Fréttablaðið - 02.02.2013, Síða 44
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
LÍFSREYNDUR
„Skemmtilegast fyrir
alka er náttúrlega að
drekka, finna á sér og
að allt verði gott. Það
er það eina sem alkinn
sækist eftir. Verst er svo
baráttan við Bakkus,
þegar ekki er hægt að
stoppa og allt verður
vont,“ segir Marteinn
um líf alkóhólistans.
Hann ætlar að vinna
í húsi fjölskyldunnar í
Hveragerði um helgina,
en hún flutti þangað fyrir
nýliðin jól.
MYND/VALLI
Það er öllum hollt að skella sér í partí með þingmanninum Leifi Sigurðarsyni; ekki síst þeim sem
bera ábyrgð á þjóðfélagsmálunum. Í
geiminu fá þeir hvatningu til að líta sér
nær og útvíkka sjóndeildarhringinn for-
dómalaust,“ segir Marteinn um áhrif
kvikmyndar sinnar XL á áhorfendur.
XL tekur á örlagakafla í ævi þing-
manns sem er skikkaður í vímuefna-
meðferð. Myndin er að stórum hluta
pólitísk ádeila og veltir upp hversu
langt er hægt að láta hlutina ganga í
óheilbrigðu samfélagi.
„Persóna Leifs er samsett úr venju-
legum Íslendingi í bland við fjóra ís-
lenska stjórnmálamenn sem eru veikir
af áfengissýki og gegna valdamiklum,
opinberum embættum,“ útskýrir Mar-
teinn, sem vill ekki gefa upp nöfn ráða-
mannanna sem um ræðir. „Ég velti fyrir
mér hvaða, og hversu margar, ákvarð-
anir hafa verið teknar í glasi af fyrir-
mennum þessa lands. Þær eru nokkuð
margar enda ótal margt í samfélagi
okkar sem er gegnsýrt af alkóhólisma,
meðvirkni, feluleikjum og afneitun.“
EINN FYRIR SVEFNINN
Marteinn er sjálfur alkóhólisti en hefur
ekki snert áfengi í hartnær fjögur ár.
„Ég held ég hafi fæðst alki. Fyrir
mig var áfengi eins og geðlyf sem róar
hugann og veitir vellíðan. Yngri hef ég
líklega verið ofvirkur og með endalaus-
ar hugsanir sem ekki tókst að slökkva á.
Þá var gott að fá sér einn fyrir svefninn
og síðan meira til að geta sofið. Mér
óx enda mest í augum að takast á við
svefnleysi ef ég hætti drykkju og drakk
mig í frekar svefn en að bryðja svefn-
töflur,“ segir Marteinn og brosir.
Marteinn er fæddur í Reykjavík en
ólst upp að mestu í Mosfellsbæ. Hann
fékk ungur myndavéladellu og segist
vera bókasafns- og kvikmyndanörd.
„Afi og mamma unnu bæði í Hafnar-
bíói þar sem ég sat löngum og horfði á
bíómyndir. Eftir stúdentspróf hélt ég til
náms í kvikmyndagerð í Toronto,“ út-
skýrir Marteinn, sem er eini Íslendingur-
inn sem hefur átt mynd í fullri lengd í
aðalkeppni Sundance-kvikmyndahátíðar
stórleikarans Roberts Redford.
„Ég byrjaði í Hollywood og vann
mig upp til Íslands, öfugt við Baltasar,“
segir Marteinn og vísar til kvikmyndar-
innar One Point O sem var framleidd í
Hollywood og kom honum á heimslista
Variety yfir tíu bestu leikstjórana sem
vert væri að fylgjast með árið 2004.
„Hugmyndin að XL kviknaði þegar
ég leikstýrði Roklandi og leikarana Ólaf
Darra og Elmu Lísu langaði gera mynd
eða leikrit um alkóhólista. Ég lét hug-
myndina marinerast um hríð og upp-
hafið af XL varð stuttmyndin Promil,
sem fór á margar kvikmyndahátíðir og
fékk fína dóma,“ útskýrir Marteinn sem
í framhaldinu þótti gráupplagt að gera
kvikmynd í fullri lengd um persónu-
lega reynslu sína sem alki í bland við
reynslu og sögur annarra.
NÖTURLEGT STÓÐLÍFI
„XL er meira og minna öll séð frá sjón-
horni fulla karlsins. Í henni býð ég
áhorfendum í villt partí og fyllerí án
þess að þurfi að toga tappa úr flösku.
Sumir finna á sér yfir myndinni á meðan
öðrum, með siðferðiskenndina í lagi,
blöskrar það sem fyrir augu ber,“ segir
Marteinn um XL, sem er stranglega
bönnuð innan sextán ára.
„Partí nú til dags minna á Rómarveldi
til forna. Allt sem sést í myndinni hef
ég lent í sjálfur eða veit að hefur gerst.
Partíið er dæmigert fyrir þá sem lifa og
hrærast í áfengi og vímuefnum. Í þeim
verður niðurbrot siðferðis allsráðandi
og það á ekki bara við um fylleríið sjálft
heldur líka daginn eftir þegar þing-
maðurinn samþykkir lög sem hann veit
að eru ekki góð fyrir fólkið í landinu.“
Marteinn segir XL taka á erfiðum
hlutum en þó ekki dvelja við þá enda
sé myndin á stöðugri hreyfingu áfram.
„Sumir gætu viljað upplifa svallveislur
eftir að hafa séð myndina en langflesta
ekki. Ég vildi alls ekki búa til glansmynd
af stóðlífi eða hvetja til ólifnaðar heldur
gera nöturlega og kröftuga mynd sem
lifir lengi í manna minnum, skapar
umræður og fær fólk til að hugsa. Það
er heldur ekkert gaman að stóðlífi til
lengdar og til heilu heimspekiritin um
meðfylgjandi niðurbrot á siðferði og
sálarlífi þess sem það stundar,“ segir
Marteinn og saknar þess ekki að sækja
villt partí alkanna.
„Mér finnst gaman að vera innan
um fólk, bjóða í matarboð og fara í
veislur en á endaferli alkans kaus ég að
einangra okkur flöskuna á kojufylleríi.
Partíin urðu beinlínis leiðinleg.“
■ thordis@365.is
DRAKK SIG Í SVEFN
DJAMM OG DJÚS Leikstjórinn Marteinn Þórsson býður nú fulltíða
landsmönnum í villt partí, rússíbanareið stóðlífis og drykkjusvall í bíó.
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð 40.000
Höfðagaflar 5.000
Sjónvarpsskápar 25.000
Rúm 153cm 157.000
Púðar 2.900
Vín
Torino
Fjarstýringavasar 2.500
Hægindastólar 99.000
Tungusófar 75.400
Hornsófar 119.450
Sófasett 99.900
Mósel
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
SVALL Í BÍÓ
„Í XL býð ég
áhorfendum í villt
partí og fyllerí
án þess að þurfi
að toga tappa úr
flösku. Sumir finna
á sér yfir myndinni
á meðan öðrum,
með siðferðis-
kenndina í lagi,
blöskrar það sem
fyrir augu ber.“
Lúxusferð með íslenskri fararstjórn sem sameinar hinn klassíska
gullna þríhyrning og ævintýralega fegurð Nepal. 16 daga ævintýri
Upplýsingar í síma 562 0737
eða á www.sunnuferdir.is
*Á mann miðað við 2 í herbergi
Páskaferð 25. mars - 495.000*
hlustið - trúið - hlýðið
HARMAGEDDON