Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 72

Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 72
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 Kjarvalsstaðir voru opnaðir 24. mars árið 1973, fyrir 40 árum. Safnið, sem Hannes Kr. Davíðs-son arkitekt hannaði og hafði verið í byggingu síðan 1966, markaði vatnaskil í íslenskri lista- sögu og menningarlífi því þetta var fyrsta byggingin á Íslandi sem var sérstaklega hönnuð fyrir myndlist. Listasafn Reykja- víkur heldur upp á tímamótin með veg- legum hætti. Í dag opnar á Kjarvalsstöðum afmælissýningin Flæði, þar sem öll málverk í eigu Listasafns Reykjavíkur eru til sýnis. „Þetta er heilmikil og óvenjuleg sýning,“ segir Hafþór Yngvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. „Við brutum dálítið heilann um hvernig best færi á að minnast þessara tímamóta. Við vildum ekki fara þá leið að draga fram einhverjar útvaldar ger- semar heldur endurspegla safnkostinn sem best. Að lokum duttum við niður á þá lausn að draga allt fram úr geymslunum og setja upp sýningu með öllum verkum í eigu Lista- safns Reykjavíkur.“ Yfir þúsund verk á sýningunni Verkin á sýningunni eru um þúsund talsins og segir Hafþór þetta tvímælalaust vera langumsvifamestu myndlistarsýningu sem haldin hefur verið hér á landi. Það gefur augaleið að öll verkin rúmast ekki fyrir í safninu í einu. „Sýningin heitir Flæði og dregur nafn sitt af því að hún verður í stöðugri uppfærslu,“ segir Hafþór. „Um leið og salurinn er orðinn fullur hefjast tveir menn handa við að taka þau verk sem fóru fyrst upp niður og setja önnur í þeirra stað. Þannig tekur sýningin sífelldum breytingum og flæðir áfram. Stundum er sagt að maður stígi aldrei tvisvar í sömu ána. Á sama hátt má segja að þeir sem koma nokkrum sinnum á Flæði sjái aldrei sömu sýninguna.“ Hafþór segir að markmiðið með Flæði þúsund málverka Kjarvalsstaðir fagna 40 ára afmæli í ár. Á afmælissýningunni Flæði, sem hefst á Kjarvalsstöðum í dag, verða öll málverk í eigu Listasafns Reykjavíkur til sýnis og á afmælisdaginn stendur til að allur safnkostur þess verði aðgengilegur á netinu. ➜ Birgir Ísleifur Gunnarsson borgarstjór opnaði Kjarvals- staði við hátíð- lega athöfn árið 1973. Hann endur- tekur leikinn í dag þegar hann opnar afmælis- sýninguna Flæði. Hér er hann ásamt Kristjáni Eld- járn, forseta Íslands. Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT FRAM FLÆÐIR Alls verða um þúsund verk í eigu Listasafns Reykjavíkur sýnd á sýningunni Flæði, sem hefst í dag. Til að koma öllum myndunum að verður sýningin í stöðugri uppfærslu og tekur því sífelldum breytingum. Hafþór Yngvason, forstöðumaður safnsins, segir mikilvægt að öll verk í eigu safnsins fái tækifæri til að koma fyrir augu almennings, óháð mikilvægi þeirra í listasögunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR sýningunni sé jafnframt að minna á að Listasafn Reykjavíkur sé ekki bara sýningar rými heldur safn, eins og heiti þess beri með sér. „Það eru fjöldamörg verk sem hafa kom- ist í eigu safnsins með einum eða öðrum hætti sem koma sjaldan eða aldrei fyrir sjónir almennings. Sum þeirra eru mikil- væg verk, sannkallaðar þjóðargersemar. Önnur spanna allan skalann; eftir sumum er jafnvel lítil eftirspurn en það er samt mikil- vægt að draga þau fram og gefa fólki tæki- færi til að sjá þau. Það er líka mikilvægt fyrir okkur á safninu að sjá öll þessi verk hangandi uppi á vegg.“ Safnkosturinn aðgengilegur á netinu Auk afmælissýningarinnar stendur til að gera öll verk Listasafnsins aðgengileg á net- inu á sjálfan afmælisdaginn, 24. mars. „Þetta er mjög stórt verkefni sem við höfum unnið að í fjögur ár með það að markmiði að það yrði tilbúið á 40 ára afmæli safnsins,“ segir Hafþór. „Við feng- um Evrópustyrk til að ráða manneskju í að ljósmynda öll verkin, mæla þau upp og leita og skrá niður upplýsingar. Við höfum líka látið skanna inn sýningarskrár allra þeirra sýninga sem haldnar hafa verið síðan 1973, alls um 900 talsins, en ég hef ekki tölu á blaðsíðunum. Það er mikill akkur í þessu því Kjarvalsstaðir hafa gegnt lykil hlutverki í sýningarsögu Íslands. Þetta hefur verið feikilega mikil vinna en þess fyllilega virði, því í fyrsta sinn verður allur safnkostur Listasafns Reykjavíkur aðgengilegur almenningi.“ Aðstæður hafa breyst frá því að Kjarvals- staðir voru opnaðir. Fleiri listasöfn hafa risið og mýmörg sýningarrými má finna víða um borg og land. Hafþór segir Kjar- valsstaði hins vegar haldið gildi sínu. „Aðeins nokkrum árum eftir að Kjar- valsstaðir risu var húsið orðið mjög mikil- vægt í byggingarlegu samhengi og mjög vel heppnað sem listasafn. Þetta er frábær sýn- ingarsalur fyrir málverk og höggmyndir en erfiðari fyrir samtímalist á borð við inn- setningar. Hlutverkaskiptingin hefur líka orðið þannig að Hafnarhúsið er vettvangur fyrir samtímalist og tilraunastarfsemi en á Kjarvalsstöðum erum við meira að skoða söguna með yfirlitssýningum. Ég held að Kjarvalsstaðir hafi enn þá mikið gildi, enda er safnið er fjölsótt og vinsæll sam- komustaður. Hljómburðurinn er líka fyrsta flokks og það er vinsæll tónleikastaður. Og síðast en síst eru reglulegar sýningar á verkum Kjarval, sem eitt og sér hefur mikið gildi.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.