Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 42
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
➜ The Crow
Hinn spænski Francisco
Javier Gutiérrez leikstýrir
endurgerð þessarar goð-
sagnakenndu kvikmyndar,
sem er því miður frægust
fyrir það að hafa verið
síðasta mynd ungstirnisins
Brandons Lee, en hann
lést af völdum voðaskots
við gerð myndarinnar.
Gamla myndin, sem
kom út árið 1994, er byggð
á samnefndri teiknimynda-
sögu og því er viðbúið að
púritanar mótmæli því að
um endurgerð sé að ræða.
Það verður forvitnilegt að
sjá hver þorir að taka að
sér titilhlutverkið.
Rótað í safnhaugnum
Sitt sýnist hverjum um þráhyggju Hollywood fyrir endurunnu efni. Af nógu er að
taka á endurvinnsluplani ársins 2013, en sumt af því gæti orðið áhugavert. Undan-
farin ár hefur það færst í vöxt að endurgera gamlar kvikmyndir í Hollywood og á
þessu ári munu mýmargar slíkar líta dagsins ljós. Sumar eru enn á teikniborðinu
en aðrar eru tilbúnar og bíða frumsýningar. Hér gefur að líta það helsta sem fram
undan er, en vert er að taka fram að listinn er alls ekki tæmandi.
The Birds, Poltergeist, Scarface,
Police Academy, The Blob, Child‘s
Play, RoboCop, Videodrome, Point
Break, Westworld, Suspiria, The
Rocky Horror Picture Show, Lethal
Weapon og Dirty Dancing.
AÐRAR KVIKMYNDIR
Á LEIÐ Í
ANDLITSLYFTINGU
Haukur Viðar Alfreðsson
haukur@frettabladid.is
➜ Carrie
Við fyrstu sýn virðist það óðs manns æði að ætla að endurgera
þessa klassísku hrollvekju leikstjórans Brians De Palma frá árinu
1976. Hún var byggð á bók hryllingsmeistarans Stephens King, og
er að mati höfundarins, besta kvikmynd byggð á sögu eftir hann.
Endurgerðinni stýrir Kimberly Peirce, sem er líklega þekktust
fyrir hina frábæru Boys Don‘t Cry, en það er Chloë Grace Moretz
sem fer með aðalhlutverkið og Julianne Moore sem leikur
snælduklikkaða móður hennar.
Myndin er tilbúin og er væntanleg í mars.
➜ Man of Steel
Saga Ofurmennisins verður
endursögð frá byrjun í Man of
Steel en sennilega er það svindl
að tala um hana sem Superman-
endurgerð. Hún fellur frekar í
hinn svokallaða „reboot“-flokk,
þar sem sígildar seríur byrja upp
á nýtt.
Höfum hana samt með til
gamans, enda er hún tilbúin og
verður frumsýnd næsta sumar.
➜ Evil Dead
Hin hræódýra en klassíska hroll-
vekja The Evil Dead, sem kom út
árið 1981, verður nútímavædd
í ár.
Það er leikstjórinn Fede
Alvarez frá Úrúgvæ sem heldur á
spöðunum hér. Sam Raimi, leik-
stjóri upprunalegu myndarinnar,
er einn af framleiðendum endur-
gerðarinnar.
Myndin verður frumsýnd í
apríl, en einkar óhugguleg stiklan
bendir til þess að myndin verði
jafnvel blóðugri en forverinn.
➜ Oldboy
Það er enginn annar en Spike Lee sem ætlar að tækla endurgerð suður-
kóresku myndarinnar Oldboy frá árinu 2003.
Sú var reyndar byggð á japanskri teiknimyndasögu og sannast hið
fornkveðna enn og aftur að ekkert er nýtt undir sólinni.
Oldboy er væntanleg í október.
➜ Maniac
Það þekkja ekki margir hrollvekj-
una Maniac frá 1980 enda flaug
hún ekki hátt. Hún varð fljótlega
költmynd og nú er það hinn
snoppufríði Elijah Wood sem fer
með aðalhlutverkið.
Myndin segir frá geðsjúkum
morðingja sem hefur sérstaka
unun af því að skera höfuðleðrið
af fórnarlömbum sínum. Ekki
beint fyrirsjáanlegt hlutverk fyrir
Wood, en við skulum gefa honum
séns.
Myndin kom reyndar út í fyrra,
en hún ratar hingað til lands í
mars.
➜ The Secret Life of Walter Mitty
Ben Stiller fór sennilega ekki fram hjá neinum
síðasta sumar þegar hann var staddur hér á landi
við tökur kvikmyndarinnar The Secret Life of
Walter Mitty.
Stiller leikstýrir myndinni og leikur aðalhlut-
verkið, en myndin er byggð á smásögu frá árinu
1939, sem var kvikmynduð árið 1947.
Fyrirhuguð frumsýning er um næstu jól.
➜ American Psycho
Fyrir mörgum er eins og kvikmyndin American Psycho hafi komið út í
fyrra. Í ár eru þó þrettán ár liðin frá frumsýningu hennar og nú er ný mynd
í vinnslu eftir þessari hrottalegu skáldsögu.
Gefið hefur verið í skyn að nýja myndin verði myrkari og groddalegri
en sú gamla, en hún hefur elst frábærlega og er jafn fyndin og hún er
hryllileg.
Nauðsynlegt er þó að kveikja á fyrirvaranum, því hótanir um þessa
endurgerð hafa margsinnis verið gerðar.
CARAT • Haukur gullsmiður Smáralind • www.carat.is • sími 577 7740
TILBOÐSDAGAR Í
40% afsláttur af öllum skartgripum
Fimmtudag — mánudags