Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 40
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40
Jú, enda erum við erum búin að vera í ströngum æfingabúðum, erum með danshöfund frá London, Lee Proud, og með honum er aðstoðarmaður hans, Anthony Whiteman. Þeir eru eiginlega búnir að vera með okkur
í „bootcamp“-þjálfun undanfarið til að
koma okkur öllum í form. Það er búið að
vera alveg æðislegt og ótrúlegt hvað maður
kemst í gott form af því að dansa allan dag-
inn. Og það besta er að maður gleymir því
eiginlega að þetta sé þjálfun því þetta er
svo gaman. Erfitt vissulega, en gaman.“
Það er nokkuð langt síðan þú hefur verið
í aðalhlutverki, hvað kom til? „Jú, það er
ansi langt síðan. Síðast var það í Chicago
2004. Ég lagðist í barneignir þarna um
tíma, en ég hef verið að leika ýmislegt þótt
það hafi ekki verið aðalhlutverk. Var í Fjöl-
skyldunni, Fanny og Alexander, Galdra-
karlinum í Oz og fleiri verkum. Svo var ég
í sjónvarpsþáttunum Rétti í tvær þáttarað-
ir, það er ekki eins og ég hafi sest í helgan
stein. Það er líka mjög fínt þegar maður er
með lítil börn að vera ekki með heilu sýn-
ingarnar á herðunum, þannig að ég kvarta
ekki. Mér þykir vænt um þessi hlutverk og
þau hafa þroskað mig sem leikkonu þótt þau
séu ekkert aðal aðal.“
Þú ert líka menntuð í söng? „Jú, söng og
píanóleik. Og frönsku reyndar. Maður var
svolitla stund að finna sig og ákveða hvað
maður vildi gera. En ég er svo heppin að ég
get sameinað þetta allt í leiklistinni.“
Þannig að það var alltaf stefnan að fara
út í sjóbisness? „Áhugi minn lá þar, já. Ég
hef aldrei getað séð mig fyrir mér í ein-
hverri skrifstofuvinnu frá níu til fimm.
Sköpunarþráin verður að fá útrás.“
Nú ertu heldur betur komin í þá stöðu
að vera með heila sýningu á herðunum,
hvernig leggst það í þig? „Bara vel. Þetta er
alveg geðveikur hópur. Gói leikur Bert og
við náum rosavel saman og reyndar allur
hópurinn. Þetta eru mjög skemmtilegar
rullur, þeir kunna þetta þarna hjá Cameron
Mackintosh.“
Agi, gleði og kærleikur
Lastu bækurnar um Mary Poppins þegar
þú varst lítil? „Nei, ég las þær ekki þá en í
haust, þegar það var ljóst að ég yrði Mary,
las ég þær og er líka nýbúin að horfa aftur
á myndina. Ég er alveg hörð á því að söng-
leikurinn er mun skemmtilegri en hún. Það
eru þarna bæði ný lög og nýir karakterar og
mér finnst hann halda mun betur. Ég sóna
til dæmis alveg út á einum stað í myndinni,
það geri ég ekki lengur.“
Þessi karakter, Mary Poppins, á hann
eitthvert erindi við krakka í dag? „Heldur
betur. Mary Poppins er fjölskylduþerap-
isti, alveg ofsalega skemmtilegur karakt-
er. Hún er svo með‘etta og efast aldrei um
eigið ágæti. Hún er með lausnina og ef
fólk bara hlustar á hana og hlýðir henni
verður allt í lagi. Hún efast ekki um það í
eina sekúndu. En hún er líka að reyna að
hjálpa, hún kemur þarna til að hjálpa þess-
ari fjölskyldu til að átta sig á hlutunum
og hjálpa sér sjálf. Hún er miklu meira
en bara barnfóstra fyrir börnin, það hafa
allir á heimilinu mjög gott af því að hlusta
á hana. Hún kennir fólki hvað það er sem
gefur lífinu gildi. Það er að hlusta á hjarta
sitt og sinna fjölskyldunni. Lífið snýst ekki
um vinnuna, lífið er fjölskyldan. Eitt lagið
sem hún syngur heitir „Allt er hægt bara
ef þú trúir á það“ og boðskapurinn er að við
eigum að elta drauma okkar, ekki láta strit-
ið og hversdagsleikann gleypa okkur. Mér
finnst það góður boðskapur, allavega fyrir
mig. Maður sér það alltaf betur og betur
eftir því sem maður eldist að það er það
sem skiptir máli. Maður fær engin verðlaun
þegar ævikvöldið er næstum búið fyrir að
hafa verið duglegur að mæta í vinnuna og
staðið sig vel þar.“
Hún er samt að mörgu leyti mjög ströng?
