Fréttablaðið - 02.02.2013, Blaðsíða 32
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
2007
Toyota Yaris
938
Skoda Octavia
816
Toyota Land
Cruiser 120
635
Toyota Corolla
527
Honda CR-V
501
Subaru Legacy
472
Toyota Auris
454
Volkswagen Golf
379
Toyota RAV4
373
Toyota Avensis
364
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU BÍLATEGUNDIRNAR SÍÐUSTU ÁR
2008
Toyota Land
Cruiser 120
485
Toyota Yaris
478
Skoda Octavia
410
Toyota Auris
289
Toyota RAV4
280
Subaru Legacy
255
Toyota
Land Cruiser 200
201
Suzuki Grand Vitara
193
Honda CR-V
188
Hyundai Getz
173
2009
Suzuki Swift
151
Subaru Legacy
137
Suzuki Grand Vitara
115
Toyota
Land Cruiser 120
97
Honda CR-V
86
Toyota Auris
63
Toyota Yaris
62
Subaru Forester
61
Nissan Patrol GR
56
Hyundai Santa Fe
55
2010
Volkswagen Polo
233
Suzuki Grand Vitara
201
Toyota Yaris
194
Hyundai i30
169
Skoda Octavia
167
Suzuki Swift
165
Toyota Land Cruiser 150
122
Honda CR-V
98
Chevrolet Spark
97
Volkswagen Golf
97
2011
Skoda Octavia
308
Suzuki Grand Vitara
285
Volkswagen Polo
284
Toyota
Land Cruiser 150
213
Toyota Yaris
213
Toyota Auris
154
Suzuki Swift
153
Chevrolet Spark
148
Volkswagen Golf
147
Honda CR-V
140
2012
Skoda Octavia
495
Toyota Yaris
404
Volkswagen Polo
345
Toyota
Land Cruiser 150
280
Kia Ceed
275
Volkswagen Golf
245
Volkswagen Passat
205
Suzuki Swift
190
Toyota Auris
189
Nissan Quashqai
169
Dísil
56,2%
Dísil
40,3%
Dísil
19,3%
Dísil
33,2%
Dísil
43,6%
Dísil
31,7%
Bensín
43,6%
Bensín
59,7%
Bensín
80,7%
Bensín
66,8%
Bensín
56,4%
Bensín
68,3%
SÆTI
Sala nýrra bíla dróst saman árið 2012 í 21 Evrópulandi af 30 í greiningu
ameríska greiningarfyrirtækisins Jato Dynamics. Alls seldust 12,6 milljónir
bíla í löndunum öllum sem er 7,9 prósentum minna en árið 2011. Mestur
var samdrátturinn í Grikklandi, 40,2 prósent milli ára.
Á fimm stærstu sölumörkuðum varð ekki aukning nema á einum stað,
í Bretlandi þar sem sala nýrra bíla jókst um 5,3 prósent. Í Frakklandi dróst
bílasalan hins vegar saman um 13,9 prósent, um 19,8 prósent í Ítalíu og
13,3 prósent á Spáni. Í Þýskalandi, sem er stærsti sölumarkaður nýrra bíla
í Evrópu, var samdrátturinn 2,9 prósent. Mesta aukningin var svo hér á
landi, rúm 56 prósent, en líkt og fram kemur hér að ofan eru bara tæpir
átta þúsund bílar að baki þeirri tölu.
Meðal helstu bílaframleiðenda í Evrópu varð ekki aukning nema hjá
tveimur, Audi, sem er í sjötta sæti á lista söluhæstu framleiðenda 2012,
um 3,4 prósent og um 0,6 prósent hjá Mercedes Benz, sem vermir níunda
sæti á sama lista. Volkswagen seldi flesta bíla í Evrópu í fyrra þrátt fyrir
4,4 prósenta sölusamdrátt. Sveifla milli ára er svo enn meiri hjá fram-
leiðendunum í öðru og þriðja sæti. Hjá Ford dróst sala saman um 13,0
prósent og um 15,7 prósent hjá Opel. Framleiðendurnir í þremur efstu
sætunum seldu samtals rúmar 3,4 milljónir bíla eða tæp 27 prósent allra
seldra bíla í Evrópulöndunum 30.
➜ Yfir evrópskum bílaiðnaði grúfir myrkur
Ár Fjöldi Hlutfall af seldum einkabílum
2007 157 0,85%
2008 116 1,12%
2009 66 2,75%
2010 11 0,33%
2011 9 0,17%
2012 16 0,19%
Unnið upp úr gögnum Umferðarstofu
➜ Húsbílar ná sér ekki á strik eftir hrun
Tegund Fjöldi Breyting frá 2011
1. Volkswagen Golf 431.742 -11,1%
2. Ford Fiesta 306.405 -12,7%
3. Volkswagen Polo 287.828 -19,8%
4. Opel/Vauxhall Corsa 265.297 -16,1%
5. Renault Clio 244.280 -17,4%
6. Ford Focus 241.862 -14,7%
7. Opel/Vauxhall Astra 232.645 -20,1%
8. Nissan Qashqai 207.885 -0,3%
9. Renault Megane 199.167 -17,5%
10. Volkswagen Passat 195.617 -17,1%
Heimild: e24.no
➜ Mest seldir í Evrópu 2012
að leita í því að þeir séu eyðslu-
grennri en bensínbílar. Við þá breyt-
ingu að vörugjöld á bíla miðist við
hversu miklu þeir skili af sér af
óæskilegum efnum hafi orðið tölu-
verðar tilfærslur á bílum milli verð-
flokka.
