrarhestur Arion banka hefur verið valinn og
hlaut hann iPad spjaldtölvu í verðlaun.
Allir þeir sem tóku þátt eiga von á Andrésblaði
og viðurkenningarskjali í pósti.
Arion banki og Disney-Klúbburinn þakkar
öllum fyrir þátttökuna og hvetja krakka til
áframhaldandi lesturs.
TAKK FYRIR ÞÁTTTÖKUNA
➜ Við erum ekki komin
á leiðarenda. Enn er endur-
útreikningum gengislána
ólokið og ekki hafa tekist
samningar enn við lífeyris-
sjóðina um svonefnd láns-
veð sem snerta drjúgan
hóp fólks.