Fréttablaðið - 02.02.2013, Síða 19

Fréttablaðið - 02.02.2013, Síða 19
LAUGARDAGUR 2. febrúar 2013 | SKOÐUN | 19 Hrun krónunnar og þrot fjármálafyrirtækja árið 2008 orsakaði gríðarlegan og áður óþekktan vanda nánast allra heimila og fyrir tækja í landinu. Verk- efni stjórnvalda var að afstýra keðjuverkun og mögulegu þjóðar gjaldþroti. Skuldir ríkissjóðs hlóðust upp. Sumarið 2007 námu heildar skuldir heimila 108 prósentum af lands- framleiðslu. Í sínum hæstu hæðum árið 2009 námu skuldir heimil- anna 135 prósentum af lands- framleiðslunni. Nú bregður hins vegar svo við að skuldastaða þeirra er komin niður í 108 prósent á ný, eða sama hlutfall og 15 mánuð- um fyrir bankahrunið. Lækkunin nemur yfir 300 milljörðum króna. Lentum ekki í vítahringnum Þetta er auðvitað jákvæð þróun. Ríkisstjórnin getur horft um öxl og séð að henni tókst samtímis að létta byrðar tekjulægstu heimilanna og koma þeim yfir erfiðasta hjallann. Engu að síður finna menn fyrir fjár- málahruninu og fæstir gátu búist við því að sleppa við áhrif þessara hamfara af mannavöldum. Hollt er að skoða þetta í sam- anburði við önnur lönd sem glímt hafa við hliðstæðan vanda undan- farin ár eins og gert er í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem birt var í apríl í fyrra. Þar var m.a. farið yfir viðbrögð stjórnvalda í nokkrum löndum við skuldavanda heimil anna og tekið fram að í öllum tilvikum hafi aðdragandinn einkennst af niðursveiflu og verulegri skulda- söfnun heimila. „Dæmið frá Íslandi sýnir hvernig fjölþætt nálgun getur létt skuldabyrði stórs hluta heimil- anna og haldið aftur af vanskilum. Kveikjan að djörfum við brögðum stjórnvalda átti rætur í erfiðri skuldastöðu heimilanna og miklum félagslegum þrýstingi á stjórnvöld um að grípa til aðgerða.“ Fjölþættar ráðstafanir Aðgerðirnar sem ríkisstjórnin greip til voru margvíslegar. Hún hefur nú varið um 100 milljörðum króna í vaxtabætur og barnabætur sem hafa þann eiginleika að rata þang- að sem þörfin er mest. Fasteignalán hafa verið færð niður um 46 millj- arða vegna 110 prósenta leiðarinnar. Þá hefur greiðslu aðlögun einstak- linga, sértæk skuldaaðlögun og greiðslujöfnun sömuleiðis hjálpað þúsundum einstaklinga. Við erum ekki komin á leiðar- enda. Enn er endurútreikningum gengislána ólokið og ekki hafa tekist samningar enn við lífeyris sjóðina um svonefnd lánsveð sem snerta drjúgan hóp fólks. Mér finnst einnig koma til greina að setja þak á verð- trygginguna ef um það getur náðst víðtæk sátt. Lækkandi skuldir fyrirtækja Skuldir fyrirtækja nema nú 170 pró- sentum af landsframleiðslunni og samanlagt nema því skuldir þeirra og heimilanna nærri þrefaldri árlegri landsframleiðslu eða 280 prósentum. Samanlagt námu þess- ar skuldir liðlega fimmfaldri lands- framleiðslu (510%) haustið 2008. Hér er því um ákaflega mikils- verðan viðsnúning að ræða enda viðurkennt að sligandi skuldir dragi úr eftirspurn og hagvexti. Í síðustu útgáfu Peningamála Seðlabanka Íslands er staðfest að skuldastaða heimila og fyrirtækja hafi lækk- að um tvöfalda lands framleiðslu á einungis þremur árum. Af skriftir erlendra kröfuhafa gagnvart gömlu bönkunum eru ekki teknar með enda hefði lækkun skulda verið miklu meiri hefði verið tekið mið af þeim einnig. Fyrir ári voru bankarnir með ráðandi stöðu í um fjórðungi 120 stærstu fyrirtækjanna í landinu. Sem kröfuhafar og lánar drottnar réðu þeir nærri 70 prósentum þeirra árið 2009. Samkvæmt skýrslu Samkeppnis eftirlitsins fóru innan við tíu prósent fyrir- tækjanna í gegnum gjaldþrot eða Jafnaðarstjórn í fjögur ár: Úr skuldafjötrum FJÁRMÁL Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Fjórða grein nauða samninga. Þetta er athyglis vert í ljósi þess hve fjár hagur þeirra var illa leikinn eftir hrunið. Við vitum vel að hér á landi ríkir fákeppni og sam- keppni er ábótavant í þágu neytenda. Bankarnir urðu auðvitað að leggja mat á það hversu lífvænleg fyrirtæk- in væru þegar ákvarðanir voru teknar um líf þeirra, oft í óþökk keppinauta. Menn sýndu því skilning að þegar fyrir tæki voru líf vænleg og störf hundraða einstaklinga í húfi gátu miklar afskriftir verið réttlætan legar. Þetta skilar sér þótt skuldsetning fyrirtækja sé almennt há enn þá. Ríkissjóður einnig á réttri leið Rétt eins og heimilum og fyrir- tækjum er lífsnauðsynlegt að stöðva skuldasöfnun og lækka skuldir eftir föngum þarf ríkissjóður einnig að gera slíkt hið sama. Það hefur geng- ið vonum framar um leið og tekist hefur að verja velferðina og halda uppi atvinnustiginu og þrátt fyrir að ríkið taki nú minna til sín af þjóðar- kökunni en fyrir hrun. Árið 2008 nam halli ríkissjóðs 216 milljörðum króna. Árið 2011 var hann kominn niður í 46 milljarða og 21 milljarð króna árið 2012. Á fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir að hann verði innan við fjóra milljarða króna. Engin ríkisstjórn hefur náð viðlíka árangri í aðlögun ríkisfjármála á svo skömmum tíma. Vegna þessa árangurs fara skuldir ríkissjóðs nú loksins lækkandi sem hlutfall af landsframleiðslu þótt háar séu og vaxtagjöld mikil. Lyktir Icesave- málsins eru einnig mikið gleðiefni fyrir þjóðina í þessu sambandi. Það endur speglar einnig batnandi hag að skuldatryggingaálag Íslands lækkar jafnt og þétt og er nú hið allra lægsta frá hruninu. Lestrarviku Arion banka og Disney-Klúbbsins lauk þriðjudaginn 29. janúar sl. og skráðu um 1700 krakkar sig til leiks. Yfir 100 heppnir þátttakendur hafa verið dregnir út og fengið veglega vinninga. Lestrarhestur Arion banka hefur verið valinn og hlaut hann iPad spjaldtölvu í verðlaun. Allir þeir sem tóku þátt eiga von á Andrésblaði og viðurkenningarskjali í pósti. Arion banki og Disney-Klúbburinn þakkar öllum fyrir þátttökuna og hvetja krakka til áframhaldandi lesturs. TAKK FYRIR ÞÁTTTÖKUNA ➜ Við erum ekki komin á leiðarenda. Enn er endur- útreikningum gengislána ólokið og ekki hafa tekist samningar enn við lífeyris- sjóðina um svonefnd láns- veð sem snerta drjúgan hóp fólks.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.