Fréttablaðið - 02.02.2013, Síða 34
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Þið getið þekkt mig á rauða hárinu,“ segir Agnes Dís Brynjarsdóttir glað-lega í símanum áður en Fréttablaðs-fólk fer til fundar við hana á skauta-
svellinu í Egilshöll. Hún er þar á æfingu
ásamt tveimur öðrum stúlkum í Skauta-
félaginu Birninum og það er unun að fylgjast
með tilþrifum þeirra á ísnum. Eitthvað sem
minnir á sjónvarpsútsendingar frá vetrar-
ólympíuleikum – nema hvað nú eru lista-
mennirnir í návígi og ísinn er áþreifanlegur.
Keppir í Rúmeníu
Agnes Dís er 15 ára og keppir í flokknum
junior á Norðurlandamótinu í listskautum nú
um helgina. Fljótlega heldur hún til Brasov í
Rúmeníu á Ólympíuhátíð Evrópu æskunnar,
European Youth Olympic Festival, sem
verður haldin 17. til 22. febrúar. Hún er eini
keppandinn á skautum frá Íslandi og var
valin af Skauta sambandi Íslands. Hvoru-
tveggja eru stór mót en hún segir þau ólík
og enn skemmtilegra að taka þátt í þeim
fyrir vikið. „Ég er yngst í mínum flokki
af íslensku keppendunum á Norðurlanda-
mótinu og varð að vera í junior-flokki til að
eiga möguleika á að keppa á ólympíuhátíð
æskunnar.“
Lífið snýst um skautalistina hjá þessari
ungu stúlku, sem kveðst æfa tvo til þrjá
tíma á dag alla daga nema laugardaga. Oft-
ast eru æfingarnar síðdegis en minnst einu
sinni í viku þarf hún að vakna klukkan sex
á morgnana og drífa sig ofan úr Grafarholti
niður í Egilshöll. „Foreldrar mínir keyra
mig á morgnana en annars tek ég strætó á
æfingarnar,“ segir hún og upplýsir að for-
eldrar hennar séu Brynjar Helgi Ingólfs-
son viðskiptafræðingur og Kristín Halldóra
Halldórsdóttir. Systkini hennar, Halldór
Bjarki 11 ára og Ingunn María sex ára, hafi
bæði prófað að æfa skauta en æfi nú hand-
bolta og fótbolta. Sjálf hefur hún aðstoðað
við þjálfun yngstu krakkanna í Birninum
einu sinni í viku í vetur. Svo stundar hún
nám í Sæmundar skóla. En tefja ekki strang-
ar skauta æfingarnar fyrir lærdómnum?
„Nei, ekki ef ég skipulegg mig vel. Ég er
með góðar einkunnir,“ svarar hún eins og
ekkert sé eðlilegra.
Marblettir á skrítnum stöðum
Agnes Dís kveðst hafa stundað skauta-
íþróttina frá sex ára aldri. „Mamma lét mig
prófa svo ég gæti verið með vinum mínum
á skautum, eða gæti að minnsta kosti staðið
á skautum. Það var nú bara fyrsta mark-
miðið. Svo fannst mér svo ótrúlega gaman að
ég hélt áfram að æfa.“ Hún kveðst oft fara
í æfingabúðir á sumrin en þó reyna að fá
þriggja til fjögurra vikna frí yfir sumarið til
að vera með fjölskyldunni. Hvað finnst henni
svona skemmti legt við að skauta ? „Allt.
Þegar ég er á ísnum þá er alltaf gaman.