„Dísilbílar hafa hingað til verið
með vinninginn þar hvað varð-
ar koltvísýringinn, þannig að þar
kemur saman minni útblástur og
minni eyðsla. Dísilbílar hafa því
lækkað verulega í verði en voru
alltaf dýrari en bensínbílarnir áður.
Eftir að reglunum var breytt eiga
þeir möguleika sem þeir ekki áttu
áður inn á markaðinn,“ segir Özur.
Bensínið á meira inni
Um leið bætir Özur við að þessi
staða kunni að breytast þegar fram
í sækir, því framleiðendur bíla sjái
í hendi sér að bensínvélar eigi mun
meira inni þegar kemur að því að
draga úr eyðslunni en dísilvélar.
„Núna sjást nýir bílar með bensín-
vélar sem eyða sáralitlu, eins og
Mazdan og meira að segja Subaru-
inn líka. Við gætum því átt eftir að
sjá breytingu á þessu eftir ekki allt
of mörg ár. En eins og staðan er í dag
hafa dísilvélar enn vinninginn.“
Bílgreinasambandið hefur verið
duglegt að benda á hvernig meðal-
aldur bílaflota landsins hefur hækk-
að frá hruni. „Við Íslendingar njót-
um þess ekki í bílaflota okkar að
vera með fullkomnasta öryggisbún-
að sem hægt er að fá,“ segir Özur
og bendir á að meðalaldur fólksbíla-
flotans standi nú í 11,6 árum. „Það
er með því allra hæsta í Evrópu.“
Kjörmeðalaldur bílaflotans segir
Özur sjö til átta ár. „Þá værum við
alla vega í ágætis málum.“ Skipti
þar máli að síðustu ár hafi bíla-
framleiðendur gert það að sér-
stöku keppikefli sínu að fram-
leiða bíla sem eyði sem minnstu
og hafi sem bestan öryggisbúnað.
„Á staðal öryggisbúnaði bíla hafa
orðið gríðar legar framfarir á síð-
ustu þremur til fjórum árum sem
við erum að missa af. Til dæmis má
nefna að innan ESB er orðið regla
að stöðugleikabúnaður sé staðal-
búnaður í öllum nýjum bílum.“
Tölur um bílaeign og nýskráningu sýna augljóslega að hlutur jeppa
fer minnkandi í bílaflota landsmanna. Meðal þeirra sem skipt hafa út
eyðslufrekari bílakosti fyrir minni bíl er Guðríður Skagfjörð Sigurðardóttir,
ritstjóri hjá Námsgagnastofnun.
„Við keyptum í góðærinu jeppa frá Ameríku, algjöra draumakerru,“ segir
hún um Ford Explorer-jeppann sem fjölskyldan keypti. „En þá kostaði líka
bensínlítrinn 70 krónur. Síðan fór bensínið að hækka og hækka og við
sáum að við vildum nota peningana okkar í eitthvað annað.“ Til þess að
spara bensínútgjöldin bætti fjölskyldan því við sig Toyota Yaris-bifreið. „Og
svo seldum við bara jeppann.“
Guðríður viðurkennir reyndar að jeppinn hafi verið keyptur að hennar
undirlagi því hún sé með bíladellu en eiginmaðurinn ekki. Samt sjái hún
ekkert eftir ákvörðuninni um að skipta. „Þetta var náttúrlega algjör lúxus-
kerra en fólk hefur alltaf val um hvað það vill gera. Og við vildum ekki
eyða svona miklum peningum í bensín. Ég vinn 10 kílómetra frá heimilinu
og við værum örugglega að fara með svona 70 þúsund í bensín á mánuði
ef við ættum þennan jeppa, sem er bara rugl.“
Jeppinn var því settur á sölu 2009 og seldist eins og skot, enda sjö
manna útgáfa sem Guðríður segir með eftirsóttari týpum. Síðar hafi
komið upp aðstæður þar sem fjölskyldan þurfti á jeppa á halda á ferða-
lagi, en það hafi verið leyst með því að fá lánaðan bíl hjá vinafólki. „Svo
er líka hægt að leigja jeppa í einhverjar vikur á sumrin ef þarf,“ bætir hún
við og telur orðið lítið vit í að eiga svona bíl. „Ef þetta bilar þá eru bara
mánaðarlaunin farin.“
SÉR EKKI Á EFTIR BENSÍNHÁKNUM
ÁNÆGÐ MEÐ SKIPTIN Þótt jeppinn hafi verið lúxusbíll sér Guðríður Skagfjörð
Sigurðardóttir ekki eftir því að hafa skipt yfir í eyðslugrennri bíl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ár Fjöldi seldra bíla
2007 189
2008 105
2009 26
2010 15
2011 43
2012 84
➜ Smærri flutningabílar og skutlur
Heimild:
Unnið upp
úr gögnum
Umferðar-
stofu