Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 62

Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 62
| ATVINNA | THE SCANDINAVIA-JAPAN SASAKAWA FOUNDATION AUGLÝSING UM STYRKI Íslandsdeild Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation veitir á árinu 2013 nokkra styrki til að efla tengsl Íslands og Japans. Styrkirnir eru veittir til verkefna í samstarfi eða í tengslum við japanska aðila. Veittir eru m.a. ferðastyrkir, námsstyrkir og styrkir til skammtímadvalar í Japan. Allar upplýsingar um umsóknarferlið er að finna á heimasíðu Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation, www.sjsf.se Fyrir hönd fulltrúa Íslands í stjórn Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation, tekur ritari Íslandsdeildar, Björg Jóhannesdóttir, við umsóknum og veitir allar frekari upplýsingar, bjorgmin@gmail.com, sími: 820-5292. Umsóknarfrestur rennur út 1. mars 2013. Framlag til menningarsamstarfs milli Noregs og Íslands Norsk stjórnvöld leggja árlega til framlag til norsks- íslensks menningarsamstarfs. Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi milli Noregs og Íslands. Umsækjendur skulu senda umsóknir til Norsk kulturråd, norsk-islandsk kultursamarbeid, Postboks 8052 Dep, N-0031 Oslo eða á netfangið post@kulturrad.no • Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á norsku, dönsku eða sænsku. • Umsóknarfrestur um styrki rennur út þann 1. mars nk. Nánari upplýsingar er að finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis: menntamálaráðuneyti.is Auglýsing frá Menningarsjóði Íslands og Finnlands Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina. Styrkir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráðstefnur koma að jafnaði ekki til greina. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum fyrir tímabilið 1. júní 2013 - 31. maí 2014 rennur út þann 28. febrúar 2013. Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin fyrir lok maí nk. Athygli er vakin á að nú er einungis hægt að sækja um rafrænt á www.hanaholmen.fi. • Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku. • Fyrirspurnir má senda á: fonderna@hanaholmen.fi. Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands, 31. janúar 2013 Auglýsing vegna úthlutunar byggða- kvóta á fiskveiðiárinu 2012/2013 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 628, 13. júlí 2012 Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunar- reglna í neðanskráðu byggðalagi sbr. auglýsingu nr. 86/2013 í Stjórnartíðindum: Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir: Breiðdalshrepp (Breiðdalsvík) Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2013. Fiskistofa, 1. febrúar 2013. Framkvæmdasjóðurinn styrkir verkefni sem uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum: 1. Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferða- mannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum. 2. Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamanna- stöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila. 3. Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferða- mannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum. Áherslur og ábendingar til umsækjenda: 1. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða. 2. Framlög eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi. 3. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði. 4. Við yfirferð umsókna er tekið mið af gæðum og trúverðugleika umsókna, mikilvægi verkefnis m.t.t. markmiða Framkvæmdasjóðsins og Ferða- málaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiða, nýnæmis ofl. 5. Áherslur Framkvæmdasjóðsins er varða skipulag og hönnun, útlit og gæði mannvirkja og merkinga koma m.a. fram “Menningarstefnu í mannvirkjagerð”, leiðbeiningarritinu „Góðir staðir“ og „Handbók um merkingar á ferðamannastöðum og friðlöndum”. Sjá nánar á umsóknasíðu. Allar umsóknir skulu innihalda: a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti. b. Kostnaðar- og verkáætlun c. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða til annarra framkvæmda þá verður deiliskipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir. d. Ef sótt er um styrk til skipulags- og hönnunar- vinnu eða undirbúningsrannsókna þá verður að fylgja skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags. e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila Hverjir geta sótt um: Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Hvar ber að sækja um: Umsóknareyðublöð er að finna á vef Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is á sérstakri umsóknasíðu. Þar eru jafnframt leiðbeiningar um hvernig skal sækja um. Umsóknarfrestur: Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2013. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500 eða með vefpósti. sveinn@ferdamalastofa.is. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum árið 2013. ICELANDIC TOURIST STOFA BOARD Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Iceland | Sími/Tel +354 535 5500 | Fax +354 535 5501 Strandgata 29 | 600 Akureyri | Iceland | Sími/Tel +354 535-5510 | Fax +354 535 5501 FRAMKVÆMDASJÓÐUR FERÐAMANNASTAÐA AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI H ön n u n : P O R T h ön n u n 2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR16
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.