Ég hef líka eignast svo góðar vinkonur í
gegnum íþróttina,“ svarar hún og bætir
við. „Það eru ekki allir sem fá að æfa með
bestu vinkonum sínum og fara með þeim
til útlanda.“ En hefur hún ekki oft dottið og
meitt sig? „Jú, ég er með marbletti á skrítn-
ustu stöðum og einu sinni skallaði ég ísinn,
þá fékk ég vægan heilahristing.“
Agnes Dís kveðst oft hafa tekið þátt í
mótum áður og eiga orðið slatta af medal-
íum. Í nóvember 2011 hafi hún fengið brons
á belgíska meistaramótinu, sem sé besti
árangur hennar á alþjóðlegu stórmóti til
þessa. „Mér gengur oftast betur í útlöndum
en á Íslandi og finnst þægilegra að keppa
þar,“ segir hún og hlakkar til Rúmeníu-
ferðarinnar, þó að hún verði eina íslenska
skautastúlkan. „Ég keppi þar í tvo daga en
skíðakrakkarnir sem ég fer með keppa fleiri
daga svo við verðum í viku.“
Þriggja mínútna einkasýning
Um einstaklingssýningar er að ræða í list-
skautaíþróttinni. Hvaða kröfur skyldi Agnes
Dís þurfa að uppfylla til að fá að taka þátt í
þessum stóru keppnum? „Ég þarf að ná sér-
stökum stökkum og allt upp í þremur snún-
ingum. Ég er með rúmlega þriggja mínútna
einkasýningu við tónlist og inn í hana koma
öll stökk og allir snúningar. Í byrjun valdi
ég mér lag og þjálfarinn minn, sem er líka
danshöfundur, samdi dans við það. Það er
bresk kona sem heitir Clair Wileman og er
að gera góða hluti hér.“
Æfingarnar snúast ekki bara um skauta-
íþróttina sjálfa heldur kveðst Agnes Dís
yfirleitt fara í ballett, dans eða þrek æfingar
eftir æfingar á ísnum. „Þannig fáum við
alhliða þjálfun,“ útskýrir hún. En hvað ætlar
hún sér í framtíðinni í íþróttinni? „Mig lang-
ar mest á vetrarólympíuleika. Það er lang-
tímamarkmið. En fyrst er að komast á næstu
stórmót, hvert af öðru.“ Spurð hvort hún eigi
sér tilteknar fyrirmyndir svarar hún: „Það
er engin ein sérstök. Bara allar þessar sem
eru á toppnum í íþróttinni og keppa á heims-
meistaramótunum og Ólympíu leikunum. Ég
horfi talsvert á þær til að sjá hvernig þær
gera og reyna að læra af þeim.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Ólympíuleikar langtímamarkmið
Að svífa um svell, á öðrum fæti eða báðum, og skrúfa sig upp í snúninga í loftinu er list sem fáir hafa vald á. Það gerir
Agnes Dís Brynjarsdóttir, sem æfir með Skautafélaginu Birninum og er Íslandsmeistari stúlkna. Hún er nýorðin 15 ára
og yngst íslensku keppendanna í flokki 18 ára og yngri á Norðurlandamótinu í listskautum sem nú stendur yfir í Egilshöll.
STERK Á SVELLINU „Ég þarf að ná sérstökum stökkum og allt upp í þremur snúningum,“ segir Agnes Dís um þær kröfur sem til hennar eru gerðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
■ Var valin skautabirna Bjarnarins
árin 2010 og 2012.
■ Fékk brons á belgíska meist-
aramótinu í nóvember 2011
sem voru fyrstu verðlaun
Skautasambands Íslands á
alþjóðlegu móti.
■ Var í 9. sæti í Austur-
ríki í nóvember 2012.
■ Er núverandi Íslands-
meistari í stúlkna-
flokki A.
■ Var í 3. sæti á Reykja-
víkurleikunum í janúar
2013 og hefur áður verið
í 1., 2. og 3. sæti á Reykja-
víkurleikum.
■ Er að keppa í annað sinn
með landsliði Íslands á
Norðurlandamóti.
Hápunktarnir
Mamma lét mig prófa svo ég gæti verið
með vinum mínum á skautum, eða gæti að
minnsta kosti staðið á skautum. Það var nú bara
fyrsta markmiðið. Svo fannst mér svo ótrúlega
gaman að ég hélt áfram að æfa.
Agnes Dís er mjög hæfileikaríkur og
duglegur einstaklingur. Hún er eini íslenski
listskautarinn sem stekkur alltaf „tvöfaldan
Axel“ á mótum og er einnig eini íslenski
listskautarinn sem hefur náð að lenda
þreföldu stökki á mótum í sögu íslenskra
listskautakeppenda.
Helsti eiginleiki Agnesar er andlegur
styrkur hennar í erfiðum aðstæðum, þegar
mest á reynir. Með áframhaldandi viðleitni
mun hún halda áfram að bæta sig.
➜ Umsögn þjálfarans
Clair Wileman