„Já, hún er með mjög strangan ramma, er
mjög „prim and proper“ enda finnst henni
hún vera hálfkonungborin. Hún beitir
miklum aga en að sama skapi leggur hún
áherslu á kærleikann og gleðina.“
Finnst þér vanta agann í uppeldi á börn-
um í dag? „Já, eflaust. Við mættum alveg
standa okkur betur þar. Maður sér þetta
svo greinilega á þessu æfingaferli þar sem
danshöfundurinn kemur úr bresku leik-
húslífi þar sem ríkir rosaleg samkeppni og
mikill agi. Við erum búin að læra mikið af
honum. Og eflaust megum við taka okkur
á í agamálum. Börn vilja aga og við sýnum
þeim væntumþykju okkar ekki síst með því
að halda honum. En auðvitað verður kær-
leikurinn og ástin að vera aðalatriði. Maður
verður að elska börnin en þau þurfa líka
reglu og aga. Ég finn það svo vel á mínum
strákum að þeir eru ómögulegir ef það er
ekki regla á hlutunum.“
Eru strákarnir þínir búnir að koma á
æfingu og fá að sjá? „Nei, en þeir kunna
flest lögin og leiðrétta mig hiklaust ef ég
er eitthvað að rugla með textann. Þeir
eru fimm og sjö ára og alveg með þetta á
hreinu. Svo kemur í ljós hvað þeim finnst
þegar þeir sjá sýninguna. Þetta er nefni-
lega líka pínu hræðilegt og ýmsir hlutir
sem kannski hræða suma af yngri kynslóð-
inni. En það er alltaf gaman að láta hræða
sig. Þetta er líka fjölskyldusýning og ekkert
síður hugsuð fyrir fullorðna þannig að það
verður að vera svona blanda af öllu.“
Er bara hamingjusöm, sorrí
Þú varst mjög virk í tónlistarlífinu á tíma-
bili, dugleg að halda tónleika og gafst út
plötu. Er sá ferill alveg í salti? „Já, hann er
pínu í salti núna, það er svo mikið að gera í
leikhúsinu. Enginn tími fyrir sönginn. Það
kemur bara seinna.“
Söngleikir hafa ekki verið hátt skrifaðir
hjá leikhúselítunni, kanntu skýringu á
því? „Það hefur alltaf verið dálítið ástar-/
haturssamband milli leikhúsfólks og söng-
leikja. Ég skil ekki alveg hvers vegna. Mér
finnst spurningin bara snúast um gott leik-
hús eða slæmt leikhús, burtséð frá form-
inu. En fólk tekur sterkari afstöðu gagnvart
söngleikjum, það annaðhvort hatar þá eða
elskar, ekkert þar á milli. Ég hef alltaf fílað
söngleiki enda alin upp við þá. Pabbi minn
fílaði söngleiki alveg í botn og tók mig með
sér á allar sýningar hér. Söngleikurinn er
alveg ákveðin týpa af leikhúsi og það þarf
rosalega fagmennsku til að gera góða söng-
leikjasýningu. Ég væri stundum svo til í að
lífið væri bara eins og söngleikur, maður
gæti bara sungið sig í gegnum erfiðleikana
og dansað nokkur spor og allir yrðu æðis-
lega glaðir.“
Þú hefur ekki tekið svona dag heima hjá
þér þar sem er bannað að eiga samskipti
öðruvísi en syngjandi? „Nei, ég hef ekki
gert það heima, en við lékum okkur einu
sinni að þessu ég og Ragga Gísla þegar við
lékum saman í Kysstu mig Kata. Við fórum
út að borða einhvern tíma eftir sýningu
og tókum þann pól í hæðina að það mætti
ekki tala, bara syngja, það sem eftir væri
kvölds. það var mjög skemmtilegt kvöld.
Við vöktum dálitla athygli á veitingahúsinu
reyndar, en sem betur fer var þetta seint
um kvöld og allir bara frekar „tjillaðir“.“
Það er náttúrulega enginn tími eða orka
afgangs til að vera í einhverju öðru í vetur?
„Nei, þetta er eina sýningin sem ég er í.
Þetta kostar mikla einbeitingu og það er
mjög gott að þurfa ekki að dreifa fókusn-
um. Samt er það nú þannig að ég hef sjald-
an verið með meiri orku en akkúrat núna
þegar ég er að æfa eins og bestía. Ég hef
nóga orku þegar ég kem heim til að skella
í nokkrar vélar, svæfa strákana og svona.
Mér hefur eiginlega aldrei liðið betur.“
Það er að verða krafa í svona viðtölum að
viðmælandinn komi með einhverjar krass-
andi uppljóstranir um líf sitt, áttu eitthvað
slíkt í handraðanum? „Nei, sorrí, það er
bara ekkert krassandi við mitt líf. Ég er
bara hamingjusöm og líður vel á öllum svið-
um. Fólk verður bara að sætta sig við það.“
Sorrí, það er bara ekkert
krassandi við mitt líf. Ég er bara
hamingjusöm og líður vel á öllum
sviðum. Fólk verður bara að sætta
sig við það.
Vildi að lífið væri söngleikur
Jóhanna Vigdís Arnardóttir æfir nú á fullu hlutverk Mary Poppins í samnefndum söngleik. Hún hefur ekki verið í
aðalhlutverki síðan hún lék Elmu K í Chicago um árið, þar sem hún vakti meðal annars athygli fyrir að vera í fantaformi
líkamlega. Krefst hlutverk Mary Poppins ekki álíka líkamsræktar?
ORKUBÚNT Jóhanna Vigdís segist aldrei hafa verið orkumeiri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HELSTU HLUTVERK JÓHÖNNU VIGDÍSAR Í BORGARLEIKHÚSINU
2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
Kryddlegin hjörtu
2001-002
Chicago
2003-2004
Söngvaseiður
2008-2009
Fólkið í blokkinni
2008-2009
Fjölskyldan
2009-2010
Nei Ráðherra
2010-2011
Enron
2010-2011
Ofviðrið
2010-2011 Bastarðar2011-2012
Galdrakarl-
inn í Oz
2011-2012
Fanný og
Alexander
2011-2012
Mary
Poppins
2013-
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is